Morgunblaðið - 06.11.1988, Side 39
8331 H3EM3VÖ'/ .9 HU0A<1TJM>IU8 ,GIGAJEMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
3 88
C 39-
Agúst B. Björns
son — Minning
Fæddur 8. september 1922
Dáinn 24. október 1988
Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur
hug þinn. Og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum)
Okkur langar í örfáum orðum
að minnast og kveðja tengdaföður
okkar, Ágúst Bjarna Bjömsson, eða
Bauja eins og hann var yfirleitt
kallaður. Kann lést 24. október sl.
í Landspítalanum eftir mikil og erf-
ið veikindi. Sumarið og haustið voru
honum og konu hans, Unni, erfiður
tími, en hún stóð traust við hlið
hans uns yfír lauk og er missir
hennar mikill.
Hann var fæddur á Neðri-Þverá
í Vestur-Hópi í Húnavatnssýslu 8.
september 1922 og var því 66 ára
er hann lést. Foreldrar hans voru
hjónin Jónína Bjamadóttir og Bjöm
Jakobsson og var hann næst elstur
af sex systkinum. Föður sinn missti
hann ungur, og aðeins 15 ára gam-
all tók hann þá ábyrgð á hendur
að aðstoða móður sína við að halda
heimilinu saman.
Árið 1949 giftist hann eftirlif-
andi konu sinni, Unni Kjartans-
dóttur frá Fremri-Langey á Breiða-
fírði, og eignuðust þau fjóra syni,
Hrein Viðar, f. 17. júlí 1949, Bjöm
Áma, f. 30. júní 1950, Einar, f. 24.
nóvember 1953 og Kjartan, f. 4.
nóvember 1957, og eru bamabörnin
orðin tólf sem öll sjá á eftir góðum
afa, sem afí í Hvassó var.
Okkur, tengdadætmm sínum,
tók hann sérlega vel og var okkur
ávallt tekið opnum örmum á heim-
ili þeirra hjóna í Hvassaleiti 18 og
einnig áttu bamabömin góðar
stundir hjá afa því einstaklega
bamgóður var hann og hafði alltaf
tíma fyrir þau, og þá vom jólin í
Hvassó stór þáttur í lífí okkar.
Ágúst var greiðvikinn maður og
var alltaf tilbúinn að rétta okkur
og öðmm hjálparhönd og nutum
við oft góðs af.
Við kveðjum tengdaföður okkar
með hjartans þökk og söknuði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Tengdadætur
LEGSTEENAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
, HVER
BYÐUR BETUR?
Leiguflug til Skotlands á aðeins 12.000 krónur
Skotferðir hafa náð mjög hagstæðum samningum við British
Midland um beint leiguflug til Edinborgar. Flogið er með nýjum
Boeing-þotum 737-300 og allur aðbúnaður urn borð er fyllilega
sambærilegur við betri farrými alþjóðlegra flugfélaga.
Þægindin sitja ( fyrirrúmi; langt á milli sæta
og matur og drykkur á leiðinni er ókeypis.
Við bjóðum vikuferðir til Skotlands alla sunnudaga,
fyrsta sinn 13. nóvember.
Eftirfarandi þættir eru innifaldir:
Flug til Edinborgar • Akstur milli flugvallar og hótels • Gisting á
fjögurra stjörnu Holiday Inn-hóteli f Edinborg
eða Glasgow • Aðgangskort og ferð í heildsölumarkaðinn
Makro í Glasgow.
AIR
2000
. g « . iviur\i kj i *uiajyuvv.
\\OvLOlfl^ SwÁ Allt þetta fyrir aðeins 22.900 krónur.
Þeir sem vilja, geta valið aðra gistingu, jafnvel enn lengri ferð
eða haldið áfram eitthvað annað og kostar þá flugfarið
aðeins 12.000 krónur.
Falcon
Skotferðir bjóða einnig ferðir á einstaklega hagstæðu verði á ýmsa
áfangastaði frá Skotlandi um víða veröld,
til dæmis til Spánar, eða Ameríku.
Dæmi: Glasgow - Malaga - Glasgow, kr. 8.000,-
Glasgow - Florida - Glasgow, kr. 16.000,-
Það borgar sig að tala við okkur ef þú vilt komast í ferð
til útlanda á hagstæðum kjörum.
TWICKENHAM
HÓPAFSLÁTTUR
80 x 200 cm
90 x 200 cm
90x210 cm
105X200 cm
120X200 cm
160x200 cm
-kr. 15.900.
-kr. 16.400
- kr. 20.500
- kr. 20.800
- kr. 25.650
- kr. 34.100
90x200 cm-kr. 21.700,-
90 x 210 cm - kr. 23.900.-
105X200 cm-kr. 25.850,-
120x200 cm-kr. 30.650,-
160 X 200 cm - kr. 42.800.
90 x 200 cm — kr. 31.900,-
HÖNNUN; • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
E KRISTJAN
TS SIGGEIRSSON HF.
HUSGAGNADEILD
Laugavegi 13-101 Reykjavík - S. 91 -625870
Nokkrar tegundir af höfða-
göfium og tilheyrandi lappir
eða bogar fyrirliggjandi.
GÓÐ DÝNA -
GÓÐ FJÁRFESTING