Morgunblaðið - 14.07.1988, Side 56
ALLTAF
t
SOLARMEGIfíl
upplýsingar
um vörur og
pjónustu.
FIMMTUDAGUR 14. JULI 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Mikill laxadauði í kvíum Haflax við Viðey:
Þörungar hafalík-
leg-a drepið laxinn
Tjónið nemur milljónum króna
ER KOMIÐ var að laxeldis-
kvíum Haflax austur af Viðey
á þriðjudagsmorguninn var
mikill hluti laxanna í þeim, allt
að 80-90%, dauður. Talið er
líklegt að þörungar hafi drepið
laxinn. Tjónið nemur milljónum
króna en málið er nú í rannsókn
hjá Hafrannsóknarstofnun og
Sigurði Helgasyni, fisksjúk-
dómafræðingi á Keldum.
Guðmundur Asgeirsson, einn af
Trilla sökk á Flákukanti:
„Sjór fossaði inn
í bátinn en ég
var aldrei í hættu“
„SJÓRINN fossaði inn í bátinn
undan vélinni og mér vannst aldr-
ei tími til að kanna nánar hvað
þetta var,“ sagði Kristján Kristj-
ánsson, eigandi og skipstjóri á
Menn óttast nú að gufuspreng-
ing verði á Kröf lusvæðinu
Ottastgufu-
sprengingu
við Kröflu
Umferð ferða-
manna stöðvuð
um sinn
Leirhnjúkssvæðinu við
Kröflu hefur verið lokað um
sinn fyrir ferðamönnum
vegna aukinnar tíðni jarð-
skjálfta síðustu sólarhringa.
Landris jókst mjög fyrir
tveimur sólarhringum og bendir
allt til þess að hreyfing sé á
kviku neðanjarðar, en á meðan
kvikuhreyfíng á sér stað á þessu
vatnasvæði er hætta á að gufu-
sprenging geti orðið ef kvikan
kemst í vatn og slík sprengin
getur þýtt jarðrask og hættu
fyrir þá sem kynnu að vera á
svæðinu.
Almannavamanefnd Mý-
vatnssveitar ákvað í gær í ljósi
þessa að stöðva umferð á Leir-
hnjúkssvæðinu á meðan tíðni
jarðskjálftakippanna er eins
mikil og raun ber vitni. Jarð-
skjálftakippimir finnast ekki
langt frá gossvæðinu, en koma
fram á mælum.
mótorbátnum Laufeyju Jörunds-
dóttur VE 23, sem sökk á Fláku-
kanti, norðan við Kolluál, um
klukkan 20.00 í gærkvöldi. Kristj-
án var einn um borð og var bjarg-
að um borð í mótorbátinn Pétur
Jakob SH 37, sem var á svipuðum
slóðum þegar óhappið varð.
Kristján kvaðst aldrei hafa verið
í neinni hættu, því veður var til-
tölulega gott þótt nokkur velting-
ur væri.
Laufey Jörundsdóttir, sem er 9,6
tonn að stærð, var við veiðar úti á
svokölluðum Fláka, norðan við
Kolluál. „Ég var á reki að skaka og
fannst þá báturinn vera orðinn eitt-
hvað einkennilegur í rekinu og fór
að athuga málið,“ sagði Kristján.
„Hann var þá orðinn hálffullur af
sjó niðri í vél. Það fossaði inn undan
vélinni og ég komst aldrei að til að
athuga þetta nánar. Pétur Jakob
kom svo þama að og tók mig í tog.
Við reyndum að þétta þetta en það
gekk ekkert og trillan sökk á innan
við klukkutíma," sagði Kristján enn-
fremur.
Tveir menn voru á Pétri Jakob,
þeir Magnús Emanúelsson skipstjóri
og Jökull Barkarson, báðir frá Ól-
afsvík.
eigendum Haflax, segir að í kvíun-
um hafí verið um 10.000 laxar,
allt frá seiðum og upp í 2 kílóa
þungan físk. Mest hafí drepist af
laxinum í þeim kvíum sem seiðin
vom í, allt að 80-90% en seiðin
voru 80-100 grömm að þyngd.
„Við höfum ekki enn gert okkur
í hugarlund hve tjónið er mikið
en ljóst er að það nemur milljónum
króna,“ segir Guðmundur. Að-
spurður um hvort vitað sé hvað
olli dauða fískana segir Guðmund-
ur að allar líkur bendi til að um
þörungaflekk hafí verið að ræða.
„Það sem styður þá kenningu er
að um klukkan ellefu kvöldið áður
var laxinn í fullu fjöri og þær eldis-
kvíar sem eru í kringum okkur
hafa alveg sloppið að því er virð-
ist.“ Þörungar drápu sem kunnugt
er mikið magn af físki í Norðursjó
nýlega en þeir setjast að í tálknum
físksins og kæfa hann.
Sigurður Helgason físksjúk-
dómafræðingur segir að hann vilji
ekki tjá sig um málið að svo stöddu
þar sem rannsóknin sé of skammt
á veg komin til að hægt sé að
fullyrða nokkuð um ástæður þess
að laxinn drapst. „Einn þeirra
möguleika sem við erum að kanna
nú er hvort þörungar hafí valdið
þessu tjóni en ég vil taka fram
að ekki er hægt að útiloka neina
möguleika að svo stöddu," segir
Sigurður.
Beið bana í bíl-
slysi á Hrúta-
fjarðarhálsi
ELDRI kona lést í bifreiðarslysi
á Hrútafjarðarhálsi laust eftir
klukkan 18 í gær. Tveir voru
fluttir á sjúkrahúsið á Hvamms-
tanga en eru að sögn lögreglu
ekki taldir alvarlega slasaðir.
Ekki er unnt að greina nánar frá
málsatvikum að svo stöddu.
Samdráttur í Ameríkuflugi:
Morgunblaðið/Sverrir
Christopher Lee Marshall, 11 ára gamall, veifar bandariska fánan-
um við komuna til landsins.
Með bangsann
yf ir Atlantshaf
CHRISTOPHER Lee Marshall,
11 ára gamall bandarískur
drengur, lenti á Reykjavíkur-
flugvelli rétt fyrir klukkan þijú
í gær, eftir tæpra þriggja tíma
flug frá Grænlandi. Með honum
var Randy Cunningham, fyrr-
verandi atvinnuflugmaður.
Takmark Christophers er að
verða yngsti flugmaðurinn sem
flogið hefur yfír Atlantshafið. Að
því er hann tjáði Morgunblaðinu
hefur hann flogið vélinni sjálfur,
nema þegar þeir lentu í Kulusuk
á þriðjudag. Vélarbilun olli því að
þeir þurftu að senda frá sér neyð-
arkall og lenda við erfiðar aðstæð-
ur. „Það er í eina skiptið sem ég
hef orðið hræddur í ferðinni," sagði
Christopher. „Enginn nema Randy
hefði getað lent vélinni við þessar
aðstæður."
Þegar Christopher var inntur
eftir tilgangi ferðarinnar, svaraði
hann því að hann vildi hvetja börn
um allan heim til að láta drauma
sína rætast. Hann er með bang-
sann sinn með sér og var spurður
að því hvemig honum líkaði flugið.
„Honum leiðist að þurfa að sitja
aftur í, svo þegar hann byijar að
kvarta þá hendi ég honum bara
lengra aftur í.“
Þeir félagar fóru héðan til Skot-
lands síðdegis í gær, en lokaá-
fangastaður þeirra er París.
Uppsagnir um mánaða-
mót færri en búist var við
segir Signrður Helgason, forstjóri Flugleiða
FLUGLEIÐIR hætta flugi til
Boston, Baltimore og Chicago í
haust og fækka þar með ferðum
til Bandaríkjanna á vetraráætlun
úr níu í sex á viku. Eftir þennan
niðurskurð verður flug á Norð-
ur-Atlantshafsleiðinni um 40%
af heildarveltu Flugleiða að sögn
Sigurðar Helgasonar, forstjóra
félagsins, í stað 70% fyrir nokkr-
um árum.
Ekki verður eins mikið um upp-
sagnir vegna fækkunar Bandaríkja-
ferða og gert var ráð fyrir í vor
eftir að skýrsla „Boston Consulting
Group" um rekstur félagsins var
birt. „Við þurfum að segja upp ein-
hverju starfsfólki um næstu mán-
aðamót en ýmsar forsendur hafa
breyst frá því skýrslan kom út,“
segir Sigurður Helgason.
„Við notum tvær vélar í Atlants-
hafsflugið í vetur í stað einnar eins
og lagt var til í skýrslunni í vor sem
leið, “ segir Sigurður Helgason.
„Aukin áhersla verður lögð á Evr-
ópuflugið. Ýmis leiguflugsverkefni
eins og sólarferðir fyrir sænska
flugfélagið Scanair eru í burðarliðn-
um. Lítið hefur verið ráðið í lausar
stöður hjá Flugleiðum undanfarið
og óvenju mikið er af sumarfólki
sem fer í haust. Loks verða áhafnir
í þjálfun vegna nýju Boeing 737
400 vélanna. Allt stuðlar þetta að
því að minna verður um uppsagnir
en við óttuðumst."
Ákvörðun um samdrátt í
Ameríkufluginu var tekin á stjóm-
arfundi Flugleiða í gær og jafn-
framt ákveðið að leggja aukna
áherslu á Evrópuflug með fjölgun
ferða til Frankfurt og London, en
nýjar vélar koma á Evrópuleiðir í
vetrarlok. Stjóm Flugleiða telur að
sögn Sigurðar að breyta þurfi sam-
setningu farþegahópsins, félagið
hafí tapað mikið á lágum fargjöld-
um milli Lúxemborgar og Banda-
ríkjanna.
Flugleiðir halda tveimur áfanga-
stöðum í Bandaríkjunum; New York
og Orlando í Flórída. Söluskrifstof-
um í Boston og Baltimore verður
lokað en viðskipti færð á form póst-
og símaþjónustu að sögn Einars
Sigurðssonar, blaðafulltrúa Flug-
leiða. Þá segir Einar að félagið
muni fljúga meira með frakt í vetur
en nú er, aðallega fisk.