Morgunblaðið - 20.08.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
Fundur fulltrúa Norður- og Suður-Kóreu:
Fundartíminn fór
í þras um dagskrá
Panmunjon. Reuter.
LÍTILL árangur varð af fundi fulltrúa þjóðþinga Norður- og Suður-
Kóreu í landamæraþorpinu Panmunjon í gær. Sendinefndimar ákváðu
þó að hittast aftur í dag.
í fundinum tóku þátt fímm fulltrú-
ar frá hvoru ríki. Þeir ræddust við í
nær þijár stundir en miðaði Htt með
dagskrármálin því tíminn fór svo til
allur í þras um dagskrána og hversu
ijölmennur sameiginlegur fundur
þjóðþinganna síðar í mánuðinum
ætti að vera.
„Ég er hvorki bjartsýnn né svart-
sýnn en það á eftir að útkljá heilmik-
inn ágreining," sagði Park Jun-kyu,
leiðtogi suður-kóresku sendinefndar-
innar.
Deilt um fundarstærð
Pundurinn í gær er hinn fyrsti
sinnar tegundar í þijú ár. Tilgangur
viðræðnanna var að undirbúa stærri
fund, sem fram færi í Pyongyang,
höfuðborg Norður-Kóreu, 26. águst.
Á honum yrði rætt um hugsanlega
þátttöku Norðanmanna í Ólympíu-
leikunum og skref ( átt að samein
ingu kóresku ríkjanna.
Fulltrúar Norður-Kóreu héldu því
til streytu að Pyongyang-fundinn
sætu allir 655 fulltrúar í Æðstaráði
landsins og allir þingmenn þjóðþings
Suður-Kóreu, 299 menn. Einnig 100
fulltrúar óbreyttra borgara af öllum
sviðum þjóðlífsins af Kóreuskagan-
um öllum. „Með þessum hætti endur-
speglum við vilja fólksins betur,"
sagði Chun Kum-chol, leiðtogi norð-
ur-kóresku sendinefndarinnar.
Sunnanmönnum leist ekki á hug-
myndina og sögðu að fundur af þessu
tagi fengi litlu áorkað. „Hér sitjum
við aðeins 10 saman og afrekum
lítið. Dettur mönnum þá í hug að
rúmlega þúsund manna fundur verði
skili árangri?," sagði Park við norð-
ur-kóresku fulltrúana.
ursríkur. Lagði hann til að Pyong-
yang-fundinn sætu ekki fleiri en 10
þingmenn frá hvoru ríki.
Lítið minnst á
Ólympíuleikana
Dijúgur tími fundarins fór í skoð-
anaskipti um þá tillögu Norðan-
manna að sameiginlegi þingfundur-
inn fjalli um hugsanlegan griðarsátt-
mála ríkjanna. Sunnanmenn sögðu
að mál af þessu tagi væru verkefni
ríkisstjóma landanna en ekki þinga
þeirra.
Aðeins var lftillega minnst á
Ólympíuleikana á fundinum, en fyrir-
fram hafði verið búizt við að fundur-
inn myndi snúast um þá. „Þeir eru
ekki aðeins fþróttahátíð, heldur ná-
tengdir möguleikanum á sameiningu
[kóresku ríkjanna]," sagði Chun
Kum-chol.
Park Jun-kyu sagði að sökum þess
hve stutt væri í setningu leikanna
væri erfítt að gera sér í hugarlund
að málamiðlun um skiptingu leik-
anna tækist. „Eins og nú er komið
teljum við eina möguleikann á sam-
starfí um leikana þá að ykkar íþrótta-
menn og okkar taki sameiginlega
þátt i þeím,“ sagði Park. f byijun
vikunnar höfnuðu Norðanmenn til-
lögu Alþjóðaólympíunefndarinnar
(IOC) um að íþróttamenn kóresku
ríkjanna gengju sameiginlega inn á
ólympíuleikvanginn í Seoul við setn-
ingar- og lokaathöfn leikanna.
Of breitt borð
É
Pundurinn í gær fór fram f húsi
sem er nokkrum metrum norðan við
afvopnunarlfnuna á landamærum
ríkjanna. Sendinefndimar hittust
fyrir utan húsið og heilsuðust þar
með handabandi. Þegar nefndar-
menn voru komnir að fundarborðinu
og hugðust hefja fund með því að
takast aftur f hendur urðu þeir nokk-
uð vandræðalegir. Borðið reyndist
alltof breitt til þess að þeir næðu
taki og fór því tilraun sú út um þúfur.
Gröf Mohammads Zia-ul-Haqs, forseta, tekin við hlið Faisal
ar í Islamabad. Útför hans verður gerð í dag.
Reuter
•moskunn-
'&mpíua Engin bilun í flugvél Zia samkvæmt svarta kassanum:
I eamoln. 1 ' ^ ---------*-------------------------------------------
Flugvallarstarfsmenn
í Bahawalpur handteknir
Son Zia grunar að Sovétmenn hafi ráðið föður hans af dögum
Islamabad. Reuter.
BLÖÐ í Pakistan skýrðu frá þvi
í gær að starfsfólk flugvallarins
í Bahawalpur hafi verið hand-
tekið, en þaðan fór flugvél Mo-
hammads Zia-ul-Haqs, forseta, i
hið örlagarika flug sl. miðviku-
dag. Flugvélin splundraðist i lofti
rétt eftir flugtak. Zia og helztu
yfirmenn pakistanska hersins
týndu lífí. I gær sagðist Ijaz ul-
Haq, sonur Zia, fullviss um að
faðir hans hafi verið ráðinn af
dögum, jafnvel af Sovétmönnum,
eins og hann komst að orði.
Útför Zia fer fram í dag. Hann
verður grafínn fyrir framan Faisal-
moskuna í Islamabad. Fulltrúar 50
erlendra ríkja verða viðstaddir út-
forina. George Shultz, utanríkisráð-
herra, verður fulltrúi Bandaríkja-
stjómar og Vytautas Astraukas,
varaforseti, fulltrúi Sovétríkjanna.
Fjölmiðlum í Pakistan hafa látið í
ljós óánægju og þótt erlendu fulltrú-
amir ekki nógu tignir. Vestrænir
stjómarerindrekar svöruðu því til
að menn hefðu aðeins haft tvo daga
til stefnu vegna þess siðs í ríkjum
múhameðstrúarmanna að greftra
menn inna tveggja til þriggja daga
frá andláti þeirra.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins í Nýju Dehlí vísaði harðlega á
bug gmnsemdum um að Indveijar
hefðu grandað flugvél Zia-ul-Haqs.
„Þessar ásakanir eru algjörlega til-
hæfulausar og afar illkvittnar,"
sagði talsmaðurinn.
Allskonar kenningar eru á lofti
í Islamabad um hveijir kynnu að
hafa ráðið Zia af dögum, ef í ljós
kemur að sú var raunin. Embættis-
menn nefndu m.a. Afgani og Sovét-
menn. Vestrænir stjómarerindrek-
ar sögðu hins vegar að Sovétmenn
hefðu tæpast haft nokkum ávinning
af því að koma Zia fyrir kattamef.
Erindrekamir eru almennt þeirrar
skoðunar að Zia hafi verið brugguð
launráð af sínum eigin mönnum.
Þeir segja að viðkomandi hafi þurft
að hafa aðgang að upplýsingum um
ferðir Zia, sem venjulega hvíli mik-
il leynd yfír.
Rannsókn á orsökum sprenging-
arinnar í flugvél Zia stendur enn
yfír og eru bandarískir sérfræðing-
ar komnir heimamönnum til aðstoð-
ar. Brezka útvarpið BBC sagði í
gær að við rannsókn á flugrita flug-
vélarinnar, svokölluðum svarta
kassa, hafí fengizt staðfest að at-
vikið verði ekki rakið til bilana í
flugvélinni, hún hafi verið í stakasta
lagi.
George Bush og kona hans, Barbara, ásamt Dan Quayle, varaforseta-
efni repúblikana, og Marilyn, konu hans á flokksþingi repúblikana.
Ræða Bush á flokksþingi repúblikana:
Ahersla lögð á skoðana-
mun frambjóðendanna
New Orleans. Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna, beindi mjög spjótum
sinum að mótframbjóðandanum, Michael Dukakis, í ræðu sem hann
flutti á flokksþingi repúblikana á miðvikudagskvöld eftir að hann
var útnefndur frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum. Hann
kvað mikinn mun á frambjóðendunum og veittist að Dukakis fyrir
stefnu hans í öryggismálum og andstöðu hans við dauðarefsingu.
Hann sagðist mótfaliinn skattahækkunum og ætla að fylgja efnahags-
stefnu núverandi stjórnar, sem hefði leitt til meiri velmegnnar en
nokkru sinni í sögu Bandaríkjanna.
George Bush nefndi Dukakis
aldrei á nafn í ræðu sinni, heldur
vísaði til hans sem „andstæðings-
ins.“ Hann lagði ríka áherslu á að
mikill munur væri á frambjóðend-
unum og mikið væri í húfí fyrir
Bandaríkjamenn í komandi kosn-
ingum. „Heimsmynd andstæðings
míns byggist á því að Banda-
ríkjanná bíði aðeins hæg og lang-
vinn hnignun, óumflýjanlegt hrun
sem eitthvert sögulegt afl valdi.
Hann lítur á Bandaríkin sem hvert
annað land í nafnakalli Sameinuðu
þjóðanna, einhvers staðar á milli
Albaníu og Zimbabwe," sagði Bush.
„í mínum augum eru Bandaríkja-
menn leiðandi - einstök þjóð með
sérstakt hlutverk í heiminum."
Bush líkti Dukakis óbeint við
tæknikrata sem gæti komið því til
leiðar að lestamar færu af stað á
réttum tíma en vissi ekki hvert þær
færu. Hann sakar andstæðingana
um að hafa rangtúlkað efnahags-
lega ávinninga Bandaríkjastjómar.
„Þeir kenna efnahaginn við sviss-
neskan ost. Þannig gæti það að
vísu litið út frá sjónarhóli blindu
músanna þriggja. En þegar þær
voru við völd voru aðeins göt og
enginn ostur."
Varaforsetinn sagði að efnahags-
legir ávinningar Bandarílqastjómar
væm miklir; á valdatíma hennar
hefðu verið sköpuð fleiri ný störf
en nokkru sinni fyrr og meðaltekjur
Bandaríkjamanna hefðu aldrei verið
eins miklar. Hann sagði að sautján
milljónir nýrra starfa hefðu verið
sköpuð á síðustu fímmárum. „Tak-
mark mitt er: þijátíu milljónir nýrra
starfa á næstu átta árum,“ bætti
hann við.
í ræðunni gerði Bush frekari
grein fyrir stefnu sinni. Hann
kvaðst meðmæltur dauðarefsingu
og sagðist ætla að beita sér gegn
smygli og sölu eiturlyfja. Hann
sagði að nemendur ættu að fá að
biðja í bamaskólum landsins, hefðu
þau hug á því, og mælti gegn fóst-
ureyðingum.
Úmhverfísmál fengu sinn skerf
í ræðu Bush og hann sagðist ætla
beita sér gegn allri mengun. Hann
kvaðst ætla að bæta hag aldraðra
og fatlaðra, og sagði að vanda hús-
næðislausra þyrfti að leysa.
Hann sagði ennfremur að hann
myndi fylgja þeirri stefnu sem
Bandaríkjastjórn hefur fylgt í ut-
anríkismálum. Hann muni beita sér
fyrir frekari afvopnun stórveldanna
og því að efnavopn verði algerlega
upprætt.