Morgunblaðið - 06.11.1988, Síða 33
Meiri áhugi erlendis
Leifur Þórarinsson sagðist hik-
laust taka undir það að upphefðin
kæmi að utan en það ætti ekki ein-
göngu við um tónskáld, heldur svo
marga aðra; t.d. skákmenn. „Þetta
er ekki eingöngu vottur um minni-
máttarkennd smáþjóða, heldur ber
einnig á þessu t.d. meðal Banda-
ríkjamanna, sem þurfa helst að
hljóta viðurkenningu í Evrópu. Mín
reynsla er sú að meiri áhugi sé á
íslenskri tónlist víða erlendis en hér
heima.“ Leifur vildi taka það fram
að íslenskir áheyrendur væru alls
ekki neikvæðir gagnvart verkum
íslenskra tónskálda. Viðtökurnar
hefðu gjörbreyst til hins betra á
síðustu árum og bötnuðu enn.
Viðurkenning' breytir
ekki öllu
„Það er engin regla til um hvort
viðurkenning erlendis frá skilar sér
hér heima," sagði Jón Ásgeirsson,
tónskáld og tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins. Hann sagði viður-
kenningu að utan ekki alltaf bæta
viðtökur áhorfenda, um það væru
mýmörg dæmi: Mjög fáir hefðu
sótt tónleika Atla Heimis Sveins-
sonar, sem hlotið hefði alþjóðlega
viðurkenningu á meðan Hjálmar
H. Ragnarsson sem er lítt þekktur
utan landsteinanna, hefði troðfyllt
kaþólsku kirkjuna á kórtónleikum,
sem væru sjaldan vel sóttir.
„Þessi minnimáttarkennd er al-
þjóðlegt fyrirbæri, ekki séríslenskt.
Við íslendingar höfum helst sóst
eftir viðurkenningu hjá frændum
okkar á Norðurlöndum. En upp-
hefðin kemur fyrst hér heima og
spyrst oft út. Því má ekki gleyma
að flest íslensk tónskáld búa við
þau skilyrði að nærri öll þeirra verk
eru flutt opinberlega.“
■ —
og að geta skapað dramatískar per-
sónur og sannfærandi samtöl. Sum-
ir eru frábærir handritahöfund-
ar/leikstjórar en þeir eru yfírleitt
bendlaðir við snilligáfu og heita
nöfnum eins og Bergman, Tarkov-
skí og jafnvel Woody Allen. Enginn
hér hefur verið bendlaður við neina
snilli á þeim slóðum og ekki nema
von. ísland á nánast enga hefð í
bíómyndum. Ef kvikmyndasagan
er mánuður fóru íslendingar að
fást við þær að ráði í seinna kaffínu
í gær.
Því vantar reynslu í gerð kvik-
myndahandrita alveg eins og það
vantar reynslu í gerð bíómynda hér
almennt og sómasamlega aðstöðu
til að framleiða þær. Eitthvað sem
kallast sjálfsögð aðstaða úti í lönd-
um. Þær eru varla mikið meiri en
tuttugu myndimar sem gerðar hafa
verið fyrir kvikmyndahús hér á
helmingi færri árum og það er varla
botnfylli. En menn eru að afla sér
reynslunnar. íslensk kvikmynda-
gerð hefur alltaf staðið á brauð-
fótum en hún er að þreifa sig áfram,
þreifa fyrir sér og er orðin sæmi-
lega og jafnvel mjög tæknilega full-
komin. Við eigum t.d. góða kvik-
myndatökumenn.
En í upphafi er orðið og orðið
er hjá handritshöfundum. Það sem
verður að leggja áherslu á eru góð
handrit; læra um þau, kaupa þau,
stela þeim en umfram allt setja þau
i öndvegi.
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
33 C
DJASS/Hvad þýda geisladiskarfyrir djass-geggjara
Safnarar í netínu
Geisladiskur er lausnarorðíð í
tónlistinni. En það eru til geisla-
diskar og geisladiskar. Sérí lagi er
varasamt þegar fært er yfir af göml-
um hljómplötum eða böndum á diska.
_______________ Sé tækniliðið ekki
vandanum vaxið er
oft betri hljómur á
gömlu skifunum —
í það minnsta sann-
ari. Það þýðir ekk-
ert að færa tónlist-
ina á milli eins og
eftir Vernharð verið sé að taka
Linnet uppá snældu og all-
ar breytingar á upphaflegri hljóð-
mynd verður að framkvæma af
smekkvísi í þeim tilgangi einum að
komast sem næst upprunalegum
hljóm tónlistarinnar. Gott dæmi um
slíkt eru BBC diskarnir með sígildum
djassi sem ástralski tæknimeistarinn
Robert Parker hefur unnið.
Er stafræna tæknin kom til sög-
unnar voru flestar gömlu Blue Note
skífumar endurunnar og fengust
margar þeirra hérlendis í þeim út-
gáfum. Nú eru þær flestar komnar
á geisladisk, en varla er hægt að
ætlast til að djassgeggjaramir, sem
endumýjuðu gömlu gatslitnu Blue
Note skifumar með stafrænum fyrir
nokkmm áram, fari að kaupa þær
að nýju á diski. Þetta vissu markaðs-
stjórarnir og skutu söfnuranum ref
fyrir rass. Þeir bættu áður óútgefnum
verkum við á diskinum og geggjar-
amir sprikluðu í netinu. Ef þú ætlar
að eiga allt sem Dexter Gordon eða
John Coltrane hljóðrituðu fyrir Blue
Note verðurðu að ná
þér í diskinn. Það er
nýtt lag á Dexter Calling og nýtt lag
á Blue Train. Svo var ein helsta perla
djasssögunnar gefin út á diski: So-
mething Else með Cannonball Add-
erley, Miles Davis, Hank Jones, Sam
Jones og Art Blakey. Þar var aukalag
sem hafði aðeins komið út í Japan
áður og það í takmörkuðu upplagi.
Var nokkur goðgá að borga rúman
þúsundkall fyrir lagið. Það held ég
varla, og alls ekki hafi maður átt
gömlu slitnu Blue Note skífuna eina.
Þetta nýja lag var nafnlaust þegar
það var gefíð út í Japan 1982, en
Nat, bróðir Cannonball, hafði þá ný-
lega eignast dóttur og gaf því nafnið
Allison’s Uncle. Ekki er það ýkja
framlegt, ekta bíhopp-lína í anda
Parkers, en einleikskaflamir skíra
gull. Það er ekki ónýtt að fá óheyrð-
an Miles Davis sóló frá 1958 uppí
hendurnar. Það hefur tekist mjög vel
að koma tónlistinni af framböndunum
yfirá þennan disk. Hvert hljóðfæri
nýtur sín betur en fyrr, sérí lagi bass-
inn og tromman. Annað er þó eftir-
tektarverðara þegar hlustað er á
þessar þtjátíu ára gömlu upptökur;
tónlistin hefur ekkert elst. Hún er
jafn kraftmikil, fersk og ilmandi og
þegar hún var hljóðrituð fyrir þtjátíu
áram og miklu nútímalegri en flest
það sem ungu piltarnir eru að gera
nú í hefðbundnum stíl í djassklúbbum
heimsins. Tímalaus snilli — sannköll-
uð klassík.
Á næsta vori verður Gallerí Borg fímm ára.
Sem dæmi um þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram má nefna:
Sala á nýjum og gömlum listaverkum:
í Gallerí Borg eru stöðugt til sölu listaverk eftir marga af helstu
listamönnum þjóðarinnar. f kjallaranum í Pósthússtræti 9
er ávallt upphengi á verkum eldri meistara, auk þess sem
Galleríið heldur 2-3 sérsýningar á verkum þeirra árlega.
Eriend sambönd:
Gallerí Borg er í sambandi við helstu uppboðshús
erlendis svo sem Ame Bruun Rasmussen og Kusthallen
í Kaupmannahöfn og Christys og Sotherbýs í Lx>ndon,
auk Bukowski í Stokkhólmi og Lempertz í Köln.
Fréttabréf:
Gallerí Borg hefur hafið útgáfu á
„Kjallarafréttum“, fjölrituðum blöðum
með upplýsingum um hvaða verk eldri
sem yngri meistara eru til sölu. Auk þess
gefur Galleríið út veglegt fréttabréf,
„Gallerí Borg Fréttir“ sem kemur út
tvisvar á ári í 5.500 eintökum.
Sýningar:
Arlega eru haldnar 12-14 einkasýningar
í sýningarsal Gallerísins í Pósthússtræti 9;
jafnt sýningar á verkum ungs fólks sem
eldri myndlistarmanna. Sýningarsalur-
inn er opinn alla daga vikunnar frá kl.
10-18 og kl. 14-18 um helgar.
Gralíkdeild í Austurstræti 10:
Á 2. hæð í húsnæði Pennans í Austur-
stræti 10 hefur Gallerí Borg til umráða
150 fermetra húsnæði. Par er saman
komið mesta úrval grafíkmynda í
landinu; grafíkmyndir eftir fleiri en 40
myndlistarmenn. Grafíkgalleríið er
opið á almennum verslunartíma.
KeramikdeUd:
í Austurstræti er einnig úrval af
leirmunum. Sú deild verður aukin
og endurbætt í þessum mánuði.
Uppboð:
Árlega gengst Gallerí Borg fyrir 4-5
listmuna- og málverkauppboðum.
Dagana á undan eru verkin sýnd í
sýningarsalnum í Pósthússtræti 9, en
boðin upp á Hótel Borg. Fyrir þá sem
ekki komast á uppboðið höfum við
tekið upp þá þjónustu að taka við
„forboðum“ sem menn skila fyrir
uppboðsdag.
Baltasar sýnir nýja grafík í Pósthússtræti 9
3.-15. nóvember.
Kristján Davíðsson sýnir málverk í
Pósthússtræti 9 17.-19. nóvember.
%
Pósthússtræti 9 og Austurstræti 10 • Sítni 24211
Þekking - Reynsla - Sérhæfing
Sýningar - Uppboð - Endursala
Innrömmun:
Gallerí Borg veitir ráðgjöf varðandi
meðferð og viðgerðir á listaverkum.
Auk þess hefur Galleríið komið á
laggimar innrömmunarverkstæði,
sem nú er orðið eitt hið vandaðasta
sinnar tegundar.
Þetta er Listínn hf., Brautarholti 16.
Myndlistarklúbbur:
Á döfinni er að Gallerí Borg hleypi af
stað myndlistarklúbbi. Nánari útlistun á
starfsemi klúbbsins verður þó að bíða
betri tíma.
Ráðgjöf:
Gallerí Borg veitir einstaklingum,
fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf við
myndaval og uppsetningu á myndum á
heimilum og vinnustöðum.
Mat:
Starfsmenn Gallerísins meta listaverk
fyrir viðskiptamenn þess hvort heldur er
vegna tryggingarmála, erfðamála,
búskipta eða fyrirhugaðrar sölu
verkanna.
Gjafakort:
VUji viðskiptamenn ekki taka ákvörðun
um hvaða verk þeir ætli að gefa vinum
sínum og eða starfsmönnum geta þeir
einfaldlega keypt gjafakort í Galleríinu
sem síðar gildir til kaupa á hvers kyns
verkum bæði í Pósthússtræti og
Austurstræti.
Sérfræöiþekking:
Starfsmenn Gallerísins eru sérhæfðir á
sviði myndlistar. Auk þess höfum við
samráð við listfræðinga utan þess þegar
þörfkrefur.
• . !'-v . .
" • ••-.- ' ' ;