Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 46
46 C
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
ÆSKUMYNDIN . . .
ER AF RAGNHILDI HELGADÓTTUR ALÞINGISMANNI
- Friðar-
vinurinn
Ranka
Ranka var hún kölluð þegar hún
var yngri; mjóslegin stelpa með
stutt hár, í prjónapeysu og
ullarpilsi, í ullarsokkum og
flatbotna skóm. „Hún
Ragnhildur var afskaplega
indælt barn. Það var svo auðvelt
að fá hana ofan af þeim
skammarstrikum sem hún var í
þann veginn að gera. En með
þessu er ég ekki að segja að hún
hafi verið nein rola, síður en
svo. Hún var með
skemmtilegustu börnum sem ég
hef kynnst," segir Ragnheiður
Brynjólfsdóttir, sem var ritari
og aðstoðarmaður Helga, föður
Ragnhildar og síðar stjúpa
hennar.
ry T3 agnhildur er fædd þann 26.
JLVmaí 1930, dóttir hjónanna
Helga Tómassonar yfirlæknis og
Kristínar Bjarnadóttur. Hún á þrjá
bræður og er næstelst í systkina-
röðinni. Elstur er Tómas yfirlækn-
ir; þá Ragnhildur, sem er þremur
árum eldri en Bjami jarðvegs-
fræðingur og yngstur er hálfbróð-
irinn Brynjólfur. Fjölskyldan bjó
lengst af á Kleppi, þar sem Helgi
var yfírlæknir og var því í nokk-
urri fjarlægð frá byggðinni sem
—» nú er í nágrenninu.
í skólanum
Börnin gengu í Laugarnesskóla,
sem þótti dijúgur spölur í þá daga.
I skólanum átti Ragnhildur nokkrar
vinkonur en lék sér oft við bræður
sína heima. Ragnheiður segir þá
hafa átt það til að stríða systur sinni
en það hafi ekki verið alvarlegt. En
í skóla var systkinunum strítt tölu-
vert á því að þau byggju á Kleppi.
„ Við stóðum þetta af okkur enda
var okkur innprentað að allir menn
hefðu sinn rétt. Við vöndumst
snemma sjúklingunum á Kleppi og
áttum marga af okkar bestu vinum
þar sem þeir voru,“ segir Bjami,
bróðir Ragnhildar.
„Það fór óskaplega í taugamar
á Ragnhildi þegar bræður hennar
slógust og hún reyndi ævinlega að
stilla til friðar. Það varð til þess
að Tómas fór að kalla hana „friðar-
vininn". Þetta var skömmu fyrir
heimsstyijöldina síðari, á tímum
friðarumleitana Chamberlains, for-
sætisráðherra Bretlands. Friðarvin-
urinn breyttist því í „Sjamberlein"
og síðar „Sjamba“. Slíkt uppnefni
átti Ragnhildur afar bágt með að
þola,“ segir Ragnheiður.
Hún segir Ragnhildi hafa gengið
vel í skóla. „Hún lærði snemma að
lesa og var ekki há í loftinu þegar
hún fór að lesa ljóð. Þá stóð hún
gjaman upp á eldhúskolli og fór
með kvæði.
Vinkonurnar
Ranka átti ýmsar vinkonur sem
enginn sá. Eina þeirra kallaði hún
„Kjalames-Guddu“, að ógleymdum
þeim „Smiðu" og „Bimmu“. Það
var oft bráðskemmtilegt að horfa á
hana setja ofan í við hinar ímynd-
uðu vinkonur sínar."
ÚR MYNDASAFNINV
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Fyrsta opinbera
konungsheimsókn
lýðveldisins
ÓLAFURK.
Magnússon
ljósmyndari
hófstörfá
Morgunblað-
inuárið 1947
og hefur
starfað við
blaðið óslitið
síðan.
Myndasafii
hans er því að
Fyrsta konungsheimsóknin sem
ég myndaði, sem jafnframt var
fyrsta opinbera konungsheimsóknin
eftir að Island varð lýðveldi, verður
mér alltaf minnisstæð. Það var þeg-
ar Friðrik níundi danakonungur og
Ingiríður drottning sóttu okkur
heim í apríl 1956. Þetta þótti mik-
ill viðburður í þá daga og múgur
og margmenni safnaðist fyrir á
götunum til að hylla konungshjónin
eins og sjá má á einni myndinni
Konungshjónin komu víða við í
heimsókn sinni og var mér því nokk-
ur vandi á höndum að velja myndir
úr því mikla safni sem ég hef geymt
frá þessari heimsókn. Ein þeirra er
tekin þegar konungshjónin eru að
koma úr móttöku í gamla Sjálfstæð-
ishúsinu, önnur á hátíðarsýningu í
Þjóðleikhúsinu. Einnig lét ég fljóta
með mynd af forsetabíl númer eitt
ásamt bílstjórum, en ef ég man
rétt var þessi bíl keyptur sérstak-
lega til landsins vegna þessarar
heimsóknar."
vonum orðið
mikið að
vöxtum og í
þessum þáttum
munurn við
glugga í safhið
endaerþar
margt
áhugavert að
finna. Við
gefum Ólafi
sjálfum orðið:
STARFID
LOGI MAGNÚSSON SILFURHÚÐARI
BÓKIN PLATAN
Á NÁTTBORDINU Á FÓNINUM
MYNDIN
í TÆKINU
Morgunblaðið/Sverrir
Logi Magnússon með kaffi-
könnu, sem hann er að vinna
undir silfurhúðun.
Silfurhúðun
í hjáverkum
IHÚSI einu við Framnesveg er
rekið lítið fyrirtæki sem ekki á
sér hliðstæðu hér á landi. Þar er
Silfurhúðun Loga Magnússonar, en
hann er eini maðurinn hér á landi
sem stundar það starf. Logi er ann-
ars starfsmaður Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og stundar silfurhúð-
unina í hjáverkum.
„Ég byijaði á þessu fyrir tuttugu
árum og þetta hefur verið eina fyrir-
tækið á landinu á þessu sviði ý öll
þessi ár,“ sagði Logi. „Starfið er
aðallega fólgið í að silfurhúða
gamla muni, sem hafa einhvern
tíma verið silfurhúðaðir, eða það
sem kallað er „silfur-plett“.
Við silfurhúðunina er notaður
ákveðin tækjabúnaður sem aðallega
samanstendur af mismunandi stór-
um körum. Þar sem rafmagn skipar
stóran sess í vinnslunni nýtur Logi
menntunar sinnar í rafmagns-
iðninni, en að öðru leyti las hann
sér til um silfurhúðunina og hefur
nú öðlast tuttugu ára reynslu á
þessu sviði.
ÞETTA SÖCDV
ÞAV ÞÁ .. .
Ingólfur
Guðbrands-
son,
stjómarfor-
maður Útsýnar.
Ingólfur Guðbrandsson mun
að lokinni þessari söngför láta
af því starfi sínu, en hátíðartón-
leikar, sem verða í tilefni af-
mælisins í dymbilviku, í byijun
apríl, og söngförin verða endir
á söngstjóraferli hans. Sagði
Ingólfur að þetta væri sín
óhagganlega ákvörðun.
Úr viðtali við Ingólf Guðbrandsson
í Morgunblaðinu, 10. mars 1977.
Atll
lónsson
nemi,
10 ára.
Eg er að lesa skemmtilega æv-
intýrabók sem heitir Huldu-
kona íParadís. Ég les ekki mjög
mikið, svona eina blaðsíðu á dag.
Mér finnst ævintýrabækur
skemmtilegastar en hef líka gaman
af strákabókum."
Hrönn
HafHðadóttlr
söngkona.
UndaPót-
ursdóttlr,
afgreiðslu-
stúlka.
Síðast hlustaði ég á Afterher
through Midland með Cock
Robin. Kærastinn minn á plötuna.
Ég hef ekki hlustað oft á hana en
finnst hún góð. Ég hef yfirleitt
útvarpið á en það kemur fyrir að
ég set eina og eina plötu á fóninn.
Það er þá helst popp sem ég hlusta
á.“
Flnnur
Jónsson
glerslípunar-
meistari
Hallur
Hallsson
fréttamaður
Nýjasta myndin sem konan dró
upp úr töskunni var Black
Widow, með Debru Winger og
Theresu Russel. Ég varð nú satt
að segja fyrir vonbrigðum með
myndina. Ég horfi alltaf minna og
minna á myndbönd, svona einu
sinni til tvisvar í mánuði.
Signý
Pálsdóttir
leikhúsritari.
A
Eg er að lesa tvær mjög góðar
bækur, Aldaslóð eftir Bjöm
Th. Björnsson og Síðustu dagar
Sókratesar eftir Platón. Ég les
nokkuð mikið en þó ekki eins mik-
ið og ég vildi. Helst vil ég bækur
sem segja manni eitthvað þó það
sé líka ágætt að hvíla sig með
góðan reyfara.
Síðast setti ég á fóninn íslenska
dúetta með Eiríki Stefánssyni
og Jóhanni Daníelssyni. Ég hlusta
nú ekki mikið á tónlist þó ég feg-
inn vildi. Ég hef gaman af öllu
mögulegu; allt frá sígildri tónlist
yfir í popp, ég hef t.d. gaman af
Queen og Bítlunum.
Eg leigi mér stundum mynd-
bandstæki til að horfa á mynd-
ir með krökkunum mínum. Núna
er Sound ofMusic í tækinu og þar
á undan West side story. Ég og
stelpurnar mínar tvær höfðum
mikið gaman af en syninum fannst
lítið varið í myndirnar."