Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 30
30 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 Ibúðir aldraðra afhentar Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Handhafar íbúðanna í 2. áfanga eftir að þeim höfðu verið afhentir lyklarnir. Frá vinstri Margrét Kristjánsdóttir, Helgi Bergvinsson, Lea Sigurðardóttir, Sigríður Björnsdóttir og Helga Jóhannsdóttir. V estmannaeyjar: Fróðleik safnað um íslenska matargerð Ferðamálaráð íslands, Kvenfélagasamband íslands, Klúbbur íslenskra matreiðslumeistara, Rikiútvarpið, rás 1 og þjóðháttadeild Þjóðminjasafiis Islands munu á næstunni beita sér fyrir söfriunar- herferð til að bjarga gömlum íslenskum mataruppskriftum og öðrum fróðleik varðandi íslenska matargerð. I tilefni af þessu hefur verið sam- in spurningaskrá sem verður dreift til allra kvenfélaga landsins og víðar, þar sem menn eru beðnir að skrá niður það sem þeim kann að vera útbært af slíku efni, frá því um eða fyrir miðja öld. Þá eru stað- bundnar aðferðir við verkun og matreiðslu heimafengins hráefnis vel þegnar, jafnvel þó að yngri séu. Einnig er beðið um orðtök, vísur, sögur eða annað af því tagi um mat og eldhúsverk. Ríkisútvarpið mun hafa fastan vikulegan þátt sem tengist þessu á rás 1 kl. 9.30 á miðvikudagsmorgn- um á næstunni. Þar verður fjallað um íslenskan mat frá ýmsum sjón- arhornum og spurningum varpað til hlustenda. Þeir sem áhuga hafa á að viðhalda íslenskum matar- hefðum eru hvattir til að fylgjast með og leggja sitt af mörkum. Nánari upplýsinga má leita hjá matráði samstarfsnefndarinnar, en það skipa: Hallgerður Gísladóttir safnvörður, Sigurvin Gunnarsson matreiðslumeistari og Steinunn Ingimundardóttir hússtjórnarkenn- ari. Heimilisfang er: íslenskur mat- ur, pósthólf 161, 121 Reykjavík. Hinar glæsilegu þjónustuíbúðir aldraðra við Kleifarhraun. Mývatnssveit: Tónlistar skól- inn fullsetinn Mývatssveit. Vestmannaeyjum. ÍBÚÐIR í 2. áfanga þjónustuíbúða fyrir aldraða í Vestmannaeyjum voru afhentar fyrir skömmu. I lok síðasta árs var hafist handa við byggingu 12 íbúða sem afhenda átti i þremur áföngum. Fyrstu 4 íbúðirnar voru afhentar i júni, 2. áfanginn var afhentur nú og íbúð- irnar í síðasta áfanganum verða afhentar i byrjun næsta árs. íbúðimar voru afhentar í kaffi- samsæti á elliheimilinu Hraunbúð- um. Þorbjöm Pálsson, formaður byggingarstjómar íbúða aldraðra, flutti ávarp og rakti í stuttu máli byggingarsögu íbúðanna. Síðan af- henti Þorbjöm Amaldi Bjamasyni, bæjarstjóra, lyklana að íbúðunum. Bæjarstjóri flutti verðandi íbúum hamingjuóskir og óskaði þeim vel- famaðar í nýjum híbýlum. Hann kvað uppbyggingu þessa sérlega skemmtilega og sagðist hafa trú á að þjóðin væri nú loksins að koma skipulagi á þau mál að aldraðir gætu búið í húsnæði sem væri þeim viðráð- anlegt. Amaldur afhenti síðan Guð- mundu Steingrímsdóttur, formanni félagsmálaráðs, lyklana af íbúðunum sem afhenti þá verðandi íbúum, ein- um af öðrum. íbúðir þessar, sem erú staðsettar við Kleifahraun í Eyjum, eru 75 fer- metrar að flatarmáli. í þeim eru tvö herbergi auk baðherbergis, eldhúss, búrs og forstofu. Allur frágangur húsanna er mjög snyrtilegur jafnt að utan sem innan. Verktakar við byggingu íbúðanna voru þeir Arsæll Sveinsson og Steingrímur Snorrason, sem sáu um byggingu sökkla og Hamar sf. sem sá um allar aðrar framkvæmdir, auk undirverktaka. Hönnuður húsanna er Björgvin Hjálmarsson. G.G. Tónlistarskólinn í Mývatns- sveit hóf starfsemi sína 26. sept- ember sl. Við skólann starfa í vetur tveir kennarar auk skóla- sljórans, Viðars Alfreðssonar. Sigríður Einarsdóttir kennir á fíðlu og Margrét Búadóttir kenn- ir söng og stjórnar kór skólans. Kennt er á allflest hljóðfæri. Skólinn er fullsetinn í vetur eins og verið hefur undanfarin ár. Að sögn skólastjórans gengur skóla- starfið mjög vel. Segja má að það sé mikils virði fyrir Tónlistarskól- ann í Mývatnssveit að njóta starfs- krafta hins ágæta tónlistarmanns Viðars Alfreðssonar, svo og annara kennara. Bama- og unglingaskólinn í Mý- vatnssveit var settur af skólastjór- anum Þráni Þórissyni 23. septem- ber sl. Nemendur í vetur eru 101. Kennarar í fullu starfi eru 6 og stundakennarar og í hlutastarfi em 5. Skólastjóri segir heilsufar hafa verið með ágætum í skólanum það sem af er vetri. Nemendum er ekið daglega í skólann. Kristján Gljáandi HARKA með Kópal Geisla Veldu Kópal með gljáa vlð hæfi. Vertu meövituð um fegurÖ nagla þinna Develop 10 - sem farið hefur sigurför um Bandaríkin og Evrópu. Develop 10, dagleg notkun í 10daga: Neglurnar fá aukin styrk og i/axa hraðar Fyrir neglur sem klofna og brotna Fyrir neglur sem bogna Mjög gott sem undir- og yfirlakk Einkaumboð á íslandi. Sími 91-42726 Útssölustaðir: SNYRTIVÖRUVERSLANIR: Sandra, Roykjavíkurvegi 50, Hf. Nafnlausabúöin, Strandgötu 34, Hf. Róma, Glæsib. Afftieimum 74, Rvfk. Brá, Laugavegi 74, Rvfk. Serína, Krínglunni, Rvfk. Snyrtihúsiö, Eyrarvegi 2, Selfossi. Snyrtihöllin, Garöatorgi 3, Garöab. Sara, Bankastræti, Rvík. Spes, Kleifarsoli 18, Rvfk. Byfgjan, Hamraborg 16, Kópav. Gloría, Samkaupum, Keflav. Amaró, Hafnarstræti, Akureyrí. Nana, Lóuhólum 2-6, Rvfk. Nana, Vöfvufelli 15, Rvík. Topptlskan, Aöalstræti 9, Rvfk. Lfbfa, Laugavegi 35, Rvfk. Regnhlffabúöfn, laugavegi 11, Rvfk. Bytgjan, Laugavogi 76, Rvfk. SNYRTISTOFUR: Krista, Kringlunni 12, Rvík. Sóley, Starmýri 2, Rvfk. Guörún, Baldursgötu 2, Keflav. Hilma, Garöarsbraut 18, Húsav. Hótel Esja, Suöurlandsbraut 2, Rvfk. Áferö, Rauöarárstíg 27-29, Rvfk. Aríana, Hólastig 6, Bolungarv. Gimli, Miöloiti 7. Rvfk. APÓTEK SNYRTIDEILDIR: Hoftsapótek, Langholtsvegi 84, Rvík. l-augarnosapótek, Kirkjuteigi 21, Rvfk. Rangárapótek, Austurvogi, Hellu. Apótek Keflavíkur, Suöurgötu 2, Keflav. Patreksapótek, Aöalstræti 6, Patreksf. Apótek Mosfellsbæjar, Þverhofti 3, Mosfellsbæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.