Morgunblaðið - 20.08.1988, Side 43

Morgunblaðið - 20.08.1988, Side 43
43 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 ist til Hafnar í Homafírði þar sem hann bjó allt sitt líf upp frá því. Hann hafði á árunum 1960—1962 stundað nám við Samvinnuskólann á Bifröst og hafði nýlega lokið því þegar hann fluttist til Hafnar. Sverrir hafði ráðið sig sem verslun- arstjóra hjá KASK og starfaði hjá fyrirtækinu til æviloka. Hann að- lagaðist fljótt aðstæðum og festi rætur sem ekki urðu slitnar. Dugn- aður, áreiðanleiki og einstök hjálp- semi skapaði honum virðingu félag- anna og samborgaranna. Traust og rólegt viðmót hans féll Austur- Skaftfellingum vel. Hann hefði jafnt getað verið sprottinn úr þeim jarðvegi enda aðstæðumar þar sem hann ólst upp ekki ólíkar. Hann hafði mikinn áhuga á sjó- sókn og öðrum sjávarútvegsmálum. Hann var sjómaður á yngri árum og það vék ekki úr huga hans. Um tíma réðst Sverrir í útgerð en hætti henni eftir nokkum tíma. Hann var því ávallt með einum eða öðmm hætti tengdur störfum f sjávarút- vegi, sem sjómaður, útgerðarmaður eða félagsmálamaður, einkum á sviði hafnar- og slysavarnamála. Sverrir varð fljótt áhugasamur um öll framfaramál í sýslunni. í starfí sínu var hann í stöðugu sam- bandi við fólk og hafði því góða þekkingu og yfirsýn yfír aðstæður, jafnt til sjós og lands. Vegna per- sónulegra eiginleika, leitaði fólk mikið til hans og hann átti marga vini. Hann var félagslyndur og gerði sér vel grein fyrir því að framfarir verða aðeins að vemleika með sam- eiginlegu átaki fólksins. Hann hafði til að bera dugnað og fómfysi til að leggja mikið af mörkum til hinna ýmsu mála. Fljótlega eftir að Sverrir fluttist til Hafnar kynntist hapn eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu Ásgeirsdóttur. Þau vora einstaklega samrýnd alla tíð. Þau eignuðust gott heimili þar sem bömin þeirra tvö ólust upp. Þau unnu jafnframt saman að fé- lagsmálum og unnu þar sem einn maður. Nægir að nefna starf þeirra innan Slysavamafélagsins og Framsóknarflokksins því til stað- festingar. Sverrir gegndi mörgum trúnað- arstörfum innan Framsóknar- fíokksins. Hann var lengi formaður Framsóknarfélags A-Skaftafells- sýslu, sat í miðstjóm flokksins og gegndi trúnaðarstörfum fyrir flokk- inn hjá Hafnarhreppi. Sverrir var ávallt fyrstur til að mæta til starfa í kosningabaráttu og eyddi óteljandi frístundum í þau störf. Hann og Erla unnu ávallt fómfúst starf sem aldrei verður fullþakkað. í dag kveðjum við vin okkar og samstarfsmann, Sverri Guðnason. Þar höfum við misst góðan mann sem átti mikið ógert. Mest hafa ástvinir hans misst, sem hann hafði gefíð mest af drengskap sínum og kærleika. Byggðarlagið mun minn- ast hans með virðingu og þakklæti og þeir em margir vinimir sem eiga honum skuld að gjalda. Við Sigur- jóna þökkum allar samverastund- imar og vottum Erlu og bömunum samúð um leið og við eram fullviss um að þau eiga þann styrk sem þarf til að afbera söknuðinn sem nú _er framundan. Ég vil að lokum kveðja góðan vin með annarri tilvitnun í Davíð Stefánsson. Eilífð var öllum sköpuð áður en til voru jarðnesk spor. Síðasta guðagjöfin er gleðinnar ljósa vor. Halldór Ásgrímsson í dag, laugardaginn 20. ágúst 1988, er kvaddur hinstu kveðju Sverrir B. Guðnason, Höfn, Homa- fírði. Sverrir fæddist 23. desember 1937 á Haukabergi, Barðaströnd og var því aðeins fímmtugur þegar kallið kom. Foreldrar hans vora Ásgerður Einarsdóttir frá Hauka- bergi og Guðni Guðjónsson, bílstjóri úr Reykjavík. Sverrir ólst upp í Selárdal í Am- arfirði hjá móður sinni og fósturföð- ur, Elíasi Melsted, fyrst á bænum Grand og síðar á Neðri-Bæ þar skammt frá. Á uppvaxtaráram hans var öðravísi umhorfs í Selárdal, hvað búskap varðar, en nú er. Ég minnist þess við fyrstu komu í dal- inn, fyrir hart nær fjöratíu áram, að búið var á átta bæjum og var íbúatala þá á milli þijátíu og fjöru- tíu manns. Sjálfsagt hefur lífsbaráttan verið hörð, bændur stunduðu sjósókn til að drýgja tekjur sínar. Híbýli vora hituð upp með mó, sem tekinn var upp á vorin. En mannlíf var fagurt á þessum stað og fólk deildi saman gleði og sorg. Ef skotinn var selur var sent með kjöt og spik á aðra bæi, ef maður eða skepna þurfti aðstoðar við vora margar hendur á lofti. Við þessar aðstæður ólst Sverrir upp, mótaður af umhverfi sínu. Vinátta hans var djúp og hlý, hjálp- semi viðbragðið. Eftir að hafa stundað sjó- mennsku á fískiskipum um nokk- urra ára skeið ákvað Sverrir að hefja skólagöngu á ný. Hann fór fyrst í héraðsskólann á Reykjum í Hrútafirði og síðar hóf hann nám í Samvinnuskólanum á Bifröst, eða nánar tiltekið haustið 1960. Þar lágu leiðir saman á ný. Það var samstilltur hópur sem brautskráðist frá Bifröst vorið 1962, og hélt út í lífíð á vit nýrra ævintýra, nýrra tækifæra. Nú sjáum við á bak þeim fyrsta úr þessum hópi. Ég veit að ég mæli fyrir munn okkar allra, að nú sökn- um við vinar í stað. Að lokum bið ég eiginkonu, böm- um sem og öðram vandamönnum allrar blessunar. Eftir lifír minning- in um góðan dreng. Hjörtur Guðbjartsson í dag verður til moldar borinn Sverrir Guðnason, einn dyggasti félagi slysavamadeildanna á Höfn. Um nær aldarfjórðungs skeið hefur hann helgað þeim félögum krafta sína og lengst af verið þar í forystu- sveit. Allan þennan tíma hefur Sverrir verið trúr þessum félagssskap og reiðubúinn til allra verka. Skipti þá ekki máli hvort um var að ræða útkall í erfíða björgun eða kvabb vegna smárra verka og stórra sem sinna þurfti, ávallt var Sverrir til staðar. Það var ekki hans verklag að bíða eftir þvi að aðrir ynnu þau verk sem biðu. Hann einfaldlega vann þau sjálfur ef þess var nokkur kostur. Sverrir var maður verklaginn, kunni á flestum hlutum skil og var ætíð fús til að miðla af reynslu sinni og þekkingu væri þess óskað. Aldr- ei tranaði hann sér fram eða gum- aði af verkum sínum. Slíkt var hon- um ekki að skapi. Ef slys bar að höndum var Sverr- ir ávallt einn þeirra sem fyrst var leitað til. Það var því sjálfgefíð að hann væri í þeim hópi sem þátt tók í erfíðum björgunarleiðangri á Morsárjökli um mánaðamótin jan- úar—febrúar síðastliðinn. Engan af félögum hans í þeirri för gat þó órað fyrir því að það yrði þeirra síðasti sameiginlegi björgunarleið- angur. Svo þrautseigur og ósér- hlífínn var hann þá sem endranær. Slysavamafólk á Höfn kveður í dag góðan dreng og sannan félaga. Við fráfall hans er skarð fyrir skildi. Fjölskyldu Sverris vottum við okkar dýpstu samúð. Félagar í slysavarnadeild- unum á Höfn. Nú dreymir allt um dýrð og frið, við dagsins þögla sálarhlið, og allt er kyrrt um fjöll og fjörð og friður Drottins yfír jörð. (Davíð Stefánsson) Erindið úr ljóði Davíðs: „Nú sefur jörðin sumargræn", læddist áleitið í huga minn, þar sem ég sat við eldhúsborðið þann 13. ágúst síðast- liðinn og raðaði pönnukökum á disk handa fólkinu mínu, heimamönnum og góðum vinum, sem vora að kepp- ast við niður hjá hlöðu að koma í hús síðustu böggunum af heyflutn- ingsvagninum þó liðið væri á kvöld. Flæsa hafði verið í tvo daga, mitt í allri ótíðinni, svo rétt þótti að reyna að hirða heyið, þó illa þurrt væri. Treysta varð súgþurrkuninni til að bjarga því, sem á þurrkinn skorti. Það var orðið rokkið og kvöldið var lognkyrrt, já, eitthvað óvenju- kyrrt, og þó vora tvær litlar elsku- legar stúlkur heima hjá okkur Guð- laugu, sú litla, 4 ára, var sofnuð en eldri systirin að snúast fyrir mig í eldhúsinu meðan hún beið eftir foreldram sínum og eldri bróður, sem vora að hjálpa heimamönnum við hirðinguna ásamt Sverri Guðna- syni. Já, en kyrrðin, hún var ein- kennilega mikil, næstum áþreifan- leg, það lá einhver helgi í loftinu. Var friður Drottins svona nærri? Einkennileg tilifnning — eða var ég aðeins svona þreytt eftir langan starfs- og gestadag? Ég gerði mér ekki grein fyrir því, en hitt vissi ég, að þeir, sem svo vel vora búnir að hjálpa og vinna í heyinu, og fóra aftur út eftir kvöldmatinn til að ljúka alveg við hirðinguna, hlutu að fara að koma heim og þurftu þá sannarlega að fá góðan kaffí- sopa. Allt í einu heyrðist bflhljóð. Það var gott, fólkið var þá búið og að koma heim. En hvað var þetta? Inn kom drengurinn minn með asa og náfölur og spurði: „Hvert er síma- númerið hjá lækninum?" „Hvað er að?“ Hvað gerðist? Slys? Þau gera sjaldnast boð á undan sér og era ævinlega kvíðvænleg. „Nei.“ „Hvað þá?“ „Hann Sverrir — hann Sverrir hné niður." Og ég skildi að hann Sverrir hafði allt í einu hnigið niður í sumarhúminu á grænan böltann við hlöðuna. Eins fljótt og auðið reyndist var náð í sjúkrabfl og lækni og á meðan beðið var eftir þeim gerðar lífgun- artilraunir, þó ekki yrði annað séð en að Sverrir væri þegar farinn — dáinn — horfinn til æðri heima á einu augnabliki. Ég fór strax á stað- inn og mér duldist ekki að enginn mannlegur máttur yrði þess megn- ugur að kalla hann aftur til þessa lífs. Sverrir, náttúruunnandinn, stóri, góði, starfssami maðurinn, kvaddi jarðlífíð úti í guðsgrænni náttúranni — trúr lífinu og þörfum þess til hinstu stundar. Sverrir Guðnason átti fáa sína líka. Ég hugsaði oft sem svo, að allar mæður hlytu að óska sér þess að synir þeirra væra honum líkir. Gjörvilegur maður, nokkuð hár vexti, vel á sig kominn andlega sem líkamlega, reglusamur, fjölhæfur, velviljaður, starfsfús, duglegur, hjálpsamur, skapgóður en ekki skaplaus. Maður, sem vildi hvers manns vanda leysa og tókst það með ágætum, þar sem hann náði til. Sverrir kom til Hafnar í Homa- fírði árið 1962 til starfa hjá KASK, ráðinn til að veita forstöðu mat- vöra- og búsáhaldadeildunum í nýrri búð kaupfélagsins, kjörbúð. Kjörbúðaformið var þá algjör nýj- ung hér. Upp frá því lifði hann og starfaði á Höfn, og langflest árin við kaupfélagið þar. Sverrir var vestfírskrar ættar og bar það með sér, að hann var af traustum stofnum kominn. Foreldr- ar hans vora Guðni Guðmundsson og Ásgerður Einarsdóttir. Eignuð- ust þau hann saman einan bama, en hálfsystkini átti hann bæði frá föður og móður, allt hið vænsta fólk, að því er ég best veit. Sverrir fæddist á Haukabergi í Barða- strandarsýslu, en ólst upp í Selár- dal hjá móður sinni og stjúpa, Elí- asi Melsteð. Uppkominn fór Sverrir til sjós og var um fjögurra ára skeið ýmist á toguram eða millilandaskip- um. Síðan tók hann sig til og fór í Reykjaskóla í Hrútafírði og tók þaðan landspróf. Þar næst lá leiðin í Samvinnuskólann. Að námi loknu þar sigldi hann og var úti um nokk- urra mánaða skeið að kynna sér sérstaklega kjörbúðaform verslana, áður en hann kom austur á Höfn til starfsins í nýju kjörbúðinni, sem hann veitti sfðan forstöðu um margra ára skeið og mótaði störfín þar, hafði, eins og fyrr sagði, fyrstu árin tvær deildir búðarinnar á sinni könnu, en er frá leið matvöradeild- ina eingöngu, enda það eitt mikið og sívaxandi starf sem hann vann af mikilli ósérplægni og prýði. Seinna tók hann að sér jámvöra- deildina, síðan skrifstofustörf og varð jafnframt umboðsmaður Sam- vinnutrygginga og Samvinnu- ferða-Landsýnar á Höfn. Um stutt skeið sinnti hann störfum utan kaupfélagsins, fór t.d. í útgerð um tíma, sem hann hætti þó fljótlega aftur við. En áhuga hafði hann allt- af á útgerð. Nú seinast vann hann alfarið á skrifstofu KASK við vandasöm störf. Sverrir rígbatt sig þó aldrei við kontórstólinn og skyldustörfin þar, sem hann leysti af hendi af fæmi og ríkri samviskusemi. Hann var félagslyndur og starfaði t.d. mikið í slysavamafélagi staðarins og framsóknarfélagi — og lá þar ekki á liði sínu frekar en annars staðar þar sem hann lagði hönd á plóg. Hann unni náttúranni og hvenær, sem hann gat því við komið var skroppið út úr bænum t.d. á veiðar eða til útivistar í fallegum sumarbú- stað þeirra hjóna I Lóni — eða — og ekki hvað síst né sjaldnast til að heilsa upp á vini sína og rétta hjálparhönd í kotinu okkar. Vora ótalin spor hans og handtök hjá . okkur hér gegnum árin við hirðing- ar á sumrin, í haustverkum, í ýms- SJÁ BLS. 45. stjóra og Elísabetu Guðmundsd. frá Gili í Svartárdal. Þau giftust 9. september 1936 og eignuðust eina dóttur, Boggu, 28. október 1937. Sigurbjörg átti við veikindi að stríða og lést á Kristneshæli 25. nóvember 1937. Sigfús fór með þessa nýfæddu dóttur sína að Nautabúi. Ári síðar flytur hann til Sauðárkróks þar sem faðir hans var orðinn kaupfélags- stjóri og gerðist verslunarmaður hjá kaupfélagi Skagfírðinga í gömlu Gránu, sem kölluð var. Starfaði Sigfús þar til ársins 1946, undanskildum tveim áram, sem hann starfaði hjá KRON sér til þekkingar í verslunarstörfum. Á þessum áram sem hann starfaði í ... kaupfélaginu kynntist hann gullfal- legri og yndislegri stúlku, Svan- laugu Pétursdóttur, sem starfaði á saumastofu kaupfélagsins, sem síðar varð konan hans því þau giftu sig á sæluviku á Sauðárkróki 1945. Þau eignuðust þijú mannvænleg böm, sem era búin að koma sér vel fyrir í lífínu. Þau era: Sigurður, l fæddur 3. nóvember 1947 bóndi í Vík, giftur Ingibjörgu Hafstað kennara, eiga þau einn son, Jón. Stefanía, fædd 14. mars 1949, starfsmaður rannsóknarstofu Sjúkrahúss Sauðárkróks, gift Snorra Jóhannssyni húsverði fjöl- brautaskólans og eiga þau tvö börn, Sigfús og Lilju Maríu. Yngvi, fædd- ur 23. júlí 1957, bifvélavirki giftur Addrúnu Antonsdóttur verslunar- manni í Reykjavík. Eiga þau þrjú böm, Anton, Þórð og Svanlaugu. Bogga frá fýrra hjónabandi sem á fjögur böm. Sigurð Gunnar, Stein, Auðunn Þór og Eydísi Rebekku. Bogga er gift undirrituðum. Svanlaug (Svana) og Sigfús fóra til Siglufj'arðar 1946 á sfld til að auka tekjur sínar eins og títt var í þá daga og vora þar í eitt ár. Upp frá því fór Sigfús að starfa hjá RARIK og gerðist línuverkstjóri og byggði upp nýjar rafmagnslínur víðsvegar um landið. Svana fylgdist alltaf með honum um landið sem ráðskona, og eldaði oft ofaní stóran hóp vinnuflokka. Sigfús var vel liðinn af starfs- mönnum sínum, unnu sumir í ára- raðir undir stjóm Sigfúsar, var mikið sótt I vinnu til hans en færri komust að en vildu. Glaðvær söng- ur, vísnaflutningur og fróðlegar frá- sagnir voru aðalsmerki vinnufólks Sigfúsar að loknu dagsverki. Árið 1957 fluttu Sigfús og Svana til Reykjavíkur í nýja íbúð við Haga- mel 41, og kynntust þar mörgu góðu fólki. Árið 1968 bjó ég undir- ritaður á Egilsstöðum, kynntist ég þá Boggu dóttur Sigfúsar frá fyrra hjónabandi, talaði Bogga oft um föður sinn og Svönu stjúpmóður sína og sagði oft við mig að henni langaði til að kynna mig fyrir þeim. Svo var það í maí 1969 að hún segir við mig að hún hafí talað við pabba sinn og Svönu og séum við velkomin til þeirra og gista hjá þeim í nýja húsinu sem þau vora nýflutt í, Brúnalandi 3, Reykjavík. Þegar við komum til þeirra var ég kynntur fyrir þessum elskulegu hjónum og systkinum Boggu, það var sest að borðum og við eram að ljúka við kaffíð þegar stór flutn- ingabfll kemur í hlað og út úr hon- um koma fjórar manneskjur, era þar komin Stefanía móðir Svönu, stjúpfaðir Svönu, Þórður, og tvær systur hennar, Ánna og Elínborg. Urðu miklir fagnaðarfundir, allt húsið fylltist af hlátri, kviðlingum, skemmtilegum frásögnum og öllu því, sem gerði þessar vikur skemmtilegar og ógleymanlegar. Á þessu öllu saman sá ég að ég var að tengjast fjölskyldu, sem var að mínu skapi og féll inni huga minn sem gott og elskulegt fólk. Þau sýndu það í þessu sem öðru gest- risni og alúð, oft höfum við hjónin gist hjá Sigfúsi og Svönu og voram við alltaf jafn velkomin. Uppúr 1973 vildi Sigfús fara að hægja á ferðinni og hætti útivinnu og verktakastörfum, sem hann var búinn að stunda um nokkum tíma, svo þau hjónin keyptu sölutum við Hagamel. Gekk sú verslun mjög vel. Þegar þau vora búin að reka þessa verslun í sex mánuði fékk Sigfús hjartaáfall og lamaðist. í fímmtán ár hefur Sigfús átt við mjög alvarleg veikindi að stríða. Það gat enginn maður gert sér grein fyrir viljaþreki, áræði og dugnaði Sigfúsar. Ég heimsótti hann rétt eftir áfallið, á Grensás- deild Borgarsjúkrahússins, og tjáði hann mér að hann hefði það fast- lega í huga að geta gengið óstudd- ur og sjálfbjarga eftir nokkum tíma. Eftir að Sigfús var búinn að vera nokkum tíma á göngudeildinni fór hann á Reykjalund og byijaði að þjálfa sig þar af miklum dugn- aði. Þegar hann var búinn að vera nokkra stund á Reykjalundi fór hann að æfa sund þar sem veikindi hans oliu því að hann tapaði sund- kunnáttu sinni. Eftir það fór hann daglega í sund svo lengi sem hann gat. Hann fór í langar göngur dag- lega í Brúnalandi til þess að halda sér við og auka þrek. Hann missti mikið sjón í veikindum sínum, það fékk nokkuð mikið á hann, eftir að Sigfús og Svana fluttu norður til Sauðárkróks þá gekk hann mikið um götur Sauðárkróks, líka þegar hann var að fara í sund. Sigfús var snyrtimenni hið mesta, var alltaf eins og klipptur út úr tískublaði, fór hálfsmánaðar- lega til rakara til þess að láta klippa sig. Þegar við Bogga fóram í heim- sókn til þeirra Svönu og Sigfúsar var mesta tilhlökkunarefnið að hlusta á hann fara með vísur, segja frá mönnum og málefnum, bæjar- nöfnum um allt land og sögulegum ömefnum, mann fróðari um þessi efni vissi ég ekki um, stundum hafði ég það að orði við Svönu hvað það færi mikill fróðleikur með svona mönnum þegar þeir færa yfír móð- una miklu og ræddum við oft um það. Sjóndepran fór mikið í hann eins og áður er getið, þegar hann var að aka með mér eða einhveijum öðram þá urðum við vör við að hann las af skiltum sem við ókum þjá, þá var hann að mæla sjónina hjá sjálfum sér. Ég hafði það ein- hvem tíma á orði af hveiju hann væri að þessu, þá sagði hann mér að þegar hann sæi bílnúmer úr ákveðinni fjarlægð þá ætlaði hann að taka bílpróf aftur og það gerði hann. Ég þakka samfylgdina, vinátt- una, góða kynningu og samvera- stundimar. Guð geymi góðan dreng. Svana á þakkir fyrir ósérhlífnina, langar setur við lestur, umhyggju og ást á sínum ástvini, hjónaband þeirra var mikiu meira, þau vora vinir og samstarfsmenn sem tóku tillit hvort til annars. Svana, Guð geymi þig og varð- . veiti. Björgvin Lúthersson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.