Morgunblaðið - 04.09.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Unmð er við að breyta hðfninni í Stykkishólmi vegna komu Breiðafjarðarfeijunnar.
Stykkishólmur:
Framkvæmdir við ferjubryggju
ÞAÐ styttist óðum í að Breiðafjarðarfeijan, sem
nú er í smíðum á Akranesi, komi og þá þarf
sérstaka höfn fyrir hana. Því hefir verið ákveð-
ið að hraða framkvæmdum í Stykkishólmshöfn
og loka austurhluta hennar með gijótgarði alla
leið út í Súgandisey.
Undanfarið hefir verið unnið að því að sprengja
gijót í garðinn og er það tekið út við Skipavík og
um leið og það gijót er fjarlægt myndast gott og
slétt svæði við höfnina þar.
- Arni
Landsamband fiskeldis- og hafbeitarstöðvæ
Mótmæla töf á
ákvöröunum varð-
andi rekstrarlán
LANDSAMBAND fiskeldis- og hafbeitarstöðva hefur sent
landbúnaðarráðherra bréf þar sem mótmælt er þeim töfum
sem orðið hafa á ákvörðun um veð og ábyrgðir rekstrarlána.
Fyrir 3 vikum skipaði ríkisstjómin starfshóp til að kanna
lánamál stöðvanna og segir Ólafur ísleifsson, efnahagsráðu-
nautur rikisstj ómarinnar, sem er fyrir hópnum, að niður-
stöðu hópsins sé að vænta fljótlega. Ólafur segir að rekstr-
arfjármögnun fiskeldisfyrirtækja sé viðskiptamál og hljóti
að verða að leysast á þeim grunni. í því felist viðskipta-
tengsl fiskeldisfyrirtækja, lánastofnana og vátryggingafyrir-
tækja. Fyrirgreiðsla rekstrarlána fiskeldisins byggist á af-
urðalánum banka. Þau séu veitt á grundvelli vátryggingar-
samninga, þar sem fiskurinn sé tryggður.
Starfshópurinn vinnur að því mundur Sigvaldason, skrifstofu-
vmnur
að kanna hvaða möguleikar séu á
að auka vátryggingar og bæta
skilyrði banka til þess að auka
sína lánafyrirgreiðslu. Segir Ólaf-
ur mjög brýnt að það takist með
einhveijum ráðum að auka rekstr-
aríjármagn í fiskeldi.
Auk Ólafs eru í hópnum Guð-
Beint sjónvarp frá Ólympíuleikunum í Seoul:
Umfangsmestu útsending-
ar frá upphafi Sjónvarpsins
Tveir handknattleikir öruggir, sá þriöji líklegur
ÚTSENDINGAR Sjónvarpsins frá Ólympíuleikunum i Seoul verða
umfangsmestu beinu sendingar frá upphafi stofnunarinnar. Búið
er að tryggja beint sjónvarp frá tveimur handknattleiksleikjum,
úrslitaleiknum um gullverðlaunin og leik íslendinga og Sovétmanna.
Þá er talið líklegt að hægt verði að senda beint frá leik íslendinga
og Júgóslava, en það fæst staðfest eftir helgina. Sjónvarpað verður
beint frá leikunum frá miðnætti fram undir morgun. Síðan verður
samantekt þess sem þá gerist endursýnd síðdegis og á kvöldin þá
daga sem leikarnir standa yfir að sögn Ingólfs Hannessonar þjá
Sjónvarpinu. ÖUum handboltaleikjunum verður lýst beint í Rfkisút-
varpinu
Evrópusamband sjónvarpsstöðva
sendir ekki beint frá öllum hand-
knattleikjum á Ólympíuleikunum.
Það er skýrt með því, að áhorfenda-
flöldi sé of takmarkaður, þar sem
fáar Evrópuþjóðir eiga lið á leikun-
um. Ingólfur Hannesson sagði f
samtali við Morgunblaðið, að staðan
væri sú, að bein útsending er tryggð
frá tveimur leikjum, íslendinga og
Sovétmanna og úrslitaleiknum.
Hann sagðist gera sér góðar vonir
um að ná samkomulagi við Júgó-
slava um að sýna leikinn, en Júgó-
slavar eiga frátekinn gervihnatt-
artfma einmitt á meðan leikurinn
stendur yfír. Leikurinn við Svía
verður að líkindum sendur út nokkr-
um klukkustundum eftir að hann
fer fram. Ólíklegt er að takist að
fá beina útsendingu frá leikjum ís-
lendinga við Alsírmenn og Banda-
ríkjamenn.
Leikurinn við Júgóslava hefst á
miðnætti aðfaranótt 26. september.
Leikurinn við Sovétmenn verður
klukkan 4.00 aðfaranótt 28. sept-
ember og úrslitaleikurinn klukkan
7.25 að morgni 1. október. Leiknum
við Svía verður sennilega sjónvarp-
að um klukkan 8.00 að morgni 24.
september, en sá leikur hefst klukk-
an 4.00 um nóttina.
Ingólfur sagði að megináhersla
væri lögð á að sýna frá þeim keppn-
isgreinum sem íslendingar keppa
í. „Höfuðmarkmiðið með þessum
útsendingum er það, í fáum prðum
sagt, að reyna að tryggja að íslend-
ingamir sjáist, að við náum þeim
þegar þeir eru að keppa. Það er svo
auðvitað háð því að sjónvarpsmenn-
imir í Kóreu beini myndavélum
sínum að okkar mönnum, en við
reynum sem sagt að sýna þær
keppnir sem þeir taka þátt í,“ sagði
Ingólfur. „Númer tvö er að taka
það sem við getum talið áhugavert
annað."
Ingólfur sagðist telja að bein
útsending væri tryggð frá undan-
rásum og úrslitum í spjótkasti,
kringlukasti, nokkmm sundgrein-
um og búið er að panta útsendingu
frá júdókeppninni.
í aðalatriðum verða útsendingar
sjónvarpsins þannig, að sýnt verður
beint frá Ólympíuleikunum frá því
um miðnætti fram undir morgun
þá daga sem leikamir standa. Síðan
verður sýnt samantekið úrval úr
næturútsendingunni síðdegis og að
kvöldi sama dags. „Við ætlum að
reyna að sýna frá leikunum eins
og við mögulega getum með þann
mannskap og tæki sem við höfum.
Ég held að ég geti fullyrt það að
aldrei í sögu Sjónvarpsins hafi ver-
ið jafn umfangsmiklar útsendingar
á jafn stuttum tírna," sagði Ingólfur
Hannesson.
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu,
og Sveinbjöm Óskarsson, deildar-
stjóri í fjármálaráðuneyti.
í bréfí LFH til landbúnaðarráð-
herra segir að reksturinn þyngist
með degi hveijum þar sem fískur-
inn vaxi. Eðlilega lendi öll fiskeld-
isfyrirtæki í vanskilum, þar sem
rekstrarlán séu miklum mun lægri
en tryggingaverðmæti fisksins.
Ákvörðun ríkisstjómarinnar um
að heimila 800 milljóna króna lán-
töku til stofnframkvæmda sé til
lítils ef ekki sé unnt að ala físk-
inn. Stórslys sé í vændum, verði
málið ekki tekið föstum tökum hið
snarasta.
Stjóm LFH vekur athygli á að
fiskeldisstöðvar fái ekki endur-
greiddan söluskatt af rekstri svo
sem tíðkist með aðrar útflutnings-
greinar. Telur stjómin að greinin
eigi kröfu á jafnræði á við þær
og óskar þess að ríkisstjómin af-
greiði málið.
Þá beinir stjómin eindregnum
tilmælum til ríkisstjómarinnar að
lántökugjald á erlendar lántökur
verði endurgreitt. Telur stjómin
óeðlilegt að ríkisstjómin reyni að
draga úr erlendum lántökum með
sérstökum lántökuskatti þar sem
hún hafi áður heimilað þær.
Farskólinn á Austurlandi:
Nemendurnir sóttir heim
FARSKÓLI er nýjung, sem Austfirðingar hafa sett á laggirnar í
tengslum við Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað. Undir-
tektimar hafa verið frábærlega góðar, að sögn Alberts Einarsson-
ar, skólameistara. Fjöldi námskeiða verður í boði á komandi vetri.
Verður námskeiðshaldinu dreift á ýmsa staði f fjórðungnum, en
þó era nokkrir staðir sem eru ekki með enn sem komið er. Um-
sjónarmaður Farskólans verður Jóhann Stephensen, kennari við
V er kmenn taskólann.
„Uridirtektir hafa verið frábær-
lega góðar. Bæklingur um skólann
og námskeið á vegum hans er rétt
núna að skila sér inn um lúguna
hjá fólki og við höfum strax feng-
ið mikil viðbrögð," sagði Albert.
„Markmiðið með Farskólanum er
námskeiðahald, þar sem nemend-
um er veitt fræðsla á heimavelli.
Fólk af minni stöðunum fer ekki
hingað á Neskaupstað til dæmis
til þess að sækja námskeið, nema
það sé mjög brýnt. En þama opn-
ast miklu fleiri möguleikar fyrir
fólk.“
Námskeiðin munu standa frá
einum degi upp í tvær vikur. Versl-
unarfólk getur kynnt sér fyrir-
tækjarekstur og nútfmalega versl-
unarhætti og bændur hvemig
standa eigi að ferða- og gistiþjón-
ustu. Þá em ýmis námskeið í boði,
sem lúta að iðnaði og verkstjóm.
Kostnaður við námskeiðshaldið
fellur að nokkm leyti á Verk-
menntaskólann, en Albert sagði
að vonast væri til, að endurmennt-
unarsjóðir ýmiss konar styrktu
starfsemina. Það væri þó ekki að
fullu frágengið. Auk þess kæmu
námskeiðsgjöldin til með að vega
nokkuð þungt.
Farskólinn á Austurlandi er
samstarfsverkefni Verkmennta-
skólans og Atvinnuþróunarfélags
Austurlands í samvinnu við Iðn-
tæknistofnun íslands og fleiri að-
ila.
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Aukin tíðni ferða
á vetraráætlun
VETRARÁÆTLUN Strætis-
vagna Reykjavikur tekur gildi
á morgun, mánudaginn 5. sept-
ember. Þá eykst tíðni ferða á
nfu leiðum og verður ekið á 15
mínútna fresti. Þá verður einn-
ig hafinn akstur á nýrri leið,
númer 15C, Grafarvogur-
Breiðholt IH.
Akstursleið vagns númer 15C
verður sem hér segin frá Reykja-
fold að Fjallkonuvegi, Lokin-
hamri, Gullinbrú, Höfðabakka,
Bfldshöfða, Breiðahöfða, Straumi,
Streng, Bæjarhálsi, Bæjarbraut,
Rofabæ, Hraunbæ, Bæjarhálsi,
Höfðabakka, Vesturhólum, Suð-
urhólum og að Álftahólum. Ekið
verður á klukkustundar fresti á
þessari leið á virkum dögum frá
klukkan 7-19.
Frá og með 5. september verð-
ur ekið á leið 15A, Grafarvogur—
Miðborg, á hálftfma fresti öll
kvöld frá klukkan 19-24. Enda-
stöð leiðar 15A er við Hlemm.
Á vetraráætlun aka vagnar á
leiðum 2-7 og 10-12 á 15
mínútna fresti virka daga frá
klukkan 7-19. Akstur á kvöldin
og um helgar verður óbreyttur.
Vagnar á leiðum 8-9 og 13-14
aka á hálftíma fresti alla daga.
Leið 15 C - Grafarvogur/Breið-
holt