Morgunblaðið - 06.11.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐŒ) FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
29 C
r
ÁTÖKIN UM RITSTJÓRASTÓLA
ÞJÓÐVIUANS
Ekki djúphugsuö
pólitískflétta
ATÖKIN um ritstjórastóla Þjóð-
viljans nú koma fremur á
óvart. Eftir sættimar sem tókust
að sögn síðari hluta sumars í for-
ystu Alþýðubandalagsins og stjóm-
armyndunarvið-
ræður, sem end-
uðu með aðild þess
að núverandi ríkis-
stjóm, hefur and-
rúmsloftið í
flokknum batnað
til mikilla muna. Nú er sleginn ann-
ar tónn og Ólafur Ragnar Grímsson
formaður flokksins túlkaði hug-
myndir um að endurráða ekki Mörð
Ámason ritstjóra sem árás á sig
og sem framhald á þeim erjum sem
tröllriðið hafa flokknum. Hann fékk
því til leiðar komið að fundi útgáfu-
stjómarinnar á mánudaginn var,
þar sem taka átti ákvörðun í þessum
efnum, var frestað til næstkomandi
fímmtudags. Meirihluti stjómarinn-
ar telur nú að boltinn sé hjá Ólafí
Ragnari og það sé hans að koma
fram með tillögur
sem breytt geti
stöðunni.
Mörður og ótt-
ar Proppé vom
ráðnir ritstjórar til
eins árs 3. desem-
ber í fyrra. Einn viðmælandi Morg-
unblaðsins orðaði það þannig að sú
ráðstöfun hafi fólgið í sér „vopnað-
an frið" milli stríðandi fylkinga.
Ákvörðun Óttars að sækjast ekki
eftir endurráðningu af persónuleg-
um ástæðum raskaði því jafnvægi
og boltinn fór að rúlla. Úlfar Þor-
móðsson, formaður stjómarinnar
SVIÐSLfÓS
eftir Hjálmar Jónsson
Mörður Arnason
Verður hann
endurráðinn eða látinn
hætta?
Silja Aöaistalnsdóttir
Verður hún fyrsti
kvenritstjóri dagblaðs á
íslandi?
kannaði óformlega hug annarra
stjómarmanna til endurráðningar
Marðar og reyndist - samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins mikill
meirihluti þess fysandi að hann yrði
ekki endurráðinn ritstjóri og Silja
Aðalsteinsdóttir ráðin í hans stað.
Fullyrða má að sú hefði niðurstaðan
orðið 'ef Ólafur Ragnar hefði ekki
blandað sér í málið og haldið óform-
legan fund með stjóm og varastjóm
í hádeginu á mánudaginn var.
Fjárhagsörðugleikar
Úlfar Þormóðsson segir að það
sé af og frá að fyrirhuguð ritstjóra-
skipti séu af pólitískum toga. Blað-
ið eigi við mikla fjárhagsörðugleika
að etja og á því ári sem ritstjórafer-
og
ill Óttars og Marðar
spannar hafí hagur þess
ekki batnað, né hafí
blaðið orðið trúverð-
ugra eða læsilegra. Því
sé ekki annað en eðli-
legt að nýir möguleikar
séu kannaðir. Hann sé
einn þeirra sem haldi
því fram að Mörður sé
góður penni, en það sé
ekki endilega æskilegt
“að besti flakarinn í
frystihúsinu sé gerður
að verkstjóra".
Þeir sem Morgun-
blaðið ræddi við em ein-
róma á þvi máli að
Mörður sé góður penni
meirihluti stjómarinnar gerir
ekki að því er virðist athugasemd
við pólitísk skrif hans. Hins vegar
er fundið að því að hann hafí ekki
áunnið sér traust útgáfustjómar,
sé umdeildur og á stundum yfirlýs-
ingaglaður. Sjálfur segist Mörður
ekki skilja þetta upphlaup. Það
hafí verið erfiðir tímar á Þjóðviljan-
um. Við þeim hafí verið bmgðist
og hann viti ekki upp á sig neinar
þær skammir sem réttlæti brot-
rekstur.
Mörður hefur traust starfsmanna
og fulltrúi þeirra í stjóm mætti á
óformlega fíindinn á mánudag með
undirskriftarlista með nöfnum allra
á ritstjóm. Þá hafa yfirlýsingar
Úlfars í fjölmiðlum um stöðu Þjóð-
viljans vakið þar talsverða reiði.
Viðkvæmt ástand
Framangreind atburðarás ber
það tæpast með sér að um djúp-
hugsaða pólitíska fléttu sé að ræða.
Öllu heldur sýnir hún í hnotskum
hvað ástandið í Alþýðubandalaginu
er viðkvæmt eftir áralöng átök og
að lítið má út af bregða til að per-
sónulegar erjurJiefjist á ný. Því til
stuðnings má benda á að andstæð-
ingar Marðar hafa tæpast hugsað
málið til enda ef Silja ein hefði átt
að setjast við hlið Áma Bergmann.
Hún er einkum þekkt fyrir afskipti
af menningu og iistum en ekki
pólitík. Það er því eins og vanti
pólitiskan ritstjóra við hlið hennar.
Úlfar andmælti því og sagði að Silja
byggi ekki síður yfír pólitískri
reynslu en „strákur nýkominn úr
skóla með nokkurra ára reynslu af
blaðamennsku."
Erfítt er að spá um hver niður-
staða þessa máls verður. Ýmislegt
bendir til þess að meirihluti stjóm-
arinnar hafí vanmetið þau hörðu
viðbrögð sem formaður flokksins
sýndi þegar þetta kom upp. Stuðn-
ingsmenn Marðar segjast munu
safna undirskriftum og boða til al-
menns fundar í úgáfufélaginu með
tilheyrandi smölunum og flokka-
dráttum, verði hann látinn vfkja.
Hinir bíða tillagna formanns flokks-
ins í málinu og þess er að vænta
að tíminn verði notaður vel til þess
að finna lausn sem allir geti sœtt
sig við.
Stjómmál
eða
sápuópera?
Sjónvarpsstöðvar hafa verið sak-
aðar um hafa stuðlað að því
gera kosningabaráttuna í Banda-
ríkjunum ómerkilega og forðast
málefnalega umfjöllun segir i grein
í Financial Times efti Lionel Bar-
ber. Til þess að fá af sér kosninga-
myndir í aðalfréttatfma hafi for-
setaframbjóðendumir, George Bush
og Michael Dukakis, þurft að segja
eina minnisstæða setningu, sem
tekur ekki meira en hálfa mínútu
í flutningi og fátt annað virðist
hafa komizt að.
Flokksþingin virtust þjóna þeim
eina tilgangi að frambjóðendumir
fengju af sér góðar myndir, sem
kæmust í sjónvarpsfréttimar og
hægt yrði að nota f kosningaauglýs-
ingum. Báðir frambjóðendumir
hafa kunnað að nota sjónvarpið, en
Bush hefur haft vinninginn.
Áður en landsfundur repúblikana
fór fram hafði Bush verið sakaður
um roluhátt í marga mánuði, en ein
góð ræða, sem hann hélt á lands-
fundinum, breytti honum f harðan
og nýjan leiðtoga vegna áhrifa sjón-
varpsins.
Maðurinn á bak við góða frammi-
stöðu Bushs í sjónvarpi er Roger
Ailes, sem lærði list sina þegar
hann barðist fyrir Richard Nixon
fyrir 20 ámm. Hann er höfundur
svokallaðra „árásar-auglýsinga",
þar sem Dukakis hefur verið sakað-
ur um linkind í garð morðingja og
nauðgara og því hefur verið haldið
fram að hann hafa sliitnað úr
tengslum við venjulega borgara.
Sjónvarpsauglýsingarnar og frét-
taumfjöllun sjónvarpsins em meg-
inskýringin á því að Bush virðist
hafa tryggt sér ömggt forskot í
skoðanakönnunum, þótt hann hefði
17% minna fylgi en Dukakis þegar
kosningabaráttan hófst. Stuttar,
kjarnyrtar setningar á bezta frétt-
atíma sjónvarpsins hafa verið lausn-
arorðið.
Fátt af því sem komið hefur fram
I sjónvarpi í kosningabaráttunni
hefur haft eins mikil áhrif og mynd-
ir af siglingu Bush um höfnina í
Boston þegar hann sakaði Dukakis
um að valda mengun í heimaríki
L sínu.
Blástu lífi í
íj ölskyldualbúmið
VIDEO
vHSig
HQ
I
Með Nordmende kvikmyndatökuvélinni getur þú upplifað
liðnar stundir á ljóslifandi og áhrifaríkan hátt
* Aðeins 1300 gr (með rafhlöðu)
* HQ myndgæði (High Quality)
* Aðeins 10 lúx (kertaljós í 25 cm í)arl.)
* 430 línu upplausn
* Sjálívirk lit-, ljós og „fókus“-stilling
* Dags- og tímainnsetning
* 14 stillingaratriði sjást í myndkiki
* Tekur VHS-C spólur fyrir VHS heimatæki
Aðeins
*
*
*
*
*
*
*
*
Mynd- og hljóðdeyfir (fader)
Sexfalt-tveggja hraða súm
CCD örtölvu myndkubbur
Fljótandi kristals-stjómskjár
4 lokarahraðar i/6o, 1/250,1/500 og 1/1000
Hægt að skoða upptöku strax eftir töku
Ýmsir fylgihlutir
o. fl. o. fl.
I
grciðslukjör til allt að 12 mán.
82.650v*
^ ^kr./stgr.
NORDMENDE
-NYTSÖM NÚTÍMATÆKI-
Almennt verð: 87.000,-