Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 38 C Helga Þ. Guðmunds- dóttir—Minning Fædd 23. febrúar 1900 Dáin 15. október 1988 Þuríður Helga Guðmundsdóttir fæddist á Óslandi í Óslandshlíð, Skagafirði. Foreldrar hennar voru Guðmundur Pétursson Pálssonar sem bjó á Ytri-Kotum og víðar í Blönduhlíð, og Solveig Jónsdóttir Sigurðssonar bónda á Göngustöð- um í Svarfaðardal. Hún kom sem ráðskona til Guðmundar í Hjalta- staðahvamm í Blönduhlíð, þar sem hann bjó með móður sinni, Kristínu Guðmundsdóttur. Var Solveig ný- lega orðin ekkja og hafði með sér ' son sinn ungan, Jón Ferdinandsson. Þau Guðmundur giftust síðar og áttu saman 5 böm. Elst þeirra var Kristín, þá Helga, Jórunn, Páll og Kristrún yngst. Öll eru þau látin nema Jorunn og Kristrún. Þau Guðmundur og Solveig bjugggu aldrei á eignaijörð, en voru leigulið- ar víða í Skagafirði, lengst í Smiðs- gerði í Kolbeinsdal, eða 8 ár. Þar lést Guðmundur árið 1920. Með fádæma þrautseigju og elju tókst þeim að halda saman hópnum sínum og koma til manns. Lífið var enginn dans á rósum á þessum tímum. Þau systkini þurftu ekki að láta sig dreyma um langa skóla- göngu og ferð til sólarlanda eftir lokapróf. En ég veit að þau notuðu þeim mun betur hverttækifæri, sem gafst til sjálfsnáms og sjálfsmennt- unar. Baráttan þjappaði þeim sam- an, þau báru hvers annars byrðar og voru tengd traustum böndum alla ævi. Ung að árum réðst Helga í kaupavinnu, í Skagafirði og víðar. Hún var hörkudugleg og snillingur í höndunum svo að vel hefur mátt nota verkin hennar. Jón, hálfbróðir Helgu, var mikill hestamaður. Hjá honum komst hún fyrst í kynni við góða hesta, en þeir voru hennar yndi alla tíð. Það brá birtu yfir svip hennar og hún minntist horfinna ánægjustunda, þegar fallega hesta bar fyrir augu. Þrátt fyrir harða lífsbaráttu í uppvexti, var Skaga- flörðurinn alltaf baðaður sól í henn- ar minningu og klappimar hjá Hjaltastaðahvammi alltaf sami ævintýraheimurinn. En þar og í Smiðsgerði lágu hennar dýpstu rætur. En „tilvera okkar er undarlegt ferðalag". Hennar leið átti eftir að liggja austur fyrir heiðar. Tæplega þrítug gerðist hún ráðskona vega- manna á Öxnadalsheiði. Mannsefn- ið hennar, Kristján Albertsson, var verkstjóri þar í flokki. Kristján var frá Hallandsnesi á Svalbarðsströnd, eyfirskur að ætt. Þau giftust 1930. Fýrstu árin bjuggu þau á Hallands- nesi, en síðan á Akureyri það sem eftir var ævi. Þau eignuðust 4 dæt- ur, Ragnheiði, Solveigu, Ingu Bertu og Erlu. Helga og Kristján bjuggu lengst á Sigurhæðum, húsi skálds- ins, Matthíasar. Þar sá ég Helgu fyrst og fannst hún vera eins og drottning í ríki sínu í þessu tígulega umhverfi. Mér fannst hún vera ímynd móð- urlegrar hlýju og kærleika. Hún var ekki rík á veraldarvísu, en með orðs- kviðinn í huga, að „ríkur er sá einn, sem gefur" var henni ekki auðs vant. Helga var höfðingi í lund og örlát með afbrigðum. Hún mátti ekki aumt sjá nema fá úr bætt. Hún var afar bamelsk og laðaði að sér böm eins og segull stál. Hennar móðurfaðmur náði ekki aðeins yfir fjölskylduna, heldur alla þá, scm hún batt tengsl við. Ég kynntist Helgu fyrst haustið ’81, þegar ég fluttist til Akureyrar. Hún var móðursystir mín og jafn- vel sem önnur móðir. Hún tók mér opnum örmum og deildi með mér áhyggjum af hestaeign minni, þeg- ar við vorum að nema land hér nyrðra. Ég heimsótti hana oft og lét þá móðan mása um hestana.' Það féll í góðan jarðveg. í vondum veðmm snemma vetrar áður en tek- ið var á hús, hafði hún jafnvel meiri áhyggjur af hestunum mínum en ég. Við áttum fleira sameigin- legt, Skagafjarðaráráttuna. í ágúst ’87 bauð ég henni í ökutúr vestur að Hólum í Hjaltadal. Heilsu hennar var þá mjög hrakað. Bíllinn minn var enginn lystivagn, en ég vissi hve mikil ferðakona hún var og tók því áhættuna. Veðrið var heldur drungalegt og þoka í fjöllum. Þegar í Hola kom, var Helga mjög þreytt, staulaðist þó um kirkjugarðinn og hugaði að leiðum ættmenna. Sáum við þá,að sólskin var úti í Óslands- hlíðinni. Stakk ég upp á að fara þar út, gegnum Fljótin, yfir Lág- heiði og fyrir Ólafsljarðarmúla. Hún féllst á það og fór nú öll að lifna. Þetta varð einhver skemmti- legasta ferð, sem ég hef farið ak- andi. Hetjan aldna gleymdi þreytu og vanlíðan við þessa lygnu fegurð, sem alls staðar blasti við. Holóttur vegurinn og hriktið í bílskriflinu máttu-sín einskis hjá eyjunum, sem risu úr speglandi sjónum, baðaðar sól, og bæjunum, sem Helga þekkti alla með nöfnum. Hún vissi bæði deili á íbúum og liðnum atburðum. En ættfróð var hún með afbrigðum og hafði stálminni. Þegar út í Múl- ann kom, varð þokan svo svört, að varla sást fram fyrir ökutækið. Ég fór að skammast mín fyrir að draga hana út í slíkt ævintýri. En hún var ekki klökk, hélt að ekki væri mikils misst í útsýni hér, fyrst við hefðum notið svo mikillar sólar í Skagafirð- inum. Þetta var Helgu líkt, hún sótti í sig veðrið við hveija raun, ef aðeins var skin milli skúra. Næsta dag, nær farlama eftir volkið, lék hún á alls oddi og lifði í minningunni um þennan bjarta dag. Þegar Sigurhæðir voru gerðar að minjasafni Matthíasar 1959, urðu þau Helga og Kristján að þoka um set. Var þeim það sámauðugt í fyrstu. Þau keyptu þá hæð á Holtagötu 8. Þar undu þau bæði vel uns Kristján dó veturinn 1982, eftir skamma legu á Fjórðungs- sjúkrahúsinu. Helga fluttist þá til Solveigar dóttur sinnar og Einars Gunnlaugssonar manns hennar í Alfabyggð 8. Þar naut hún skjóls um hríð. Elli og veikindi sóttu hana fast og fyrir tæpu ári fór hún á Dvalarheimilið Hlíð. Hún naut heimsókna dætra og annarra ná- inna og vildi fylgjast með öllu. Hún hélt andlegri reisn sinni allt til dauða og minnið var nær ófölskv- að. Ef ég, gripin fróðleiksfysn um ættir og atburði úr fortíðinni, leit- aði til Helgu, var hún vön að gefa mér greið svör. Nú er skarð fyrir skildi og tóm- legt að fara hjá Dvalarheimilinu, þótt allt sé óbreytt hið ytra. Helga dó á Fjórðungssjúkrahúsinu, sár- þjáð en æðrulaus. Útför hennar fór fram frá Akureyrarkirkju 24. okt. sl. í sólbjörtu og tæru haustveðri. Mér kom þá i hug, að nú væri hún loks komin heim. Með innilegu þakklæti kveð ég Helgu frænku mína og bið henni guðsblessunar. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir (E. Ben) Hallfríður Kolbeinsdóttir Margar ljúfar minningar koma upp í hugann þegar ég minnist Helgu frænku minnar. Hún var mér einkar mikilvæg og ástkær á upp- eldisárum mínum á Akureyri. Hún var fyrir mig ímynd góðvildarinnar og mannkærleikans. Hún var ömmusystir mín en við þær aðstæð- ur sem ég ólst upp hjá ömmu minni var hún mér í raun og veru mjög nátengd og lét sér ákaflega annt um mig alla tíð. Helgu var reyndar einstaklega annt um öll sín skyld- menni og fylgdist náið með högum allra til hinstu stundar. Hún og eig- inmaður hennar, Kristján Alberts- son, mikill vinur minn og heiðurs- maður, sem nú er einnig látinn, héldu alla tíð mjög rausnarlegt og alúðlegt heimili á Akureyri. Þangað voru ætíð allir velkomnir og hlýjan sem mætti manni frá þeim hjónum var einstök. Mínar fyrstu skíru bemskuminningar eru einmitt frá heimili þeirra á Sigurhæðum Matt- híasar þjóðskálds, þar sem þau bjuggu langa hríð. Þangað lá leið mín að ég held næstum á hverjum einasta degi á bemskuárunum. Þar var alltaf mikið um að vera og spennandi fyrir lítinn snáða. Þau Kristján og Helga áttu fjórar dæt- ur, Ragnheiði, Sólveigu, Ingu Bertu og Erlu, sem þurfti að_ sjálfsögðu mikið fyrir að hafa þá. Ég var tek- inn sem einn í fjölskyldunni og þær systur litu nánast á mig sem litla bróður. Kristján vann alla ævi hörð- um höndum við ýmiskonar vinnu er tengdist verklegum framkvæmd- um og sjávarútvegi, seinni hluta ævinnar lengst af þó sem netagerð- armaður. Helga sá hins vegar alfar- ið um heimilið og gerði það af ein- stökum myndarskap á öllum svið- um. Helga var frábær matreiðslu- t Dóttir mín, ANNA RAGNHILDUR VIÐARSDÓTTIR, andaðist í Landspítalanum 4. nóvember sl. Fyrir hönd aðstandenda, Viðar Jónsson. Móðir mín, t MARGRÉT ÁRNADÓTTIR frá Gunnarsstöðum, Hringbraut 91, Reykjavík, andaðist 2. nóvember í Toronto. Minningarathöfn auglýst síðar. Kristin Gfsladóttir. t Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HARÐAR GUÐMUNDSSONAR, Álfheimum 26, Reykjavfk, verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. nóvember kl. 10.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hans eru beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess. Guðrún Klemenzdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t GUÐLAUG SIGMUNDSDÓTTIR, frá Gunnhlldargerði, til heimllis á Dalbraut 27, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Inga M. Langholt, Ragnhildur Pótursdóttir, Einar Pótursson, Rós Pétursdóttir, Bryndfs Pétursdóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Þórey Sævar Sigurbjörnsdóttir, Benedikt Langholt, Ásmundur Matthfasson, Sigrfður Karlsdóttir, Magnús J. Jóhannsson, Örn Eirfksson, börn og barnabörn. t Útför GUNNARS BJÖRNSSONAR frá Sólheimum, Drápuhlfð31, Reykjavfk, verður gerð frá Hallgrimskirkju þriðjudaginn 8. nóvember kl. 15.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hans eru beðnir aö láta líknarstofnanir njóta þess. Ragnhelður Jónsdóttir, Valgerður Jóna Gunnarsdóttir, Ingi Kr. Stefánsson, Ragnar Gunnarsson, Annie Lindquist, Slgrfður Hr. Gunnarsdóttir, Eyþór Árnason, Ingibjörg Ásta Gunnarsdóttir, Sigvaldi Thordarson. kona. Ekki er mér kunnugt um hvort hún lærði til þess á sínum tíma, eða hvort þetta voru með- fæddir hæfileikar, en ég finn enn glöggt bragðið af mörgu góðgætinu hennar endur fyrir löngu, steikta steinbítnum og rauðsprettunni sem Kristján færði heim, eða þá kjöt- bollunum og brúnaða rauðkálinu, rabarbarasultunni, kúmentíglunum eða soðna brauðinu og svo mætti endalaust telja. Á Sigurhæðum var mikið heimilishald og spennandi að fylgjast með. Þar var sláturgerð mikil, saltsíld í tunnum, þvottadag- ar stórir, mikill bakstur og kaffi- brennsla svo eitthvað sé nefnt. Kristján gerði svo við net á kvöldin í suðurhluta kjallarans. Hvammur- inn fyrir ofan Sigurhæðir og stall- arnir, skógarlundurinn suður og upp með Eyrarlandsveginum og stóru reynitrén í suðurgarðinum, allt var þetta ævintýraveröld fyrir mig hjá þeim Helgu og Kristjáni. Ég sé Helgu fyrir mér á þeim tíma í sólskininu inn um litað glerið í litlu gluggunum á veröndinni eða á stéttinni við eldhúströppumar. Inn- anstokks var ávallt mikið um að vera og sýslað við margt af hagleik en oft var einnig heitt í kolunum hjá þeim systrum. Ekki voru þau Kristján og Helga heldur alltaf sam- mála enda féllu áhugasviðin ekki alltaf saman. Helga hugsaði fyrst og fremst um mannfólkið og vellíð- an allra sem voru í kringum hana en Kristján aftur meira um lands- málin. Jolaundirbúningurinn hjá Helgu og fjölskyldu á Sigurhæðum var stórkostlegur á mínum mæli- kvarða þá, teiknað og föndrað, bak- að og undirbúið. Þar var líka hald- inn almennilegur bolludagur og margir aðrir góðir siðir í heiðri hafð- ir. A aðfangadagskvöld vorum við amma ævinlega með fjölskyldunni á Sigurhæðum og er það til marks um hversu náin tengsl voru þarna á milli. Þegar Sigurhæðir voru gerð- ar að safni í minningu Matthíasar Jochumssonar fluttust Helga og Kristján á Holtagötu 8 á Akureyri. Þar bjuggu þau um langt skeið, Kristján til dauðadags 1982 og Helga þar til hún fluttist til dóttur sinnar, Sólveigar. Þar var sami myndarskapurinn á heimilishaldinu þótt minna væri umleikis eftir að allar dætumar voru fluttar að heim- an. Tvær þeirra, Ragnheiður og Inga Berta, höfðu þá flust vestur um haf til Kaliforníu og stofnað þar heimili. Helga fór nú að bera um- hyggju fyrir öllum barnabömunum og var stöðugt með fólkinu sínu í huganum þótt langt væri orðið á milli hennar og sumra þeirra. Nærri sjötug að aldri tók Helga sig upp og heimsótti dætur sínar tvær í Ameríku en Kristján fór ekki. Sú ferð varð henni mikil upplyfting og gleðigjafi alla tíð síðan. Eftir það gat hún ímyndað sér hvemig lífíð gekk fyrir sig hjá fólkinu hennar þar vestra. Helga hafði mikla ánægju af að fá myndir af fólkinu sínu og hafði alla tíð mikið af þeim uppi við til augnayndis. Kristjáni fannst stundum nóg um og kallaði það í stríðni sinni dýragarðinn hennar en henni var nú sama um það. í Holtagötuna var alla tíð jafn indælt að koma og viðmótið með eindæmum. Ég skrapp stundum í frímínútum þegar ég var í gagn- fræða- og menntaskólanum til Helgu til að fá eitthvað notalegt og spjalla aðeins. Á sunnudögum fórum við svo oft í heimsókn með mat og kaffi og öllu tilheyrandi. Milli mála veltum við Krístján okk- ur í grasinu úti í garði og spjölluð- um saman um framtíðina. Helga sinnti húsverkunum alla tíð af jafn mikilli óeigingirni. Þó gekk Helga með slæman húðsjúkdóm sem tók mjög á hana og var aðdáunarvert hversu vel hún bar það af sér þrátt fyrir að hún væri oft augljóslega mjög kvalin. Síðustu árum ævi sinnar eyddi Helga á heimili Sól- veigar dóttur sinnar á Akureyri þar sem hún naut einstakrar umhyggju hennar og Einars Gunnlaugssonar tengdasonar síns og barna þeirra. Samverustundir okkar Helgu urðu því miður allt of fáar nú seinni ár- in. Ég sakna Helgu úr lífinu og minnist þeirra hjóna beggja með miklu þakklæti og lotningu. Guðmundur Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.