Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 Jósef Jónas- son — Minning Fæddur 20. febrúar 1896 Dáinn 17. júlí 1988 Elskulegur tengdafaðir minn lést aðfaranótt sunnudagsins 17. júlí. Hann sofnaði útaf eftir langa lífdaga. Aldurinn var hár, Jósef var orðinn 92 ára gamali, fæddur fyrir aldamót eða árið 1896. Fólk, sem fæddist á þessum tíma er búið að lifa tímana tvenna og fylgjast með þróun - og baráttu íslensku þjóðarinnar gegnum árin. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að búa á íslandi. Lífsþægindin, sem ■*r við höfum í dag, rafmagn, sími, heitt vatn, útvarp, sjónvarp og bílar eru ekki þau þægindi, sem alda- mótafólkið ólst upp við. Við, sem lifum við öll nútíma gæði eigum erfítt með að setja okkur í spor þessa fólks, sem háði lífsbaráttuna með því að vinna hörðum höndum við að erja jörðina. Jósef Jónasson fæddist í Hlíð í Hrunamannahreppi 20. febrúar 1896. Foreldrar hans vom Ingveld- ur Gísladóttir og Jónas Jónsson. Jósef var yngstur systkina sinna. Elstur var Gísli síðan Ingimar og tvær dætur Jónína og Datrín, sem dóu mjög ungar. Gísli, elsti bróðir- inn veiktist og dó innan við ferm- '* ingu. Eftir það áfall hættu foreldrar Jósefs búskap og réðu sig í hús- mennsku að Hörgholti í Hmna- mannahreppi. Jónas var einnig mjög handlaginn maður og var oft fenginn til að gera við vélar og fleira á nágrannabæjunum. Þegar foreldrar Jósefs bmgðu búi höfðu þau ekki tök á að hafa báða dreng- ina hjá sér og var Ingimar komið fyrir á Efra Seli og Jósef fór að Grafarbakka í sömu sveit. Hann var þá um 12 ára gamall. Halla Þor- c steinsdóttir og Þorgeir Halldórsson bjuggu þar, en þau áttu sjö börn, þau em talin hér í réttri aldursröð: Þómnn, Þórhallur, Guðrún, Gíslína, Una, Þorsteinn og Lára. Þórhallur og systumar fluttu til Reykjavíkur og búa nú saman í eig- in íbúð að Flókagötu 64 en Þór- hallur er látinn. Mjög gott samband var milli Jósefs og fóstursystkin- anna og hann heimsótti þau alltaf þegar hann var hér fyrir sunnan núna síðari árin. Jósef fermdist í Hmna hjá Sr. Kjartani Helgasyni og dvaldist hjá fjölskyldunni í Graf- arbakka fram á fullorðinsárin. Þá fór hann til Reykjavíkur og ætlaði að læra jámsmíði, því að hann var mjög handlaginn og smiður góður. En honum leiddist í höfuðborginni og kaus að fara í sveitina á ný. Réði hann sig að Ási og síðan að Fossi í Tungfellssókn til bróður síns og þar kynntist hann Guðrúnu, sem síðar varð eiginkona hans. Guðrún átti foreldra og systkini í Feigsdal í Amarfírði en það vom mektarhjónin Ingibjörg Magnús- dóttir og Magnús Júlíus Jónsson. Guðrún og Jósef hófu búskap á móti þeim, en fluttu síðar að Granda í Bakkadai sem er lítill bær og stendur upp undir fjallsrótum skammt frá Feigsdal. Jósef og Guð- rún giftu sig í Feigsdal árið 1927 en prestur var Sr. Böðvar Bjamason á Hrafnseyri við Amarfjörð. Elsti sonur þeirra Magnús Júlíus fæddist í Feigsdal en áður eignuð- ust þau telpu, sem lést skömmu eftir fæðingu. Öll hin bömin fædd- ust á Granda, en þau em: Gísli, Ingibjörg, Benjamín og Ragnheið- ur. Ingibjörg og Benjamín em látin. Magnús býr í Garðabæ, Gísli í Reykjavík, en Ragnheiður í Tálkna- fírði, en þar hefur Jósef dvalið síðustu ár ævi sinnar. Frá Granda fluttu þau að Hóli, sem er næsti bær við, en stendur nær sjónum. Þar bjuggu þau til vorsins 1958 og áttu heima þar, þegar ég kynntist þeim. Ég kom þangað fyrst sumarið 1955 með Magnúsi, elsta syni þeirra, en við vomm á nýtrúlofuð. Þetta sumar var það almesta rigningarsumar, sem ég man eftir. Það rigndi allt sumarið og það var erfítt fyrir bændur. Engar vélar vom á bæn- um, mest allt túnið slegið með orfí og Ijá. Húsið var nokkuð stórt stein- hús, enda hafði verið tvíbýli á Hóli áður. Bókasafn Ketildalahrepps var á bænum. Erfítt var um aðdrætti, þar sem enginn bíll var á bænum og fór Jósef oftast fótgangandi inn á Bfldudal, sem er um 13 km leið frá Hóli. Vorið 1958 fluttu Guðrún og Jósef inn á Bfldudal og keyptu þar lítið og vinalegt hús sem heitir Vina- mót og stendur við Dalbraut. nafn- ið á húsinu var mjög við hæfí, því vinalegra og elskulegra fólk fyrir- finnst varla hér á landi. Jósef var fremur hæglátur mað- ur, en kvikur og hress, þegar því var að skipta. Hann hafði ekki mörg orð um það sem gera þurfti, heldur vann af eljusemi og dugnaði þar til verkinu lauk. Heimilið og bömin áttu hug hans allan og voru þau hjónin mjög samtaka um að láta bömunum líða vel og sama máli gegndi um barnabörnin eftir að þau komu í heiminn. Jósef var mjög barngóður og barnabömin sóttu til hans. Hann var líka ólatur við að segja þeim sögur og fræða þau á allan hátt. Enda var Jósef mjög fróður maður og víðlesinn. Það var gaman að sitja og spjalla við hann og hlusta á allan þann fróðleik, sem hann hafði fram að færa og það ótrúlega minni sem maðurinn hafði allt fram undir það síðasta. Hann hafði ákveðnar skoð- anir, var nokkuð dulur og fremur fáskiptinn við ókunnuga. Þessvegna var vinahópurinn ekki stór en traustur. Hann var vinur vina sinna og alltaf gott að leita til hans. Fyrir nokkrum árum dó tengda- mamma og eftir það bjó Jósef einn. Það var erfitt, missirinn mikill, því þau hjónin voru mjög samrýmd. Jósef var einnig farinn að tapa sjón og átti því erfíðara með að komast leiðar sinnar. Að lokum varð hann blindur og flutti þá til dóttur sinnar, Ragnheiðar, en hún býr í Tálkna- fírði. Þetta var árið 1982. Jósef átti erfítt með að sætta sig við blinduna. Hljóðbókasafnið í Reykjavík hjálpaði honum mikið. Hann fékk sendar spólur með alls- konar efni og naut hann þess í nokkur ár. Svo hlustaði hann mikið á útvarp, líka fréttir og innlenda þætti í sjónvarpinu. Að lokum fór hann á Sjúkrahúsið á Patreksfírði og dvaldi þar síðustu vikumar. Ég og ijölskylda mín þökkum innilega samfylgdina. Við erum ríkari en ella eftir kynni okkar við slíkan mann. Valborg Soffía Böðvarsdóttir Þú ert Guð, sá er furðuverk gjörir þú hefur kunngjört mátt þinn meðal þjóðanna Með máttugum armlegg frelsaðir þú lýð þinn, sonu Jakobs og Jósefs. (Davíðsálm. 77: 15-16) Hann Jósef afí þinn dó í nótt heyrði ég mömmu segja við mig í símann. Margar minningar fóru af stað í huga mínum um afa og ömmu á Bfldudal eins og við kölluðum þau alltaf. En alltaf þegar ég minnist þeirra sé ég mann og konu sem lifðu í ótta Drottins. Trúin var það sem ég og afí áttum sérstaklega sameig- inlegt. Hann átti lifandi trú á Jesúm og þegar við hittumst í fyrrasumar þá ræddum við þessa sameiginlegu trú okkar og ég las fyrir hann úr Biblíunni og hann gladdist mjög því hann var blindur og gat ekki lesið sjálfur. Ég þakka guði fyrir þær stundir sem við áttum saman og ég trúi því að afí og amma, því amma er dáln líka, lifí í samfélagi við Guð fóður í dag og um alla eilífð. Þess vegna kveðjum við afa okk- ar aðeins um stundarsakir þangað til við öll sem trúum hittumst á himnum með Guði. F.h. fjölskyldu minnar og bræðra Böðvar Magnússon t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLA KR. SVEINBJÖRNSDÓTTIR, lóst í Landakotsspítala föstudaginn 22. júlí. Guðjón Þorleifsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir, SÓLEY ÞORSTEINSDÓTTIR kaupkona, Hjallabrekku 17, Kópavogi, lést 21. júlí. ' Sigríður Ágústsdóttlr, Sofffa Ágústsdóttir, Svava Agústsdóttir, Andrós Jóhannesson, Oddur Rúnar Hjartarson, Ólafur Sigurðsson. Móðir mín. t SVANHILDUR ÞORVARÐARDÓTTIR áður til heimiils á Hjarðarhaga 46, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. júlí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. F.h. aðstandenda, Andrea Sigurðardóttir. t Eiginmaður minn, SIGURÐUR ELLERTSSON, Miðbraut 1, Seltjarnarnesi, lést í Borgarsjúkrahúsinu 22. júlf. Fyrir hönd aðstandenda, Valborg Guðjónsdóttir. GuhnarF. Guðmunds- son - Kveðjuorð Fæddur 23. júlí 1983 Dáinn 18. ágúst 1987 Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, syo ég sofi rótt. (Úr þýsku, Sveinbj. Egilsson) í dag hefði litli drengurinn okk- ar, Gunnar Finnur Guðmundsson, orðið 5 ára. Þessi litli drengur sem alla tíð geislaði af lífí og krafti. Gunnar Finnur var ekki nema 9 mánaða er hann byijaði að ganga og var orðinn altalandi tæpra 2ja ára. Frá því að hann vaknaði að morgni og þar til hann sofnaði að kvöldi var hann á fullu. Það var svo margt sem hann þurfti að gera og krafturinn slíkur að margir undruð- ust hve mikil orka var í þessum litla líkama. Gunnar Finnur var sólargeislinn okkar og mun alla tíð vera það dýrmætasta og besta sem við nokk- urn tíma höfum átt og munum eign- ast. Þeir vom Ófáir sem héldu upp á þennan litla dreng enda var Gunn- ar þannig, að hann hreif alla með fallega brosinu og stóru, brúnu, geislandi augunum. Gunnar Finnur var ófeiminn og söng mikið hvort sem hann var heima eða í kaup- félaginu, hann kunni heil býsn af lögum. Hann var mikill ömmu- og afastrákur, ef einhver amma eða afí voru nálægt þá var nú gaman. Amma í Reykjavík átti að flytja rúmið sitt í sveitina til hans og ekki fannst honum það mikið mál. Rúmið var á hjólum svo við gátum bara bundið það aftan í Sukann og dregið það austur. Hann vissi að það var alltaf hægt að skreppa til ömmu og afa í sveitinni enda stutt að fara. Sveitalífið átti vel við Gunnar Finn, hér gat hann hamast allan daginn og verið með okkur í því sem við vorum að aðhafast. Við foreldr- ar hans vorum ekki síður háð hon- um en hann okkur. Við máttum ekki til þess hugsa að hafa hann ekki alltaf hjá okkur. Það var því mikið áfall er Gunnar Finnur skyndilega veiktist, hann sem aldrei var veikur var nú fluttur á gjör- gæsludeild Landspítalans þar sem við vöktum yfír litla drengnum okk- ar í von um að hann myndi ná sér til fulls. Á leiðinni í sjúkrabílnum sagði hann, eins og til að hug- hreysta mömmu sína, þetta batnar alveg, en raunin varð önnur. Rúm- um tveimur sólarhringum eftir að hann veiktist lést hann. Við vorum eins og lömuð, það gat ekki verið að hann væri dáinn. það mátti ekki vera. En þarna lá hann og við gát- um ekkert gert til að fá hann til okkar aftur. Gunnar Finnur var alinn upp við að biðja bænina sína, sem er hér á undan og að það væri ljótt að blóta. Hví drottinn tók hann frá okkur er okkur óskiljanlegt. Er við komum heim aftur var eins og dýrin fyndu að eitthvað var að. Hundurinn hans, Tígull, sat úti á tröppum og vældi í marga daga eins og til að segja okkur að við hefðum gleymt að koma með Gunn- ar Finn heim og kötturinn Felix fór um allt hús að leita hans og varð að opna inn í herbergi Gunnars til að sýna honum að hann væri ekki þar. Annars sat hann bara og mjálmaði við dymar. Nú á 5 ára afmælisdegi hans á að skíra litlu systur hans, litlu syst- ur sem hann var búinn að bíða svo lengi eftir en vissi ekki er hann dó að hún væri í maganum á mömmu. Gunnar Finnur sagði alltaf að mamma ætti að drekka hálfa mjólk með rjóma út í og þá fengi hann litla systur sem hann ætlaði að keyra úti í vagninum og passa. Það er sorglegt að hugsa til þess að litla systir hans skuli ekki fá að kynnast stóra bróður sínum sem án efa hefði verið henni góður. Eins og Ranna nágranni okkar sagði: „Hann var eins og lítiil engill, svo fallegur og góður." Að lokum langar okkur að þakka öllum þeim sem stutt hafa okkur í okkar miklu sorg. Guð geymi litla drenginn okkar. Mamma og pabbi + STEINGRÍMUR KARLSSON fyrrvorandi veitingamaöur, lést í Borgarspítalanum 20. júlí sl. Jaröarförin fer fram frá Foss- vogskapellu miðvikudaginn 27. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja og vina, Erla og Birgir Thomsen. t Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og útför systur okkar, HJÖRDÍSAR F. PÉTURSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11E, Landspítalanum. Emil G. Pétursson, Garðar Óskar Pótursson, Arnold F. Pétursson og fjölskyldur. + Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför konu minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR TEITSDÓTTUR fyrrum húsfreyju, BJarghúsum. Björn Slgvaldason, Jóhanna Björnsdóttlr, Jón Marz Ámundason, Þorvaldur Björnsson, Kolbrún Steingrfmsdóttir, Hólmgeir Björnsson, Jónfna Guðmundsdóttlr, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.