Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JUU 1988
1,81% hækk-
un bygging-
arvísitölu
VÍSITALA byggingarkostnaðar
fyrir ágústmánuð hækkaði um
1,81% á milli mánaða. VÍsitalan
er reiknuð eftir verðlagi um
miðjan júlímánuð. Hún reyndist
vera 123,5 stig og hefur hækkað
úr 121,3 stigum fyrir júlímánuð.
Þessi hækkun samsvarar 24%
árshækkun. Hagstofa íslands
reiknar vísitöluna.
Síðastliðna 12 mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar hækk-
að um 23,1%. Síðustu þrjá mánuði
hefur hún hækkað um 11,5% og
samsvarar það 54,3% árshækkun.
Helstu ástæður hækkunarinnar
nú eru hækkun sementsverðs og
steypu, sem olli 0,4% hækkun,
hækkuð leiga byggingamóta olli
0,2% vísitöluhækkun og hækkað
gatnagerðargjald olli 0,3% hækkun
vísitölunnar. Verðhækkun ýmissar
vöru og þjónustu hækkaði vísi-
töluna um 0,9%.
Vísitalan nú er miðuð við grunn-
töluna 100 fyrir júní 1987. Sam-
svarandi vísitala miðuð við eldri
grunn, desember 1982 = 100, er
nú 395 stig.
Þessi hækkun nú er mun minni
en varð á milli júní og júlí. Þá
hækkaði vísitalan um 8,40%, sem
samsvaraði 163,2% árshækkun og
miðað við þrjá mánuði 55,1% hækk-
un. Sú hækkun vegur þyngst í þró-
un byggingarvísitölu það sem af er
árinu. Vísitalan fyrir janúar síðast-
liðinn var 107,9 stig, febrúar 107,4
stig, mars 107,3 stig, apríl 108,7
stig, maí 110,8 stig, júní 111,9 stig,
júlí 121,3 stig og nú fyrir ágúst
123,5 stig.
Úr grasagarðinum í Glasgow.
Garðaskoðun
innanlands og utan
Á morgun, sunnudaginn 24. júlí,
á að fara fram hin árlega „garða-
skoðun“ á vegum Garðyrkjufélags
Islands, en sá liður í starfsemi fé-
lagsins nýtur jafnan mikilla vin-
sælda. Að þessu sinni munu 6 garð-
eigendur víðsvegar um Breiðholtið
í Reykjavík hafa garða sína opna
þennan dag frá kl. 1—6 og eru
þeir upptaldir í fréttabréfinu „Garð-
inum“ sem vonandi hefur borist
öllum félagsmönnum í hendur í
tæka tíð.
Það er óhætt að segja að þessir
„garðaskoðunar“-dagar hafi í ár-
anna rás veitt félögum GÍ ómælda
ánægju, — þeir hafa kýnnst áður
óþekktum plöntum, ttjám og runn-
um og séð með eigin augum hversu
margvíslega má koma hinni og
þessari tegundinni fyrir í garðinum
og ótal hugmyndir hafa fæðst um
uppbyggingu og skipulag. En látum
þetta nægja um garðaskoðun GÍ
og víkjum nokkrum orðum að
garðaskoðun GÍ á erlendri grund.
Snemma vors 1987 fór 20 manna
hópur í fyrstu utanlandsferð GÍ og
þá til Hollands á þeim árstíma sem
það land skartar sínu heimsfræga
blómlaukaskrúði. Um miðjan júní
sl. var svo lagt upp í viku ferð til
Skotlands, — þátttakendur voru 40
og tókst ferðin vel í alla staði, það
er hreint með ólíkindum hvað hægt
var að komast yfir að sjá og skoða
á ekki lengri tíma. Flogið var til
Glasgow og strax á fyrsta degi var
skoðaður bráðmerkilegur garður í
einkaeign í grennd við borgina. Á
öðrum degi var m.a. skoðaður
Branklyn-garðurinn, sem er í tölu
þekktustu garða landsins og er
skammt frá borginni Perth. Þá var
haldið norður yfir hálendið til borg-
arinnar Inverness í góðu og all-
björtu veðri. Leiðin norður verður
okkur vafalaust lengi minnisstæð
ekki síst sakir hins fagra heiðagróð-
urs. Það er ævintýri líkast að aka
kílómetra eftir kílómetra með al-
blómgaða „sópa“ í stórum gulum
flekkjum á báðar hendur og rhodod-
endron-runna sem villtan gróður.
Frá Inverness var farin dagsferð í
Inverewe-garðinn á vesturströnd-
inni, en sá garður er víðfrægur og
mikið sóttur af ferðamönnum frá
öllum heimshomum. Gróðurinn þar
er líka frá öllum heimshomum og
hitabeltisgróður sem lifir þar góðu
lífi hefur ekki hvað síst orðið til
þess að vekja á honum athygli.
Síðustu tvo dagana vomm við í
Glasgow og nágrenni. Þá var og
farið í grasagarðinn í Edinborg.
Um þann víðfræga garð má benda
á litla grein eftir Herm. Lundholm
í Garðyrkjuritinu 1982. Þessi „kon-
unglegi" garður (Royal Botanic
Garden) er opinn alla daga ársins
að nýársdegi einum undanskildum.
í Glasgow er einnig fallegur grasa-
garður sem að hluta til liggur á
bökkum árinnar Kelvin og okkur
gafst tækifæri til að skoða þann
garð á hlýrri og fagurri morgun-
stund. Þá má geta þess að degi var
varið til þess að fara á svokallaða
garðhátíð þ.e. Glasgow Garden
Festival ’88. Hún var opnuð 28.
apríl sl. og stendur til 26. sept. nk.
Þar er mikið um dýrðir þó ekki
höfði allt beinlínis til áhugafólks í
garðrækt, þótt talsvert sé þar um
blómskrúð og fallega gróna reiti. í
raun er þetta stórkostleg sýning á
vömm og hverskyns búnaði með
ívafi af margvíslegustu sýningarat-
riðum, söng og tónlist, þar sem
fram koma skemmtikraftar hvað-
anæva af heimsbyggðinni, við hitt-
um t.d. á dans- og tónlistarfólk frá
Shri Lanka og til gamans má geta
að hljómsveitir frá íslandi hafa
komið þar fram.
Hér hefur verið stiklað á stóm
og aðeins nefndur litill hluti af því
sem fyrir augu bar í þessari eftir-
minnilegu garðaskoðunarferð, sem
lesendur fá e.t.v. meira að heyra
um þótt síðar verði.
Bolungarvík
Til sölu er lítið íbúðarhús í Bolungarvík (ca 30 fm). í
húsinu er stofa, eldhús, bað og risloft. Brunabótamat
er kr. 679.000. Staðgrverð kr. 450.000. Til greina kem-
ur verðtryggt lán til 2ja ára fyrir 60% af andvirði hússins.
Upplýsingar í síma 94-3975.
Vestur-þýskir
vörulyftarar
G/obus?
LAGMULA 5. S. 681555.
Amerísku Coleman fellihýsin
sem hafa slegið í gegn
kosta með öllu kr. 249.000.-
Opið virka daga kl. 10-18.
Sö/usýning iaugardag kl. 10-18
og sunnudag kl. 13-17.
Koma ekki aftur á þessu ári.
\grleikur88
Skeifan 3G símar 686204 og 686337.
Námskeið
í seglbretta-
siglingum
NÁMSKEIÐ í seglbrettasigling-
um eru nú að hefjast í fyrsta
sinn á íslandi samkvæmt alþjóð-
legu „Eurosurf“ kerfi, segir í
fréttatilkynningu frá Siglinga-
klúbbi Garðabæjar.
Námskeiðunum lýkur með prófi
og útgáfu skírteina, auk vatns-
þéttra skírteina ef óskað er, segir
í fréttinni. Víða um heim er nú
krafist skírteina við siglingar á segl-
brettum svo og ef seglbretti em
tekin á leigu. Kennari á námskeið-
unum verður Dian V. Dentchev,
sem auk þess að hafa „Eurosurf"
kennsluréttindi, hefur áralanga
reynslu af kennslu í seglbréttasigl-
ingum.
Kennt verður við Sjávargmnd í
Garðabæ, þar sem Siglingaklúbbur
Vogs hefur aðstöðu. Kennt verður
á kvöldin og um helgar til að bytja
með. Allur búnaður sem nauðsyn-
legur er til kennslu verður útvegað-
ur á staðnum, þar sem aðstaða er
einnig góð. Nánari upplýsingar og
skráning á staðnum.
tlöfóar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
jjMttgmiMfifrife