Morgunblaðið - 06.11.1988, Side 18

Morgunblaðið - 06.11.1988, Side 18
18 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988 ■ tvö ár hefur óháð rann- sóknamefnd undir forsæti Anthony Cowgills hershöfðingja rannsakað þessar ásakanir og nú lokið starfi sínu og hreinsað Macmillan af sök. Nefndin segir að „enginn annar brezkur forsætisráðherra hafí sætt eins þungum ásökun- um“, vísar þeim alger- lega á bug og kveðst mm hafa haft upp á mikil- HKINvð|A vægum skjölum, þar sem fullyrt var að ertir Guðm hann hefði eyðilagt eða stungið undir stól til að leyna ábyrgð sinni. Tolstoj stendur hins vegar fast við fullyrðingar sínar, en vili ekkert annað segja um álit nefndarinnar. Umræddir atburðir gerðust á brezka hemámssvæðinu í Aust- urríki, þegar Macmillan var sér- stakur fulltrúi stjómar sinnar á Miðjarðarhafssvæðinu og tengiliður hennar og Miðjarðarhers Banda- manna á Italíu, sem var undir for- ystu Alexanders marskálks. í lok stríðsins fékk Macmillan einnig málefni Mið-Evrópu til meðferðar, en hann kom að aðeins lítillega við sögu rússnesku og júgóslavnesku fanganna og hafði engan þátt átt í að móta þá stefnu, sem leiddi til framsals þeirra. Tolstoj segir hins vegar í bók sinni: „Sönnunargögn gefa til kynna að Harold Macmillan hafí blekkt ríkisstjóm sína og vin sinn, Alex- ander marskálk, með hjálp eins manns eða tveggja, og jafnvel her- menn þá sem fengu þetta hræðilega verkefni." „Enn er alit á huldu um hvað vakti fyrir Macmillan," skrifaði Tolstoj. „Fitlað hefur verið við skjöl, önnur skjöl hafa verið eyðilögð og í 40 ár hefur verið reynt að hylma yfír þetta mál af ótrúlega mikilli hugvitssemi... Astæðumar fyrir gerðum Macmillans í maí 1945 eru þó e.t.v. ekki það sem er ískyggileg- ast, heldur það sem við tók, því að allt bendir til þess að KGB hafi vit- að hvemig í öllu lá allan þann tíma sem hann var landvamaráðherra, utanríkisráðherra og forsætisráð- herra [þ.e. eftir 1951].“ Ófriðarský Aðalatriðin í frásögn Tolstojs eru ekki vefengd. Í maí 1945 stjómaði Charles Keightley hershöfðingi sókn V stórfylkis (corps) Áttunda hers Breta til Klagenfurt, höfuð- staðar Kámten í Suður-Austurríki. Á því svæði var tæp ein milljón manna, sem höfðu flúið yfir landa- mærin frá Balkanskaga á undan Rauða hemum og skæruliðum Tító. Fjöldi annarra flóttamanna reyndi að ryðjast inn í Austurríki, en var stöðvaður. Júgóslavar gerðu kröfu til hluta Kámtens og Tító hafði sent þangað her. Hann beið eftir átyllu til innrás- ar og um tíma leit út fyrir að stríð milli Breta og Júgóslava mundi skella á. Rússar höfðu fjölmennt hemámslið austast í Austurríki og Bretar vildu ekki styggja þá. V brezka stórfylkið, sem var skipað 50.000 mönnum, átti fullt í fangi með að ráða við ástandið. Tæplega 400.000 þýzkir her- menn höfðu flúið inn á svæði V stórfylkisins. Þangað flúðu einnig svokallaðir „Tsétnikar", skæruliðar sem höfðu barizt með serbneska konungssinnanum Draza Mihailovic hershöfðingja, andstæðingi Títós. Slóvenskir „þjóðvarðliðar" og leif- amar af her leppríkis Króata höfðu líka flúið yfír landamærin. Meðal flóttamannanna voru einn- ig 40-50.000 Rússar sem höfðu barizt með nazistum, aðallega fv. stríðsfangar. Þeir voru kallaðir „kósakkamir" og með þeim vom konur og böm. Um 4.000 þossara Rússa höfðu barizt í borgarastríð- inu í Rússlandi 1917-1920 en flúið MACMILLAN: Fær uppreisn æm Halldórsson SÍÐUSTU mánuðina áður en Harold Macmillan, forsætisráöherra Breta 1957-1963, lézt í desember 1986 var hann sakaður um að hafa borið ábyrgð á því að rússneskir og júgóslavneskir andstæðingar kommúnista voru afhentir Stalín og Tító í stríðslok 1945 og teknir af lífi. Hór var um að ræða stríðsfanga, sem voru „fórnarlömb Jalta-samnings" Churchiils, Roosevelts og Stalíns. Því nafni nefnist kunn bók eftir Níkolaj Tolstoj greifa, afkomanda skáldsagnahöfundarins Leos Tolstojs, og ásakanirnar gegn Macmillan komu aðallega fram i annarri bók eftir hann, „Ráðherrann og fjöldamorðin" (The Minister and the Massacres), 1986. OG FJOLDAMORDIN HreinsaÖur af ásökunum um að hafa ofurselt kósakka Stalín til Vestur-Evrópu áður en bolsévík- ar fóm með sigur af hólmi og vom kallaðir „kósakka-leiðtogamir" eða „hvítliðar“. Her Tolbúkhíns sovét- marskálks í Júgóslavíu vissi að gömlu hvítliðamir höfðu leitað hæl- is í Klagenfurt og vildi fá þá fram- selda. Fangar framseldir BOK TOLSTOJS „Þyngstu ásakanir sem brezkur forsætisráðherra hefur orðið fyrir." Til hægri: Tolstoj ber vitni í Demjanjuk-réttarhöldunum, 1987. Samkvæmt Jalta-sammngnum frá 11. febrúar 1945 áttu Bretar að afhenda alla sovézka borgara, sem þeir frelsuðu. Á sama hátt átti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.