Morgunblaðið - 06.11.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
C 31 '
SAMFÉLAGSTÍDINDI
__________ti AFu, 1968
Kápusíða Samfélagstíðinda
Samfélags-
tíðindi
komin út
ÁTTUNDI árgangur Samfé-
lagstíðinda, tímarits þjóðfélags-
fræðinema við Háskóla íslands,
er kominn út. Tímaritið er 197
blaðsíður að stærð og er gefíð
út. í stærra upplagi en áður
Fjórtán manns eiga greinar í
Samfélagstíðindum, bæði kenn-
arar og nemendur í þjóðfélags-
fræðum, auk fræðimanna í fé-
lagsvisindum.
Efni Samfélagstíðinda er fjöl-
breytt, allt frá greinum um
kvennarannsóknir til félagsvís-
indalegra hugleiðinga um breska
njósnarann James Bond. Fimm
erindi frá námsstefnu um frelsið
eru birt í tímaritinu og greinar um
sjálfstæði Háskólans í kjölfar
deilna um veitingu lektorsstöðu á
nýliðnu sumri. Myndskreytingar
eru eftir Tómas Bjamason og fleiri.
Samfélagið fæst keypt hjá Bók-
sölu stúdenta og kostar 1000 krón-
ur. Einnig er hægt að gerast
áskrifandi að tímaritinu.
Hagþenkir:
20 höfundar
fengu bætur
Hagþenkir, félag höfúnda
fræðirita og kennslugagna,
greiddi á siðasta ári 20 höfúnd-
um skaðabætur vegna tekjutaps
sem þeir urðu fyrir vegna ljós-
ritunar úr verkum þeirra í skól-
um.
Alls greiddi félagið 1 milljón
króna í fyrrgreindar bætur, starfs-
og ferðastyrki.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn hinn 25. október. Meðal álykt-
ana má nefna að skorað var á
stjómvöld að afnema 25% sölu-
skatt af bókum, krafist var sann-
gjamra greiðslna fyrir afnot bóka
í opinberum bókasöfnum og einnig
þess að launasjóður rithöfunda
verði efldur þannig að stofnuð
verði við hann deild fyrir fræðirit-
höfunda.
Félagsmenn Hagþenkis em nú
180. Formaður var endurkjörinn
Hörður Bergmann.
Yitni vantar
Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði lýsir eftir vitnum að því
er ekið var á kyrrstæða bifreið,
rauðan Daihatsu, við líkams-
ræktarstöðina Hress við Bæjar-
hraun.
Óhappið átti sér stað frá klukkan
17.30 til klukkan 20 að kvöldi
siðastliðins fimmtudags. Tjónvald-
urinn fór af vettvangi án þess að
gera vart um óhappið. Hann eða
vitni eru beðin að hafa samband
við lögregluna.
VINNUFLOTBUNINGURINN
STEARNS IFS 580
• Hentar öllum sjómönnum, rjúpna-
skyttum, snjósleðafólki,
hestamönnum, verktökum
og veitustofnunum.
• Tvöfalt ytra byrði á hnjám og
sitjanda.
• Rennilásar á skálmum.
• Uppblásanlegur höfuðpúði.
• Mikið vasapláss.
• Hetta sem hindrar ekki sjónsvið.
• Þyngd aðeins 2,3 kg.
• Fáanlegur í stærðum frá „XS“
til „XXXL“.
• Viðurkenndur af Strandgæslu USA
til notkunar á heimskautasvæðum.
ÍsAcO:
Kaplahrauni 12, 220 Hafnarfirði Sfmi 54044
^öö^nborfpp
LISTASMIÐ
OG HLJÓMFEGURÐ
H. MAGNUSSONAR j
HRAUNTEIG114 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91-688611 4
>Totem<
VALHUSGOGN
ARMÚLA 8. SIMI 82275. SMIB)UVEGI6.ICOPAVOGI.S:«5670.4*544
Heba heldur vid heilsunni
Vetrarnámskeið II
hefst 5. október
Konur!
Bjóðum upp á þolaukandi (aerob) vaxtarmót-
andi, liðkandi og megrandi leikfimi meö
músík fyrir konur á öllum aldri.
Almennir tímar E1, E2 og K1.
Rólegir tímar, megrunartímar,
tímar.
lokaðir
Síðasta átak í megrun fyrír jól.
Bónus greiðslukerfið endurbætt frá því f fyrra.
Frjáls mæting laugardaga.
íþróttakennararnir Elisabet Hannesdóttir og Kristín
Þórðardóttir kenna.
Innrítun og upplýsingar um flokka í símum
641309 og 42360.
5 dagar - 4 nætur miðvikudag til sunnudags
17.900
18.900
Verð frá kr.
Verð frá kr.
(4 í húsi og bil)
(2 i stúdíó og bíl)
Einnig er möguleiki á öðrum ferðadögum
Ibúðarhúsin í Hostenberg búa yfir hinu rómaða þýska yfir-
bragði, eru rúmgóð, hlý og vistleg. I húsunum er stór dag-
stofa með svölum og arni, nýtísku eldhúsi með öilu tilheyr-
andi, svefnherbergjum (1-3), eftir húsagerö, snyrtiherbergi og
baöi. Einnig er hægt að fá stúdíó og 2-3 herb. ibúðir. Þaðan
er aðeins u.þ.b. 20. mín. akstur til TRIER sem er fjölda Islend-
inga kunn. Þar er að finna frábærar verslanir og hagstætt verð
og ekki skaðar að söluskattur fæst endurgreiddur af þeim varn-
ingi sem ferðamenn flytja úr landinu.
Innifalið í verði er flug Keflavík-Lux-Keflavík, bill í 4 daga með
ótakmörkuðum akstri, kaskótryggingu og söluskatti, hús/íbúð í 4 nætur.
wm fua, bíll oa lúxushi ús
/ HOSTENBERG VIÐ SAARBURG