Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 25

Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 25 Reuter Flóð á Spáni Ibúi í Baskahéruðum Spánar sést hér þrífa heimreiðina að bílskúrnum sínum en á bílastæði handan girðingarinnar eru flök bila sem gífurleg vatnsflóð hafa þeytt um koll. Að minnsta kosti átta manns týndu lífi og tíu er enn saknað eftir flóðin sem urðu vegna úrhellisngninga í fyrrinótt á Norður-Spáni. Umsvifamesti kókaín- barón Bólivíu handtekinn La Paz, Bólivíu. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bólivíu hafa sagt kókaínframleiðslu í landinu stríð á hendur. A miðvikudag handtók lögregla Roberto Su- arez Gomez, umsvifamesta fíkni- efnasala landsins. Þann sama dag tóku gildi lög sem banna í fyrsta skipti ræktun kóka-plön- tunnar í suraum landshlutum Bólivíu. I þeim er einnig bönnuð notkun á illgresiseyði til uppræt- ingar jurtinni. Yfirvöld segjast ætla að koma upp ratsjárkerfi í austurhluta landsins til að hafa auga með flugumferð með kók- aín úr landi. Suarez, sem er 57 ára gamall, gengur undir nafninu „konungur kókaínsins". Hann var handtekinn á búgarði í Beni, nærri landamær- unum að Brasilíu. Nýju lögin sem gengu í gildi á miðvikudag kveða á um allt að 30 ára fangelsi fyrir kókaínsölu og fjögurra ára fangelsi fyrir ólöglega ræktun kóka-plön- tunnar. Suares á yfir höfði sér tvær kærur í Bandaríkjunum fyrir fíkni- efnasmygl en að sögn Juans Carlos- ar Durans, innanríkisráðherra Bólivíu, verður hann ekki framseld- ur vegna þess að hann á 12 ára fangelsi í vændum í heimalandi sínu. Suarez hefur verið eftirlýstur af lögreglu í fimm ár. Hans bíður nú einnig ákæra fyrir óhróður um stjomvöld því að í útvarpsviðtali fyrir tveimur mánuðum móðgaði hann ríkisstjómina og kallaði for- seta landsins, Victor Paz Estenss- oro, „leikbrúðu Bandaríkjamanna". Með nýju lögunum vonast stjóm Bólivíu til að kókaínrækt verði lögð niður á stærstum hluta þeirra 70.000 hektara sem nú eru undir plöntuna lagðir. Áfram er heimilt að rækta hana á 12.000 hekturum lands. Bændur í Bólivíu hafa mót- mælt lögunum kröftuglega og segja þau stofna lífi þeirri og þeirri hefð að tyggja kókalauf í voða. Fýrir fimm ámm bauðst Suarez til að greiða allar erlendar skuldir Bólivíu, sem þá námu 3 milljörðum Bandaríkjadala, ef yfirvöld felldu niður ákæm á hendur honum og létu son hans lausan en hann beið þess að verða framseldur til Banda- ríkjanna. Sovétríkin: Carlucci í heimsókn Moskvu. Reuter. FRANK Carlucci, varnarmálaráð- herra Bandarikjanna, ætlar að sækja Sovétmenn heim í byrjun næsta mánaðar. TASS-fréttastof- an skýrði frá þessu í gær. Sagði fréttastofan að heimsóknin væri liður í gagnkvæmum samskipt- um ríkjanna. Fýrr í þessum mánuði var Sergei Akhromejev marskálkur, yfirmaður sovéska herráðsins, á ferð um Bandaríkin og kynnti sér ýmis- legt, sem lýtur að vamarbúnaði þar. Skýrt var frá því í Austur-Þýska- landi í gær, að þangað væri komin bandarísk eftirlitsnefnd til að skoða sovéskar herstöðvar í landinu. Karamellufyllt Síríussúkkulaði. Ómótstæðilega Ijúffeng karamellufylling í þessu góða súkkulaði. Piparmyntufyllt Síríussúkkulaði. Það stenst nú enginn, - hefur þó verið reynt. Appelsínufyllt Síríussúkkulaði. Hreinasta sælgæti og ekki orð um það meir. Jarðarberjafyllt Síríussúkkulaði. Ilmandi jarðarberjafyll- ingin, komin í Síríus súkkulaði, lætur engan ósnortinn. ...FYLITAR NYJUNGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.