Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 40 C Halldóra B. Þórðar- dóttir - Minning Fædd 16. nóvember 1986 Dáin 31. október 1988 Ég fel í forsjá þína, Guð faðir sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið iát mig dreyma og Ijúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (M.Joch.) Nú er hún sofnuð, svefninum langa, elsku litla frænka okkar, hún Halldóra Bjðrg. Hver skilur tilgang lífsins, þegar svona yndislegt lítið bam er hrifíð á brott. Hún var aðeins rúmlega átta ■l. mánaða er í ljós kom að hinn skæði sjúkdómur hafði náð tökum á henni. I veikindum sínum hafði Halldóra ávallt foreldra sína sér við hlið. Það var hennar lán að eiga góða for- eldra, þau vemduðu hana og studdu allt til hinstu stundar. Þó Halldóra hafí ekki átt langa ævi, skilur hún eftir stórt skarð í hjörtum okkar. Augun bláu og bros- ið hennar bjarta lifa í minningu okkar um ókomna tíð. Já, sefist sorg og tregi þér saknendur við gröf, því týnd er yður eigi hin yndislega gjöf. Hún hvarf frá synd og heimi j til himins - fagnið því svo hana Guð þar geymi og gefi fegri á ný. (Bjöm Halldórsson) Elsku Anna, Þórður, Guðbjörg og Berglind, megi góður guð geyma litlu dóttur ykkar og systur — og styrkja ykkur og styðja. Halldór, Guðrún Kristin og Sigrún Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, - hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, ? minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (Halldór Laxness.) 16. nóvember 1986 fæddist þeim Önnu Friðþjófsdóttur og Þórði ÓDÝRT ÓDÝRU AUSTURÞÝSKU MATAR- OG KAFFISTELLIN ERUKOMIN HEILDSÖLUBIRGÐIR VERSLUNARDEILD HOLTAGÖRÐUM StMI 6812 66 Hallgrímssyni falleg og hraustleg dóttir, Halldóra Björg. Hún var þriðja dóttir þeirra hjóna, þriðja nóvemberstjaman þeirra, en hinar tvær eru Guðbjörg og Berglind sem verða 12 og 4ra ára núna í nóvem- ber. Þegar Halldóra Björg litla var rúmlega 8 mánaða gömul upp- götvaðist að hún var með æxli í höfði. Allt var reynt til að hún mætti ná heilsu á ný, uppskurður, lyfjameðferð og geislar en án árangurs. Von sem kviknaði að morgni slokknaði að kveldi. Barátt- an sem stóð í 15 mánuði tapaðist. Eftir stendur minningin um litla hnátu með stríðnisglampa í augum og svo ótrúlega oft bros á vör. Litla geðgóða pabbastelpu sem spurði „Hvar er pabbi?“ með stuttu milli- bili þegar pabbi var ekki nálægur, sem ískraði í af kátínu þegar henni tókst vel upp að stríða Indu frænku. Elsku Anna og Þórður, ykkar sorg er stór og þið hafíð reynt mik- ið, verið beygð en ekki brotin. Ykk- ur ásamt Guðþjörgu og Berglindi, ömmum og öfum, Indu Marý og öðrum ástvinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fagra bam, úr faðmi tekið mínum, flyttu hjartans kveðju nöfnum þínum. Hátt á himinteigi hitta nú á vegi lífsins rósir litla „gleym-mér-eigi“. Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, lof sé Guði, búin ertu’ að striða. Upp til sælu sala saklaust bam, án dvala! Lærðu ung við engla Guðs að tala! (Matthías Jochumsson.) Hrefiia og Snorri Á morgun, mánudag, kveðjum við elsku litlu systurdóttur mína, Halldóru Björgu. Hún var átta mánaða þegar í ljós kom að hún var með æxli í höfði. Oft spurði maður sig hvers á barn að gjalda og hver er tilgangurinn. Fátt verður um svör því erfitt er að sjá tilgang með þeim erfiðleikum sem framundan voru, þessa mánuði sem hún lifði. En það birti upp á milli, þá var hún svo glöð og kát, því hún var með eindæmum skýr og fljót til. Halldóra var skapgóð og mjög eftirtektarsöm um um- hverfí sitt þrátt fyrir veikindi sín. Oft var stríðnisglampi í augunum. Við eigum eftir að sakna Halldóru litlu mikið. Hún var mjög sterk, því það var með ólíkindum, hvað lagt var á þennan litla líkama. Hún átti góða að. Foreldrar hennar, Anna og Þórður, voru alltaf til staðar, óskaplega dugleg og létu aldrei bugast, þó oft væri erfítt að horfa upp á veikindi Halldóru litlu. Nú hefur Halldóra litla fengið hvíldina. Við eigum eftir að sakna lítillar, fallegrar frænku. Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, lof sé Guði, búin ertu að striða. Upp til sælu sala saklaust bam á dvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. (M. Joch.) Inda og Siggi Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, - hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. já vita eitthvað anda hér á jörð er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumamótt. Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur slqótt. (Halldór Laxness) Sporin hennar Halldóru litlu voru örstutt en samt djúp í hjörtum okk- ar allra. Halldóra Björg veiktist af alvar- legum sjúkdómi rúmlega átta mán- aða gömul. Hún gekkst undir tvísýna skurðaðgerð þá og síðan lyfja- og geislameðferð, en ekkert varð við ráðið. Allan þennan tfma sýndi hún fádæma geðprýði og ljúf- mennsku. Hún fór óvenjusnemma að tala og var mjög næm og fljót að læra af umhverfínu. Veikindi hennar háðu henni ekki á því sviði og náði hún að tileinka sér svo ótrú- lega margt á sínum tæpu tveimur árum. Það er ekki öllum gefíð að fylgja baminu sínu í gegnum slíkar þreng- ingar og halda sálarró sinni og andlegu jafnvægi. Þeim Onnu og Þórði tókst þetta aðdáanlega um leið og þau sýndu svo einstaka ástúð og umhyggju að eftir var tekið. Læknar og starfsfólk á bama- deild Landspítalans sem önnuðust Halldóru litlu í veikindum hennar reyndust henni og foreldrunum Fæddur 7. nóvember 1919 Dáinn 3. júlí 1988 Dags að kveldi, er margs að minnst máttur lífs þá burtu þver því að ótal áfram lifa unnin störf að baki þér. (Ásg. J.) Það em myndir um dugnað og hreysti sem koma upp í hugann, þegar ég minnist frænda míns Sig- urvins Bergssonar bónda og físk- matsmanns á Bergi í Eyrarsveit, en hann andaðist í byijun júlímán- aðar síðastliðins. Þessi minningar- orð em því dálítið seint á ferðinni, en þannig stóð á að við hjónin vor- um í sumarferðalagi er Sigurvin lést, en hann var um margt minnis- stæður maður og góður frændi. Hann fæddist í Krossnesi í Eyrar- sveit, foreldrar hans Bergur Þor- steinsson og Ólafía Guðmundsdóttir reistu sér bú í Krossneslandi, þar ólst hann upp og var frá unga aldri dgulegur við allt sem hann gerði. Tvö bræður átti Sigurvin, þá Guð- mund Bergsson sem býr í Reykjavík og Kristinn Hlíðar sem látinn er fyrir allmörgum ámm, hann bjó á Ákranesi. Þegar litið er til baka til þess tíma er Sigurvin var ungur maður þá varð fólk að leggja hart að sér við vinnu því vélar vom þá ekki komnar til sögu nema að litlu leyti. í Krossnesi hafði frá fyrstu tíð ver- ið mannmargt og var það enn um þétta leyti, þar vom margar hendur við störf bæði til lands og sjávar. Sigurvin var þar góður liðsmaður, þaðan reri hann til fiskjar og stund- aði búskapinn. Þetta var gott líf og oft glatt á hjalla hjá unga fólk- inu. Eftir að Sigurvin kvæntist, árið 1950, settist hann að í Gmndarfirði ásamt eiginkonu sinni Valgerði Haraldsdóttur, sem traust og hljóð- lát hefur staðið við hlið eiginmanns síns í umfangsmiklum störfum hans. Heimili þeirra var lengst af að Hlíðarvegi 14 en það hús byggðu mjög vel og veittu þeim ómetanleg- an stuðning. Við kveðjum nú þessa litlu, fal- legu og greindu stúlku með miklum söknuði. Dugnaður hennar og bar- átta mun aldrei gleymast. Við geymum brosið hennar blíða. Elsku Anna, Þórður, Guðbjörg og Berglind, þrátt fyrir mikinn missi og djúpa sorg sem þið standið nú frammi fyrir, mun minningin um Halldóru litlu lifa og verða ykkur dýrmæt. Kata og Einar Fyrir 12 árum urðum við og Anna og Þórður foreldrar í fyrsta skipti, þegar við eignuðumst Guð- björgu og Jón Viðar. Tíu árum síðar göngum við aftur saman í gegnum þetta hlutverk. Við eignuðumst þá báðar fallegar stúlkur. í millitíðinni fæddist þeim Önnu og Þórði stúlkan Berglind, fædd 1984. þau árið 1966. Um stafsævi Sigur- vins má segja að hann hafi tekið virkan þátt í tveimur aðalatvinnu- vegum þjóðarinnar, í uppbyggingu bújarðar með ræktun og ástundun pg sem fískmatsmaður um árabil. í Grundarfírði vann Sigurvin aðal- lega við fískvinnslu og gerðist físk- matsmaður uns hann lét af því starfí af heilsufarsástæðum á síðastliðnu ári. Þó honum félli vel að vinna við sjávarsíðuna þá átti sveitin sterk ítök í honum og í reynd lagði hann aldrei niður búskap á sínum æskuslóðum sem hann unni alla ævi. Hann byggði þar góð pen- ingshús og rak þar búskap, fór á milli og annaðist búféð og vann að stækkun jarðarinnar og ýmsum umbótum, og svo fór að lokum að sveitin sigraði. Það urðu þáttaskil er Bergur sonur hans stofnaði ný- býli á jörðinni og sameiginlega reistu þeir tveggja hæða íbúðarhús. Þangað fluttu þau Valgerður og Sigurvin fyrir nokkrum árum, þar undu þau sér vel í návist sonar og fjölskyldu hans. Sem 'bóndi naut Sigurvin sín best og hafði hann t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, JÓNfNA margrét jónsdóttir, Barmahlíð 52, Reykjavlk, sem lést 28. október verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 7. nóvember kl. 15.00. Þorgerður Jónsdóttir, Þorgeir Þorleifsson, Auður Jónsdóttir, Sævar Halldórsson, Jóhanna Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FANNEY JÓNASDÓTTIR, Sogavegi 123, veröur jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. nóvember kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag íslands. Magnús Þorsteinsson, Betty Benjamínsdóttir, Sigurður Einarsson, Sigurður Benjamfnsson, Guðný Jónadóttir, Sigurlaug Sigurðardóttir, Hörður Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sigurvin Bergsson, Bergi - Minning Fyrstu mánuðimir eftir að Hall- dóra og Anna Fríða fæddust voru ósköp venjulegir. Vinir og kunningj- ar komu í heimsókn til að skoða litlu stúlkumar, allt var ósköp eðli- legt. Halldóm fór vel fram, var dugleg lítil stúlka svo unun var að sjá. En allt í einu verður Halldóra alvarlega veik, það veik að hún varð að gefast upp og kvaddi þenn- an heim, aðeins tæplega tveggja ára gömul. Við spyijum af hveiju, af hveiju svona lítil og yndisleg stúlka? Stúlka sem á alla framtíðina fyrir sér, svo kát og fjörug. Við emm harmi slegin, af hveiju þarf svona lítil, yndisleg stúlka að ganga í gegnum þennan hræðilega sjúk- dóm? En yndislegt var að sjá og finna hvemig foreldrar og systur hennar börðust með henni í þessum veik- indum hennar. Þau neituðu að gef- ast upp. Það sýnir hvem mann þau hafa að geyma. Auðvitað fínnst okkur allt of mikið lagt á eina fjölskyldu. Anna og Þórður hafa verið sterk og dug- leg í baráttunni með henni. Von- andi verða þau sterk áfram. Þegar Anna Fríða okkar verður eldri fær hún að heyra allt um Halldóm. Þær léku sér oft saman og vom góðar litlar vinkonur. Við viljum þakka fyrir þessar samvemstundir sem við höfum átt saman þessi tæp tvö ár með Hall- dóm. Elsku Anna, Þórður, Guðbjörg og Berglind. Við biðjum þess að sá sem ræður byr, styðji og styrki ykkur. Þið eigið minninguna um yndislega dóttur og systur. Öðmm aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Halldóra gleymum við aldrei. Fjölskyldan Túngötu 1, Vestmannaeyjum. jmdi af hestamennsku og fór oft á hestamannamót ásamt fjölda ungra manna sem héldu alltaf tryggð við hann og komu oft á heimili hans til skrafs og ráðagerða. Þá veit ég að frændi minn hefur farið á kost- um því hann bjó yfír mjög góðri frásagnargáfu og var glaður í góðra vina hópi. Um einkalíf Sigurvins vil ég fara nokkkmm orðum. Þau hjón eignuð- ust einn son, Berg, kona hans er Susan Mary Corbett, þau eiga tvo syni og ber sá eldri nafn afa síns. Með hnignandi heilsu varð þessi starfsami maður að draga sig í hlé frá venjulegum bústörfum, þá var það þessi litli afadrengur og nafni sem stytti honum stundir og minn- ist ég þess nú að síðast er ég sá Sigurvin þá mætti ég honum á gangi með litla afadrenginn sér við hönd, sú stund gleymist ekki. Fyrir giftingu eignaðist hann dótturina Huldu, samband þeirra var gott og er bamabömin komu í heimsókn fagnaði Sigurvin þeim vel og þau undu sér vel hjá afa sínum. Hulda er búsett í Mosfellsbæ, mað- ur hennar er Halldór Sigurðsson. Er andlát Sigurvins bar að í sumar þá sýndu þau hjón hug sinn í verki er þau fluttu kistu hans að Kross- nesi til þess að kveðja þann stað sem hann átti flest sporin. Hinsta ferð hans á heimslóðir, sem kvöddu hann á táknrænan hátt, var því alveg sérstök. Þá var fallegt í Krossnesi eins og það getur best orðið, einmitt þegar sólin var að setjast og hafíð og vatnið loguðu rauðgullin og himinninn var með allavega glitrandi rauðan og gullin ljóma í kvöidkyrrðinni. Sigurvin var glaður og hýr í við- móti, skemmtilegur og viðræðugóð- ur um menn og málefni. Ég minn- ist með gleði liðinna samvemstunda á heimili Venna frænda míns og Valgerðar konu hans og þakka gestrisni og alúðlegar móttökur. Nú þegar hann hefur lokið vegferð sinni hér í þessum heimi fylgja hon- um hlýjar kveðjur samferðarmanna fyrir góð kynni. Með honum er kvaddur traustur og góður heimilis- faðir sem bar velferð fyölskyldu sinnar mjög fyrir bijósti. Ég votta hans nánustu einlæga samúð. Blessuð sé minning hans. Kristin Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.