Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 12

Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 Umsjónarmaður Gísli Jónsson Við tölum oft og skrifum um risaveldin (d. supermagt, e. super power). Okkur dettur ekki í hug að kalla þau „súper- veldi“. Nú er mikil breyting að ger- ast á bensínmarkaðinum, en hver um annan þveran talar þá um „súperbensín". Fyrir löngu hafa málnæmir menn lagt til nýyrðið kraftbensín. Það fer mjög vel og er meira að segja einu atkvæði styttra en útlenda orðið og þeim mun þjálla. Nú hvet ég ykkur Öll til að sameinast um orðið kraftbensín og festa það í málinu. Einkum skírskota ég til fréttamanna, og svo auðvitað starfsmanna olíufélaga sem selja og auglýsa þessa vöru. Kraftbensín er krafa dagsins, segir máltækið, sbr. hinar alkunnu bflvísur Bjöms botnans frá Botnastöð- um: Kraftbensín er kjamafæða bílsins, komdu bara og sannprófaðu það. Af þvi fær hann afl og styrkieik fílsins. Ertu bún’að koma þér af stað? Enn langar umsjónarmann til að minnast á samruna (cont- amination. Menn eru stöðugt að rugla saman orðum og orð- tökum. Dæmi eitt: Undir mynd af særðum manni stóð í blaði á dögunum: „Þessi maður steig á jarðsprengju og ber þess aldrei bætur.“ Hér er ekki fimlega til orða tekið. Ruglað er saman orð- tökunum að bera einhvers merki og bíða (aldrei) ein- hvers bætur. Maðurinn á myndinni ber þess lengi merki að hafa stigið á sprengjuna og biður þess því miður aldrei bætur. I þessu sambandi merk- ir sögnin að bíða=hljóta, fá. Dæmi tvö: í lýsingu á knatt- spyrnuleik var hvað eftir annað sagt að þessi eða hinn væri á „fríum sjó“. í knattspymu geta menn verið fríir, þegar enginn gætir þeirra, og skip geta verið á auðum sjó, þegar íslaust er. Ekkert er á móti því að tala líkingamál, ef menn kunna með líkingamar að fara og mál þeirra verður ekki nykrað. „Frír“ knattspyrnumaður getur verið á auðum sjó, í líkingu við skipið. Dæmi þijú: í bréfi til þáttar- ins var athygli vakin á orðasam- bandinu „að bera í brestina". Eins og bréfritari (Haukur Eg- gertsson í Reykjavík) telur, er hér afbakað orðtakið að beija í brestina. í 22. kafla Njálu segir frá ráðagerð Njáls Þorgeirssonar bónda á Bergþórshvoli til handa Gunnari Hámundarsyni bónda á Hlíðarenda er bjóst til að heimta fé frændkonu sinnar, Unnar Marðardóttur gígju, undan Hrúti Heijólfssyni bónda á Hrútsstöðum. Njáll réð Gunn- ari að taka á sig gervi Kaupa- Héðins sem var maður marg- mæltur og skapillur; þóttist einn allt vita. Hann rak oftlega aftur kaup sín og flaug á menn, þeg- ar eigi var allt gert sem hann vildi. Njáll sagði m.a. svo: „Síðan munt þú fara í braut um morguninn eftir ok koma á næsta bæ Hrútsstöðum; þar skalt þú láta falt smíðit ok hafa þat uppi af, er verst er, ok beija í brestina." „Einar Ólafur Sveinsson prófessor skýrir: „Orðtækið beija í brestina merkir upphaf- lega; dylja brestina með því að beija í þá.“ í doktorsritgerð Halldórs Halldórssonar segir: „BERJA í BRESTINA = fegra, afsaka gallana." Orðtakið er kunnugt úr fommáli [síðan kemur Njálutilvitnunin]. Líkingin er mnnin frá gulls- míði. Frummerking er „slá sam- an rifur á gull- eða silfurmuni". 445. þáttur Til em þeir sem vilja hér miða við fleiri smíðar en úr gulli og silfri. Fjórða dæmi: I knattspymulýsingu var talað um að „reka endahnútinn" á eitthvað. Hér var náttúrlega blandað saman orðtökunum að binda endahnútinn og að reka smiðshöggið á eitthvað. Og svo vom það hjónin sem lýstu hvort öðm með svofelldum orðum. Hann: Hún hefur svo sannarlega vaðið fyrir neðan nefið. Hún: Karlauminginn ger- ir ekki annað en beija höfðinu við lóminn. í bréfí frá Bemharð Haralds- syni á Akureyri segir m.a. á þessa leið. „í auglýsingariti, sem einnig birtir dagskrá sjónvarpsstöðv- anna beggja og dreift er í hús á Akureyri og e.t.v. víðar, er að finna auglýsingu, sem hefst á fyrirsögninni „Hestasveit". Við lestur kemur í ljós, að verið er að bjóða börrium og ungling- um til nokkurra daga dvalar á sveitabæ og er sérstaklega tek- ið fram, að farið verði á hestbak einu sinni á dag. Ég spyr þig álits á þessu orði „hestasveit", sem ég skil ekki og er ósáttur við.“ Umsjónarmaður er alveg jafn-ósáttur við orðið í þessari merkingu og bréfritari. Ég hef reyndar aldrei heyrt eða séð orðið, en fyrsta hugsun mín hefði trúlega orðið sú, að annað- hvort merkti það hestahópur eða þá sveit, þar sem mikið væri af (góðum) hestum. Gamalt „reseft", lagfært að vísu af manni „úti í bæ“: Akureyrar Apótek O.C. Thorarensen Hafnarstræti hundrað og fjer. Hristist áður en brúkað er: Rauðsprettuflök í piparrótarsósu. Rauðsprettuflök Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Oft er fáanleg góð rauðspretta og fisksalar bjóða þá upp á flakað- an fískinn, taka þar með af okkur ómakið. Þegar heil rauðspretta er matbúin fínnst víst flestum að roð- ið sé alveg ómissandi. Öðru máli gegnir með flökin, stundum er nauðsynlegt að fletta því af þó mörgum þyki þá illa farið með góðgæti. Roðið er að sjálfsögðu látið halda sér ef flökin eru steikt eða grilluð í heilu. En í uppskriftun- um sem hér fylgja á eftir eru flök- in matreidd án roðsins. Rauðsprettuflök í góðri sósu 600 g rauðsprettuflök, 1 físksoðsten. + 2 V2 dl vatn, 1 sítrónusneið, 1 msk. smjör, 1 msk. hveiti, 1—IV2 tsk. karrí, 2 msk. sherry (má sleppa), 100 g rækjur eða sveppir, salt og pipar. Vatn, soðten. og sítrónusneið sett í pott og suðan látin koma upp, flökunum skipt í tvennt eftir endilöngu og vafín saman, sett út í soðið og látið sjóða hægt í ca. 7 mín. Fiskurinn tekinn upp ásamt sítrónu og haldið heitum á meðan sósan er búin til. Smjör og hveiti hrært saman og hrært út í soðið, karrí og sherry bætt út í og sósan látin sjóða í 4—5 mín. Þá er ijóma bætt út í ásamt kryddi og meira karrí ef þurfa þyk- Er líf úti í geimi? Raunvísindi Egill Egilsson Lesandinn kann að hafa séð þessa spumingu oftar en einu sinni áður. Víst er hún ekki frum- leg. En á hinn bóginn eru að gerast vissir atburðir þessi árin í stjörriúfræði sem varpa ljósi á spuminguna. En stjömufræðing- ar em einmitt þessi árin að greina ummerki um fyrstu fylgihnetti utan um aðrar fastastjörnur. Ein- mitt þar má hugsa sér að líf þrífíst. Hvaða efni þarf til? Öll þekkt fonn lífs nota efnin kolefni, súrefni, vetni og köfnun- arefni. Sé litið á alheiminn í heild, era öll þessi efni á meðal hinna algengustu. Að svo komnu era einföldustu lífrænu efnin ekki aðeins bundin við jörðina, heldur hafa amínósýrur fundist í loft- steinum utan úr sólkerfínu. (Amínósýrar era undirstöðuefni annarra flóknari lífrænna efna.) Ein þeirra, glýsín (C2H502N) hefur fundist í geimþoku úti í Vetrarbrautinni. Þetta eitt ætti að nægja til að almennt væri meir trúað á líf úti í geimnum en áður. Hvaða aðstæður þarf til? í fyrsta lagi þarf hiti að vera hæfílegur. Líklegt má telja, að líf byggist m.a. á notkun vatns í vökvaformi. Þetta setur okkur það skilyrði að hiti sé ekki allfj- arri því sem gerist hér á jörð- inni, hver sem þrýstingur kann að vera. Að sjálfsögðu leitum vér þá svarsins á hugsanlegum reiki- stjörnum (sólkerfum) annarra fastastjama (sóla). „Sjást“ þær reikistjörnur? Það er ekki fyrr en á allra síðustu áram að hægt hefur ver- ið að færa sönnur á reikistjöm- ur, eða a.m.k. efni á hringhreyf- ingu í kringum næstu reikistjöm- ur. Væru næstu fastastjömur á stærð við sól, myndu þær sjást undir homi sem er um þúsund- asti hluti úr bogsekúndu. Engin ljóstæki greina ’nluti sem sjást undir þessu horni, og fastastjörn- ur koma aðeins fram í þeim sem lýsandi punktar. Þeim mun erfið- ara væri að greina reikistjömur sem þær era ekki nema brot af móðurhnettinum að stærð. Hinsvegar hefur verið sýnt fram á með öðram aðferðum en venjulegum ljósfræðilegum, að efni er að finna í kringum nokkr- ar af hinum nálægari fastastjöm- um Vetrarbrautarinnar. Þ. á m. era stjömumar Vega og Beta- Pictoris. Fastastjömur myndast við þéttingu úr skýi af Iausu efni. Þau líkön sem hafa verið gerð af myndun fastastjama fela í sér að hluti efnisins þéttist utan móðurhnattarins, og mynda reikistjömur. Reikistjömur era þannig taldar vera eðlilegir og algengir „fylgifískar" fasta- stjama, aðeins séu þær of litlar, séu þær utan okkar eigin sólkerf- is til að þær séu greinanlegar. í okkar vetrarbraut einni saman eru um eitt hundrað milljarðar stjama, og hugsanlega tíu millj- arðar sólkerfa. Áætla má fyölda reikistjama þar sem líf kæmi til greina. Sumir stjömufræðingar hafa áætlað að fy'öldi „heims- menninga" innan Vetrarbrautar- innar einnar slagi hátt upp í millj- ón. Hvar eru þá þessir vinir okkar? Ein algengustu rök gegn Hfí era að við höfum ekki enn orðið vör við það. Ef við geram ráð fyrir að líf breytist almennt í ein- hvers konar „menningu" með til- heyrandi tæknikunnáttu, ættum við að hafa fengið það í heimsókn eða a.m.k. heyrt frá því merkja- sendingar. Það þarf þó ekki svo að vera. Meginskýringin á því era óraví- ddir geimsins. Hraðskreiðustu eldflaugar mannsins til þessa væra um hundrað þúsund ár að komast til næstu fastastjörnu. Og hver segir að þar sé að fínna reikistjömur, hvað þá líf. Við ráðum að vísu yfír nógu öflugum tækjum til að koma út- varpsmerkjum til þeirra staða geimsins þar sem líf kann að vera að finna, en við þyrftum óneitanlega að bíða lengi eftir svari. Ef við ætlum að ferðast til einhverra staða, þarf farar- tækið að ná veralegum hluta ljós- hraðans, eða a.m.k. þúsundföld- um þeim hraða sem hefur náðst hingað til. Þetta er þó ekki öllu lengra undan en svo, að vel má hugsa sér að það verði leyst tæknilega á næstu öld. Fyrst þarf þó að leysa hið erfíða tækni- vandamál að geta látið kjamas- amrana fara fram hægt og „ró- lega“, en ekki eins og hingað til, í vetnissprengjum. Það mál telja menn almennt að verði leyst löngu áður en öld er iiðin. Að öðra leyti nýtir svona geimflaug ekki annað en venjulega nútima tækni. Rauðsprettuflök í góðri sósu. ir. Fiskurinn, rækjur eða sveppir sett út í sósuna og hitað með. Góð- ar kartöflur bornar fram með. Ætlað fyrir fjóra. Rauðsprettuf lök í piparrótarsósu 600 g rauðsprettuflök, 2 tsk. salt, 1 msk. sítrónusafi, 1 msk. smjör eða smjörlíki 1 msk. hveiti, 1 msk. rifín piparrót, IV2 dl mjólk, steinselja. Flökin tekin sundur í miðju eftir endilöngu, salt og sítrónusafí sett yfir flökin, þeim rúllað upp og sett í víðan pott eða pönnu. Sósan er löguð á eftirfarandi hátt: Smjörið brætt, hveiti stráð yfír, piparrótin sett saman við og mjólkin notuð til að þynna með. Suðan látin koma upp og síðan hellt yfír fískinn sem látinn er malla við vægan straum í 6—8 mín. Steinselju stráð yfír um leið og borið er fram. Soðnar kart- öflur og grænmetissalat borið með. Ætlað fyrir fjóra. Rauðsprettuflök í sveppasósu 600 g rauðsprettuflök, 250 g sveppir, 3—4 tómatar, 2 litlir laukar, 50 g smjör, salt og pipar, sítrónusafí eða hvítvín. Sveppimir skomir í sneiðar, lauk- urinn brytjaður og hýðið tekið af tómötunum (næst af ef stungið er augnablik í heitt vatn). Smjörið brætt í potti, sveppimir settir út í ásamt lauknum og brytjuðum tóm- ötum, kiyddað að smekk. Flokkunum er skipt í tvennt eftir endilöngu, salti stráð á og þeim rúllað upp. Rúllumar settar ofan í sósuna í pottinum, sítrónusafa eða hvítvíni hellt yfír og fískurinn látinn malla við vægan straum í 8—10 mín. Soðnar kartöflur eða soðin hrísgijón borin með. Ætlað fyrir flóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.