Morgunblaðið - 20.08.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
25
Morgunblaðið/PPJ
Flugvélar af gerðinni Piper J-3 Cup voru lengi vel helstu kennsluflugvélar hérlendis, en fyrsta flugvélin af þessari tegund á íslandi
var tekin i notkun árið 1946. Alls eru sjö flugvélar af þessari gerð flughæfar hérlendis og hafa eigendur sex þeirra tilkynnt þátttöku •
sína í flugkomu „Pipervinafélagsins“ á Hellu.
Flugkoma „Pipervinafélagsins“ á Hellu
Ein mesta fluguppákoma
ársins fer fram á Helluflugvelli
í dag, laugardaginn 20. ágúst,
en þá verður haldin „Piper-
strigavélaflugkoma". Að flug-
komunni standa nokkrir áhuga-
samir aðilar innan vébanda
Flugmálafélags Islands sem
kalla sig „Pipervinafélagið".
Flugkoman á Hellu verður
hvorki bundin við framleiðslu
Piper-verksmiðjunnar né við
strigavélar og eru allar flugvél-
ar landsmanna hjartanlega vel-
komnar.
Hugmyndin að þessari flug-
komu vaknaði á sl. ári þegar
nokkrir félagar úr Flugklúbbnum
Þyt í Reykjavík fóru á flugkomu
í Lockhaven í Pennsylvaníu-fylki
í Bandaríkjunum þar sem aðdá-
endur Piper J-3 Cub flugvéla
héldu upp á 50 ára afmæli „Cubs-
ins" og fannst þeim tilvalið að
haldin yrði flugkoma hérlendis
með svipuðu sniði. Upphafleg
hugmynd þeirra félaga var sú að
halda flugkomu fyrir eigendur
allra þeirra strigaklædduflugvéla
framleiddar af Piper sem til eru
á Islandi, en við útfærslu hug-
myndarinnar var ákveðið að flug-
koman yrði opin öllum flugvéla-
eigendum og flugáhugamönnum.
Þegar er búið að skipuleggja flug-
vélastæðið á Helluflugvelli þannig
að flugvélum verði lagt eftir teg-
undum þannig að skemmtilegur
heildarsvipur náist og áhorfendur
geti séð þróunina sem verið hefur
í flugvélasmíði sl. fimmtíu ár. Pip-
er-strigaflugvélamar verða hafð-
ar sér og eins verður sögulegum
flugvélum í flugflota landsmanna
raðað upp á sér svæði. Það er von
þeirra sem að flugkomunni standa
að það verði a.m.k. fimmtíu flug-
vélar á Hellu á laugardaginn.
A dagskrá flugkomunnar verða
ýmiskonar skemmtiatriði s.s.
lendingarkeppni fyrir Piper J-3
Cub, hópflug allra þeirra Cub
flugvéla sem mæta, listflug,
„crazy flying“ á Piper J-3, sam-
flug Piper J-3 í fullri stærð og
kvartskalamódels og margt fleira.
Ennfremur verða veittar viður-
kenningar til eigenda fallegustu
og best hirtu flugvélanna, en slíkt
hefur ekki verið gert áður á flug-
komu hérlendis.
- PPJ
Póst- og síma-
málastof nunin:
Ný frímerki
PÓST- og símamálastofnunin
gefur út frímerki með fugla-
myndum 21. september næst-
komandi.
Gefið verður út 13 króna
frímerki með mynd af branduglu,
40 króna frímerki með mynd af
skógarþresti, 70 króna frímerki
með mynd af tjaldi og 90 króna
frímerki með mynd af stokkönd.
Þröstur Magnússon hannaði
frímerkin.
Frímerkin sem gefin verða út 21.
september næstkomandi.
opinn
nýr
ferskur
í kvöld