Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B OG LESBÓK 166. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 Prentsmiðja Morgfunblaðsins Nagorno-Karabak: Leiðtogum verk- faUsmanna refsað Moskvu. Reuter. RÉTTARRANNSÓKN er hafin í málum nokkurra helstu leiðtoga verk- fallsmanna í Nagorno-Karabak-héraði i Sovétlýðveldinu Azerbajdzh- an, að því er sagði í fréttum sovésku fréttastofunnar Tass í gær. Sagði ennfremur að yfirvöld hefðu gripið til aðgerða til að „tryggja stöðugleika" og treysta lög og reglu m.a. með þvi að refsa helstu hvatamönnum verkfallsins fyrir agabrot. Vinna hefur legið niðri í verksmiðjum í héraðinu undanfarna tvo mánuði vegna mótmæla Arm- ena þar sem krefjast þess að það verði sameinað Sovétlýðveldinu Armeníu. I frétt Tass sagði að mikil spenna ríkti í Stepanakert, höfuðborg Nag- orno-Karabak, og að allsheijarverk- fall væri enn í gildi. Akveðið hefði verið að hefja réttarrannsókn í mál- um nokkurra embættismanna, sem hvatt hefðu til allsherjarverkfalls, auk þess sem starfsmönnum járn- brautastöðvarinnar í höfuðborginni hefði verið gert að greiða ríkinu skaðabætur vegna verkfallsins. Leiðtogi kommúnistaflokksins í Azerbajdzhan hefur lagt til að yfir- völd þar gangi til viðræðna við ráða- menn í Armeníu og Georgíu í því skyni að lægja þjóðemisróstur í lýð- veldunum þremur sunnan Kákasus- fjalla. Vinna lá niðri í verksmiðjum í Jerevan, höfuðborg Armeníu, í gær en boðað hafði verið til allsheijar- verkfalls til að mótmæla þeirri ákvörðun Sovétstjómarinnar að hafna kröfum um að héraðið Nag- orno-Karabak í Azerbajdzhan verði sameinað Armeníu. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleið- togi hefur hvatt til þess að menning- ararfleifð minnihlutahópa í Sov- étríkjunum verði virt til að koma í veg fyrir frekari róstur en stjómvöld hafa sagt að leiðtogar kommúnista- flokksins í Azerbajdzhan hafi í gegn- um tíðina ekki virt réttindi armenska minnihlutans í Nagorno-Karabak. Ónefndir embættismenn í Moskvu skýrðu í gær frá tillögu Abduls Vez- írovs, leiðtoga kommúnistaflokksins í Azerbajdzhan, og er litið svo á að hann vilji með þessu móti verða við ákalli Gorbatsjovs. 300.000 manns tóku þátt í úti- fundi í Jerevan á fimmtudagskvöld. Fundarmenn samþykktu að fresta frekari fjöldafundum í viku í því skyni að gefa Armenum ráðrúm til að vega og meta ákvörðun stjórn- valda í Kreml um að verða ekki við kröfum um sameiningu. Reuter Hryðjuverk íBeirút Tíu menn létust og 50 særðust þegar bílsprengja sprakk í gær í Vestur-Beirút í Líbanon. Ódæðisverkið var unnið í borgarhluta múhameðstrúarmanna. Þykir líklegt, að hryðjuverkinu hafi verið beint gegn Sýrlendingum og veru þeirra í Líbanon en bílnum hafði verið lagt við eina varð- stöð sýrlenska hersins. Á stærri myndinni má sjá hvemig umhorfs var á götunni eftir sprenginguna en á þeirri inn- felldu er verið að hlynna að særðri konu. Reuter Dukakis treyst- irstöðu sína Michael Dukakis, forseta- frambjóðandi demókrata í forsetakosningunum í Banda- ríkjunum í haust, þykir hafa treyst stöðu sína verulega undanfarna daga. Blökku- mannaleiðtoginn Jesse Jack- son hvatti í gær stuðnings- menn sína til að styðja fram- boð Dukakis og Lloyds Bents- ens, varaforsetaefnis flokks- ins. í skoðanakönnun, sem gerð var fyrir sjónvarpsstöð- ina ABCá fimmtudag kváðust 53% aðspurðra ætla að kjósa Dukakis en aðeins 41% George Bush, frambjóðanda repúblikana. Á myndinni sést Dukakis ásamt Kitty, konu sinni, taka undir söng lands- fundargesta. Sjá fréttir á bls. 27. íranir og írakar skýra frá hörðum bardögum í Persaflóastríðinu: Yiðræður um vopnahlé fara fram í næstu viku Utanríkisráðherrar ríkjanna halda á fund framkvæmdastjóra SÞ Bagdað, Nik&siu, Sameinuðu þjóðunum, Bahrain. Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR írans og íraks munu í næstu viku eiga viðræður við Javier Perez de Cu- ellar, framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna, um framkvæmd vopnahlés _ i Persaflóastríðinu. Herstjórn íraka tilkynnti í gær að hafin væri stórsókn gegn her- sveitum írana á öllum vigstöðum tii að vinna aftur allt það land- svæði sem íranir hefðu náð á sitt vald í Persaflóastríðinu. Telja fréttaskýrendur að írakar hyggist freista þess að treysta stöðu sina í væntanlegum vopnahlésviðræð- um ríkjanna, sem boðað hefur verið til á grundvelli samþykktar Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. íranir sökuðu íraka um að hafa beitt efnavopnum í árásum á þijú þorp í íran og sagði Ayatollah Khomeini, leiðtogi klerkastjórnar- innar, að stríðinu væri hvergi nærri lokið. Talsmaður framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna skýrði frá því í gærkvöldi að utanríkisráðherrar beggja ríkjanna myndu eiga viðræð- ur við de Cuellar í næstu viku. Þá hefðu stjómvöld einnig fallist á að ræða við sendimenn Sameinuðu þjóð- anna í höfuðborgum ríkjanna tveggja. Sendimennimir em væntan- legir til Teheran, höfuðborgar írans, í dag, sunnudag, og halda þaðan til íraks þremur dögum síðar. „Fyrstu hindmninni hefur verið mtt úr vegi,“ sagði Crispin Tickell, sendiherra Bretlands hjá Sameinuðu þjóðunum, á blaðamannafundi í gærkvöldi. í gærdag kváðust írakar hafa blásið til stórsóknar á öllum vígstöðv- um Persaflóastríðsins. í tilkynningu írösku herstjórnarinnar sagði að þús- undir íranskra hermanna hefðu fallið eða særst í bardögunum. Þá hefðu þúsundir manna verið teknir til fanga enda hefði tilgangur sóknarinnar m.a verið sá að jafna metin á þessu sviði en samkvæmt upplýsingum Rauða krossins hafa Iranir mun fleiri stríðsfanga á sinu valdi en írakar. IRNA, hin opinbera fréttastofa írans, sagði íranskar hersveitir hafa neyðst til að hörfa á nokkmm vígstöðvum vegna efnavopnaárása íraka og hefði fjöldi óbreyttra borg- ara týnt lífi í þeim. í tilkynningu fréttastofunnar sagði að 5.000 írak- ar hefðu fallið eða særst í bardögun- um en þessari fullyrðingu vísaði her- stjóm Iraka á bug. Útvarpið í Teheran, höfuðborg ír- ans, hafði í gær eftir Ayatollah Kho- meini, leiðtoga írana, að stríðinu væri hvergi nærri lokið þar sem stjóm Saddams Husseins Iraksfor- vart helstu gjaldmiðlum lækkaði enn í gær en undanfarna daga hafa seðlabankar víða um heim selt dollara til að draga úr frek- ari hækkun gjaldmiðilsins. Fyrir hann fengust í gær 1,8929 vestur- þýsk mörk en i byrjun vikunnar var gengi hans tæp 1,98 mörk. A miðvikudag var gengi dollars hærra en nokkm sinni undanfarna 11 mánuöi. Síðan þá hefur hann lækkað um þijú prósent gagnvart seta hefði enn ekki fallist á efnisat- riði samþykktar Öryggisráðs Sam- einuðu þjóðana um vopnahlé þrátt fyrir yfirlýsingar í þá vem. „Þar til Irakar fallast á ályktunina verður fjandmönnum islams svarað á vígvöllunum,“ sagði Khomeini. vestur-þýsku marki og um tæp fjög- ur prósent gagnvart bresku pundi og valda þar mestu afskipti seðla- banka víða um heim. Verðlækkunin í gær var einnig rakin til þess að spákaupmenn fjárfestu fremur í breskum pundum en dollumm vegna vaxtahækkunar á Bretlandi. Sér- fræðingar sögðu þó að enn væri vit- urlegt að íjárfesta í dollumm og vísuðu til þess að flest benti til áframhaldandi grósku í efnahagslífi Bandaríkjanna. Enn lækkar gengi Bandaríkjadollars London. Reuter. GENGI Bandaríkjdollars gagn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.