Morgunblaðið - 04.09.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGURÍ4. 8EPTEMBER 1988
Afmæliskveðja:
Sr. Jón Kr. Isfeld
Áttræður verður sr. Jón Kr. ís-
feld mánudaginn 5. september.
Hann er fæddur 5. september
1908 í Haga í Mjóafírði á Austur-
landi. Foreldrar hans voru Jens
Kristján ísfeld, bóndi á Skálanesi í
Seyðisfírði Guðmundsson bóndi á
Hesteyri í Mjóafírði Guðmundsson-
ar og kona hans, Júlía Sigríður
Steinsdóttir Jónssonar.
Jón ísfeld ólst upp með foreldrum
sínum og fór snemma að vinna fyr-
ir sér heima og við róðra, til að
afla sér íjár til náms. Hann hneigð-
ist til lesturs bóka þegar á unga
aldri og síðan náms. Þegar í skóla
bar á hneigð hans til ritstarfa í
skólablaði er þótti lofa góðu um
þessa hluti. Þá var hann námsmað-
ur á Alþýðuskólanum á Eiðum
1920—26. Hann settist síðan í
Menntaskólann á Akureyri og varð
stúdent 1932. í Kennaraskólann fór
hann og lauk þaðan prófí 1934 og
jafnhliða því prófí í heimspeki við
háskólann.
Jón ísfeld lagði nú fyrir sig
kennslu er honum var alla æfí hug-
leikin. Hann varð farkennari í Loð-
mundarfírði 1934—37 og síðan
stundakennari við Bama- og ungl-
ingaskólann á Seyðisfirði eitt ár.
En þó honum félli vel kennslustarf-
ið og að umgangast bömin höguðu
örlögin því þannig að hann yfírgaf
kennsluna í bili.
Jón hafði alla æfí verið trú-
hneigður maður og guðrækinn. Hóf
hann nú að lesa guðfræði við há-
skólann og lauk þaðan prófí 1942.
Hann var vígður til prests að
Hrafnseyri 29. júní 1942. Þá festi
hann ráð sitt og kvæntist 25. júlí
sama ár Auði Halldórsdóttur frá
Nesi í Loðmundarfirði kennara
Pálssonar frá Tungu í Fáskrúðsfírði
Þorsteinssonar og konu hans,
Hólmfríðar Bjömsdóttur frá Dölum
í Fáskrúðsfírði Stefánssonar, sem
er nú nýlega önduð 103 ára.
Má segja að ráðahagur sr. Jóns
væri honum auðnuvegur, því hjóna-
band þeirra hefur ávállt verið með
ágætum. Auður, kona sr. Jóns, hef-
ur verið honum stoð í störfum hans
og heimili þeirra listrænt og hlý-
legt. Þau hjón, sr. Jón ísfeld og frú
Auður, eignuðust son, Hauk Halldór
Kristján, kennara hér í borg, kvænt-
ur Kristfnu Guðmundsdóttur kenn-
ara.
Sr. Jóni ísfeld féll preststarfið
vel í Hrafnseyrarprestakalli og
síðan í Bíldudalsprestakalli í 19 ár,
lengst af á Bfldudal og prófastur í
Barðstrandarprófstsdæmi
1955—61. Hann var árvakur prest-
ur í því að koma góðu til leiðar,
einkum æskulýðsmálum. Gæslu-
maður bamastúkunnar Vorboðans
á Bfldudal ámm saman. Þetta hafði
góð áhrfí á hina uppvaxandi kyn-
slóð en sr. Jón hefur verið um ára-
tugi „goodtemplar". Þá gaf hann
út safnaðarblað ámm saman, sem
hann nefndi Geisla. Sr. Jón var í
stjóm Prestafélags Vestfjarða frá
1946—61, þar af formaður 1954.
Félagið gaf út ágætt tímarit sem
hét Lindin. Sr. Jón starfaði í Slysa-
vamafélaginu Sæbjörgu og var for-
maður þess lengi. Sr. Jón kom víða
við í sínu æfístarfí og Bflddælingar
eiga góðar minningar um hann.
Árið 1961 fékk hann Æsustaða-
prestakall í Langadal og þjónaði
því í 9 ár. Flutti hann þá frá sjónum
inn til landsins. Þá var byggt nýtt
prestsetur í Botnastaðalandi er var
hjáleiga frá Bólstaðarhlíð. Var
prestsetrið nefnt Bólstaður. Það er
nærri þjóðleiðinni norður í land.
Komu þar ekki ósjaldan sóknarböm
hans frá VestQörðum, en þau
prestshjón vom gestrisin og vin-
mörg og em enn. Sr. Jón er mikill
félagshyggju maður og starfaði
meðal annars í karlakór Bólstaðar-
hlíðar.
Viltu hressa upp á líkama og sál?
Ef svo er skaltu kanna hausttilboð okkar á Hótel
Örk. Við bjóðum þriggja til fimm daga hressingar-
dvöl, frá sunnudagi til föstudags á mjög hagstæðu
verði. Hjá okkur getur þú horfið frá annríki hvers-
dagsins, slakað á og notið lífsins.
Innifalið í verði: Morgun- og hádegisverður, sund og
sauna, heitir pottar, læknisskoðun, þolmæling, sjúkra-
þjálfun, nudd, leirböó, vixlböó, leijkfími, Ijósogsnyrti-
meðferð.
Á Hótel Örk er eín besta aóstaða á landinu til hvíldar
og hressingar.
Pantanir og nánari upplýsingar í síma 98-34700.
Verö frá kr. 11.100.
Njóttu lífsins á
Hótel Örk.
Verið velkomin.
Sr. Jóni var veitt 1971 Hjarðar-
holtsprestakall í Dölum og sat í
Búðardal. Hann var prófastur þar
samtímis í tvö ár er hann þjónaði
þar. Sr. Jón kenndi jafnan við skóla
í prestaköllum hans. Þá hefur hann
ritað greinar í mörg þau tímarit er
gefín vom út í héruðum hans. Að
rita og semja hefur honum verið
tamt alveg frá því að harin var í
Eiðaskóla. Hann hefur samið skáld-
sögur fyrir böm og fullorðna, frá-
sagnir um merkilega atburði, hefur
þetta verið gefíð út og náð hylli.
Er sr. Jón lét af embætti settist
hann að í Kópavogi, var hann jafn-
an árlega lengri eða skemmri tíma
og var hann kvaddur til að þjóna
þeim brauðum er vom prestlaus.
Kona hans fylgdi honum eins og
ævinlega í starfinu. Á þessum ámm
fóm þau líka til útlanda sér til
gagns og skemmtunar.
Sr. Jón ísfeld gekk í Félag fyrr-
verandi sóknarpresta og hefur
starfað þar alla tíð er hann var í
bænum. Hann ritar skíra og góða
hönd, hefur því komið í hans hlut
að vera ritari félagsins. Eins og
aðrir meðlimir hefur hann oft hald-
ið erindi, einnig flutt messur á
Gmnd. Nú að síðustu hefur hann
jafnan þjónað fyrir altari er guð-
fræðingar hafa prédikað.
Hin síðari ár hafa þau hjón verið
búsett í Boðahlein 18, sem em
vemdaðar íbúðir á vegum Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Fyrir hönd félags fyrrverandi
sóknarpresta óska ég frú Auði og
sr. Jóni ísfeld til hamingju með
daginn og óska þeim allrar Guðs
blessunar, og þakka samstarfið í
gegnum árin.
Afmæiisbamið og kona hans,
Auður, taka á móti gestum á heim-
ili sonar síns og tengdadóttur í
Melseli 1 eftir kl. 16 á afmælis-
daginn.
Pétur Þ. Ingjaldsson
Dodge Ram Van LE 250,
árg. ’87,8 cyl,
318 sjálfsk., cruisecontrol, veltistýri, loftkæling, lúxus-innrétt-
ing, 2-12 manna dekurbíll. Ekinn aðeins 17 þús km.
Bein sala. Sími 33835, Jón.
DÖMUR OG HERRAR
Nú drífið þið
ykkur í leikfimi!
47 Síðasta námskeið fynr sumarfrí
Tímar við allra hæfi
Námskeiðin hefjast 12. septem
Leikfimi fyrirkonuráöllum aldri.
Hressandi, mýkjandi, styrkjandi
ásamt megrandi æfingum.
Karlmenn
Hinir vinsælu herratímar eru í hádt
inu.
Þarftu að missa 1S kíló?
Sértímar fyrir konursem vilja léltast
um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir
eldri dömur og þær, sem þjást af
vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, gufuböð og sturtur.
Kaffi ogsjónvarp í heimilislegri
setustofu.
Innritun
og frekari upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 ísíma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla32.