Morgunblaðið - 20.08.1988, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Öll þekkjum við rifsber, rauð og falleg, en færri þekkja hvít/gul rifsber,
sem eru alls staðar sjaldgæf. Þau eru sætari og hafa mildara og fínna bragð.
Rifs er skylt sólberjum og stikkilsberjum og vex um alla Vestur-Evrópu
og Rússland. Einu sinni heyrði ég finnska konu segja frá því að rifsrunnarn-
ir heima hjá henni væru fagurrauðir af rifsberjum í júní. Okkar uppskera
er ekki svo snemma og verður sennilega óvenju seint á ferðinni hér sunnan-
lands í ár sökum lítillar sólar.
ótt við tínum
mikið af græn-
um beijum með
þeim rauðu er
hægt að setja
allt í plastpoka
oglátaþrosk-
ast í honum í nokkra daga. Ber-
in eru fljót að roðna, en látið
ekki pokann vera lokaðan, berin
þroskast of mikið. Mikið pektin
(hleypiefni) er í rifsbeijum og
þótt svo sé tekst okkur ekki allt-
af að fá hlaupið okkar til að
stífna. Best er að sjóða klasana
heila, en tína ekki berin af. Einn-
ig verður að gæta þess að láta
ekki safann með sykrinum bull-
sjóða og svo er betra að hafa
stóran, víðan pott og hafa hann
ekki meira en hálffullan. Svo
þegar sykurinn er kominn í má
safínn ekki sjóða lengur en í 15
mínútur. En ýmislegt erhægt
að búa til úr rifsbeijum annað
en hlaup og saft, t.d. alls konar
ábætisrétti og kökur. Auk þess
eru heilir rifsbeijaklasar fallegir
sem skraut á kökur, ábætisrétti
og osta. Klasana er best að
frysta heila í boxi með loki, setja
engan sykur á þá, og hafa ekki
mjög mikið í dósinni. Berin mega
ekki vera farin að linast, þegar
þau eru fryst. Svo er hægt að
' tína klasana upp úr dósinni eftir
hendinni.
Næstu 2 uppskriftir eru úr
bók minni „220 gómsætir
ávaxta- og beijaréttir“.
Rifsberjahlaup með ban-
anarjóma (ábætisréttur)
Handa 10
500 g rifsber
7 dl vatn
3 dl portvín (eða ávaxtasafi)
2 dl sykur
13 blöð matarlím
10 einnota plastbikarar
1 peli ijómi
10 fallegar rifsbeijagreinar
' 1. setjið rifs, sykur og vatn í
pott, látið sjóða í 10 mínútur.
Bætið þá portvíni út í og takið
af hellunni.
2. Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn í 10 mínútur, vindið upp
úr vatninu og bræðið í rifssafan-
um.
3. Hellið i 10 einnota plast-
bikara, látið stífna í kæliskáp i
minnst 6 klst.
4. Þeytið ijómann, meijið ban-
ana með gaffli og setjið út í. Hræ-
rið mjög lauslega annars verður
þetta seigt.
5. Skiptið bananaijómanum
jafn á tíu glærar skálar, gjaman
með fæti.
6. Skerið niður með hlaupinu
með hníf, dýfið síðan bikamum
augnablik í heitt vatn og hvolfið
ofan á bananaijómann.
7. Leggið rifsbeijagrein yfir
barminn á hverri skál eða ofan á
hlaupið.
Athugið: Mjög fallegt er að
bera þetta hlaup fram í stóru
hringmóti og setja bananaijó-
mann inn í hringinn, raða síðan
rifsgreinum á barminn á fatinu
sem hlaupinu er hvolft á.
Rifsberjaábætir með rúg-
brauði og súkkulaði
Handa 4
1 þykk sneið óseytt rúgbrauð
(80-100 g)
1 pk suðusúkkulaði, 100 g.
100 g heslihnetur
2 dl kirsubeijavín
200 g fersk eða frosin rifsber
V2 dl sykur
'/2 dl vatn
1 peli ijómi
4 ferskar eða frosnar rifsbeija-
greinar
1. Þurrkið rúgbrauðið með því
að láta það standa nokkrar
klukkustundir á eldhúsborðinu,
rífið það síðan fínt á rifjárni.
2. Rífið súkkulaðið gróft, saxið
hnetumar frekar fínt.
3. Blandið saman rúgbrauði,
súkkulaði og hnetum, skiptið jafnt
í fjórar litlar skálar, hellið kirsu-
beijavíninu yfir það sem er í skál-
inni.
Takið rifsberin af greinunum
með gaffli. Setjið síðan í pott
ásamt vatni og sykri. Sjóðið við
hægan hita í 15 mínútur. Meijið
þá í gegnum sigti og kælið vök-
vann.
5. Þeytið ijómann, blandið rifs-
safanum út í og skiptið jafnt á
það sem er í skálunum.
6. Leggið rifsbeijagrein ofan á
hveija skál og berið fram.
Rifsbeijahlaup
2 kg rifsber, ekki of þroskuð
1 dl vatn
1 kg sykur móti lítra af safa
1. Þvoið rifsberin, takið allt
lauf frá, en tínið þau ekki af
greinunum. Setjið í pott ásamt
vatni og sjóðið við hægan hita
í 45 mínútur.
2. Hellið á grisju, látið standa
þar í 4—5 klst. Kreistið þá
grisjupokann út í safann. Gey-
mið hratið til að búa til að búa
til saft úr.
3. Mælið safann. Setjið 1 kg
af sykri móti hveijum lítra af
safa.
4. Setjið safa og sykur í pott
og látið sjóða við mjög hægan
hita í 15 mínútur, alls ekki leng-
ur. Takið tímann eftir að suðan
hefur komið upp. Notið víðan
stóran pott og hafið hann að-
eins hálffullan. Látið suðuna
koma upp undir hlemmi, en
sjóðið í hlemmlausum pottinum.
5. Hellið í hreinar krukkur.
Látið kólna áður en þið lokið
þeim.
6. Leggið smá smjörpappírs-
hring yfír sultuna, setjið síðan
lok á eða bindið yfír. Merkið
með innihaldi og dagsetningu.
Athugið: Ef þið notið rotvarn-
arefni farið þið eftir leiðbein-
ingum á umbúðum. Látið rot-
vamarefnið í eftir að suðan er
farin úr pottinum.
Rifsberjahlaup
soðið með sykri
2 kg rifsber, notið greinar og
örlítið lauf líka 1 V2 kg. rifsber.
1. Setjið rifs, greinar og lauf í
pott ásamt sykri. Látið sjóða upp,
og sjóðið við hægan hita í 10
mínútur.
2. Takið af hellunni, kælið örlí-
.tið en látið sjóða aftur í 5 mínút-
ur, gerið þetta þrisvar.
3. Hellið á vírsigti, meijið örlí-
tið í gegn með sleif.
4. Hellið í pott og látið suðuna
koma upp. Fleytið froðuna ofan
af. Hellið í krukkur. Látið kólna.
Notið hratið í saft.
5. Setjið smáhring af smjör-
pappír ofan á hlaupið, setjið síðan
lok á eða bindið yfir.
6. Merkið með innihaldi og dag-
setningu. Geymið á köldum stað.
Krydduð rifssulta
1 V2 kg rifsber
750 g sykur
1 msk sítrónusafí
1 dl vatn
1 tsk. steyttur kanill
1 V2 tsk. steyttur negull
1 tsk. steytt allrahanda
1. Þvoið rifsið, takið síðan af
greinunum. Gott er að nota gaffal
til þess ýta beijunum af með hon-
um.
2. Setjið rifsber, sítrónusafa og
vatn í pott. Sjóðið undir hlemmi
í 15 mínútur. Takið tímann frá
því að suðan kemur upp. Hafíð
hægan hita eftir að þetta er farið
að sjóða.
3. Setjið sykur og krydd út í
og sjóðið við hægan hita undir
hlemmi í 30 mínútur.
4. Hellið sultunni heitri í hrein-
ar krukkur. Ef þið notið rotvam-
arefni setjið þið það út í.
5. Lokið krukkunum strax,
merkið með innihaldi og dagsetn-
ingu. Geymið á köldum, dimmum
stað.
Ef þið hafið ekki góða geymslu,
er hægt að frysta rifsberin og búa
til þessa sultu eftir hendinni. Líka
fást mjög góð frosin rifsber sem
hægt er að búa til sultuna úr.
Rifsberjasaft af ósætu
hrati
Hratið af 2 kg af risbeijum.
2 lítrar vatn
200 g sykur
1. Setjið hratið og vatnið í pott.
Látið sjóða við hægan hita í 30
mínútur. Hellið á grisju. Kreistið
grisjuna.
2. Setjið safann í pott, hellið
sykrinum út í. Látið sjóða í 10—15
mínútur.
3. Hellið saftinni á hreinar
flöskur. Lokið síðan með góðum
tappa.
4. Merkið með innihaldi og dag-
setningu.
Athugið: Ef þið notið rotvam-
arefni fylgið þið leiðbeiningum á
umbúðum, en það á ekki að sjóða.
Rifsbeijasaft af sætu hrati
Hrat af 2 kg af rifsbeijum
3 lítrar vatn
1. Setjið hratið í pott ásamt
vatni og sjóðið við hægan hita í
20 mínútur. Hellið á grisju. Kreis-
tið örlítð.
2. Hellið saftinni aftur í pottinn
og látið suðuna koma upp.
3. Hellið síðan á flöskur.
4. Merkið með innihaldi og dag-
setningu.