Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 HAFNARFJÖRÐUR Fjölmargar viðurkenningar fyrir fegrun umhverfis FEGRUNARNEFND Hafnar- fjarðar hefur veitt árlegar viður- kenningar sínar fyrir fallega garða, snyrtimennsku og fegrun bæjarins. Formaður nefndarinn- ar Hólmfrfður Ámadóttir af- henti viðurkenningarnar í sam- sæti sem haldið var mánudaginn 15. ágúst. Alls veitti Fegrunamefndin tíu viðurkenningar fyrir umhverfi. Einnig hlaut Kristján Ingi Gunnars- son garðyrkjustjóri Hafnaríjarðar viðurkenningu bæjarins fyrir störf sín. Málfundafélaginu Magna var þökkuð gjöf til bæjarins á afmæli hans í vor en bænum var þá af- hentur skrúðgarðurinn Hellisgerði til eignar. Venja er að veita viður- kenningu einum hópi úr sumarvinn- unni á hveiju ári. Hópur úr skóg- rækt bæjarins og vinnuskólanum undir stjóm Þórdísar Mósesdóttur varð fyrir valinu að þessu sinni. Að sögn Hólmfríðar Amadóttur var val garðanna ekki vandalaust enda mEirgir fallegir garðar í bæn- um. Naut fegrunamefndin aðstoðar Morgunblaðiö/Ámi Sœberg Ingibjörg og Árni í garði sínum þar sem náttúrulegt landslag fær að njóta sin. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bensínstöð Esso við Lækjargötu i Hafnarfirði. Gengið frá lóð strax að byggingu lokinni VIÐURKENNINGU fyrir at- vinnuhúsnæði fékk bensínstöð Olíufélagsins að Lækjargötu 46. Að sögn formanns Fegrun- amefndar fékk olíustöð félagsins á Hvaleyrarholti viðurkenningu Feg- runarfélags Hafnarfjarðar fyrir þónokkmm ámm. Gengið var frá lóð strax að bygg- ingu stöðvarinnar lokinni og er frá- gangur allur mjög til fyrirmyndar. Vilhjálmur Jóns8on forstjóri Olíufé- lagsins tók við viðurkenningunni. garðyrkjustjóra við valið. Eftirtaldir aðilar hlutu verðlaun fyrir fallegt umhverfi: Ágústa Hannesdóttir og Hallgrímur Steingrímsson, Reykjavíkurvegi 10. íris Dungal og Guðmundur Þ. Pálsson, Suðurvangi 9. Ingibjörg Sigurðardóttir og Ámi Hjörleifsson, Sævangi 1 og Stefanía Jónsdóttir og Jón Guðmundsson, Sævangi 3. Rósa Loftsdóttir, Erlu- hrauni 8. Ingunn Þorsteinsdóttir og Guðjón Valdimarsson, Suður- hvammi 1. Elín Eggerz Stefánsson og Ámi Friðfinnsson, Heijólfsgötu 10. Sigríður Harðardóttir og Páll V. Bjamason, Holtsgötu 4. Esso, Lækjargötu 46. Vesturvangur var valinn stjömu- gata Hafnarfjarðar 1988. Stefanía og Jón á lóð sinni. Að baki þeim sést gróskumikill tijágróð- urinn. Endurbætur í Hellisgerði eitt aðaláhugamálið KRISTJÁN Ingi Gunnarsson garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar fékk viðurkenningu Fegrun- amefndar bæjarins fyrir störf sin undanfarin ár. Kristján hefur búið í Hafnarfírði síðustu átján árin. Hann lauk prófi frá Garðyrkjuskóla Ríkisins í Hveragerði árið 1970 og hóf störf sem garðyrkjustjóri í Hafnarfirði sama ár. Þar starfaði hann í 7 ár. Þá varð hann garðyrkjustjóri í Kopavogi en kom aftur til starfa I Hafnarfirði árið 1985. Hólmfríður Ámadóttir formaður Fegmnamefndar sagði í ræðu sinni við afhendingu viðurkenningarinn- ar að það sem einkenndi verk Kristj- áns væri smekkvísi og hve rík áhersla væri lögð á að hraun og annað frá náttúmnnar hendi nyti sín óspjallað. Að sögn Kristjáns var fyrrver- andi meirihluti bæjarstjómar mjög áhugasamur um fegrun bæjarins og hefur núverandi stjóm haldið starfi hans áfram. Síðastliðin tvö ár hefur aðaláhersla verið lögð á snyrtingu opinna svæða við akrein- ar inn í bæinn. Þau svæði hafa tek- ið miklum stakkaskiptum. Einnig hefur fyöldi tijáa verið gróðursettur og í fyrra vom til að mynda 25-30 þúsundir tijáplantna settar niður í bæjarlandinu. Kristján sagði að mikla athygli hefði vakið þegar bæjarvinnan gróðursetti flölda Hansarósa á um- ferðareyju við Reykjavíkurveg og efuðust margir um að þær myndu lifa. Þær hefðu hins vegar dafnað með miklum ágætum. „Eitt aðaláhugamál mitt hér í bænum er að byggja upp Hellis- gerði að nýju. Búið er að endur- skipuleggja garðinn en gróður var úr sér genginn og endumýja þurfti hleðslur og stíga. í garðinum var steypt tjöm sem stakk mjög í stúf við hraunið í kring. Við steyptum því hraunhellur innan í hana þannig að nú er hún mun eðlilegri. Pétur Jónsson arkitekt hefur hannað nýja skipulagið fyrir Hellisgerði en bær- inn sér um allar framkvæmdir," sagði Kristján. I bænum standa alls kyns fram- kvæmdir til fegrunar yfir. Má þar nefna gróðursetningu tijáplantna í Kapelluhraun þar sem iðnaðar- hverfi verður í framtíðinni og fram- kvæmdir á Víðistaðasvæði en þar verður íþrótta- og útivistarsvæði. í hrauninu umhverfís Víðistaðakirkju hafa verið malbikaðir göngustígar. „Við lögðum mikla áherslu á að gras á jöðmm stíganna væri ekki æpandi grænt mitt í hrauninu eins og svo oft vill verða. Þess vegna Fallegt landslag frá náttúrunnar hendi GARÐARNIR að Sævangi 1 og 3 eru nánast ofan í gjótu. Eigendur þeirra Ingibjörg Sigurðardóttir, Arni Hjörleifsson, Stefanía Jóns- dóttir og Jón Guðmundsson fengu viðurkenningu fyrir fallega garða þar sem sérstakt tillit er tekið til hraunsins og áhersla lögð á íslen- skar plöntur. Að Sævangi 1 búa þau Ingibjörg Sigurðardóttir og Ámi Hjörleifsson. Þau byggðu húsið fyrir 10 árum. í garði þeirra er hraunið og upphaf- legt landslag ríkjandi en þau hafa einnig gróðursett fjölda runna og tijáa. „Það fór mikill tími í garða- vinnuna fyrst í stað. Ifyrstu árin fóru í það að hlúa að gróðri og koma honum til en síðustu árin hefur dæmið eiginlega snúist við og í stað þess þurfum við að reyna að hemja gróðurinn því að hér em ræktunar- skilyrði geysilega góð," sagði Ámi. Milli húsanna tveggja em ekki eiginleg lóðamörk og góð samvinna milli íbúanna. Áður en húsin vom byggð var þama saltfiskreitur. I húsinu að Sævangi 3 búa þau Stefanía Jónsdóttir og Jón Guð- mundsson. Þau hafa einnig kosið að halda öllu sem náttúmlegustu. Að sögn Stefaníu hafa mörg reynitijánna, sem sum em orðin mjög há, sprottið upp af betjum sem þangað hafa borist með fuglum. Litl- ar sjálfsáðar birkihríslur em líka um alla lóðina. Sjálf hafa þau gróður sett nokkuð af grávfði, öspum og fleiri tegundum. „Hér á lóðinni var áður lítið reyk- hús. Við bmtum það niður en notum gmnninn sem skjólkassa fyrir plönt- ur sem við emm að ala upp. Þær munum við gróðursetja við sumarbú- stað okkar en héðan fluttum við rúmlega tug tijáa þangað í vor. Það verður því ekki annað sagt en að hér dafni gróðurinn einstaklega vel,“ sagði Jón að lokum. Morgunblaðið/Þorkell Hópur þeirra sem fengu viður- kenningu. Lengst til vinstri er Fegrunamefndin: Hólmfríður Finnbogadóttir, Hólmfríður Ámadóttir formaður og Ásthild- ur Magnúsdóttir. Árlega er einn hópur úr sumar- vinnunni valinn og honum veitt viðurkenning. Hópur Þórdísar Mósesdóttur; aftari röð frá vinstri: Alda, Hanna, Katrin, Marsibil og Þórdís verksíjóri. Fremri röð: Kristfn, Sigurður, Gunnar, Þorsteinn og Ólafur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.