Morgunblaðið - 20.08.1988, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
49
DOLLY PARTON
Dolly elskar alla menn
etta segir Dolly Parton sjálf í
persónulegu viðtali við
ameríska blaðið Examiner. „Karl-
menn eru veikleiki minn, ég hef
elskað þá í hundraðatali. Stutta,
langa, granna, feita, unga og
gamla. Það skiptir engu máli hvern-
ig þeir líta út, ég heillast af þeim
öllum, punktur og basta.“ Enginn
þeirra hefur þó ógnað hjónabandi
hennar og Carl Dean, en þau hafa
verið gift í tuttugu og tvö ár.
„Ég lifi mínu lífi og hann sínu,
en samband okkar er stórkostlegt
og við slítum því aldrei." Margir
spytja sjálfsagt hvernig sambandið
geti verið svo gott þar sem þau
hittast mjög sjaldan, svona miðað
við þetta venjulega. „Við erum ekki
svo mikið frá hvort öðru eins og
fólk heldur. Lengri tíma en þijár
vikur án hans héldi ég ekki út.“
Hún segir að hann hafi ekki mik-
inn áhuga á að taka þátt í stjörnu-
lífi hennar og sé feiminn. Hann
kemur þó einstaka sinnum með
henni í ferðalög, en heldur sig allt-
af afsíðis, svo að fáir vita að hann
er þar, segir hún ennfremur. En
aldrei er hann sagður afbrýðissam-
ur, þrátt fyrir augljósa ást hennar
á öllum hinum. Þetta er ágætt fyr-
ir menn að vita.
er opið ðll kvöld
KRISTJÁN
KRISTJÁNSSON
OQ
EINAR JÚLÍUSSON
leika f kvöld
IITTll
FLUCLCIDA HOTEl
Fritt innlyrir kl. 21.00 •
Aögangseyrir kr 300 e/ kl 21.00
Brautarholt 20, Sími 29098
Uppselt í mat. Barsetustofan opin frá 1800 - 03°°
laugardaga
8QP-I8QP
sunnudaga
IIPP-I8PP
i