Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988
HANDKNATTLEIKUR / V—ÞYSKALAND
„Raunhæft að ísland nái
verðlaunasæti í Seoul“
>«
liðið og möguleika þess í Seoul?
„íslenska liðið er mjög þroskað
og leikreynt og nær hápunkti í
Seoul. Leikmenn eru á besta aldri,
en ef liðið nær ekki góðum ár-
angri núna þá liggur leiðin niður
á við.
I íslenska liðinu eru margir mjög
góðir leikmenn á alþjóðlegan
mælikvarða sem eru byggðir upp
í Vestur-Þýskalandi þar sem þeir
hafa leikið við fyrsta flokks að-
stæður. (Kristján) Arason, (Al-
freð) Gíslason, (Páll) Ólafsson,
(Sigurður) Sveinsson og (Atli)
Hilmarsson eru nær fullkomnir
leikmenn. Þá er homamaðurinn
litli (Guðmundur Guðmundssson)
ótrúlega skemmtilegur og (Þorg-
ils Óttar) Mathiesen er mjög
sterkur leikmaður.
Með þessu liði ætti að vera raun-
hæft að ná í verðlaunasæti á
Ólympíuleikunum og það held ég
að sé rökrétt mat en ekki ósk-
hyggja."
Hverjir eru gallar íslenska liðs-
ins?
„Það vantar meiri samræmingu í
vamarleikinn og meiri fjölbreytni
í sóknarleikinn. En þetta em
vandamál sem öll lið eiga við að
stríða ,og það er nægur tími til
stefnu."
Ekkert lið án þjálfara
Hvað með þjálfarann, Bogdan
Kowalczyk?
„Ég þekki ekki svo vel til hans
en að koma liði frá 240.000
manna þjóð á Ólympíuleika segir
sína sögu. Hann hefur líka fengið
góða leikmenn úr vestur-þýsku
úrvalsdeildinni og það hefur hjálp-
að honum. En það er ekkert lið
án þjálfara og enginn þjálfari án
liðs!“
Hvað er framundan hjá v-þýska
landsliðinu?
„í fyrsta lagi að ná í A-keppni.
Það er númer eitt. Við getum
staðist bestu þjóðum heims snún-
ing, en í B-keppninni er leikið upp
á líf og dauða. Við erum með
gott lið og ef við'komum sálfræði-
legu hliðinni í lag þá verðum við
Ólympíuþjóð að nýju.“
Hver eru vandamál v-þýska
landsliðsins?
„Vestur-þýsk félagslið eru mjög
sjálfselsk og viija ekki gefa leik-
mönnum mikinn tíma með lands-
liðinu. Við fáum til dæmis aðeins
70 daga í undirbúning fyrir B-
keppnina og það er það minnsta
sem vestur-þýska landsliðið hefur
nokkurn tíman fengið fyrir slíka
keppni.
Islendingar hafa fengið ótrúlega
mikinn tíma til undirbúnings.
Þeim tekst því að ná upp þeim
liðsanda sem þarf, því í hand-
knattleik gerast engin krafta-
verk.“
Gott aö vinna annan
Hvað með leikina um helgina.
Attu von á sigri?
„Það væri gott að vinna annan
leikinn. Við höfum leikið tvo
skemmtilega leiki og leikurinn í
Austur-Þýskalandi var að vísu
mjög harður en einnig mjög góð-
ur. Þrátt fyrir vinskap er ekkert
gefið eftir í rúma klukkustund og
hálftíma eftir leik eru allir vinir
að nýju. Þannig eiga íþróttir að
vera.
Ég vona að höllin verði troðfull
því við höfum gott af því að leika
á útivelli. Við erum að undirbúa
okkur fyrir B-keppnina í Frakkl-
andi og þar leikum við alla leikina
á útivelli.“
Áfram ífremstu röð
Hvað með framtíðina hjá þess-
um tveimur liðum, v-þýska og
íslenska?
„Við erum á uppleið og eigum
marga unga leikmenn sem geta
tekið við. Ég veit ekki hvernig
þetta er hjá íslenska liðinu hvort
það nær að halda sínu striki eftir
Ólympíuleikana eða hvort það
hrapar aftur niður. Ég reikna þó
frekar með því að Island verði
áfram í fremstu röð, en það er
alltaf erfiðara að halda sér á
toppnum en að ná þangað. En
íslenska liðið er líklegt til afreka
á Ólympíuleikunum og ég spái því
hiklaust í 1.-4. sæti.“
- segir Petre Ivanescu, landsliðsþjálfari V-Þýskalands
Petre Ivanescu þungbrýnn á varamannabekknum.
PETRE IVANESCU ereinn
virtasti þjálfari heims í hand-
knattleik. Hann hefur þjálfað
v-þýska landsliðið í rúmt ár
og á þeim tíma hefur hann
sýnt að liðið á ekki heima í
hópi B-þjóða. Áðuren hann
tók við landsliðinu var hann
einn fremsti handknattleiks-
maður Rúmeníu, en þaðan er
hann ættaður, og náði frá-
bærum árangri sem þjálfari
v-þýskra féiagsliða. Hann er
nú staddur hér á landi með
v-þýska landsliðinu sem mun
mæta íslendingum ítveimur
vináttulandsleikjum um helg-
ina.
Ívansceu er kannski dæmigerð-
ur þjálfari í fasi. Hann virkar
frekar þunglyndur og á það til
að sleppa sér gjörsamlega á vara-
mannabekknum ef
honum líkar ekki
frammistaða sinna
manna. En árang-
urinn sem hann
hefur náð er sannarlega glæsileg-
ur.
Petra Ivanescu kom frá Rúmeníu
1957, en þá var hann einn besti
handknattleiksmaður þjóðarinnar.
Um það leyti tóku Rúmenía og
V-Þýskaland upp stjórnmálalegt
samband. Hann ílentist svo í V-
EftirLoga
B. Eiðsson og
Jóhann Inga
Gunnarsson
Þýskalandi, enda var samningur
hans ávallt framlengdur. hann
hefur því búið ' V-Þýskalandi og
fyrir rúmu ári tók hann við stöðu
landsliðsþjálfara og er nú orðinn
v-þýskur ríkisborgari.
Aðspurður segist Ivanescu vera
ánægður með úrslitin í leikjum
V-Þjóverja gegn íslendingum í
Vestur- og Austur-Þýskalandi.
„Leikirnir voru liður í undirbún-
ingi okkar og tókust vel. Bæði lið
reyndu ýmislegt og leikirnir voru
góðir.“
Nær hápunkti í Seoul
Hvað finnst þér um íslenska
Petre Ivanescu er 52 ára og hefur
búið í 21 ár í V-Þýskalandi. Hann
lék í Rúmeníu í 15 ár en þá fluttist
hann til V-Þýskalands, Hann lék
rúmlega 200 landsleiki með rúm-
enska landsliðinu og varð heims-
meistari með því 1961
og 1964.
Arangur sem þjálfari:
Gummersbach:
V-pýskur meistari 1979 og 1983
Bikarmeistari 1979, 1982 og 1983.
Sigurvegari f Evrópukeppni bikar-
hafa 1982 og Evrópukeppni meist-
araliða 1983. Sigurvegari í Meistara-
leiknum (milli Evrópumeistara bikar-
hafa- og meistaraliða) 1982 og 1983.
Essen:
V-þýskur meistari 1986.
V-þýska landsliðið:
Heimsbikarmeistarar 1988 og sigur-
í Super Cup 1988. Liðið
ikið 30 landsieiki undir hans
stjóm og aðeins tapað 7.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / BANDARÍKIN
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
„ButchM lofar heimsmeti
HARRY „Butch“ Reynolds, sem
hljóp 400 metrana á 43.93
sek.á úrtökumótinu í Banda-
ríkjunum sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hann væri viss
um að sigra heimsmethafann,
Thomas Schönlebe, á ólympíu-
leikunum í Seoul. í hlaupinu
náði Butch næstbesta tíma í
heiminum í 400 metra hlaupi,
en heimsmetið, sem Lee Evans
á, er orðið 20 ára gamalt, og
er einungis 7 sekúndubrotum
lægra.
Butch sagðist einnig ekki ætla
að láta sér nægja að sigra
Shönlebe hann ætlaði sér að setja
nýtt heimsmet. „Lee Evans á nokk-
uð, sem ég hef alvarlega í hyggju
að eignast," sagði Butch, sem spáði
því einnig að heimsmetið í 4x400
metra boðhlaupi, myndi falla, en
Butch er auðvitað í henni ásamt
Danny Evrett og Steve Lewis. Hver
flórði maðurinn verður er ekki enn
ákveðið.
í stangarstökkinu sigraði Kory Tar-
penning, stökk 5.89 metra í fyrstu
tilraun og reyndist það 10 sm.
hærra en hjá næsta manni. Einung-
is 8 stökkvarar hafa stokkið hærra
en hinn 26 ára gamli Tarpenning,
en ólympíuleikarnir í Seoul verða
þeir fyrstu sem hann tekur þátt í.
Tim Bright, sem varð annar í tug-
Úrslit
Úrslit uröu þessi á bandaríska úr-
tökumótinu í frjálsum íþróttum á
fimmtudaginn. Þrír efstu tryg^göu
sér farseðilinn til Seoul:
Tugþraut:
1. Gary Kinder............ 8.293
2. Tim Bright...............8.287
3. Dave Johnson........... 8.245
Kringlukast kvenna:
1. Connie Price.............61.28
2. Ramona Pagel..............61.28
3. Carol Cady................60.66
Stangarstökk:
1. Kory Tarpenning...........'. 5.89
2. Earl Bell..................5.79
3. Billy Olson................5.69
þrautinni, varð fjórði í stangar-
stökkinu, stökk 5.69 metra og mun-
aði því minnstu að honum tækist
að vina sér þátttökurétt í þeirri
grein. Eftir keppnina sagði Bright
að hann hefði gefið sæti sitt eftir
í stangarstökkinu ef hann hefði náð
þriðja sæti, og kvaðst einungis hafa
stokkið sér til gamans.
Þátttakendur Bandaríkjanna í tug-
þraut verða auk Brights þeir Gary
Kinder, sem sigraði, og Dave Jo-
hnson.
Mary Decker Slaney hljóp 1500
metrana á 4.27 mínútum, og er það
besti árangur sem náðst hefur í
Bandaríkjunum í ár. Hún mun einn-
ig taka þátt í 3000 metra hlaupinu
í Seoul.
í gær fór fram keppni í 110 metra
grindarhlaupi, þar sem heimsmet-
hafinn handleggsbrotni, Greg Fost-
er, var meðal keppenda, en hann
brotnaði 4. júlí, og eins og aðrir
þarf hann að náð einu af þremur
efstu sætunum til að komast til
Seoul.
Tómas bjargaði
Eyjamönnum
Tómás Ingi Tómasson bjargaði
öðru stiginu fyrir Eyjamenn
er þeir mættu Þrótturum á Val-
bjamarvellinum í gær. Hann skor-
aði bæði mörk Eyjamanna, það
síðara þremur mínútum fyrir
leikslok, en Þróttarar höfðu skor-
að tvö fyrstu mörkin.
Leikurinn var fjörugur og Þróttar-
ar voru sterkari framan af. Þeir
Þróttur-IBV
2:2 (1:0)
Mörk Þróttan Sigurður Hallvarðsson
(30. vsp.), Hermann Arason (60.).
Mörk IBV: Tómas Ingi Tómasson (77.
og 87.).
Maður leiksins: Adolf Óskareson, ÍBV.
uppskáru tvö mörk og leit allt út
fyrir langþráðan sigur. En smám
saman komust Eyjamenn inn í
leikinn og tvö mörk á síðustu
mínútunum færðu þeim annað
stigið.
Það mátti þó ekki miklu muna
því rétt fyrir leikslok átti Sigfús
Kárason þrumuskot í þverslá
Eyjamarksins úr góðu færi.
Segja má að jafntefli hafi verið
sanngjöm úrslit. Liðin skiptu
leiknum bróðurlega á milli sín,
Þróttarar voru sterkari í fyrri
hálfleik og Eyjamenn í þeim
síðari.
Þróttarar fengu mörg góð færi,
en Adolf Óskarsson varði oft mjög
vel. Þá fengu Eyjamenn dauða-
færi rétt fyrir leikslok, en Jón
Ólafur Daníelsson skaut framhjá
af stuttu færi.
H111! f 11H1111M111111111H i