Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
39
Minninff:
Sveinn Kr. Jóns-
son frá Þangskála
Fæddur 17. ágúst 1902
Dáinn 10. ágúst 1988
Sveinn frændi dó á Sjúkrahúsi
Skagfirðir.ga 10. ágúst sl., nær 86
ára gamall, eftir að heilsu hans
hafði farið hrakandi hin síðari miss-
eri.
Sveinn Kristinn fæddist á Þang-
skála í Skefilstaðahreppi á Skaga
hinn 17. ágúst 1902. Hann var son-
ur hjónanna Jóns Sveinssonar sem
var ættaður af Reykjaströnd og
Maríu Sveinsdóttur frá Hrauni á
Skaga. Þau hjónin höfðu hafið bú-
skap á Þangskála 1895 og bjuggu
þar til 1923. Þá hætta þau búskap
en dvelja kyrr á jörðinni. Við bú-
skapnum tók Pétur sonur þeirra.
Pétur andaðist 1927 og tóku þá
María og Jón aftur við jörðinni til
ársins 1929 að María deyr en Jón
flytur að Bergþórshvoli í Rangár-
vallasýslu til sr. Jóns Skagans son-
ar þeirra, er þar var prestur, og
Jennýjar konu hans.
Við fráfall móður sinnar og brott-
för föður síns tók Sveinn við búskap
á Þangskála og bjó þar í tæpa hálfa
öld til ársins 1978. Þá var heilsan
farin að gefa sig og flutti hann að
Hrauni og var þar í þrjú ár þangað
til hann kom á Sjúkrahús Skagfirð-
inga til dvalar síðustu æviárin.
Sveinn var fimmti í röð 10 systk-
ina, sex bræðra og fjögurra systra.
Bræðurnir voru: Sr. Jón, Pétur sem
fyrr er getið, Sveinn, Sigurður, Jón-
atan og Indriði. Systumar voru:
Guðbjörg, sem dó á bamsaldri,
nafna hennar Guðbjörg, Ástríður
og Ámý Anna. Nokkur systkinanna
tóku sér ættamafnið Skagap. Á lífí
em nú sr. Jón, Jónatan, Ásta og
Anna, öll búsett í Reykjavík.
Sveinn fór ungur að ámm í
vinnumennsku á ýmsum bæjum á
Skaga og stundaði síðan sjó í nokk-
ur ár, m.a. í Vestmannaeyjum og
var á sfldveiðum, þar til hann tók
Hörður Torfason.
Hörður Torfa-
son á söng
ferðalagi
HÖRÐUR Torfason farand-
söngvari heldur tónleika á Höfn
I Hornafirði sunnudaginn 21.
ágúst klukkan 21.
Á ferð sinni mun Hörður halda
tónleika á Djúpavogi, í Breið-
dalsvík, Borgarfirði Eystri, Vopna-
fírði, Bakkafírði, Þórshöfn og Rauf-
arhöfn. Tónleikaferðalaginu lýkur
svo með tónleikum á Kópaskeri
mánudaginn 29. ágúst.
Sunnudaginn 4. september mun
Hörður leika í Lækjartungli í
Reykjavík.
(Úr fréttatilkynningu).
við Þangskála. Sveinn var alla tíð
ókvæntur og var lengst af einbúi á
Þangskála.
Þangskáli er landlítil jörð en ligg-
ur að sjó. Þar em þó nokkur hlunn-
indi, einkum reki, en einnig silungs-
veiði í Þangskálavatni. Þessi hlunn-
indi nýtti Sveinn vel og hafði auk
þess allstórt íjárbú og með hagsýni
og nýtni varð hann vel efnum búinn.
Sveinn var mjög fróðleiksfús,
fylgdist vel með atburðum líðandi
stundar, var víðlesinn þrátt fýrir
stutta skólagöngu og átti stórt og
merkilegt bókasafn. í safni Sveins
vom m.a. mörg tímarit sem óvenju-
legt var að fínna á heimilum.
Sveinn frændi dvaldist oft á
heimili foreldra minna og þá stund-
um um nokkum tíma samfleytt.
Við systkinin kynntumst honum því
mjög vel. Koma hans á heimilið var
jafnan feikilegt tilhlökkunarefni því
að Sveinn var einstaklega barngóð-
ur og hændumst við systkinin mik-
ið að honum.
Hann var til í allt, hægt var að
hossa á maganum á honum, hann
var óþreytandi að spila og lesa upp.
Síðast en ekki síst var hann ósínkur
á gjafír sem við systkinin notfærð-
um okkur sannarlega. Okkur systk-
inum er reyndar sagt að Sveinn
hafí haft sérstaka ánægju af því
að gefa bömum og gleðja þau. Enn
þá óma í minningunni hlátrar hans
þegar við krakkarnir rákum upp
fagnaðarópin þegar Sveinn birtist
í forstofunni og dró upp pakka eða
veiddi sælgæti úr vösum sínum.
Alltaf var nóg handa öllum jafnt
þótt vinir okkar systkinanna bætt-
ust í hópinn.
Vinátta foreldra okkar og systk-
inanna við Svein hélst alla tíð og
alltaf hafði hann jafnmikinn áhuga
á því sem við vorum að gera og
fylgdist vel með því hvernig okkur
vegnaði.
Margar ljúfar minningar vökn-
uðu um æskuárin og samskiptin við
Svein, okkar mikla frænda og heim-
ilisvin, þegar okkur barst fregnin
um andlát hans. Með Svgini er
genginn sérstæður og merkilegur
maður og sannarlega einn af
stærstu ljósgeislunum í barnæsku
okkar systkinanna og endurminn-
ingum.
Við systkinin eigum Sveini mikið
að þakka.
Fyrir mína hönd og Ástu, Bjarna
og Árna.
Vilhjálmur Egilsson
■ • • • ■' .. ... . . ■ '
' ’,' v ‘ '
BILL FRA HEKLU BORGAR SIG
■