Morgunblaðið - 06.11.1988, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MAIMNHFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
11 c
MATUR OG DRYKKURI/íy)
Gubrúnu Helgadóttur í Fjörunni
Bemsku-
jjara
þingfor-
setanna
Yfirgnæfandi meiri-
hluti nýkjörinna
þingforseta slitu barns-
skónum á Hamarkots-
mölinni í _ Hafnarfirði:
Matthías Á. Mathiesen
var t.a.m. oft gerður ábyrgur
fyrir því að Guðrún Helgadóttir
dytti ekki í sjóinn þegar hún var
að veiða það sem þau krakkarn-
________ ir kölluðu
„marhnút í
sparifötunum".
Nú hefur veit-
ingastaðurinn
Fjaran verið
starfræktur
um 2ja ára
eftir Jóhönnu skeið í þessu
Sveinsdóttur bernskuflæð-
armáli þingforsetanna, í sögu-
frægu húsi að Strandgötu 55,
byggðu 1841, sem eigendurnir
hafa gert upp að innan og utan,
sérsmíðað allar innréttingar svo
yfirbragð staðarins er einfalt,
upprunalegt og hlýlegt. Reyndar
er Fjaran, sem trúlega er í flokki
dýrari veitingahúsa, einstaklega
smekklegur staður fyrir það
hversu fágætt heildarsamræmi
ríkir þar innanstokks. Hann býð-
ur upp á blandaðan sérréttaseð-
il þar sem kjöt- og fískmeti er
gert nokkurn veginn jafnhátt
undir höfði. Á matseðlinum eru
iðulega einhverjir réttir úr hrá-
efnum sem eru fremur sjaldgðef
hér á landi, s.s. kanínu eða
langlúru. Þar snæddum við Guð-
rún saman hádegisverð rétt eft-
ir að hún var kjörin forseti sam-
einaðs þings: reyktan ál með
eggjahræru, villiönd í appelsín-
usósu og rifsbeijaís.
„Ekki hefði okkur krökkunum
dottið í hug að hægt væri að
borða önd,“ segir Guðrún hlæj-
andi, og okkur kemur saman
um að þessi tiltekna önd sé full
blóðug fyrir okkar smekk og að
ekki sé nógu lystaukandi að fá
á diskinn hálfliráan andarlegg
(hér um bil með fit): dálítið mis-
heppbnað sjónarspil franskrar
ættar. En sósan var mjög góð,
svo og állinn, ísinn og þjónust-
an. Og áður höfum við báðar
borðað í Fjörunni prýðilega fisk-
rétti.
Úr því minnst er á fisk verður
Guðrúnu, sem á árum áður var
lengi deildarstjóri í Trygginga-
MATSEÐILL
S£ &ruÁoa /uudcrúi
stofnun ríkisins, hugsað til
þeirrar tryggingastofnunar
samfélagsins sem var við lýði á
uppvaxtarárum hennar í Hafn-
arfirðibnum — þeirri einu sem
þá var til. Faðir hennar var há-
seti á togaranum Surpríse og í
hvert sinn er hann kom að landi
var hún send með glænýjan fisk
— að vísu með vír í gegnum
augun sem henni þótti hálf
óhugnanlegt — til nágrannanna
sem gaukuðu síðar að þeim
slátri eða rófum í staðinn. Aðrar
nauðsynjar heimilisins voru
teknar út í reikning í verslun
útgerðarmannsins. Þegar Guð-
rún var síðan send eftir kaup-
uppgjöri föður síns stóðst yfir-
leitt á endum að búðarreikning-
urinn var jafnhár kaupinu, og
henni þótti skrýtið að aldrei
væru til peningar. „Enda hef ég
margoft sagt við Matthías Mat-
hiesen, að þetta hafi gert mig
að sósíalista," segir hún og horf-
ir lengi út á úfinn sjó bemsku
sinnar.
TRÚMáL /Hefur tcekniþróunin breytt átrúnaói mannaf
Undur vorra tíma
eftir dr. Sigurbjörn
Einarsson
Eg geri ráð fyrir að í spurning-
unni hér að framan sé átt við
kristinn átrúnað og þá er því að
svara fyrst og fremst, að hann breyt-
ist ekki. Engin þróun umbreytir
m^^mmmummm þeirri staðreynd
sem Jesús Kristur
er • samkvæmt
grundvallandi vitn-
isburði Biblíunnar
og endurspeglun
og samhljómun
aldanna við þann
vitnisburð. Spyij-
andinn er vafalaust
með það í huga, hvort viðhorf
manna til kristins átrúnaðar hafi
breyst sakir áhrifa frá tækninni. Það
er mjög svo raunhæf spurning og
íhugunarverð.
Ætli þau svið mannlegs lífs séu
mörg, sem séu ósnortin af tækniþró-
un nútímans, réttara sagt: Tækni-
byltingu? Hver manneskja lifir í
heimi, sem er mótaður af þeim stór-
merkjum, sem einu nafni flokkast
undir tækni. Við vinnum nær allt
með vélum. Nauðsynjar daglegs lífs
og tilbreytni daganna skila sér inn
á okkur með margslungnum véla-
brögðum, kaffið að morgni er lagað
í vél, sjónvarpið að kvöldi er voldug
og áleitin maskína. Dagsverkið byij-
ar og endar í bílnum og fer allt úr
skorðum, ef tæknin gengur úrskeið-
is, t.d. ef eldingu lýstur í rafleiðslur.
Slíkt gerist svo sjaldan, að það hagg-
ar ekki því öryggi, sem tæknivæð-
ingin veitir. Jafnvel þessar línur, sem
gamall maður festir á pappír, eru
ritaðar á vél.
En sem ég sit hér hugsa ég til
bókar, sem ég á og er fýrir aftan
mig í skáp. Hana skrifaði afabróðir
minn með hrafnsfjöður og blekið bjó
hann til sjálfur. Það eru ekki nema
níutíu ár síðan hann sat við þessa
iðju. Eg man einna fyrst eftir mér
hjá ömmu minni, þegar hún var að
basla við eldinn í hlóðunum sínum.
Loginn, sem læsti sig um sprek og
skán, var baminu mikið undur. Ég
er ekki frá því, að ég hafi horft í
eldinn með þess háttar hughrifum,
sem eru í ætt við trúarlega lotningu.
Ekkert slíkt hvarflar að manni, þeg-
ar nýmóðins kaffivél er sett í sam-
band. Og kýrnar undir pallinum,
hitagjafinn og mjólkurlindin, töluðu
upp um fjalirnar, rumdu eða nauð-
uðu, túlkuðu m.ö.o. lifandi tilfinning-
ar, sem þær ætluðust til að mann-
fólkið skildi. Og það skildi, enda kom
það sér betur að skilja skepnuna.
Kýrnar voru fulltrúar
þeirrar náttúru, sem mað-
ur var í snertingu við allar
stundir. Menn vom í
lífrænu sambandi við
sköpunarverkið, eins og
umhverfið var gjaman
nefnt þá. Sköpunarverkið
fól í sér allt og bar sér •
vitni í öllu. Eldur á hlóð-
um, dropinn úr kúnum,
stráin, sem spmttu á vorin
og vom tínd úr stálinu á
þetta var allt sköpun, það
háð vindum og regni og sól, máttug-
um aflgjöfum utan mannsins. Það
var alveg ljóst, að sköpunai-verkið,
í senn svo nákomið og mikilfeng-
legt, átti annan höfund en manninn.
Áhöld og verkfæri vom fábrotin.
Viðskiptin við sköpunarverkið
vetrin,
var Iíf,
minntu stöðugt á það, að maðurinn I þessu sinni.
var þiggjandi. Hann þáði björg sína
af náttúmnni með því að fara nán-
ast berum höndum um hana af mik-
ilii elju, natni og nærfærni.
Skilvinda var fyrsta vélin, sem ég
sá og heyrði í. Þegar hún kom gat
amma hætt að renna trogum. Svo
komu kermr í sveitina, jafnvel
sláttuvél á einn bæ. Þetta vom for-
boðar. Það lá í loftinu, að meiri hlut-
ir væm í vændum. Sú eftirvænting
óx síðan stig af stigi, nærð af áþreif-
anlegum og undursamlegum fram-
fömm í tækni, sem hver maður
mátti fagna og njóta til hagræðis
sér og hagsbóta.
Tæknin er undur vorra tíma, í
sumra augum undrið mikla í sög-
unni. Fornmenn þekktu sjö manna-
sem þeir auðkenndu sem
furðuverk veraldar.
Nútímamenn vita enga
tölu á þeim furðuverkum,
sem mannleg sköpunar-
gáfa hefur fætt af sér.
Og almennt er fólk orðið
dofið af tíðindum úr
smiðjum tækninnar. Eng-
in furða þaðan vekur
neina furðu lengur.
Tækniheimur efstu
áratuga þessarar aldar
væri öllum fyrri kynslóðum gersam-
lega framandi, önnur, óþekkjanleg
veröld. Það væri kynlegra en flest
annað, ef hugsun þess fólks, sem
lifir í þessum nýja heimi, yrði ekki
fyrir áhrifum af honum. Um það
þarf ekki að spyija. Hitt er spurn-
ing, hver áhrifin eru og í hvaða horf
-þau snúast. En rýmið er þrotið að
verk,
til Amsterdam
28.12. - 2.1. (5 NÆTUR)
Dvalið á Grand Hótel Krasnapolski, 4 stjömu hóteli í hjarta Amsterdam.
Verð í 2ja manna herbergi með morgunverði kr.
27.000,-
Verð í 1 manns herbergi með morgunverði kr.
32.400.-
lutningur til og frá flugvelli innifalinn. *
lygvtfíia'skatti^f^ki innifalii^. q
o 'hr «
E| FERÐA..
Í!l MIÐSTOÐIIM Ctodctit Tcauet ■$%>
+ q c.mi oo-ioo i
Aöalstræti 9 - Sími 28133.