Morgunblaðið - 06.11.1988, Side 48
48 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1988
BAKÞANKAR
Trabbiá
röngunni
Trunt, trunt, segja tröllin í
Qöllunum og Trabantinn
minn. Ég á heima rétt fyrir
utan bæ og þarf mikið að
keyra og keypti mér
Trabant fyrir ári. En nú
hefúr mér svo mikið verið
strítt og blessuð börnin í
bænum hafa komið það oft
og sparkað í hann og sagt:
hver á þessa
Trabant-druslu, að mig
langar stundum í Kadilakk
sem segja má að sé Trabbi
snúið algjörlega við.
Eg á þrjá hektara lands og lítinn
karltöflugarð og sjö hænsni.
„Uppi“ er ég þess vegna ekki og
um það var ég að hugsa hnugginn
um daginn þegar ég var að taka
______________ kartöflur uppí
pott. Svona sýnist
mér dæmið líta út:
Ég kem heim úr
kartöflugarðinum
og hringi í Sam-
band íslenskra
samvinnufélaga
og panta mér
dimmraddaður
eftir Ólof
Gunnarsson
einn mjallahvítan Kadilakk og segi
í símann að ég eigi þrjá hektara
lands og hafí þess vegna nóg pláss
fyrir bílinn.
Það kemur Kadilakk eins og skot
og straxá eftir rukkun og ég lít á
hana hissa og borga ekki krónu.
Eftir mánuð kemur ítrekun í póstin-
um og þá verð ég grenjandi vondur
og hringi í bæinn og panta annan
Kadilakk. Þar næst fæ ég hótunar-
bréf vegna bílsins og kröfu um inn-
borgun á bfl númer tvö. Ég hringi
í Sambandið og kalla þá kalda að
vera með þessi hortugheit og panta
tvo Kadilakka í viðbót og eina
Chevrolet Monsu. Þeir fara þá að
senda mér reikninga á reikninga
ofan og loks fæ ég hringingu frá
hundfúlum lögfræðingi sem segist
ekki vera í innheimtu sér til
skemmtunar. Ég verð alveg stein-
hissa á öllum þessum látum. En nú
er komið haust í sveitinni og ég er
búinn að taka uppúr garðinum og
vegna þess að ég er í sæmilegu
skapi þá sendi ég þeim einn kart-
öflusekk í bæinn sem greiðslu inn
á skuldina. Þeir verða allhressir
með það og langa lengi heyri ég
ekki neitt. En vegna þess að þeir
hafa ekki þolinmæði endalaust þá
kemur lögfræðingurinn loks í heim-
sókn einn daginn og ég læt hann
hafa annan poka af kartöflum inn
á reikninginn og panta hjá honum
nokkur hundruð bíla í viðbót og
drep eina hænuna mína og rétti
honum hana reitta fyrir dráttar-
vöxtum. Og nú sér hvergi í grasstrá
á mínum þremur hektörum lands
fyrir ljómandi breiðu af bílum.
Bráðum koma blessuð.
Ferðaskrifstofan Útsýn
býður nú þeim sem vilja
nota jólafríið og komast í
sól, yl og ævintýri,
annarsvegar ódýrustu
jólaferðina og hinsvegar
ævintýralegustu jóla-
ferðina í ár.
Styttu skammdegið og
njóttu jólanna í yndislegu
veðri, og fögru umhverfi.
Fyrir þá sem vilja eitthvað öðruvísi.
Mexíkó - Acapulco. Verðfrá kr. 92.100,-
Brottför 20. desember.
í beinu leiguflugi báðar leiðir.
Costa del Sol — verð frá kr. 44.600,
Brottför 17. desember.
Lúxusjól í Acapulco. Þetta er ferðin fyrir þá
sem vilja upplifa einstök jól í hinní heillandi Mexíkó
þar sem mannlífið er ótrúlegt yfir jólahátíðarnar og
veðrið í einu orði sagt frábært.
— 20. desember er lagt af stað til New York.
Flogið frá New York til Mexico City.
- Gist á hinu frábæra Crown Plaza í
Mexico City í 3 daga.
- Komið til Acapulco, eins vinsælasta strandstaðar
heims þann 25. desember og dvalið þará hinu frábæra
Condesa del Mar hóteli til 5. janúar. Hér er frábær
aðstaða til útiveru, gengið er úr garði hótelsins niður á
strönd. Möguleiki á fjölda kynnisferða frá Acapulco.
- 5. janúar, á nýju ári, er haldið áleiðis til íslands með
millilendingu í New York. Möguleiki er á að stoppa í
New York í útleið og heimleið,
Aðeins seld út þessa viku.
18 daga ferð til Spánar þann 17. desember þar sem þú
getur notið hins frábæra veðurfars og útivistaraðstöðu í
stað þess að klofa hnédjúpan snjóinn heima á Fróni. Og
spænsku jólin koma þér skemmtilega á óvart.
- Sérstakur afsláttur fyrir eldri borgara í jólaferðina,
kr. 4000,-
- Kynnisferðir undir öruggri leiðsögn Þórhildar
Þorsteinsdóttur aðalfararstjóra Útsýnar
á Costa del Sol.
- Hitastigið í desember á Costa del Sol er 22-25
gráður.
- Sameiginlegt jólaborðhald og nýju ári fagnað með
pompi og pragt.
- Barnaafsláttur er kr. 15.000,-
AÐRAR JÓLAFERÐIR
Florida 22. des. Örfá sæti laus.
Kanarí 16. des. Uppselt.
fehb.
UTSYN
Ferðaskrifstofan Utsýn hf
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, sími: 91-603060 • Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: 91-26611