Morgunblaðið - 04.09.1988, Page 44

Morgunblaðið - 04.09.1988, Page 44
44 MORGUNBLABIÐ. SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1988 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna T résmiðir - verkamenn Byggingadeild Hagvirkis hf. óskar að ráða trésmiði og verkamenn til starfa. Mikil og fjölbreytt vinna í boði. Góður aðbúnaður á vinnustöðum. Til greina kemur aðstaða fyrir starfsmenn utan af landi. Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Pálsson á skrifstofu Hagvirkis, Höfðabakka 9, sími 673855. Landspítali Starfsmenn Starfsmenn óskast til starfa nú þegar við ræstingar. Um er að ræða hlutastarf og fullt starf, dagvinnu og vaktavinnu. Nánari upplýsingar veita ræstingastjórar í síma 601530. RÍKISSPÍTALAR LANDSPÍTALINN Alftanes - blaðberar Blaðbera vantar á suðurnesið. Upplýsingar í síma 51880. Stúdent af viðskiptasviði óskast til starfa hjá rótgrónu innflutnings- fyrirtæki í borginni. Almenn skrifstofustörf, aðstoð í tölvubókhaldi, frágang reikninga. Áhersla er lögð á snyrtimennsku, reglusemi, góða framkomu og að reykja ekki. Umsóknir og upplýsingar á skrifstofu okkar. Gudniíónssqn RÁÐCJÖF & RÁDNINCARÞJÓNUSTA TÚNGÖTU 5. 101 RHYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 StUI 621322 ST. JÓSEFSSPÍTÁil, LANDAKOTI Lesandigóður í gömlu húsi á Holtsgötu 7 rekur Landakotss- pítali hlýlegt skóladagheimili þar sem gott er að starfa. Við erum notalegur hópur sem samanstendur af 4 fóstrum og 20 börnum. Þessa dagana erum við að leita eftir góðri manneskju til að starfa með okkur þ.e. í 40% starf og forfallaafleysingar. Ef þú ert að leita þér að gefandi og skemmti- legu starfi þá er aldrei að vita nema að hér sé á ferðinni rétta starfið. Láttu því heyra í þér. Við munum veita þér allar nánari upplýs- ingar í síma 19600/260. Reykjavík2. september 1988, heimilisfólk skóladagheimilisins v/Holtsgötu 7. Verslunarstörf Viljum ráða starfsfólk í eftirtaiin störf: Eiðistorg, Seltjarnarnesi 1. Afgreiðsla á kassa. 2. Afgreiðsla og uppfylling í matvörudeild. 3. Afgreiðsla í kjötboði. Kjörgarður, Laugavegi 59 1. Afgreiðsla á kassa. 2. Afgreiðsla og uppfylling í matvörudeild. Kringlan 1. Afgreiðsla á kassa í sérvörudeild. 2. Afgreiðsla í bakaríi. 3. Afgreiðsla í afgreiðsluborðum. 4. Starf í eldhúsi. 5. Afgreiðsla og uppfylling í matvörudeild. Skeifan 15 1. Afgreiðsla á kassa. 2. Afgreiðsla í bakaríi. 3. Afgreiðsla og uppfylling í matvörudeild. 4. Afgreiðsla og uppfylling í sérvörudeild. 5. Verðmerkingar á sérvörulager. Um er að ræða bæði heilsdags- og hluta- störf. Nánari upplýsingar hjá starfsmannahaldi Hagkaups, Skeifunni 15, sími 686566 alla virka daga frá kl. 13.00-17.30. HAGKAUP starfsmannahald, Skeifunni 15. Setbergshverfi - blaðberar Blaðbera vantar í Setbergshverfi. Upplýsingar í sínria 51880. tíli Ritari óskast sem fyrst að Sálfræðideild skóla, Réttarholtsskóla. Upplýsingar í símum 621550 og 32410. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Verkstjórn Verkstjóri óskast á bifreiðaverkstæði þar sem að mestu er unnið við eigin bíla fyrirtæk- isins. Húsnæði, vinnuaðstaða og staðsetning mjög góð. Ef viðkomandi óskar getur verið um verulega aukavinnu að ræða. Laun eftir samkomulagi. Umsóknir með upplýsingum um nafn, aldur, menntun og fyrri störf sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir 8. september merktar: „Verkstjórn - 2259“. AASIAAT sveitarfé- lagið vill ráða: byggingarfulltrúa og framkvæmda- stjóra rekstrardeildar sveitarfélagsins Hvað er AASIAAT sveitarfélagið? íbúar AASIAAT sveitarfélagsins eru um 3300 og er bærinn sá fimmti stærsti á Græn- landi. Tvær eyjar tilheyra sveitarfélaginu: Akunnaaq með 175 íbúum og Kitsissuársuit, þar sem búa 125 manns. Fólkið lifir á dýra- og fiskiveiðum. Eyjar þessar eru um 20 km frá AASIAAT. Sveitarstjórnin hefir aðsetur í AASIAAT og starfsfólk er um 70. Sér það um almennt skrifstofuhald, skattamál, fjármálastjórn, fé- lagsmál, kennslu- og menningarmál, hús- næðismál og tæknilega stjórn. í tæknideildinni eru 6 iðnfræðingar, 1 yfir- verkstjóri, 4 aðstoðarmenn ásamt lærling- um, sem eru í stuttan tíma í senn. Deild þessi sér einnig um vegamál, trésmíðar, sorphreinsun, bíla- og vélsmiðju. Verkfræð- ingur sveitarstjórnarinnar hefur umsjón með störfum, en auk þess er starfandi arkitekt, sem hefir umsjón með byggða- og skipulags- málum, vélstjóri, sem sér um viðhald og við- gerðir á áhöldum verktaka og rafstöðva- og vatnsleiðslum byggðalaganna, ásamt tækni- fræðingi og vélstjóra, sem sumpart sjá um eldvarnir og stjórna slökkviliðinu. í öllum þessum störfum er fólk sem hefir fengið menntun sína á staðnum. Síðan 1986 hefir stjórn byggingarmála verið í höndum tæknideildar sveitarfélagsins. Starfið felst fyrst og fremst í því að sam- þykkja allar byggingarframkvæmdir, að stjórna og fylgjast með verki og verktökum og skipuleggja minniháttar byggingarfram- kvæmdir. Byggingaryfirvöld taka að sér verk- efni fyrir bæði einstaklinga, sveitarfélög og heimastjórnaryfirvöld. í framkvæmdadeild starfa 15-25 manns sem skipt er niður í áðurnefnda starfshópa. Verk- efnin eru mjög yfirgripsmikil og árstímabund- in. Flest allt starfsfólk þessarar deildar hefur margra ára starfsreynslu að baki. Stjórnandi daglegra verkefna vinnur í framkvæmda- deildinni og fylgist þaðan með framkvæmd- um á vinnustað, tekur á móti ábendingum og kemur þeim á framfæri. Auk þess hefir hann eftirlit með og ber ábyrgð á rekstri og kostnaði við framkvæmdirnar. Það getur verið nauðsynlegt að ferðast til fjarlægari byggða eða veiðikofa í sambandi við viðhald og viðgerðir. Þar sem núverandi „fram- kvæmdamaður" dvelur í Danmörku við nám er æskilegt að ráða menn í þessi tvenn störf sem allra fyrst, eða a.m.k. með haustinu, meðal annars vegna flutnings á búslóð við- komandi, en það þarf að gerast áður en samgöngur á sjó stöðvast. Starfsumhverfi. Stjórnunarstörfin eru yfir- gripsmikil og einkennast m.a. af hve verkefn- in eru mismunandi og árstíðabundin. Dagleg verkefni eru leyst í nánu samstarfi við íbú- ana, stjórn sveitarfélagsins og stjórnmála- menn. Því er þess vænst að nýir samstarfsmenn okkar hafi bæði löngun og getu til að ganga inn í þessa samvinnu og takast á við þau viðfangsefni sem upp koma, bæði tæknilega og persónulega. Þar að auki er þess vænst að hinir nýju samstarfsmenn okkar hafi nægi- lega verkmenntun og starfsreynslu að baki til að geta tekist á við þessi verkefni. Enn- fremur að þeir hafi löngun og vilja til að kenna og mennta samstarfsmenn sína - heima- menn. Auk þess væri gamansemi, kímni, létt skap og þægilegt viðmót vel þegið. Umsóknir Ef þú hefur áhuga á framannefndum störfum og þú telur þig hafa nægilega hæfni til að taka þau að þér, óskast umsóknir sendar til: Kommunalbestyrelsen AASIAAT, Box 220, 3950 AASIAAT, Grönland. Frekari upplýsingar um stöðurnar og sveitar- félagið má fá með því að snúa sér til fyrrver- andi samstarfsmanns okkar: Henrik Lundgaard, Sct. Hansgade 22 1 , Kbh. N., sími 1-37 55 50 eða til: Kommuneingeniqr Soren Knudsen Mpller, sími 42277, lok. 60 eða: Arkitekt Kirsten Örnekoll, lok. 63. Sveitarfélagið borgar ferða- og flutnings- kostnað vegna stöðuveitingarinnar og útveg- ar hæfilega íbúð. Greitt er fyrir húsaleigu og hita samkvæmt gildandi reglum. Sveitarfélagið reiknar með að halda fund varðandi umsóknir í september. Þar verða laun ákveðin eftir hæfni umsækjenda. Um- sóknir þurfa því að berast sveitarstjórninni í síðasta lagi 12. september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.