Morgunblaðið - 14.09.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
17
og tekið upp samvinnu í atvinnu-
og félagsmálum, sem tómt mál er
að tala um mikinn hluta árins við
núverandi aðstæður.
Einn þáttur af mörgnm
Öruggar samgöngur árið um
kring er ein af undirstöðum byggð-
ar í landinu. Afstaða almennings
til samgangna hefur breyst mikið
á stuttum tíma. Það sem menn létu
bjóða sér þegjandi fyrir fáum árum
er nú ótækt orðið og getur ráðið
úrslitum um búsetu manna. Sam-
félagið sem heild verður að bregð-
ast við þessu, eins og mörgu öðru,
sem veldur gífurlegum aðstöðumun
í landinu.
Það má ekki dragast lengur að
mörkuð verði byggðastefna með
það grundvallaratriði að leiðarljósi,
að fólk standi nokkum veginn jafnt
að vígi óháð búsetu varðandi fram-
færslukostnað, menntun og félags-
lega þjónustu. Alþýðubandalagið
hefur tekið einarðlega undir þau
viðhorf, utan þings og innan. Með
væntanlegu frumvarpi um tekjuöfl-
un til jarðgangagerðar er tekið á
sértækum vanda byggðarlaga og
landshluta, sem leggja mikið af
mörkum til samfélagsins, og eiga
það inni að samgöngumálum þeirra
sé komið í nútímalegt horf.
Höfundur er alþingismaður Al-
þýðubandalags fyrir Austurlands-
kjördæmi.
kom í hlut Gylfa að annast kennslu
í almennri rekstrarhagfræði og sér-
greinum hennar. Á síðara kennslu-
skeiði var ein af kennslugreinum
hans einmitt almenn rekstrarhag-
fræði, sem hann hafði sjálfur mót-
að.
FVá þessum aðdraganda rekstr-
arhagfræðinnar er m.a. greint í
fyrsta bindinu en fyrstu kaflar þess
fjalla um staðsetningu rekstrar-
hagfræðinnar. Einstök kaflaheiti
eru: vísindi, þjóðfélagsfræði, hag-
fræði, hagfræði á íslandi og hlut-
verk rekstrarhagfræði. Sérstök
ástæða er til að vekja athygli_ á
umfjöllun Gylfa um hagfræði á ís-
landi en hún er besta yfirlitsheimild
sem til er um það efni. i öðrum
köflum fyrsta bindis er síðan greint
frá markmiðum fyrirtækja, réttar-
formi, stofnun, skipulagi, fjármál-
um, framleiðslu og kostnaði þeirra.
í öðru bindinu er tekin fyrir sala
fyrirtækja, aðferðir við að ákveða
hvenær afkoma fyrirtækis sé best,
verðmjmdun við ýmis markaðsskil-
yrði og afurða- og verðstefna, þeg-
ar framleiddar eru fleiri en ein af-
urð. í þriðja bindinu eru svo gerð
skil efnahagsímyndum og efna-
hagsdæmum, ákvörðunartækjum
fyrirtækis, reikningshaldi fyrir-
tækja, rekstrareftiHiti, upplýsing-
um og upplýsingasöfnunm og
ákvörðunartöku í fyrirtæki.
Viðmiðanir höfundar um fram-
setningu og efnisval eru flestar
sóttar til Norðurlanda en nokkrar
til engilsaxneskra heimilda. Mikils
er um vert að höfunduf notar
íslenskrar aðstæður og dæmi þar
sem því verður við komið, t.d. þeg-
ar fjallað er um stofnun fyrirtækja
og ákvæðislaunakerfi.
Rekstrarhagfræði eftir Gylfa Þ.
Gíslason leysir af hólmi erlendar
kennslubækur. Mikill fengur er að
slíku grundvallarriti á íslensku til
kennslu í grein eins og almennri
rekstrarhagfræði, sem er til yfirlits
og inngangs að sérhæfðari grein-
um. Það á eftir að ná útbreiðslu
út yfír raðir háskólanema í við-
skipta- og hagfræðideild, því að
slíkt rit er vissulega áhugavert fyr-
ir eldri nemendur, stjómendur fyrir-
tælqa og alla áhugamenn um fyrir-
tækjarekstur.
■ Höfundur er prófessor og dcildar-
forseti Viðskipta- og hagfræði-
deildar Háskóla íslands.
r ••
AVOmiNIN A
SPARISKÍRTBNUM RÍKISSJÓÐS
ER ALLS STAÐAR SÚ SAMA
Það er þjónustan sem
skiptir sköpum
Það er í sjálfu sér einföld athöfn að kaupa spariskírteini ríkissjóðs en í
því eins og öðru getur skipt máli að réttar upplýsingar og þjónusta séu
fyrir hendi.
Öll útibú okkar eru viðbúin því að taka á móti þér með sérþjálfað
starfsfólk, þægilega aðstöðu sem gefur tækifæri til ráðlegginga í góðu
tómi og fjölbreytta sérþjónustu.
• Við veitum þér allar fáanlegar upplýsingar um spariskírteinin.
• Við upplýsum þig um það hvers vegna spariskírteinin eru ef til vill
svo hagstæð fyrir þig núna.
• Við athugum fyrir þig, hvort hagstætt er að innleysa gömlu skírtein-
inþínogkaupaný.
• Við sjáum um að innleysa gömlu skírteinin fyrir þig og kaupa ný eða
leggja féð inn á Bónusreikning eða önnur ávöxtunarform bankans.
» Við gætum þess að sparifé þitt missi ekki verðbætur og vexti við
gjalddaga spariskírteinanna eins og hent hefur svo marga.
• Viðvarðveitumskírteininfyrirþig.
I
I
8
Heimsæktu okkur í eitthvert útibúanna, þar verður tekið vel á móti þér
með persónulegri nútíma þjónustu.
© Iðnaðarbankinn
-mtim Þankj