Morgunblaðið - 23.07.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988
SUBSIRAL
BLÓMAÁBURÐUR
BMW 528i 1983
Til sölu er bíll í sérflokki. Ekinn 63 þús. km. af
sömu fjölskyldú.
Sjálfskiptur með ABS-bremsum.
„On board“ tölva. Sportfelgur. Vetrardekk.
Skipti á góðum jeppa, helst Toyota Landcruiser,
koma til greina.
Nánari upplýsingar fást í dag og á morgun í síma
672471.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Hverfisgata
63-115
Eskihlíð
Úthlíð
Austurbrún,
staka talan
Efstasund 2-59
Langholtsvegur
1-43
ÁRBÆR
Þingás
GRAFARVOGUR
Fannafold
Dverghamrar
Dælustöð hitaveitunnar. Heitt vatn fyrir hitaveituna fannst út i miðju Morgunblaðií/Garðar Rúnar Sigurgeirsson
Urriðavatni.
Egilsstaðir:
Breytt sölufyrirkomu
lag hjá hitaveitunni
Seyðisfirði.
HITAVEITA Egilsstaða og Fella
hefur breytt sölufyrirkomulag-
inu hjá sér, þannig að hætt er
að selja vatn um hemil með há-
marksstillingu en i stað þess er
vatnið selt samkvæmt rennslis-
mæli. Undirbúningur að þessu
hefur staðið yfir undanfarna
mánuði og er þessi breyting hús-
eigendum að kostnaðarlausu.
Með þessari sölukerfisbreytingu
áformar hitaveitan ekki að auka
heildartekjur sinar, heldur er
verið að stuðla að betri nýtingu
vatnsins.
Bjöm Sveinsson hitaveitstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
að fyrir húseiganda, sem hefði
keypt hæfilegan vatnsskammt sam-
kvæmt hemlakerfinu og verið með
eðilega nýtingu, eða um 50—60%,
myndi þessi breyting ekki leiða til
hækkunar hitaveitureikninga. En
notandi, sem hefði hinsvegar keypt
of lítinn vatnsskammt og verið með
óeðlilega hátt nýtingarhlutfall
mætti búast við hærri hitaveitu-
reikningum samkvæmt nýja sölu-
fyrirkomulaginu. Er þá miðað við
að hann haldi eðlilegum innihita á
köldustu tímum.
Bjöm var spurður hvers vegna
hitaveitan væri að breyta sölufyrir-
komulaginu, og sagði hann: „Sam-
kvæmt fyrra sölufyrirkomulagi
lögðust byrðar húshitunar mjög
ójafnt á notendur veitunnar. Við
voram með mælingar á vatns-
rennsli inn í nokkur hús á svæði
veitunnar. Þessar mælingar stóðu
yfir í eitt ár og sýndu glöggt það
ósamræmi sem hefur ríkt í greiðsl-
um fyrir hvem notaðan rúmmetra
vatns og mismunandi nýtingu á
keyptum vatnsskammti." Bjöm
sagði að mikil vatnsnotkun á sumr-
in væri sóun, sem þetta nýja sölu-
fyrirkomulag ætti að koma í veg
fyrir. „Sóun að sumarlagi hefur í
for með sér að gengið er á vatns-
forðann að óþörfu og leiðir að end-
ingu til þess að ráðast þarf í kostn-
aðarsamar virkjunarframkvæmdir.
Hluti notendá tekur minni vatns-
skammt inn í hús sín en þeir þurfa
í raun til að mæta kuldaköstum.
Oft era þetta sömu aðilamir og láta
vatnið renna óhindrað yfir sumarið,
þeir hafa því í raun notað allan
vatnsskammtinn sinn en dreift
Björn Sveinsson iiitaveitustjóri
hjá hitaveitu Egilsstaða og Fella.
notkuninni rangt yfir árið", sagði
Bjöm.
„Aðrir helstu kostir þessara
breytinga era að með þessu sölufyr-
irkomulagi sparar hitaveitan sér
dýrmætan orkuforða að sumarlagi,
sem fram til þessa hefur farið í
súginn svo hundraðum tonna skipt-
ir. Þessi orkuforði nýtist nú til að
standast álagið á köldum dögum,
auk þess vinnst með þessu að neyt-
endur greiða í réttu hlutfalli við
notkun og geta stjórnað notkun
sinni og útgjöldum," sagði Bjöm
Sveinsson hitaveitustjóri hitaveitu
Egilsstaða og Fella, Fellabæ.
- Garðar Rúnar
Kór Öldutúnsskóla fær góða
dóma í áströlskum blöðum
Egill Friðleifsson kjörinn fulltrúi Evr-
ópu í stjórn alþjóðasambands kórstjóra
Canberra, Ástraliu. Frá Jóni Birgi Péturssyni.
KÓR Öldutúnsskóla frá Hafnarfirði fékk stórkostlegar móttökur
hér í Canberra, höfuðborg Ástralíu 20. júlí siðastliðinn, þegar
kórinn hélt sína aðra tónleika í sambandi við þing ISME, sem eru
alþjóðasamtök tónlistarkennara. Um 700 fulltrúar nánast allra
landa sóttu þingið heim. Hér voru ennfremur 8-900 ungir tónlistar-
menn viða að, sem sýndu kunnáttu sína. Tónleikar ungs fólks
voru því tíðir hér í höfuðborg Eyjaálfu.
Það verður að sejgjast að einn
minnsti kórinn, kór Óldutúnsskóla,
vakti gífurlega athygli og dró að
sér ótrúlegan fjölda áhorfenda.
Blöð hér hafa ekki séð ástæðu til
þess að birta gagnrýni um nema
fáa kóra og hljómsveitir, en kór
Öldutúnsskóla er í þeim hópi.
í blaðinu „The Canberra Times“
á fimmtudagsmorgni segir m.a.
um söns kórsins: „Kórinn sýnir
óvenjulega raddbeitingu og hún
krefst snilldarlegrar stjómunar.
Lögin vom flutt á alveg einstakan
og frábæran hátt.“
Viðbrögð áheyrenda voru þau
sömu en þeir fylltu hinn stóra tón-
leikasal „Llewellyn Hall“, sem er
hluti af tónlistarskóla höfuðborg-
arinnar, salur, sem er stærri en
Þjóðleikhús íslendinga. Lófaklapp
og hvatningaróp fylltu salinn frá
fyrsta lagi og fóra stigmagnandi
eftir því sem á dagskrána leið.
Eftir tónleikana var mikið um
að vera í kringum^ fararstjórana
og mörgum spumingum svarað.
Mikið var beðið um hljómplötur
með kórnum, sem reyndar eru
löngu uppseldar og víða sást fólk
með kynningarrit kórsins, sem því
miður var prentað í alltof litlu
upplagi og er á þrotum. Þar era
ávarpsorð Vigdísar Finnbogadótt-
ur, forseta íslands, Birgis ísleifs
Gunnarssonar, menntamálaráð-
herra og Guðmundar Áma Stef-
ánssonar bæjarstjóra Hafnarfjarð-
ar. Margir útlendinganna hafa
hrifíst af orðum forsetans þess
efnis að „tónlistin sé hið alþjóðlega
tungumál, sem túlki vonir og þrár
fólks“.
Á lokatónleikunum hér, sem
haldnir vora að kvöldi 20. júlí, kom
kór Öldutúnsskóla fram ásamt
tveim öðrum, það er kór frá
Adelaide og 80 mánna sinfóníu-
hljómsveit frá Bæjaralandi í Vest-
ur-Þýskalandi. Var greinilegt að
„litla liðið" úr Hafnarfirði stóð
nánast jafnfæti Þjóðveijunum um
vinsældir, enda hafa blaðaum-
sagnir staðfest það.
I framhaldi af þessu var Egill
Friðleifsson stjórnandi kórs Öldu-
túnsskóla kjörinn í stjóm alþjóða-
sambands kórstjóra, sem fulltrúi
Evrópu. Var honum innilega fagn-
að, sem „virtúós" er hann gekk á
fund ISME. Egill sagði við blaða-
mann að hann teldi þessa kosningu
heiður við kórinn og starfsemi
hans og myndi hann reyna eftir
megni að leggja sín lóð á vogar-
skálarnar til að efla starfsemi kó-
ranna víða um heim.