Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 „Og bú Seg'ir cá> hjóli& bitt hofi’ v&ri(?5 hlftkkjáb viÓ " Það er sama hvert farið er. Alltaf eru mánudag- amir jafn ömurlegir ... Með morgunkaffínu Eg vona að mér hafi tekist að sannfæra þig að maður getur gert það sem maður vill!... HÖGNI HREKKVÍSI Góð þjónusta á Reykj avíkurflugvelli TilVelvakanda. Ég er einn af þeim fjölmörgu mönnum, er hafa flutt af lands- byggðinni til Reykjavíkur. Þar af leiðandi hitti maður gamla sveit- unga sína allt of sjaldan. Þó er sá staður til í Reykjavík, sem maður getur alltaf átt von á að hitta kunn- ingja sína utan af landsbyggðinni. Staður þessi er við afgreiðslu innanlandsflugs Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli í Skeijafírði. Þama um flugvöllinn er alltaf mik- il umferð fólks, nánast alla daga ársins, frá morgni til kvölds. Þama er mjög snyrtileg kaffitería með sjálfsafgreiðslufyrirkohiulagi. Kaff- ið er þar gott, brauðið gimilegt á að líta og kökumar margar hveijar heimabakaðar eins og hjá mömmu. Þangað er gott að koma, sitja í rólegheitum, virða fyrir sér fjöl- skrúðugt mannlífíð og njóta góðra veitinga. Þama er líka hægt að sitja í ró og næði, án þess að þurfa að hlusta á einhvem glymskratta eða því um líkt, eins og svo víða annars staðar. Afgreiðslufólkið hjá Flugleiðum er að mínu mati til fyrirmyndar hvað kurteisi og almennilegheit varðar. Oft verð ég vár við, að far- þegar eru fullir kvíða vegna vænt- anlegs flugs, eða em alltof seinir á völlinn o g eru með hávaða og óþarfa aðfínningar við afgreiðslufólkið. Ráðlegging mín til ferðalanga er sú, að mæta tímanlega og halda á braut í yfirveguðu og góðu skapi. Það gerir ferðina miklu ánægju- legri. Með þökk fyrir birtinguna, Fyrrverandi dreifbýlingur. Yeðráttan veldur gróðureyðingn Til Velvakanda. Mikið er talað og skrifað um gróðureyðingu og ofbeit á landinu okkar og helst hefur mér heyrst, að sauðkindinni sé um það kennt. Ég álít að það sé ekki rétt. Það er veðráttan sem á mestan þátt í eyð- ingunni. Þegar er þurrviðri og stormur, þá spænist upp mold og sandur og þannig myndast auðnin. En nú er farið að græða upp þessi landsvæði með áburði og fræj- um, og er það af hinu góða. Ég mjmdi vilja hafa húsdýraáburð með, eins og til dæmis hrossaskít. Hann er léttur í meðferð ef hann er þurr, og hægt væri að blanda verk- smiðjuáburðinn og grasfræið með honum. Þá fengist svolítil binding í jarðveginn og hann greri fyrr upp. Þetta er frumskilyrði þess, að mögulegt verði að græða landið sæmilega upp. Það má græða alla sanda og moldarbörð og ef reynt er sá eins snemma á vorinu og hægt er, þá sæist góður árangur fljótlega. Ingimundur Sæmundsson. Víkverji skrifar Sá Víkveiji, sem hér situr við skjá, lagði leið sína til Siglu- fjarðar fyrir rúmri viku. Þá fögnuðu Siglfírðingar 70 ára kaupstaðaraf- mæli og 170 ára verzlunarafmæli bæjarins. Mikið var um dýrðir. Og bærinn hafði breytzt. Götur malbikaðar. Hús máluð. Lóðir lagfærðar og skrýddar gróðri. Bæjarbúar hafa að þessu leyti búið sér annað og betra umhverfí. Ytri rammi byggðarlagsins var þó sá sami og fyrr. Fjallahringurinn þrengir enn að byggðinni — en gleð- ur augu og skapar skjól. Hann umlykur fjörðinn á þijá vegu. Siglu- nes lokar honum ■*- að hluta til — í norður. Þannig hefur forsjónin búið sæfarendum lífhöfn á ströndu hins yzta hafs. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að svipur sfldaráranna er að dijúgum hluta horfinn. Gamlar sfldarbryggj- ur eru úr sögunni. Þær vóru lasnar og lúnar orðnar, hættulegar taldar og því rifnar. Sama má segja um „síldarbrakkana", íveruhús söltun- arfólksins. Og mörg gamalkunn hús á eyrinni, er geymdu gengna sögu. Siglufjörður er áfram fagur bær, jafnvel fegurri en áður, en hann er ekki samur og fyrr. XXX Afmælishátíð Siglfírðinga stóð í heila viku. Hún teygði dag- skrá sína langt út fyrir hinar ný- malbikuðu götur íbúðahverfanna. Hún fór að hluta til fram við rætur Hólshymu, fjalldrottningar fjarðar- ins, þar sem víðlendu Hólstúninu hefur verið breytt í íþrótta-fólk- vang. Hún fór fram í Héðinsfirði, þar sem silungur leikur enn í sjó og vatni, þó að byggð þar heyri fortíð til. Hún fór fram á Siglu- nesi, þar sem hinn fyrsti Siglfirðing- ur, Þormóður rammi, settist að. Hún fór fram í Hvanneyrarskál þar sem séra Vigfús Þór Ámason mess- aði á grænum grundum, þar sem sjómenn og síldarstúlkur deildu rómantík fyrr á tíð. Hún fór fram á hafi úti (sjóstangaveiði), þeim gjöfula en á stundum mannskæða bakgrunni sjávarplássanna. Ekki gleymdu Siglfírðingar sögu sinni. í ráðhúsi þeirra var málverka- sýning eldri og yngri meistara, sem fest höfðu síldarævintýrið og Siglu- fjörð á striga. í húsi Slysavamafé- lagsins var ljósmyndasýning, tengd sfld og sjósókn margra áratuga, þar sem gömul vinnutæki vóru einnig til skrauts og fræðslu. í grunnskól- anum var „sögusýning", þar sem nemendur og kennarar settu fram sögu bæjarins í myndum og mun- um. Hver sýningarbás „fjallaði um“ 10 ár í sögu Siglufjarðarkaupstað- ar. XXX Heimsókn forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, var hápunktur hátíðahaldanna. Hún talaði meðal annars við hátíðardag- skrá í Siglufjarðarkirkju — beint inn í hjörtu áheyrenda. Þar fór ekki „aðeins" þjóðhöfðingi, sem mikil sæmd er að, heldur einstaklingur sem gjörþekkti sveitarfélagið, sem hún var stödd í, sögu þess og um- hverfi. Það vakti annars athygli hve sóknarpresturinn, séra Vigfús Þór Ámason, og Siglufjarðarkirkja, vóru virk og „lifandi" í þessu há- tíðarhaldi — og eru virk í hvunn- degi staðarins. Kirkjunni er og ein- staklega vel við haldið — og gluggar hennar fagursteindir. Á kirkjulofti er stórt og vel skipulagt safnaðar- heimili. Lyfta er í kirkjunni sem eldra fólk notar gjarnan. Það er ljóst að Siglfírðingar hugsa vel um kirkju sína. Það fer heldur ekki fram hjá gestkomandi að þeir búa að harð- duglegum og hlýjum sóknarpresti. Já, síldin er að vísu horfín. En Siglufjörður er enn á sínum stað — hress að vanda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.