Morgunblaðið - 14.07.1988, Qupperneq 54
54
MORGÚNBLAÐH) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988
íÞfómR
FOLK
■ ■ EINTRACHT Frankfurt
hefur afráðið að selja ungverska
leikmanninn Lajos Detari til gríska
liðsins Piraeus. Framkvæmdastjóri
Eintracht, Wolfgang Kraus, sagði
að ástæðan fyrir þessari sölu væri
sú að félagið vantaði peninga. Sölu-
verðið fyrir Detari var hins vegar
ekki uppgefið, en áræðanlegar
heimildir eru fyrir því að hann hafí
verið seldur á 12 milljónir dollara
(552 milljónir íslenskar krónur) og
er það hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir nokkum leikmann
■ PATNEVINskoski landsliðs-
maðurinn hjá Chelsea er ekki falur
fyrir neina smáaura. Everton hafði
boðið 300.000 pund fyrir hann, en
verðið sem Chelsea setti upp var
öllu hærra, eða 1700.000 pund. Það
varð því að grípa til þess að fá hlut-
læga aðila til að fjalla um málið
og komust þeir að þeirri niðurstöðu
að rétt verð fyrir hann væri 925.000
sterlingspund, sem er u.þ.b. 72
milljónir íslenskar. Þeir hjá Ever-
ton verða því að bijóta odd af of-
læti sínu eigi þeir að fá hann í sínar
raðir.
■ BRASILÍUMENN fór létt
með að sigra Saudi Arabíu á Astr-
alíuleikunum í knattspyrnu. Gio-
vani hamraði knöttinn tvívegis í
netið í fyrri hálfleik úr vítaspyrnum
og þeir Jorginho og Edmar bættu
tveimur mörkum við áður en 50
mínútur voru liðnar af leiknum.
Majed Abdullah minnkaði svo
muninn í þijú mörk með marki á
65. mínútu. Brasilía er í efsta sæti
á mótinu, með 5 stig.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Helga sigraði í Dublin
Hljóp 400 m grindahlaup á 57,70 sem er undir ólympíulágmarkinu í þessari grein
HELGA Haildórsdóttir úr KR sigraði í 400
m grindahlaupi á sterku frjálsíþróttamóti
í Dublin í írlandi í fyrra kvöld. Hún hljóp á
57,70 sek. sem er hennar næst besti
árangur og er undir ólympíulagmarkinu í
greininni.
Helga á íslandsmetið sem er 57,53 sek og
var sett í fyrra. Þessi árangur hennar lofar
því góðu fyrir Olympíuleikana í Seoul í septem-
ber. Helga hafði mikla yfirburði í hlaupinu var
sekúndu á undan Jane person frá Bretlandi sem
var önnur. Þriðja var Barbara Johnson frá írl-
andi á 59,10 sek.
„Þetta er mjög góður árangur hjá Helgu. Hún
hefur verið að bæta sig og þessi árangur lofar
góðu um framhaldið," sagði Guðmudur Karlsson,
landsliðsþjáflari FRÍ, í samtali við Morgunblaðið.
Þordís Gísladóttir keppti í hástökki og sigraði,
stökk 1,80 metra. Oddur Sigurðsson keppti einn-
ig á mótinu í 400 m hlaupi, en var ekki einn
af þremur efstu.
Mesta athygli vakti 1500 m hlaupið. Ólympíu-
meistarinn .Sebastian Coe, átti rétt um 450
metra ófama í mark þegar hann varð að hætta
keppni vegna þess að hann fann fyrir verkjum
í öðrum kálfanum. Sigurvegari í hlaupinu var
John Walker frá Nýja Sjálandi og hljóp hann
vegalengdina á 3:41,23 mínútum. Coe sagði að
sér hefði þótt vissara að hætta keppni, því það
væri aldrei að vita hversu alvarlegt svona lagað
gæti verið. Hann stefnir nú ótrauður að því að
vinna sína þriðju gullmedalíu á Ólympíuleikunum
í Seoul, en ekki er ennþá vitað hvort meisli þessi
eiga eftir að hindra æfingar hans og koma í veg
fyrir það.
Helga Halldórsdóttlr er að komast í góða
æfíngu. Hún hljóp undir ólympíulágmarkinu í
400 m grindahlaupi í Dublin.
.SjpíS*"''
Helga Halldórsdóttir
Fædd: 22.04.1963.
Hæð: 1,76
Þyngd: 60 kg
Félag: KR og Track Club Kalifomíu.
Aðalgrein: 400 m grinarhlaup.
Framfarir í 400 m grinarhlaupi: 1983: 61,7
1984: 60,74, 1985: 58,44, 1986: 57,64, 1987
57,53.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Verður sigurganga Fram stöðvuð?
Fram mætir íslandsmeisturum Vals að Hlíðarenda í kvöld
Pótur Ormslev, fyrirliði Fram, er
bjartsýnn fyrir leikinn.
FRAMARAR leika gegn Vals-
mönnum í kvöld að Hlíðarenda
og hefst leikurinn kl. 20.00.
Óhætt er að segja að leikurinn
sé mjög mikilvægur fyrir bæði
liðin, þvítapi Framarar verður
forskot þeirra ekki nema 5 stig
og Valsmenn, ásamt næstu lið-
um á eftir, gætu ógnað þeim
með góðri frammistöðu í seinni
umferðinni.
Bæði liðin verða í kvöld án lykil-
manna sem eru meiddir. Fram-
arar verða án markhæsta mannsins
í deildinni, Guðmundar Steinssonar,
en hann hann hefur gert 9 mörk í
jafnmörgum leikjum. Valmenn fá
hins vegar ekki notið krafta Hilm-
ars Sighvatssonar, sem hefur verið
einn af þeirra bestu mönnum á
miðjunni og átt góða leiki að und-
anfömu.
Það verður því án efa hart barist
að Hlíðarenda í kvöld þegar tvö
efstu lið deildarinnar mætast þar.
Verður sigurganga Fram stöðvuð
eða auka þeir forskot sitt í 11 stig?
„Leikum til sigurs“
Pétur Örmslev, fyrirliði Fram, seg-
ist búast við að þetta verði tauga-
leikur eins og svo oft þegar þessi
lið hafa leikið saman. „Ég held þó
að þetta verði skemmtilegri leikur
en oftast áður milli þessara liða.
Valsmenn verða að sækja og við
munum spila okkar bolta og sækja
eins og venjulega. Við ætlum ekki
að spila upp á jafntefli heldur leik-
um við til sigurs. Mótið er langt frá
því að vera búið. Ég reikna með,
að Valsmenn verði harðskeyttustu
andstæðingar okkar í toppbarát-
tunni en ég held nú samt að við
séum ívið sterkari aðilinn", sagði
Pétur í samtali við Morgunblaðið.
„Alger nauösyn aö vinna“
Siguijón Kristjánsson, Val sagðist
vera afslappaður fyrir leikinn en
jafnframt að Valsmenn myndu gefa
sig alla í leikinn. „Það er okkur
alger nauðsyn að vinna. Ég held
að það sé ekkert vafamál, að þetta
eru tvö beztu liðin núna. Framliðið
hefur leikið vel, sérstaklega vömin
en við höfum líka eflst undanfarið.
Ég held að dagsformið ráði úrslit-
um. Sjálfsagt má búast við að
taugaspenna einkenni leikinn, að
minnsta kosti til að byija með en
við stefnum að því að leika okkar
bolta", sagði Siguijón í samtali við
Morgvnblaðið í gærkvöldi.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Búlgarir leika á
Laugardalsvelli
í byrjun ágúst
BÚLGARÍA leikur vináttu-
landsleik í knattspyrnu viö
íslendinga á Laugardalsvelli
7. ágúst. Búlgarska liðið er
eítt sterkasta landslið Evrópu
og komst meðal annars í úr-
slit heimsmeistarakeppninn-
ar í Mexíkó 1986.
etta er kærkomin heimsókn
fyrir íslenska liðið, því það
leikur gegn Sovétmönnum í und-
ankeppni HM 31. ágúst. Búlg-
arska landsliðið er að undirbúa
sig fyrir unankeppni HM sem
fram fer á Ítalíu 1990 og leikur
meðal annars við Finna og Norð-
menn í sömu æfíngaferð.
Búlgaría hefur verið með eitt af
bestu landsliðum Evrópu undan-
farin ár. Liðið Iék á HM í Mexíkó
og var aðeins einu stigi frá því
að komast í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins í Vestur-Þýskalandi.
HANDKNATTLEIKUR
Öruggt hjá A-Þjóðverjum
Tvö rauð spjöld er Vestur-Þýskaland sigraði Kúbu
AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR áttu
ekki í nokkrum eriðleikum með
Kínverja í gær. Heimamenn
sigruðu 32:18, en í leikhléi var
staðan 18:11.
Þrátt fyrir að Kínveijar séu með
skemmtilegt lið hefur þeim
gengið illa og tapað stórt í tveimur
fyrstu leikjunum, en Austur-Þjóð-
veijar hafa unnið
báða leiki sína.
Kínveijar mæta ís-
lendingum á morg-
un og Islendingar
ættu líklega að sigra nokkuð örugg-
lega.
Walh, Borchard og Mepzke skoruðu
flest mörk Þjóðveija 5 hver.
Leikur Vestur-Þyskalands og Kúbu
fór fram í Dessau, áður en leikur
íslendinga hófst. Kúbumenn stóðu
Logi Bergmann
Eiðsson
skrífarfrá
A-Þýskalandi
lengst af í Vestur-Þjóðveijum, en
urðu að sætta sig við tap, 23:27.
Leikurinn var mjög grófur og tveir
leikmenn fengu rauða spjaldið fyrir
slagsmál. Það voru þeir Rudiger
Neigel hjá Vestur-Þjóðveijum og
markakóngur Kúbumanna, Duran-
ona.
Loks sigruðu Sovétmenn B-lið
Austur-íjóðveija örugglega 29:21.
í leikhléi var staðan 13:8, Sovét-
mönnum í vil.
Sonesterow var markahæstur Sov-
étmanna með 7 mörk, en Sonnefeld
skoraði flest mörk Austur-Þjóveija
eða 5.
Á morgun eru síðustu leikirnir í
riðlakeppninni. íslendingar mæta
Kínveijum og Austur-Þjóðveijar
Pólveijum. Tvö efstu liðin í hvorum
riðli leika um 1-4 sæti en tvö neðstu
um 4-8 sæti.