Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
9
Ég er Meyja
PAÐ ER ALLTA HREII\IU HJA OKKUR
Persónukort: Hvererég? Hvaða hæfileika hef ég?
Hvað veikleika? Get ég skilið mig betur?
Framtíðarkort: Hvaða sjó sigli ég þetta árið?
Hvar ermeðbyr, mótbyr, blindskerog öruggar
siglingaleiðir?
Samskiptakort: Ég elska maka minn, en getum við
skilið hvort annað betur?
Sjálfsþekking er forsenda framfara.
»Hringdu og pantaðu kort
eki
N 1UJ/f
I LAUGAVEGI 66 SIMI 10377
Gunnlaugur Guðmundsson
1
I
«
I
sending *
i
af herrajökkum
og hinum vinsælu %
dönsku herrabuxum ^
m.a. yfirstærðir. Jjj
8
PELSINN
Kirkjuhvoli
Par sem vandlátir versla.
Mennt er
máttur
Þrátt fyrir miklar
sveiflur í íslenzkum þjóð-
arfoúskap, meðal annars
vegna mismikils sjávar-
afla og verðbreytinga
sjávarvöru á erlendum
mörkuðum, erum við í
hópi hinna betur settu
þjóða i heiminum. ísland
er velmegunarríki. Svo
hefur þó ekki alltaf ver-
ið. Það var ekki fyrr en
á fyrstu tugum 20. aldar-
innar sem þjóðin stfgur
skrefið frá fátækt til
batnandi afkomu. Og það
var ekki fyrr en á tímuni
síðari heimsstyijaldar-
innar - og næstu áratuga
eftir lok hennar - sem
íslendingar teljast til vel-
megunarþjóða.
Það er fyrst og fremst
tvennt sem gerði gæfu-
muninn um þjóðarhag í
Igölfar fullveldis o'g sjálf-
stæðis. Hið fyrra er stór-
auldn menntun þjóðar-
innar og þekking, meðal
annars á sviði atvinnu-
vega og viðskipta. Það
síðara er tæknivæðing
atvinnuveganna. Þetta
tvennt margfaldaði þjóð-
arframleiðslu og þjóðar-
tekjur sem islenzk vel-
megun hv&ir á, kostnað-
arlega séð.
I fyrirsjáanlegri
framtíð ráða menntun og
þekking - bæði almenn
og sérhæfð - meiru um
hagsæld og heill þjóða
en nokkru sinni fyrr. Það
er þvf vel að drjúgur hluti
þjóðarinnar situr á skóla-
bekk. Annað mál er að
fræðslukerfið þarf að
vera í viðvarandi endur-
skoðun - og sæta nauð-
synlegu aðhaldi - til að
það nýtíst einstaklingum
og samfélagi sem bezt.
Mörgþúsund
kennarar
Sem fyrr segir situr
hátt i 65 þúsund manns,
eða góður fjórðungur
þjóðarinnar, senn á
skólabekk. Kennarar við
skólakerfið eru senni-
lega á milli fjögur og
(f
Fjórðungur þjóðar á
skólabekk
„Gera má ráð fyrir að 65 til 66 þúsund nem-
endur setjist á skólabekk í september. Þar
af eru 42 til 43 þúsund nemendur í grunnskól-
um, um 16 þúsund í öllum framhaldsskólum:
mennta-, fjölbrauta- og iðnskólum, og um 7
þúsund á háskólastigi ..."
Þannig hefst frétt á baksíðu Morgunblaðsins
á dögunum. Eftir fáeina daga má því gera ráð
fyrir að rúmlega fjórðungur þjóðarinnar setjist
á skólabekk, eða vel 26 af hundraði. Stak-
steinar staldra við þessa Morgunblaðsfrétt í
dag.
fimm þúsund, auk alls
annars starfsliðs: bygg-
ingar skóla, viðhald, um-
sjón, ræsting, skóladag-
heimili, útgáfa náms-
gagna, fræðsluskrifstof-
ur, fræðsluráð o.s.frv.
í grunnskólum vóru
um 2.440 starfandi kenn-
arar á liðrnun vetri, settír
og skipaðir, - auk um 180
kennara í leyfi. Þá vóru
rúmlega 900 leiðbeinend-
ur (kennarar án tilskil-
innar starfsmenntunar)
og stundakennarar (með
mismikla kennslu). í
þessum tölum eru ekki
taldir kennarar við ýmsa
„þjálfunarskóla".
Á framhaldsskólastígi
starfa rúmlega eitt þús-
und kennarar, settir og
skipaðir, auk nokkurra
hundraða stundakenn-
ara. Þá eru ótaldir kenn-
arar við Háskóla íslands,
Kennaraháskóla íslands
og Tækniskóla. Einnig
kennarar við ýmsa einka-
skóla.
Af framangreindum
tölum, sem ekki eru tæm-
andi, er Ijóst, að sá hópur
er stór, sem sinnir störf-
um við skóla landsins,
bæði sjálfa kennsluna,
sem og fjölmörg hliðar-
störf.
Viðamikið og
kostnaðarsamt
íslenzka fræðslukerfið
er viðamikið og kostnað-
arsamt, enda sinnir það
mikilvægu og vaxandi
hlutverki. Það þarf tölu-
vert til að halda utan um
slikt bákn, skipuleggja
það og stýra þvi þann
veg, að það gagnist sem
bezt einstaklingum og
samfélagi.
Sem fyrr segir ræður
menntun og þekking -
bæði einstaklinga og
þjóða - meiru og meiru
um velferð þeirra og far-
sæld, eftir þvi sem þjóð-
félög - og samfélög þjóða
- verða margþættari og
flóknari. Það er þvi mik-
ilvægt að fólk hafi að-
gang að fjölbreyttu og
vel mönnuðu fræðslu-
kerfi.
Það á að vera þjóðinni
keppikefli að byggja upp
gott fræðslukerfi, sem
hefur aðstöðu tíl að
batna frá ári til árs og
þróast i takt við örar
framfarir i heiminum -
sem og að viðhalda og
treysta jafnstöðu ein-
staklinga til náms, óháð
efnahag eða búsetu.
Skólakerfið þarf i senn
að taka mið af þörfum
nemenda og þörfum
samfélagsins, ekki sízt
atvinnulffsins í landinu.
Jafnframt þarf það, og
fyrst og fremst, að
byggja á menningararf-
leifð þjóðarinnar - tungu
hennar, sögu og bók-
menntum - þvi sem gerir
þjóð að þjóð.
Treysta þarf hina al-
mennu menntun, undir-
stöðuna, sem og þá sér-
hæfðu þekkingu, ýmiss
konar, sem fyrirsjáanleg
framtið gerír kröfur tíl.
Fræðslukerfið verður
hinsvegar að sæta nauð-
synlegu aðhaldi, eins og
allt annað i samfélaginu,
ekki aðeins að þvi er
varðar kennslugæði, sem
þó eru mergurinn máls-
ins, heldur einnig að því
er varðar útgjöld. Þar
sem annars staðar verð-
ur að nýta fjármuni vel.
í þeim efnum er þjóðinni
ekki sizt þörf leiðbein-
andi fræðslu og fyrir-
Metur þú
ofar öllu?
Ef svo er, eru spariskírteini ríkissjóðs besti fjárfest-
ingarkosturinn fyrir þig. Spariskírteini ríkissjóðs
eru öruggustu verðbréfm sem eru á markaðnum.
Þau gefa auk þess góða ávöxtun, frá 7-8% yfir
verðbólgu og af þeim þarf ekki að greiða eignar-
skatt!
Kynntu þér kosti spariskírteina ríkissjóðs hjá
starfsfólki VIB.
/J
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBÁNKANS HF.
Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími68 15 30
$