Morgunblaðið - 23.07.1988, Síða 23

Morgunblaðið - 23.07.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 23 þessari tækni og íslendingar búa yfir. Ég held að sala á þessu hug- viti geti orðið einn af vaxtarbrodd- um í útflutningi þjóðarinnar á næstu árum,“ sagði Conant. Mannkyni ógnað með vígbúnaði í norðri Jakob Ostrovskíj og Dsjúbenko Pavel eru sérfræðingar í alþjóða- rétti við utanríkisráðuneyti Sovét- ríkjanna. Eins og aðrir meðlimir samstarfshópsins sækja þeir ráð- stefnuna sem einstaklingar af áhuga fyrir málefnum norðurheim- skautssvæðisins. I nyrstu héruðum Sovétríkjanna búa eða starfa að staðaldri í kring- um 10 milljónir manna að þeirra sögn. Olíuvinnsla á norðurslóðum er þegar stór búgrein þar eystra og mun óhjákvæmilega fara vax- andi á næstu árum, segir Ostrovskíj aðspurður. „Við þurfum að leita leiða til þess að nýta olíu og gaslind- ir án þess að valda skaða. Engum blandast hugur um að umhverfið er mun viðkvæmara fyrir spjöllum eftir því sem norðar dregur,“ sagði hann. „Það eru mörg vandamál í al- þjóðarétti sem varða skiptingu norðurheimskautsins og siglinga- leiðir í norðurhöfum svo dæmi séu Morgunblaðið/Þorkell „Það eru mörg vandamál í al- þjóðarétti sem varða skiptingu norðurheimskautsins og sigl- ingaleiðir í norðurhöfum svo dæmi séu nefnd,“ sagði Jakob Ostrovskíj, sérfræðingur í al- þjóðarétti við utanríkisráðuneyti Sovétríkjanna. nefnd," sagði Ostrovskíj „Hervæð- ing þessa heimshluta eykst stig af stigi og öllu mannkyni stafar hætta af henni ef ekki verður gripið í taumana. Ef við höldum áfram á braut kjarnorkuafvopnunar á landi eykst mikilvægi hafssvæðanna að sama skapi.“ Of dræm viðbrögð við ræðunni í Múrmansk „í ræðu sinni í Múrmansk síðast- liðið haust lagði leiðtogi Sovétríkj- anna Mikhaíl Gorbatsjov fram ákveðnar tillögur til lausnar á vandamálum á norðurslóðum sem við teljum að stuðli að friði í þessum heimshluta. Hann lagði ríka áherslu á nauðsyn viðræðna um samstarf á breiðum grundvelli til þess að leysa þau vandamál sem að steðja," sagði Pavel. Gorbatsjov kvað Sovétríkin hlynnt því að dregið yrði úr vígbún- aði á þessum slóðum, en að sjálf- sögðu getur slík afvopnun ekki orð- ið einhliða. Því miður hafa viðbrögð Atlantshafsbandalagsríkjannaverið dræm og hlýtur það að valda mikl- um vonbrigðum. Sjálfsagt má rekja þessi viðbrögð NATO til innbyrðis deilna í bandalaginu. Hér er mikið í húfi og mikilvægt að leggja grund- völlinn að samvinnu með gagn- kvæmu trausti. Við verðum bara að vona að heilbrigð skynsemi verði ofan á og okkur auðnist að stíga mikilvæg skref í átt til friðar. Skipting heimsins milli austurs og vesturs er staðreynd sem ekki verður umflúin, hvort sem okkur líkar hún betur eða verr. Hvergi eru stórveldin í eins mikilli snert- ingu og einmitt á norðurslóðum. Vígvæðing er ekki leiðin til að auka jafnvægið milli stórveldanna, því mætti einnig viðhalda með mun minni vopnabúnaði en nú er. Þessa umræðu þarf að nálgast með opnum huga, án þess að gera sér grillur um ástandið í dag. Við þurfum að opna farveg fyrir umræðuna," sagði Pavel. Þurfum að ná til eyrna ráðamanna „Það sem gerist á norðurslóðum inu næstu árin og áratugina snertir alla jarðarbúa. Þótt við gerum okk- ur grein fyrir vandanum, er það ekki nóg. Eðli málsins kallar á heild- arskipulag sem verður að fram- fylgja. Norðurheimsskautið er af vísindamönnum kallað „eldhús veð- urfarsins“ og með því að hrófla við náttúrulegu jafnvægi gætum við kallað yfir okkur miklar náttúru- hamfarir. Hér þarf því að fara með gát, því áður en varir er skaðinn skeður og þá erum við lent í blind- götu,“ sagði Ostrovskíj. Þeir kváðu fundinn gagnlegan og stuðla að trausti milli þjóðanna. „Þegar við skiljum ekki sjónarmið hvors annars eru vandamálin erfið- ari viðfangs. Hér gefst okkur tæki- færi til að viðra skoðanir og hlýða Morgunblaðið/Þorkell „Vígvæðing er ekki leiðin til að auka jafnvægið milli stórveld- anna, þvi mætti einnig viðhalda með mun minni vopnabúnaði en nú er... Við þurfum að opna far- veg fyrir umræðuna,“ sagði Dsjúbenko Pavel, sérfræðingur i alþjóðarétti við utanrikisráðu- neyti Sovétrikjanna. á málflutning starfssystkyna frá öðrum löndum. Þetta starf á eftir að taka langan tíma. Erfiðasti hjall- inn er að ná eyrum þeirra sem ráða ríkjum og opna augu almennings fyrir mikilvægi þessa svæðis. Að- stæður krefjast þess einfaldlega að ríkin auki samvinnu sína. Takist það munum við lenda réttu megin hryggjar," sagði Pavel. / / Nor imark MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ VEIÐIHNÍFAR Amerísku garðhúsgögnin frá Kaliforníu, sem slegið hafa í gegn Rauðviðar- og Resingarðhúsgögn, sem þola að standa úti. Opið virka daga frá kl. 10-18 Sölusýning laugardag frá kl. 10-18 og sunnudag frá kl. 13-17. ) Skeifunni 3G

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.