Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 27
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 27 8.000 rúmensk þorp jöfnuð við jörðu: Genscher mótmælir áformum Ceausescus Bonn. Reuter. HANS-Dietrich Genscher, ut- anríkisráðherra Vestur-Þýska- lands, fór þess á leit við yfirvöld í Rúmeniu á fimmtudag að þau létu af áformum um að jafna 8.000 þorp við jörðu. í stað þorp- anna hyggjast yfirvöld í Rúm- eníu reisa 500 samyrkjubú og iðnfyrirtæki. Beiðni Genschers var komið á framfæri í bréfi sem afhent var Ioan Totu, utanríkisráðherra Rúm- eníu, í vestur-þýska sendiráðinu í Búkarest á fímmtudag. í bréfinu Bandaríska flugmálastj órnin: IBM haimar tæki fyr- ir 167 milljarða króna Bethesda, IBM. IBM-fyrirtækið hefur gert samn- ing við bandarisku flugmála- stjórnina um hönnun á flugstjórn- artækjum fyrir 3,55 milljarða bandaríkjadala, eða um 167 millj- arða ísl. kr. Mun fyrirtækið á næstu árum vinna að þróun, upp- setningu og þjónustu á nýju sjálf- virku flugstjómarkerfi, AAS. Með tilkomu þess munu öll sljórntæki flugumferðarstjórnar i Banda- rikjunum verða endurnýjuð. Söngá 111 ára afmælinu Lundúnum, Reuter. JOHN Evans, sem segist vera elsti maður í heimi, hélt upp á 111 ára afmæli sitt í gær. Öidungurinn þakkaði langlif- ið hunangsdrykkju. Evans hefur alið allan sinn aldur í Wales. Hann segist enn muna atburði ársins 1885 þegar Khartoum féll. f tilefni afmælis- ins sendi Elísabet Englands- drottning honum skeyti, sem er hið tólfta er hann fær frá drottn- ingunni. Evans er fyrrum námuverka- maður. í sjónvarpsþættinum söng hann á móðurmáli sínu, velsku. Hann er farinn að tapa heym en er að öðru leyti em og man atburði og menn frá liðinni tíð ótrúlega glöggt. Samningurinn kveður á um að væða allar flugstjómarmiðstöðvar nýjum tækjabúnaði, bæði hugbúnaði og útstöðvum, radarskjám og tölv- uskjám. Tilkoma AAS-kerfísins á að verða til þess að flugumferðarstjóm verður auðveldari og áreiðanlegri. Á það að duga fram á næstu öld. IBM og samstarfsfyrirtæki þess, Raytheon Co. og Computer Science Corp., hafa unnið að hönnun AAS- kerfísins frá því árið 1984. Uppsetn- ing kerfísins hefst árið 1990 og lýk- ur árið 2000. segir Genscher að áætlanir Nicolae Ceausescus, leiðtoga rúmenska kommúnistaflokksins muni leiða af sér eyðileggingu á menningararf- leifð. Segir hann að fyrirætlanimar um að jafna þorpin við jörðu hafí valdið miklum kvíða erlendis. Mörg þorpanna sem í ráði er að jafna við jörðu em byggð Ungvetj- um og hefur þessi ákvörðun valdið miklum úlfaþyt í Ungverjalandi. Mikil mótmæii vegna þessara fyrir- ætlana fóru fram í Búdapest í júní- mánuði. Opinberir starfsmenn í Bonn segja að í hluta þeirra þorpa sem jafna eigi við jörðu búi fólk af þýsk- um uppruna. Vestur-þýsk yfírvöld hafa létt takmörkunum á fyölda inn- flytjenda frá Rúmeníu og er talið að þau greiði Rúmenum háar ijár- hæðir fyrir sérhvem flóttamann, sem fær leyfí til að flytja frá Rúm- eníu til Vestur-Þýskalands. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins í Bonn sagði, í samtali við Reut- ers-fréttastofuna, að þetta væri sjötta bónarbréf vestur-þýskra yfír- valda til rúmenskra stjórnvalda veg^na þessa máls en Evrópubanda- lagið mun einnig ráðgera að hafa afskipti af því. Reuter Háfættur fisksali Litlu stúlkunni brá svo sannarlega í brún þegar hún hjólaði fram hjá þessum risavaxna hjólreiðamanni í borginni Frankfurt í Vest- ur-Þýskalandi. Hann var að auglýsa opnun veitingastaðar sem sérhæfir sig í sjávarréttum. Vopnahlé gengið í gildi í Persaflóastríðinu: Friðarvilji ítrekaður en ríkin segjast við öllu búin Beinar friðarviðræður írana og íraka hefjast í Genf á fimmtudag Sameinuðu þjóðunum, Bagdað, Nikósíu. Reuter. ALI Khameini, forseti írans, ítrekaði í gær þá kröfu írana að írakar yrðu lýstir upphafs- menn átakanna við Persaflóa. íranir gerðu og heyrinkunnugt að þeir hygðust halda áfram að fylgjast með ferðum skipa á Persaflóa og rannsaka farm þeirra ef nauðsyn krefði. Vopna- hlé í Persaflóastríðinu gekk í gildi klukkan þrjú í nótt að íslenskum tima og lýstu tals- Keuter George Bush varaforseti ásamt konu sinni i veislu sem konur á flokksþingi repúblikana héldu til heið- urs frú Bush. menn beggja rikja yfir því að það yrði virt. Khameini, sem var á ferð um suðurvígstöðvamar, sagði að Sam- einuðu þjóðimar hlytu að taka til skoðunar þá kröfu írana að fram fari rannsókn á því hvort ríkið hóf átökin mannskæðu. „Þetta er ský- laus krafa okkar og við munum veita viðnám reyni óvinurinn að hindra framgang réttlætisins," sagði Khameini. Iranir hafa ævin- lega fullyrt að frakar beri ábyrgð á ófriðnum við Persaflóa og neituðu lengi vel að ganga að vopnahlés- samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nema tryggt væri að írak- ar yrðu lýstir upphafsmenn átak- anna og greiddu stríðsskaðabætur í samræmi við það. Atta ár em lið- in frá upphafi Persaflóastríðins og er almennt talið að ófriðurinn hafí ekki kostað færri en eina milljón manna lífið. Árásum verður svarað Ali Akhbar Rafsanjani, yfirmað- ur herafla írana, sagði í Teheran í gær að friðarvilji írana væri ein- dreginn en bætti við að sérhverri árás íraka yrði svarað. Vildu írak- ar halda átökunum áfram yrði ekki unnt að áfellast stjórnvöld í íran fyrir að veita mótspyrnu. Útvarpið í Teheran hafði eftir Rafsanjani að hátíðahalda í tilefni vopnahlésins en brýndi fyrir mönnum að hleypa ekki af byssum. Hundmð manna ýmist særðust eða létust í írak þann 8. þessa mánaðar er almenn- ingur fagnaði tilkynningu Javiers Perez de Cuellars, framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, um að ríkin hefðu fallist á vopnahlésskil- mála SÞ. „Vopnahléið kann að leiða til varanlegs friðar, sem er tak- mark okkar en svo kann einnig að fara að þeir sem hafa friðmælst skipti um skoðun. Við megum því ekki sofna á verðinum," sagði tals- maðurinn. Friðargæsla skipulögð Friðargæslumenn Sameinuðu þjóðanna, sem komnir em til íraks og írans, hafa undanfama daga skipulagt eftirlitsstörfín. f gær tóku sveitimar sér stöðu á tilteknum stöðum á vígvöllunum en eftirlits- mennimir em 350 að tölu. „Allt gengur samkvæmt áætlun," sagði embættismaður einn í viðtali við fréttamann Reuters. Friðargæslu- sveitimar koma frá 24 löndum og er þeim ætlað að fylgjast með umsvifum herafla ríkjanna á landa- mæmnum sem em um 1.200 kíló- metra löng. Allt var með kyrmrn kjömm á vígstöðvunum en undan- fama daga hafa borist fréttir af Kom Quayle sér hjá Víetnamstríði? New Orleans. Reuter. DAN Quayle, sem var formlega útnefndur varaforsetaefni rebú- blikana á flokksþinginu í fyrra- kvöld, hefur verið sakaður um að hafa notfært sér sambönd fjölskyldu sinnar til að komast hjá því að beijast í Víetnam- stríðinu. Quayle vísaði í ræðu sinni á flokksþinginu óbeint til ásakana um að hann hefði kosið að ganga í þjóð- varðliðið frekar en beijast í Víet- nam: „Ég var í sex ár í þjóðvarðlið- inu á mínum yngri ámm. Og eins og milljónir Bandaríkjamanna, sem verið hafa í þjóðvarðliðinu eða gera enn, er ég stoltur af því.“ Quayle hefur viðurkennt að hafa leitað aðstoðar vinar foreldra sinna, sem hefði verið í tengslum við þjóð- varðliðið. Hann vísaði því hins veg- ar á bug að hann hefði notfært sér aðstöðu sína til að komast hjá því að beijast í Víetnam. Bush og Quayle sögðu á blaða- mannafundi í gær að málið væri ys og þys út af engu. meginverkefnið nú væri að reisa borgir og verksmiðjur úr rústum og „að byggja upp herafla okkar þannig að enginn áræði að ráðast gegn okkur á ný“. Talsmaður herstjómar íraka sagði að stjómvöld í landinu væm ákveðin að halda vopnahlésskilmál- ana. Herafli landsins yrði í við- bragðsstöðu en von manna væri sú að vopnahléið gæti orðið fyrsta skrefíð í átt til bættra samskipta fjandþjóðanna. Hann hvatti al- menning í landinu til að efna til einstaka stórskotaliðsárásum. Hins vegar hafa bardagar að mestu leg- ið niðri frá því de Cuellar tiltók vopnahlésdaginn þann 8. ágúst. Perez de Cuellar hélt í gær frá Bandaríkjunum til London en það- an heldur hann til Genfar þar sem beinar friðarviðræður fulitrúa ír- ana og íraka hefjast á fimmtudag. Ekki er vitað hveijir verða fulltrúar ríkjanna í viðræðunum en almennt er búist við að utanríkisráðherrar þeirra fari fyrir samninganefndun- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.