Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMOTIÐ
„Áhorfendur eiga eftir að sjá
góða og skemmtilega leiki“
- segir Arno Ehret, þjálfari Svisslendinga. „Liðsheildin okkar sterkasta vopn,“ segir
Evtushenko, þjálfari Sovétmanna. Aðrir þjálfarar sammála um að Sovétmenn séu bestir
„ÞAÐ er gaman að taka þátt í
svo sterku móti, sem Flug-
leiðamótið er og ég er viss um
að áhorfendur eiga eftir að sjá
góða og skemmtilega ieiki.
Sovétmenn eru sem fyrr sigur-
stranglegastir, en heimavöllur-
inn vegur þungt og ef ég þekki
íslenska áhorfendur rétt þá
hafa þeir ekki sagt sitt síðasta
orð,“ sagði Arno Ehret, þjálfari
Svisslendinga, m. a. á blaða-
mannaf undi í gær, þar sem
þjálfarar þriggja aðkomulið-
anna á mótinu voru saman
komnir.
Flugleiðamótið, sterkasta hand-
knattleiksmót, sem haldið hef-
ur verið á íslandi, hefst í dag klukk-
an 14 á Selfossi með leik Spánveþa
og Svisslendinga. Klukkan 15 byij-
ar viðureign Sovétmanna og b-liðs
íslendinga á Akureyri, en leikur
íslands og Tékkoslóvakíu hefst í
Laugardalshöll klukkan 17. Öll liðin
nema það spænska æfðu í gær og
voru gestimir ánægðir með allar
aðstæður.
Uðsheild
Þetta er síðasta mótið,_ sem a-
þjóðimar taka þátt í fyrir Ólympíu-
leikana og má því ætla að leikimir
gefi forsmekk að því sem koma
skal í Seoul.
„Þó við höfum ekki tapað leik á
árinu er ég ekki alls kostar ánægð-
ur með liðið," sagði Evtushenko,
þjálfari Sovétmanna. „Mótherjar
okkar hafa ekki sýnt sínar bestu
hliðar og því er fyllsta ástæða til
að óttast þá. Liðsheildin er okkar
aðall, en við þurfum að bæta margt
fyrir Ólympíuleikana. Við höfum
verið í skyndiprófum, Flugleiðamó-
tið er það síðasta, en úrslitin liggja
ekki fyrir fyrr en í Seoul,“ bætti
hann við. Er þjálfari sovéska liðsins
var spurður um helstu veikleika
liðsins, ef einhveijir væm fyrir
hendi, svaraði hann: „Þeir eru
margir, en ég vil ekki tala um þá.“
Evtushenko var hógvær sem
fyrr, sagði að Júgóslavar yrðu erfið-
astir í Seoul, en benti réttilega á
að engin þjóð hefði varið titilinn í
handknattleik á Ólympíuleikunum
til þessa.
Evtushenko var spurður hvort
hann væri sammála því að Sovét-
menn hefðu yfirburðaliði á að skipa
um þessar mundir. „Nei. Við vomm
til dæmis undir gegn íslendingum
í hálfleik á Spánarmótinu. í seinni
Morgunblaðið/Júlíus
Evtushenko, þjálfarl Sovétmanna.
Morgunblaöið/Júlíus
Arno Ehrot, þjálfari Svisslendinga.
Morgunblaðiö/Júlíus
Mares, þjálfarl Tákka.
A-lið íslands
ámótinu
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Val................... 191
Brynjar Kvaran, Stjömunni...................124
Guðmundur Hrafnkelsson, UBK..................56
Aðrir leikmenn:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH.................189
Jakob Sigurðsson, Val.......................147
Bjarki Sigurðsson, Víkingi...................24
Karl Þráinsson, Víkingi......................72
Sigurður Gunnarsson, Víkingi.............. 146
Alfreð Gíslason, KR.........................139
Páll Ólafsson, KR......................... 170
Guðmundur Guðmundsson, Vík..................185
Kristján Arason, Teka.......................181
Geir Sveinsson, Val.........................136
Sigurður Sveinsson, Val.....................141
Atli Hilmarsson, Fram.......................132
Þjálfari: Bogdan Kowalczyk
hálfleik náðu við svo að sýna okkar
bestu hliðar og sigra.“
íslendlngar góölr en Sovót-
menn bestlr
Vojtech Mares, þjálfari Tékka,
sagði að þeir væm með ungt lið
og reynslulítið; undirbúningurinn
miðaðist fyrst og frernst við HM í
Tékkoslóvakíu 1990. „Álagið er því
ef til vill ekki eins mikið á okkur,
en engu að síður reynum við auðvit-
að ávallt að gera okkar besta. ís-
lenska liðið er gott og ég vildi gjam-
an hafa Alfreð og línuna frá honum
út á bekkinn, þar sem Sigurður
Sveinsson er oftast, innan minna
raða. Sovétmenn em samt bestir
og þeir eiga að geta gert enn bet-
ur,“ sagði Mares, einn besti hand-
knattleiksmaður heims á árum áð-
ur, en hann kom síðast til íslands
í janúar 1969 og lék þá tvo lands-
leiki.
Mares bætti við að Flugleiðamót-
ið væri fyrsta keppni Tékka í sum-
ar. Þeir hefðu leikið vináttuleiki og
fimm leiki við Frakka fyrir luktum
dymm, en nú væri það alvaran.
„Við leggjum mikla áherslu á þetta
mót, en burtséð frá árangri skiptir
mestu að allir verði heilir í Seoul.“
Hórtil aðlæra
Amo Ehret tók við svissneska
landsiiðinu eftir HM 1986, en lék
áður og þjálfaði í Vestur-Þýska-
landi og var m. a. í gullliði Þjóð-
veija á HM 1978. „Við emm með
ungt lið og komum hingað fyrst og
fremst með því hugarfari að læra
af hinum og þróa leik okkar fyrir
b-keppnina í Frakklandi eftir ára-
mótin," sagði Ehret.
HM 93 á íslandl
Þjálfaramir sögðust allir vera því
hlynntir að heimsmeistarakeppnin
1993 yrði á íslandi og þeir töldu
að ráðamenn heima fyrir væm á
sama máli, en valið væri ekki þjálf-
ara. Þeir lýstu ánægju sinni með
skipulagningu Flugleiðamótsins og
aðbúnað allan. Evtushenko tók sér-
staklega fram, er hann sagði Sovét-
menn styðja umsókn íslendinga um
HM 1993, að hann bæri mikla virð-
ingu fyrir þeim sem standa í for-
ystu handknattleiksmála á íslandi.
„Ég ber mikla virðingu fyrir íslend-
ingum, Jóni Hjaltalín Magnússyni
og öllum öðmm sem stjóma hand-
knattleiksmálum hér. Þeir hafa náð
að gera ótrúlega hluti í svo litlu
landi.“
FJöldl þjálfara fylgdist með æfingu sovéska landsliðsins í Laugardalshöll síðdegis í gær. Á myndinni til vinstri má m.a. sjá Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfara íslands, Geir Hallsteínsson^og Sitrur-
berg Sigsteinsson og á hægri myndinni em m.a. Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari KR og U-21 landsliðsins og Ámi Indriðason. ’ H ®