Morgunblaðið - 20.08.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
ítfúm
FOLK
■ BORUSSIA Mönchenglad-
bach og Schalke léku á miðvikudag
í vestur-þýsku bikarkeppninni.
Schalke féll úr úrvalsdeildinni í
fyrra og var Gladbach talinn mun
sigurstranglegri aðilinn í viðureign
liðanna á miðvikudag. Úrslitin
komu því mjög á óvart, en Schalke
sigraði með tveimur mörkum gegn
einu.
■ ALAN Hansen
fyrirliði Liverpool leikur ekki með
liðinu gegn Wimbledon um góð-
gerðaskjöldinn í dag. Hansen
gekkst undir uppskurð á hné í kjöl-
far meiðsla sem hann varð fyrir í
vináttuleik við Atletico Madrid á
Spáni í síðustu viku. Meiðslin eru
alvarlegri en áætlað var í fyrstu og
Iíkur eru á að Hansen verði frá
keppni í allt að þrjá mánuði.
■ MICHAEL Laudrup, danski
landsliðsmaðurinn hjá Juventus,
verður áfram hjá félaginu í kjölfar
þess að Ian Rush hefur verið keypt-
ur aftur til Liverpool. Áður hafði
stjóm Juventus lýst því yfír að lið-
ið hefði ekki lengur not fyrir Laudr-
up. Hann hafði fengið tilboð frá
Liverpool og Manchester United,
en ekki haft áhuga. Laudrup hefur
dvalið undanfarið heima í Dan-
mörku þar sem hann hefur æft
með sínu gamla félagi Bröndby
ásamt bróður sínum Brian.
■ IAN Rush leikur ekki með
Liverpool í dag á Wembley í leikn-
um um góðgerðarskjöldinn vegna
veikinda undanfarið, en talið er að
hann verði tilbúinn í slaginn um
næstu helgi þegar deildarkeppnin
byijar og Liverpool mætir Charl-
ton.
I EINN lítill bókstafur getur oft
breytt miklu. Sagt var frá því í blað-
inu í fyrradag að Ólafur H. Jóns-
son fyrrum landsliðsfyrirliði yrði
flokksstjóri handboltalandsliðsins á
Ólympíuleikunum í Seoul. Þetta er
að sjálfsögðu rangt. Það er Ólafur
Jónsson, fyrrum leikmaður
Víkings og fýrirliði landsliðsins
sem verður flokksstjóri, en ekki
Valsarinn gamli. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
■ PÉTUR Ormslev, fýrirliði
Fram, þurfti að fara út af í lands-
leik íslendinga og Svía á fimmtu-
daginn. Gömul meiðsli á ökkla tóku
sig upp, og er óvíst að hann geti
spilað með félögum sínum í 1. deild-
inni gegn KR á sunnudagskvöldið.
Nafni hans Pétursson hjá KR hef-
ur einnig verið óheppinn í sumar.
Veikindi háðu honum lengi fram
eftir sumri, en að undanfömu hefur
hann átt við meiðsli að stríða, hefur
ekki getað æft og verður tæplega
með á morgun.
■ STEINAR Ingimundarson
mun örugglega ekki spila með
Leiftri í næstu umferð, því hann
er meiddur í ökla og nára. Þá er
Þorvaldur Jónsson, markvörður
Leifturs, meiddur í öxl, en það
hefur ekki aftrað honum frá því að
keppa fram að þessu, og mun að
líkindum ekki heldur gera gegn
ÍBK á sunnudaginn. Það er að von-
um slæmt fyrir Leiftur að vera á
Steinars í leiknum, því leikurinn
gegn ÍBK er hálfgerður úrslitaleik-
ur um hvort liðið það verður, sem
fellur niður í aðra deild.
■ FORMAÐUR tennissam-
bands íslands heitir Guðný Eiríks-
dóttir en ranglega var farið með
nafn hennar í blaðinu fyrir skömmu.
■ FIMMAN, keppni flmm hér-
aðasambanda á Norður- og Vest-
urlandi í fijálsum íþróttum, hefur
verið frestað frá deginum í dag til
morguns. Keppendur á mótinu hafa
því ekki tök á að taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu og mun
það hafa valdið sumum þeirra mikl-
um vonbrigðum.
GOLF / NORÐURLANDAMOTIÐ
Hressandi að leika í norðangolunni
- sögðu dönsku landsliðsmennirnir eftir að hafa leikið 18 holur í gær
Morgunblaðiö/Björn Blöndal
Finnsku stúlkurnar fengu hálsbólgu við komuna en eru óðum að ná sér.
NORÐMAÐUR sló fyrsta högg-
ið á Norðurlandamótinu í golfi,
sem hófst klukkan 8 á Hólms-
velli í Leirunni í morgun. Leikn-
ar verða 72,holur í karla- og
kvennaflokki og lýkur mótinu á
morgun. íslensku kylfingarnir
léku ekki á aðalvellinum í gær,
en voru þess í stað á æfinga-
vellinum. Veðurútlitiðer gott
og sagði Logi Þormóðsson,
mótsstjóri, að spáð væri norð-
an golu og heiðskíru veðri. Því
væri útlit fyrir að veðurguðirnir
ætluðu að verða mótshöldur-
um og keppendum hliðhollir.
Dönsku og norsku liðin komu
síðast til landsins og voru
bæði við æfíngar í gær. Herbert
Fredriksen, liðsstjóri danska liðsins,
sagði að völlurinn
Björn væri sérlega
Blöndal skemmtilegur og
skrifar undir þau orð tóku
dönsku kylfíngarnir.
Þeir sögðu að það væri hressandi
að vera úti og leika golf í norðan
golu og tæru lofti. Golan væri ekki
vandamál hjá þeim, því á golfvöllum
í Danmörku væri oft vindasamt.
Danimir sögðu að setja mætti út á
flatimar á vellinum. Þær væru
hægar og tvær væru afleitar.
Dönsku karlmennimir eiga titil að
veija og sagði Fredriksen að mikil
barátta yrði hjá sínum mönnum til
að ná góðum árangri, því fjórir efstu
menn yrðu sendir til keppni á
heimsmeistaramótið í Svíþjóð í
næsta mánuði.
Karl Semb, forseti norska golf-
sambandsins, var sammála Danan-
um um að völlurinn væri skemmti-
lega hannaður og líkti honum við
skosku golfvellina við sjávarsíðuna.
Semb sagði að vindurinn gæti
eflaust orðið vandamál hjá norska
liðinu, því norskir golfvellir væry
yfírleitt umluktir tijám, sem veittu
gott skjól. Hann vildi samt vera
bjartsýnn og sagði að lið sitt stefndi
ótrautt að sigri í mótinu.
Á fimmtudag var haldið formót
á Hólmsvelli og þá voru leiknar níu
par þijú holur. Liðsstjóri norska
kvennaliðsins, Anna Dönnestad,
gerði sér þá lítið fyrir og fór holu
í höggi. Sagði hún að þetta væri í
þriðja sinn, sem hún hefði náð þess-
um árangri. Sigurvegarar urðu Gísli
Sigurðsson, GK, Gylfi Kristinsson,
GS, og Lasse Tilander frá Finn-
landi. Veitt voru sérstök verðlaun
fyrir að vera næst holu eftir upp-
hafshögg og náðu tveir keppendur
af 90 fyrir utan Dönnestad að vera
nær en 150 sm frá holu.
BIKARÚRSLIT / KNATTSPYRNA KVENNA
Morgunblaöið/Einar Falur
Valur og ÍA leika til úrslita í bikarkeppni kvenna á sunnudag. Það verður eflaust hart barist í leiknum líkt og þessi mynd
úr deildarleik liðanna í sumar ber með sér.
Tímamótaleikur!
Valur og ÍA leika til úrslita á aðalleikvangi
ÞAÐ má segja að viss tímamót
verði mörkuð í sögu kvenna-
knattspyrnu hér á landi á
sunnudag. Þá ferfram bikarúr-
slitaleikur milli Vals og ÍA og
verður hann leikinn á aðalleik-
vanginum í Laugardal. Leikur-
inn hefstkl.17.
Þetta er í fyrsta skipti sem
kvennalið íslenskra félagsliða
fá aðalleikvanginn í Laugardal til
afnota. Hingað til hafa úrslitaleikir
í kvennabikarkeppninni verið á
óháðum félagavöllum eða á Val-
bjamarvelli í Laugardal sem á
stundum hefur varla þótt boðlegur
neðri deildum karlaknattspymunn-
ar. Á hinn bóginn hefur ekki þótt
tiltökumál að úrshtakeppni yngri
flokka fari fram á aðalleikvangin-
um.
Liðin sem leika til úrslfta
Valur og ÍA hafa undanfarin ár
verið í hópi sterkustu liða í íslenskri
kvennaknattspymu. Þrátt fyrir að
íslandsmótið í sumar hafi verið
jafnari en oft áður eru þessi tvö lið
vel að því komin að leika til úrslita
í bikarkeppninni.
Síðasta sumar urðu Valsstúlkur
bikarmeistarar, en lentu í öðru
sæti í Islandsmótinu eftir harða
keppni við IA sem stóð uppi sem
íslandsmeistari. Þessi lið léku einn-
ig til úrslita í bikamum og sigraði
Valur með tveimur mörkum gegn
engu.
Nær IA bikamum?
í sumar hefur Valur þegar tryggt
sér íslandsmeistaratitilinn þegar
tvær umferðir séu eftir af mótinu.
ÍA háir harða keppni við Stjömuna
og KR um annað sætið. Það verður
því spennandi að sjá hvort liðin
deili aftur með sér titlum, eða hvort
Valur vinni tvöfalt líkt og sumarið
1986.
Þess má geta að þrátt fyrir að
hafa leikið fjórum sinnum til úrslita
um bikarinn, hefur ÍA aldrei staðið
uppi sem sigurvegari, og þykir víst
mörgum tími til kominn að bikarinn
hafni á Skaganum.
íþróttir
um helgina
Laugardagur:
Tveir leikir verða í 2. deild
karla í knattspyrnu kl. 14.00.
ÍBV og FH mætast í Vest-
mannaeyjum og í Laugardal
eigast við Þróttur og Tinda-
stóll.Þá verður leikið í 3. og
4. deild.
Norðurlandamót í golfi
hefst í dag - sjá umfjöllum
annars staðar.
Flugleiðamótið í hand-
knattleik hefst með þremur
leikjum. Sjá nánari umfjöllum
annars staðar.
Sunnudagur:
Fjórir leikir verða í 1. deild
karla í knattspyrnu. Völsung-
ur-KA, ÍBK-Leiftur, KR-
Fram og Þór A.-Valur. Allir
leikimir heljast kl. 19.00. Þá
leika Valur og ÍA til úrslita í
bikarkeppni KSÍ kl. 17.00. Sjá
nánari umfjöllun hér á
síðunni.
Norðurlandamótinu í golfi
lýkur á sunnudag.
Nokkrir leikir verða í Flug-
leiðamótinu í handknattleik -
sjá annars staðar í blaðinu.
Reykjavíkurmaraþon hefst
kl. 12.00 í Lækjargötu.
Mánudagur:
Einn leikur í 1. deild karla í
knattspyrnu. Víkingur og ÍA
leika kl. 19.00.
Flugleiðamótið í hand-
knattleik heldur áfram. Sjá
nánar umfjöllun annars stað-
ar.
Bikarmeistarar
Bikarkeppni í kvennaknatt-
spymu fer nú fram í áttunda
skipti í sumar. Fyrstu þijú
árin sem keppt var sigruðu
Breiðabliksstúlkur, en þær
voru með illsigrandi lið á þeim
ámm. Síðustu fjögur árin hef-
ur bikarinn hins vegar fallið
í skaut Valsliðsins. Þær leika
nú til úrslita fimmta árið í
röð. í A hefur líka leikið fjórum
sinnum til úrslita en þær hafa
ekki enn unnið bikarinn hver
svo sem raunin verður á
sunnudag.