Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 31

Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 31 Morgunblaðið/Vigdís Grillað á Grenivík íbúar við Ægissíðu á Grenivík héldu vel heppnaða grillveislu um síðustu helgi. AUir skemmtu sér hið besta. Böm og fullorðn- ir fóm meðal annars í snú-snú og margt fleira var sér til gam- ans gert. Ráðgert er að griUveisla verði árlegur viðburður hjá ibúunum framvegis. Meðfylgjandi myndir era teknar úr griU- veislunni. Þýskur kór á söng- för á Norðurlandi ÞÝSKUR kór, „Kantorei an der Paulus Kirche“, frá Hambach/- Neustadt syngur í Akureyrar- kirkju á sunnudag kl. 17.00, í Húsavíkurkirkju á mánudags- kvöld kl. 20.30 og í Reykjahlíð- arkirkju í Mývatnssveit á sama tíma á þriðjudagskvöld. Kórinn var stofnaður árið 1982 og auk þess að syngja við guðs- þjónustur við Pálskirkju hefur hann haldið tónleika með stærri verkum, meðal annars „Davíð konungur" eftir A. Honneger og „Oratoria eft- ir myndum í biblíunni" eftir Fanny Hensel, systur F. Mendelsohns. Stjómandi kórsins er Carola Bisc- hoff. Hún hefur lokið prófi í ein- söng, kór- og hljómsveitarstjórn frá tónlistarháskólanum í Heidelberg- Mannheim. Einsöngvari með kómum verður Margrét Bóasdóttir, en hún og Bisc- hoff voru samtíða við tónlistar- háskólann í Heidelberg-Mannheim. Margrét hefur áður sungið með kórnum, nú síðast í sópranhlutverk- inu í „Davíð konungur“. Orgelleikari verður prófessor Heinz Markus-Göttsche. Hann var söngmálastjóri landskirkjunnar í Pfalz og er nú starlandi orgelleik- ari við Stiftskirkjuna í Landau. Hann hefur haldið tónleika í fjöl- mörgum Evrópulöndum og leikið inn á hljómplötur. Á efnisskrá tónleikanna era kirkjuleg og veraldleg kórverk og orgeltónlist og verða aðrir tónleikar haldnir í Hallgrímskirkju sunnudag- inn 31. júlí kl. 17.00. Ólafsfjörður: Síðasti fundur Val- týs sem bæjarstjóra Ólafsfirði. Á júlífundi bæjarstjórnar Ól- afsfjarðar kvöddu bæjarfulltrú- ar Valtý Sigurbjarnarson bæjar- sljóra en þetta var hans síðasti bæjarstjórnarfundur sem bæjar- stjóri Ólafsfirðinga. Hann lætur af störfum um næstu mánaðamót og tekur við starfi útibússtjóra Byggðastofnunar á Akureyri. Valtýr hefur verið bæjarstjóri á Ólafsfirði í fimm ár. Hann er land- fræðingur að mennt og starfaði áður hjá Þróunarstofnun Reykjavíkurborgar. Valtýr er kvæntur Pálínu Bjömsdóttur og eiga þau fjóra syni. Við starfi bæjarstjóra tekur gam- all Ólafsfirðingur, Bjami Grímsson. Bjarni er viðskiptafræðingur að mennt, starfaði að loknu námi með- al annars hjá Fiskveiðasjóði en hef- ur nú um nokkurt skeið verið kaup- félagsstjóri hjá Kaupfélagi Dýrfirð- inga. Bjami er 33 ára gamall, kvæntur Brynju Eggertsdóttur frá Akureyri og eiga þau íjóra syni. SB Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir Hlaupagarparnir frönsku við göngugötuna á Akureyri. Frá vinstri: Francois Tys, David Neiss, Laurent Roquigny og Arnault Damien. Erum umkringdir stórbrot- inni náttúrufegurð á Islandi - segja franskir ferðalangar, sem fara hringveginn hlaupandi HER A landi em nú staddir fjór- ir ungir Frakkar, sem hafa það að markmiði að fara fyrstir hringinn í kringum landið hlaup- andi. Frakkarnir, sem allir em um tvítugt og stunda háskólanám í „kampavínsborginni" Reims, komu til Akureyrar sl. miðviku- dag þar sem blaðamaður ræddi stuttlega við þá. Þeir lögðu upp frá Egilsstöðum, fóru norðúr til Mývatnssveitar og Akureyrar og halda síðan áfram sem leið liggur vestur og suður og enda síðan á Seyðisfirði, þar sem þeir fara heim á leið með Norrænu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Tjón er ekki talið nema miklu og er verðmætur bíll, sem stóð innan dyra, að mestu óskemmdur. Fjórmenningamir sögðust hafa hlaupið nokkram sinnum í frönsku Olpunum, en í þetta sinn vildu þeir prófa eitthvað nýtl og gjörólíkt. Því hefði Island orðið fyrir valinu. „Við vissum eiginlega ekkert hvert við áttum að fara, en eftir að hafa rek- ist á ljósmyndir af íslandi heima þá voram við allir sammála um hvert skyldi halda. Með því að hlaupa hringinn, sjáum við miklu meira af náttúranni heldur en þeir , sem fara akandi um. Hér era eld- fjöll og hiti í jörðu, nokkuð sem við sjáum ekki daglega heima fyrir. Við eram gjörsamlega umkringdir stórbrotinni náttúrafegurð." Þeir ætla sér mánuð í ferðalagið og hleypur hver þeirra hálfmaraþon á degi hveijum sem er um 20 km á dag. Hlaupið er í formi boðhlaups þannig að einn hleypur hve.-ju sinni á meðan hinir fylgjast með úr bfl, sem þeir höfðu meðferðis til lands- ins. I leiðinni hyggjast þeir gera kvikmynd um hlaupið og hafa þeir fengið ágætar undirtektir hjá franska sjónvarpinu hvað sýningu varðar. Kostnaður við ferðina nem- ur yfir einni milljón króna og hafa ýmis frönsk fyrirtæki, þar á meðal bílaverksmiðja, útvarpsstöðvar og ferðaskrifstofur, styrkt þá til farar- innar. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið. i Drottinn Guó, veit mér vernd þína, og lát mig minnast ábyrgöar minnar er ég ek þessari bifreið. I Jesú nafni. Amen. Fæst í Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, í verslun- inni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Verð kr. 50.- Orð dagsins, Akureyri. Morgunblaðið/Sigurður Bjömsson Valtýr Sigurbjarnarson kvaddi bæjarstjórn á júlifundi hennar. Eldur í bílgeymslu ELDUR kom upp í bílgeymslu við bæinn Austurhlíð i Onguls- staðahreppi laust eftir miðnætti í fyrrakvöld. Þrír menn úr Slökkviliði Akureyrar fóm á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Gísli Lorenzson varðstjóri hjá slökkviliðinu sagði í samtali við Morgunblaðið að verkið hefði ekki síst gengið vel vegna þess hve eig- andinn brást rétt við. Hann hafði lokað öllum hurðum og gluggum í geymslunni og beðið hinn rólegasti eftir aðstoð. Tjón er ekki talið vera mikið, en í geymslunni var nýlegur Porsche-bíll, sem metinn er á um eina og hálfa milljón króna. Hann er nær óskemmdur. Talið er að kviknað hafi í út frá rafsuðu.. Eig- andi skúrsins hafði verið að rafsjóða innan dyra og bragðið sér frá um stund. Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: Skarðshlíð 1-21, Lyngholt og Stórholt, Dalsgerði. Uppl. í Hafnarstræti 85, Akureyri - sími 23905.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.