Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Trau8ti Þorsteinsson
Frá vígslu hins nýja iþróttasvæðis Ungmennafélags Svarfdæla. Á myndinni má sjá meistaralið
Dalvíkur á nýja vellinum.
Ungmennafélag Svarfdæla:
Nýtt íþróttasvæði tekið í notkun
Dalvík.
Ungmennafélag Svarfdæla
hefur tekið í notkun nýtt
íþróttasvæði, sem félagið hefur
unnið að frágangi á undanfarin
ár. Á svæðinu verða tveir gra-
svellir með aliri aðstöðu til bol-
taleikja og frjálsra íþrótta.
Um síðustu helgi var tekinn í
notkun og vígður fyrsti hluti
svæðisins sem er æfíngavöllur,
sem félagið hyggst nýta sem
keppnisvöll sinn til að byija með.
Jafnframt er félagið byijað að
undirbyggja annan grasvöll, sem
á að verða vandaðri að allri gerð
fyrir hvers konar keppnisíþróttir.
Hafa félagar í Ungmennafélaginu
lagt á sig mikla vinnu við gerð
íþróttasvæðisins bæði með sjálf-
boðavinnu og fjáröflun. Fram-
kvæmdir hófust árið 1986 en í
fyrra voru þökur lagðar á völlinn.
í sumar hafa ungmennafélagar
unnið við snyrtingu á svæðinu og
lagfæringu á áhorfendasvæðum.
Margt manna var viðstatt
vígsluna. Athöfnin hófst með því
að knattspymuleikur fór fram á
milli tveggja liða úr yngri flokkum
félagsins. Þá flutti formaður vall-
amefndar, Jón Helgi Þórarinsson,
ávarp og lýsti framkvæmdum fé-
lagsins á svæðinu. Að því loknu
fór fram knattspymuleikur milli
meistaraflokks Dalvíkur, sem
fékk til liðs við sig tvo lánsmenn
úr fyrstu deildarliði Þórs á Akur-
eyri, við lið KA frá Akureyri. Þrátt
fyrir það urðu úrslit þessa fyrsta
leiks á íþróttavellinum Dalvíking-
um ekki hagstæð og sigruðu
KA-menn með átta mörkum gegn
einu.
Knattspymulið Dalvíkinga leik-
ur í 3. deild og hefur gengið mis-
jafnlega í sumar. Byijaði liðið vel
en hefur misst flugið í síðari leikj-
um sínum.
Fréttaritari
Bjarni Kristjáns-
son ráðinn öldr-
unarforsljóri
Bjarni Kristjánsson hefur ver-
ið ráðinn forstöðumaður öld-
runarþjónustu bæjarins eftir að
öldrunarráð hafði samhljóða
mælt með honum í stöðuna og
bæjarstjórn samhljóða samþykkt
ráðningu hans. Alls bárust sex
umsóknir.
Bjami er 44 ára, kennari að
mennt. Hann var ráðinn að vist-
heimilinu Sólborg 1969 sem kenn-
ari þegar heimilið tók til starfa.
Hann varð framkvæmdastjóri Sól-
borgar og þeirra stofnana er heyrðu
undir hana síðar, frá árinu 1973
og fram til 1984. Þá tók hann við
starfí framkvæmdastjóra svæðis-
stjómar málefna fatlaðra á Norður-
landi eystra, sem rekur Sólbörg,
sambýli, vemdaða vinnustaði, leik-
fangasafn og ráðgjafarþjónustu.
Bjami sagði að öldrunarþjónust-
an, eins og hún væri fyrirhuguð í
bænum, myndi falla undir hið nýja
starfssvið sitt sem öldrunarfor-
stjóri. Nú væri hinsvegar unnið að
gagngerri endurskipulagningu öldr-
unarmála í bænum og hefði félags-
málastjóri bæjarins yfírumsjón með
því verkefni. Undir öldrunarþjón-
Akureyrin EA: .
Aldrei meira aflaverðmæti
Tæpar 46 millj. kr. eftir 22 veiðidaga
Frystitogarinn Akureyrin EA
kom til heimahafnar um kl. 20.30
í gærkvöld með mesta aflaverð-
mæti sem skipið hefur fengið í
einni veiðiferð til þessa. Togar-
inn kom með 274 tonn af frystum
fiski eftir 22 veiðidaga og nemur
aflaverðmæti farmsins tæpum
46 miHjónum króna. Eins og
menn rekur eflaust minni til,
landaði hinn nýi frystitogari
Hafnfirðinga, Haraldur Krist-
jánsson HF 2,313 tonnum af fisk-
afurðum þann 10. ágúst sl. og
nam aflaverðmæti hans 46,3
miiyónum króna eftir 29 veiði-
daga. Togarinn sló þar með fyrra
verðmætamet Akureyrarinnar
EA sem nam 45 miljjónum króna.
„Við erum hæstánægðir með
okkar hlutskipti og strákamir hér
um borð eru þess fullvissir að met-
ið sé okkar megin þar sem við vor-
um viku styttra á veiðum en Hafn-
firðingamir. Hinsvegar er skipið
orðið yfírfullt af fiski og hvemig
sem við reynum komum við ekki
einum titti í viðbót fyrir í lestinni,"
sagði Þorsteinn Vilhelmsson skip-
stjóri á Akureyrinni er Morgun-
blaðið náði af honum tali á
heimstíminu í gærdag. Uppistaða
aflans eru þorskflök auk ufsaflaka
og heilfrystra tegunda. Landað
verður úr skipinu á mánudag og fer
aflinn á markað i Bretlandi og
Bandaríkjunum. Akureyrin var að
veiðum á Vestfjarðamiðum allan
tímann og fer væntanlega aftur á
miðin á mánudagskvöld og á þriðju-
dagsmorgun. „Við emm að vona
að löndunarmenn Eimskips nái að
landa aflanum á einum degi, enda
em þar röskir menn að störfum,"
sagði Þorsteinn.
„Nú ætla ég að skella mér í frí.
Ég byija á þriggja daga laxveiðitúr
og síðan ætlar eiginkonan að bjóða
mér til Kýpur. Henni fínnst tími til
kominn að ég sjái eitthvert sumar.
Það hefur bókstaflega ekkert sumar
verið á sjónum, aðeins þoka, bræla
og leiðindaveður. Ég held að þetta
sé eitt leiðinlegasta sumar sem ég
man eftir á sjónum. Það lífgar
vissulega upp á mannskapinn þegar
vel gengur ogr er óhætt að segja
að mórallinn sé góður á stundum
sem þessum," sagði Þorsteinn og
stýrimaðurinn tók undir og sagði
Akureyrina vera eins og eitt stórt
heimili. „Það hefur nánast verið
sama áhöfh frá því við byijuðum
fyrir fímm ámm. Einu undantekn-
ingamar em þær þegar menn hætta
vegna skólagöngu,“ sagði Þor-
steinn. Aðspurður um hvort skip-
stjórinn væri harður húsbóndi sagði
hann það ekki vera í eigin verka-
hring að dæma um það. „Ætli ég
sé ekki passlega harður við strák-
ana. Maður ætlast til að áhöfnin
skili sínum vinnubrögðum fag-
mannlega hvað varðar gæði og
hingað til hef ég ekki getað kvart-
að. Samstarfíð gengur prýðilega,"
sagði Þorsteinn að lokum. Tuttugu
og sex manns em um borð og
standa þeir sex tíma vaktir.
Oddeyrin hf.:
Útgerðarfélagið Oddeyrin hf.
hefur fest kaup á Þorláki Helga
SI 71 frá Siglufirði af útgerðar-
félaginu Sædóri hf. Kaupverð
er um 40 mil\jónir króna. Skipið
er 146 tonna stálskip, smíðað i
Noregi árið 1960 og var lengt
sjö árum síðar. Það hét áður
Búðanes.
Oddeyrin hf. var stofnuð fyrir
um það bil tveimur ámm af Akur-
eyrarbæ, Samheija og K. Jónssyni
í kringum kaupin á Oddeyrinni
EA sem smíðuð var hjá Slippstöð-
inni. Þorsteinn Már Baldvinsson
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
sagði að skipið yrði afhent fljót-
lega eftir mánaðamót. Hann sagði
ástæður fyrir kaupunum ýmsar,
en fyrst og fremst ætti skipið yfír
sæmilegum kvóta að ráða. „Odd-
eyrin EA er mjög gott skip, sem
við gemm okkur vonir um að geta
nýtt enn betur nú eftir að hafa
keypt skipið frá Siglufírði. Það
hefur þokkalegan kvóta, 650
þorskígildi og 200 tonna rækjuk-
vóta og vonast ég til að rekstrar-
hagkvæmni verði „nýja“ skipinu
best tryggð með því að hafa það
bundið við bryggju. Það að sjálf-
sögðu fer þó eftir áframhaldandi
kvótakerfí, en ég stend í þeirri trú
að skipum muni fækka og kvótar
verði sameinaðir. Við emm því að
Kaupir Þorlák Helga SI á 40 millj. kr.
reyna að saftia í sarpinn," sagði
Þorsteinn Már.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bjarni Kristjánsson nýráðinn
forstöðumaður öldrunarþjónustu
Akureyrarbæjar.
ustuna fellur jafnframt rekstur á
tveimur stofnunum, dvalarheimilinu
Skjaldarvík og í Hlíð, sem ætti að
vera hjúkmnarheimili ásamt ýmiss-
konar þjónustu annarri sem fyrir-^
hugað er að koma á fót fyrir aldr-
aða. Bjami tók dagvistir aldraðra
sem dæmi og þjónustuíbúðir aldr-
aðra sem verið er að reisa við Víði-
lund.
Öldmnarþjónustan var bæjar-
sjóði þung byrði í fyrra og nam
halli á henni um 30 milljónum
ltróna. Bjami sagði að hugsanlega
væri búið að tryggja að slíkt kæmi
ekki fyrir á ný í eins stómm stfl
þar sem búið væri að viðurkenna
fleiri rými á Hlíð sem hjúkmnar-
lými. Það þýddi að hærri daggjöld
yrðu greidd með hveijum þeim ein-
staklingi sem þar væri vistaður.
Hallinn á Hlíð hefur meðal annars
stafað af því 'að þar hefur verið
meiri mannafli en vistgjöld hafa
leyft, vegna þess að fólk þar hefur
verið við verri heilsu heldur en
starfsmannahald hefur í raun verið
fært að sinna, að sögn Bjama.
Hann býst við að taka við starfi
öldmnarforstjóra um eða upp úr
áramótum og mun hann hafa að-
stöðu á dvalarheimilinu Hlíð.