Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 C 17 Bók um baráttu krabbameinssjúklinga: Nefbrotimi í upptöku Kærleikur — Lækn- ingar — Kraftaverk Ncw York. Reuter. BANDARÍSKI sjónvarpsmaður- inn Geraldo Rivera, sem sljórn- ar vinsælum umræðuþáttum, fékk stól í andlitið og nefbrotn- aði, þegar ryskingar brutust út við upptöku á þætti um nýnas- istaæskuna á fimmtudag. Til átakanna kom, þegar ungur svertingjahatari og „skallahaus" kallaði svarta mannréttindalfeið- togann Roy Innis „Tómas frænda". Innis þjarmaði þá að ungmenninu, sem harðneitaði að taka skæting- inn til baka, að sögn talsmanns Rivera. Þegar Annis, sem er formaður bandarískra kynþáttajafnréttis- samtaka, tók John Metzger, form- ann „Andspymuhreyfingar aría“, hálstaki uppi á sviðinu, ruku yfir tíu stuðningsmenn „skallahau- sanna“ upp til handa og fóta með barsmíðum og látum og gripu það sem hendi var næst og fleygðu í áttina að sviðinu. Rivera, sem einkum hefqr tekið fyrir mjög umdeild mál í þætti sínum, fékk fljúgandi stól í andlit- ið og nefbrotnaði. Talsmaður sjónvarpsmannsins sagði, að Rivera hefði sjálfur gefið nokkrum aðgangshörðum „skalla- hausurn" á hann. Friður komst loks á, þegar 20 lögregluþjónar og öryggisverðir skárust í leikinn. Lögreglan sagði, að Rivera ætl- aði sér ekki að leggja fram neinar kærur vegna þessa máls. Bókaútgáfan Forlagið hefúr sent frá sér bókina Kærleikur, lækningar, kraftaverk eftir bandaríska skurðlækninn Bernie S. Siegel og fjallar hún um reynslu hans af einstökum hæfi- leika krabbameinssjúklinga til að læknast af sjálfsdáðum. Bókin fjallar um það að Iækna og lina þjáningar, hún segir frá sjúkling- um sem hafa sterkan vilja til að sigrast á sjúkdómum og lifa af. Hún fjallar um hugrekki til að horfast i augu við sjúkdóma og vinna gegn þeim með hjálp lækna og hjúkrunarfólks. Bemie S. Siegel er bandarískur læknir sem unnið hefur einstætt brautryðjendastarf til stuðnings fólki með alvarlega sjúkdóma. Hann fjallar um vanda sinn í læknisstarfi og hvernig hann leysti hann með því að fara að vinna með sjúklingun- um sem manneskjum og taka þátt í baráttu þeirra af kærleik fremur en að fást einvörðungu við þá sem sjúkdómstilfelli. Þótt bókin fjalli einkum um krabbameinssjúklinga skírskotar hún ekki síður til fólks með aðra sjúkdóma. Hún á líka erindi til fullfrískra manna sem láta sér annt um heilsu sína. Boðorð Siegels læknis er einfalt: Hægt er að ná undraverðum árangri með því að beita kærleik, skilningi og innsæi. Ef sálarlífið er í jafnvægi eykst líkamanum styrkur. Kærleikur, lækningar, krafta- verk er 240 blaðsíður. Auk þess eru 8 litmyndasíður í bókinni. Helga ieikur Guðmundsdóttir þýddi. Prentsmiðj- an Oddi hf. prentaði. AUK hf./Magnús Jónsson hannaði kápu. (Fréttatilkynning) GOODYEAR ULTRA GRIP 2 Nemendaþjónust' an-Leiðsögn sf.: Engin tilfinning er eins notaleg og aö finna að maður hefur fulla stjórn á bílnum sínum í vetrar- færðinni. Þá er gott að vita að bíll- inn hefur staðfast grip á veginum, og þá stendur manni líka á sama um veðurspána. Goodyear Ultra Grip 2 vetrarbarðarnir eru hann- aðir með ákjósanlega eig- inleika til að veita gott hemlunarviðnám og spyrnu, hvort sem er í snjó, hálku eða bleytu, og þeir endast vetur eftir vetur. Öll smáatriði varðandi framleiðslu hjólbarðans — svo sem efni, bygging og mynstur, —■ hafaverið þaulhugsuð og þraut- reynd til að ná fram há- marks öryggi, mýkt og endingu. íveturvel ég öryggið — Ég nota hina rómuðu Good- year tækni. Aukin áhersla lögð á full- orðinsfræðslu N emendaþj ónustan-Leiðsögn sf. leggur frá og með þessu hausti aukna áherslu á fullorð- insfræðslu. Fyrirtækið hefúr undanfarin ár boðið skólanemum á öllum skólastigum námsaðstoð í flestum námsgreinum, segir í fréttatilkynningu frá Nemenda- þjónustunni-Leiðsögn sf. Fyrirtækið býður nú fullorðnum námskeið í til dæmis íslenskri staf- setningu, málfræði, lestri, stærð- fræði, erlendum tungumálum og bókfærslu. Kennaramir em með kennslureynslu úr almennum skól- um. EG KEMST HEIM A Laugavegi 170-172 Simi 695500 DYROTON PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.