Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 C 3 Morgunblaðið/RAX Systir Ivona, 21 árs, hefiir verið íjóra mánuði á reynslutíma í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Rúmlega hálft annað ár er þangað til hún getur stigið skrefið til fúlls og unnið nunnuheit. ir, sem tók sér nunnunafnið María Jóhanna. Hún var fædd árið 1889, dóttir hjónanna Marteins Erlends- sonars á Siglunesi á Barðaströnd og konu hans, Olavíu Astríðar Þórð- ardóttur. Haildóra gekk ung í reglu St. Jósefssystra, lauk hjúkruna- rnámi hjá systrunum í Kaupmanna- höfn og starfaði síðan til dauðadags við St. Josefsspítalann í Landakoti. Sigurveig Guðmundsdóttir, sem kynntist systur Jóhönnu lítillega, segir hana hafa verið með afbrigð- um vinsæla hjúkrunarkonu, glað- lega og elskulega. Systir María Jó- hanna andaðist árið 1944. Þriðja íslenska nunnan var Guð- rún Una Sigurveig Gísladóttir, sem tók sér nunnunafnið systir María S^anislaus. Hún var fædd á Gauks- stöðum í Garði á Suðurnesjum árið 1912, dóttir Gísla Einarssonar sjó- manns og konu hans Steinunnar Jonsdóttur. Systir Stanislaus var trúhneigð og tók ung kaþólska trú. Hún gekk í reglu St. Jósefssystra árið 1938 og hélt stuttu síðar til Kaupmannahafnar til að læra hjúkrun. Þar varð hún innlyksa öll styijaldarárin en kom hingað er heimstyrjöldinni var lokið og starf- aði við St. Jósefsspítalann í Landa- koti til dauðadags 1956. Nunnuheitið fór leynt Sú íslenska kona sem síðust gerð- ist nunna og margir íslendingar muna eftir, var Svanlaug Guð- mundsdóttir. Hún tók sér nunnu- nafnið systir María Clementia eftir einni þeirra fjögurra systra sem komu fyrstar hingað til lands. Svan- laug varfædd 1918, dóttir hjónanna Guðmundar Sigurðssonar klæð- skerameistara í Reykjavík og Svan- laugar Benediktsdóttur, en hún lést þegar Svanlaug var mjög ung. Fað- ir hennar var kaþólskur og kom henni í nám í Landakotsskóla. Syst- urnar þar gengu Svanlaugu að mörgu leyti í móðurstað og hún ákvað ung að gerast nunna, um 16 ára gömul. Hún fór til systranna í Kaupmannahöfn, nam þar kirkjuleg fræði og lagði einkum stund á barnafræðslu. Er hún hafði unnið nunnuheiti 1939, sneri hún aftur heim og stundaði kennslu við Landakotsskólann það sem eftir var ævinnar. Hún lést 1972. Sigurveig Guðmundsdóttir, sem þekkti hana vel, segir hana hafa unnið mikið og fórnfúst starf í skólanum. Hún hafi verið dugleg, lífleg og kát, sérstaklega þegar hún var yngri. Sigurveig segir föður Svanlaugar hafa verið ákvörðun hennar alger- lega sammála. „Um þetta leyti, í kringum 1930, gætti tilhneigingar meðal ungra stúlkna að gerast nunnur. Fleiri stúlkur reyndu að ganga í regluna en gáfust upp og nokkrar höfðu mjög sterka löngun til þess þó ekki yrði af inngöngu. En nunnuheit Svanlaugar fór auð- vitað mjög leynt því almenningur tók kaþólsku kirkjunni mjög illa fyrir heimstyijöldina síðari. Þá kom hingað fjöldi kaþólskra og viðhorfin breyttust." Ein íslensk nunna væri óvenju hátt hlutfall Kaþólski biskupinn á íslandi, Alfred Jolson, var var inntur eftir því hvers vegna nunnum fækkaði svo mjög á Vesturlöndum. Hann sagði ástæðuna fjölþætta; sífellt færri konur gæfu sér tóm til að sinna köllun sinni til að þjóna guði, nú væri meiri þrýstingur á konur að giftast eða fara í sambúð og viðhorf gagnvart einbúum væri nei- kvætt. Það væri talað um að þeir eðaþær væru „ekki giftar“. „Rekst- ur reglanna á Vesturlöndum hefur gengið erfiðlega og nunnum hefur farið stöðugt fækkandi síðustu 30 árin. Þeim fjölgar afturámóti sífellt í löndum þriðja heimsins og Austan- tjaldslöndum. Munkum hefur einnig fækkað en ekki eins jafnt og þétt. Hér á landi telur kaþólski söfnuður- inn um 2000 manns. Þó hér væri aðeins ein nunna, væri það óvenju hátt hlutfall. Hér eru þrír kaþólskir prestar og það er óvenjulegt í svo fámennum söfnuði." Jolson biskup segir það ósk kirkj- unnar að íslensk kona gerist nunna og að á því sé vissulega möguleiki. Líklegra væri þá að hún væri ung og ógift, þar sem óalgengt er að eldri konur gangi í klaustur. Hann segir ákaflega erfitt að spá um hvort vinnuregla eða lokuð bæna- regla yrði fyrir valinu. „Nunnur í vinnureglum í dag eru hjúkrunarkonur, læknar, kennarar og vinna að félagslegri aðstoð. Ungar konur spyija sjálfar sig hvað þær hafi fram yfir aðra. Svarið er einfalt, systurnar hafa köllunina til að þjóna öðrum og þær helga sig henni algerlega. Fólk þarf að skilja GULLVEIG SÆMUNDSDÓTTIR RITSTJÓRI HELGA THORBERG LEIKKONA íslensk kona veldi lokaða bænareglu íslenskar konur velja frekar góðgerðarstörf Trúaröfgar að ganga í klaustur Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri hefur haft töluverð kynni af nunnunum hér á landi. Hún segist þó aldrei hafa hugleitt það að ganga í klaustur þar sem köllunin til þess hafi ekki verið fyrir hendi. Gullveig er kaþólsk, fædd á sjúkrahúsi St. Fransiskusystra í Stykkishólmi. Hún gekk í barnaskóla St. Jósefssystra í Hafnarfirði og vann sem unglingur hjá Fransiskusystrum á sumrin. Aðspurð segist hún vel geta trúað því að íslensk kona ætti eftir að ganga í klaustur og þá líklega ung. Trúlega yrði lokuð bænaregla fyrir valinu, á borð við Karmel-regluna. „Ég spurði eitt sinn nunnu hvers vegna svo fáar konur gengju í klaustur. Hún svaraði því til, að í amstri hverdagsins heyrðum við ekki röddina sem kallaði okkur til þjónustu við guð. Það er svo margt sem glepur, við höfum ekki gefið okkur tíma til að hlusta eftir þessari rödd, sem ef til vill hljómar innra með okkur,“ segir Gullveig. „Áður fyrr áttu konur svo fárra kosta völ, utan hjónabands. Vildu þær afla sér menntunar, var klaustrið einna vænlegasti kosturinn. Ég skil vel tilvist þeirra þá en nú eru tímarnir gjörbreyttir. Þær konur sem nú ganga í klaustur hljóta fyrst og fremst að taka þessa ákvörðun vegna innri köllunar." Leikkonan Helga Thorberg segir það aldrei hafa hvarflað að sér að gerast nunna þó hún hafi vissulega hugleitt hlutverk þeirra. Telur hún afar ólíklegt að íslensk kona gerist nunna. Hérlendis sé engin hefð fyrir því að ganga í klaustur og þær konur sem hafi hug á því, verði líklega taldar bilaðar. Konur sem vilji fórna sér vinni frekar að góðgerðar- og líknarstörfum. Aðspurð segist Helga ekki telja að konur gerist nunnur til að flýja raunveruleikann. Hún segist ekki mótfallin klausturlifnaði. „Hugurinn hvarflar helst til nunnanna þegar ég sé þær; við vinnu eða á götum úti. Starf nunna og lífsviðhorf er fjarlægt og afskaplega forvitnilegt. Þær vinna afar göfugt starf í kyrrþey, svo göfugt að ég held að heimurinn geti ekki verið án þeirra í nánustu framtíð, og má þar minna á störf systur Maríu Theresu. En ég legg góðgerðarstörf íslenskra kvenna, m.a. safnanir fyrir skóla, kirkjur og sjúkrahús, að jöfnu við starf nunnanna.“ Jana K. Sigfúsdóttir viðskiptafræðinemi segir að sér hafi aldrei dottið í hug að gerast nunna. Sér finnist það dæmi um öfgar að ganga í klaustur, en það sé ákvörðun hvers og eins, sem ekki beri að skipta sér af. „Ég er ekki trúuð, til þess er ég allt of jarðbundin. Mér finnst trúin oft vera flótti frá raunveruleikanum. íslendingar hafa það gott. Þeir eru ekki eins trúhneigðir og aðrar þjóðir, hafa um nóg annað að hugsa. Þó eru alltaf til þeir sem ganga í sértrúarsöfnuði og það er ekkert ólíklegra að klaustur verði fyrir valinu en hvað annað. Ef íslensk kona gerist nunna, held ég að viðbrögðin verði margskonar, allt frá reiði og upp í ósvikna aðdáun. Ég yrði hissa, það er allt og sumt.“ Jana sagði klausturlíf vera mjög fjarri þó flestir leiddu einhvern tíma hugann að því. Nunnur væru í sínum augum rólegri og yfirvegaðri en aðrir. Konur sem legðu rækt við það góða, eyddu öllum sínum tíma í bænir og að hjálpa öðrum. „Það hlýtur að vera erfitt að vera nunna. Til þess að halda klausturdvölina út held ég að þær þurfi að hafa köllun, ofsatrú og sjálfsaga. Mér finnst furðulegt að einhveijir skuli vilja loka sig frá umheiminum á þennan hátt.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.