Morgunblaðið - 08.01.1989, Side 17
Ingi Björn, nú var það
ákaflega tilviljanakennt
með hvaða hætti þú hófst
afskipti af pólitík. Finnst
þér núna að um heppni
eða slys hafi verið að
ræða?
„Það má kannski líta
á það mismunandi augum, en það
átti sér stað ákveðið slys í Sjálf-
stæðisflokknum sem varð upphaf
alls þessa. Ég hugsa að maður með
jafn takmarkaðan pólitískan bak-
grunn og ég hafí aldrei sest á þing,
því ég kom ekki á nokkum hátt
nálægt pólitík fram til þess að ég
var kjörinn á þing. Þegar Borgara-
flokkurinn var stofnaður þá tók ég
að mér að stilla upp lista fyrir Vest-
urland, sem gekk mjög vel, nema
hvað það reyndist útilokað að fínna
nokkum sem var reiðubúinn til að
skipa fyrsta sætið. Við vorum að
brenna inni með þetta, vegna tímas-
korts, og því var það að ég sættist
á að taka fyrsta sætið.“
Hafði aldrei flutt ræðu
— Gerðir þú þér í hugarlund að
þar með hefðir þú tryggt þér þing-
sæti?
„Nei, alls ekki. Ég hafði reyndar
aldrei flutt ræðu á ævinni, þegar
ég skyndilega skipaði efsta sæti
listans í Vesturlandi. Mér var efst
í huga að reyna að komast óskaddd-
aður út úr þessu, og ég tel mig
hafa gert það.“
— Hafði pólitísk þátttaka aldrei
hvarflað að þér, hvorki fyrr né
síðar?
„Nei, aldrei nokkum tíma. Ég
hafði ekki einusinni stigið fæti
mínum inn á pólitískan fund.“
Albert telur sig alltaf
sjálfstæðismann
— Borgaraflokkurinn er stofn-
aður í kringum einn mann, föður
þinn, Albert Guðmundsson. Én eftir
að Albert ákveður að þiggja París-
arboðið, þá var eins og hann sæi
að hann var að missa tökin á flokkn-
um. Ert þú þeirra skoðunar að svo
hafí verið?
| %
„Það er rétt að flokkurinn er al-
farið stofnaður í kringum Albert,
eftir það sem ég nefndi slys, og vil
nú reyndar nefna stórslys í Sjálf-
stæðisflokknum. Sjálfstæðisflokk-
urinn gerði honum þá lífíð óbæri-
legt og hann varð að yfirgefa þann
flokk, sem hann unni þó hvað mest.
Albert telur sig þó alltaf vera sjálf-
stæðismann. Auðvitað er það svo
Albert sem fleytir okkur öllum inn
á þing, þó við höfum kannski krækt
í einhver oddaatkvæði hér og þar.
Það er alveg ljóst að enginn okkar
hefði farið inn á þing, nema fyrir
tilstilli hans og hans vinsælda.
Hins vegar veit ég ekki hvort það
er rétt að segja að Albert hafi misst
tökin á flokknum. Albert hélt utan
um allt flokksstarfið á meðan hann
var formaður, sem var fullkomlega
eðlilegt, enda eini maðurinn sem
var með einhveija reynslu að ráði.
Það átti sér því sínar eðlilegu skýr-
ingar að Albert væri allt í öllu og
nánast allsráðandi. Það verður nátt-
úrlega breyting á valdastrúktúrnum
í flokknum við það að Albert hætt-
ir formennsku og Júlíus Sólnes tek-
ur við. Það fylgja því mikil völd að
vera formaður og engir tveir menn
eru eins. Því held ég að það sé
eðlilegt að heyra af einhveijum
áherslubreytingum með nýjum
formanni. Jafnframt vonast ég að
sjálfsögðu til þess að þær áherslu-
breytingar komi ekki til með að
þýða stefnubreytingu. “
Menn eiga ekki að standa í
stj órnarmyndunarviðræð-
um í trássi við formann
— Það hefur komið fram í um-
mælum Alberts að hann telji að
ákveðnir þingmenn Borgaraflokks-
ins hafi beinlínis komið í bakið á
sér. Ert þú sömu skoðunar?
„Það er nú erfítt að vera að tjá
sig mikið um það. Óneitanlega leit
málið þannig út, að menn hefðu átt
8Í MORGUNBLAÐIÐ SUNNODAGUR! 8'. JANÖAR >lð89
9Í17
viðræður við stjómarliða, áður en
Albert gaf svarið um að hann tæki
sendiherrastöðuna. Hafí svo verið,
er ekkert óeðlilegt að hann túlki
það á þennan hátt. Auðvitað eiga
menn ekki að standa í hálfgerðum
stjórnarmyndunarviðræðum, í
trássi við formann, og án þess að
hann viti af því eða er hafður með
í ráðum.
— Var þetta einfaldlega þannig
að afbiýðisemi í garð Alberts hafí
gætt meðal annarra þingmanna
Borgaraflokks?
„Ég hef aldrei orðið var við að
þingmenn Borgaraflokksins væru
afbrýðisamir út í Albert. Á hinn
bóginn hef ég orðið var við að þeir
væru Albertjiakklátir og vildu læra
af honum. Eg vísa því einfaldlega
á bug að þingmenn Borgaraflokks-
ins hafí beðið eftir því að koma
höggi á hann.
Sameining kemur ekki
til greina
— Hvað um hugsanlegt samstarf
Borgaraflokks og Sjálfstæðisflokks.
Kæmi ekki til greina að þessir tveir
flokkar myndu stórauka samstarfíð
eða jafnvel sameinast nú?
„Sameining kemur ekki til
greina. Borgaraflokkurinn er flokk-
ekki að fleiri fylgi í kjölfarið.
Varðandi spuminguna hvort ég
gengi til liðs við Sjálfstæðisflokk-
inn, kæmi upp einhver ákveðin
staða í Borgaraflokknum, vil ég
einungis segja þetta: verði einhveij-
um þingmanni gert ólíft í sínum
flokki, þá hlýtur hann að bregðast
við því. En hvemig hann bregst
við, er ómögulegt að segja til um.“
Gæti bara leitað til
Sjálfstæðisflokksins
— En ættir þú í nokkurt hús að
venda nema Sjálfstæðisflokkinn?
„Ef sú staða kæmi upp að ég
yrði að hugsa mér til hreyfíngs, en
ég ítreka að sú staða er ekki fyrir
hendi, þá þarf það ekkert að fara
dult að ég teldi mig ekki geta leitað
annað en tii Sjálfstæðisflokksins."
— Ert þú, eins og Albert, sjálf-
stæðismaður?
„Ég er mjög fylgjandi þeirri
stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn
fylgdi í upphafí. Sjálfstæðisstefnan
er í raun og vem mjög i takt við
mína lífsskoðun og raunar er það
sú stefna sem Borgaraflokkurinn
fylgir að verulegu leyti. Miðað við
það er því hægt að svara játandi."
— Nú hefur þú setið á Alþingi í
hálft annað þing. Ertu búinn að
gera upp hug þinn eftir
þennan skamma feril
hvort þetta er það sem
þú vilt?
„Ég held að það jaðri
við misnotkun á orðinu
ferill að nota það til þess
að lýsa þátttöku minni í
stjómmálum. Ég er í raun
og vem ekki búinn að
átta mig á því hvort þetta
er starf sem á við mig
eða ekki. Ég er alltaf að
læra. Til dæmis tel ég
mig ekki vera búinn að
ná fullum tökum á þing-
störfunum. Ég einsetti
mér það líka strax í upp
hafi að komast inn í þing
mennskuna og læra á hana á svona
tveimur til þremur ámm.“
— Nú hlýtur reynsluleysi að hafa
háð þér þegar þú skyndilega dast
inn á Alþingi. Leitaðir þú ekki mik-
ið til föður þíns, Alberts, og spurð-
ir hann ráða og leiðbeininga, sér-
staklega til að bytja með?
„Nei, ég hef ekki gert það sem
skyldi. Ég sé nú svolítið eftir því
að hafa ekki leitað meira til hans.
Það má líka kenna því um að tíminn
hefur verið mjög naumur. Hann
hefur auðvitað verið mjög upptek-
inn í smu starfi sem formaður og
fleira. Ég hef reynt að sinna mínu
starfi eins og ég hef getað, en þar
sem bakgrunnur minn stjómmála-
lega séð er jafn takmarkaður og
raun ber vitni, hefur þetta allt
reynst mér mun erfíðara og tíma-
frekara. Ég hef þurft að lesa mikið
og einnig hef ég ferðast mjög mik-
ið um Vesturland, m.a. til þess að
tala við fólk og reyna að komast
inn í málin sem allra fyrst. Því má
segja að tíminn sem ég hefði getað
leitað til Alberts hafí verið alltof
naumur, en vissulega hefði ég kos-
ið að læra meira af honum."
Veit ég á stuðning Helenu
— Hvert munu Hulduherinn
frægi og hershöfðingi hans, Helena
Albertsdóttir, beina fylgi sínu, nú
þegar Albert hættir afskiptum af
stjórnmálum?
„Helena hefur flust búferlum til
Bandaríkjanna og hún er ekkert á
leiðinni heim. Auðvitað fylgist hún
með og hefur sínar skoðanir, en hún
er ekki á leiðinni inn í stjórnmála-
baráttuna sem slíka á Islandi —
ekki mér vitanlega, en hennar
stuðning tel ég mig eiga vísan —
veit það reyndar. Hvað Hulduherinn
áhrærir vona ég að hann verði
áfram til og styðji við bakið á þess-
um flokki."
— Ræðst áframhaldandi vera þín
í Borgaraflokknum af því hvort
Júlíus Sólnes gerir tillögu um þig
sem varaformann eða ekki?
„Nei, hún ræðst ekki af því. Það
eru aðrir og stærri hlutir sem eiga
eftir að gerast fram að þeim tíma.
Sameining Borgara-
flokks og Sjálfstæðis'
flokks kemur ekki til
greina.
Borgaraf lokkurinn er
flokkur á landsvísu.
Við gætum með réttu
notað gamalt slagorð
Sjálfstæðisflokksins
„Stétt með stétt.“
ur á landsvísu og eins og margoft
hefur verið sagt er flokkurinn stofn-
aður til frambúðar. Vissulega sækir
Borgaraflokkurinn mikið af fylgi
sínu til fyrrverandi stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokksins, en því verður
ékki á móti mælt, að verulegur
fjöldi stuðningsmanna Borgara-
flokksins er úr þðrum flokkum af
öllum stéttum. Ég gæli því oft við
þá hugmynd að við í Borgara-
flokkknum gætum með réttu notað
gamalt slagorð Sjálfstæðisflokks-
ins: Stétt með stétt.“
— Ef niðurstaðan verður sú, að
ákveðinn hluti Borgaraflokksins
ákveður að ganga til stjómarsam-
starfs við þá flokka sem eru nú í
ríkisstjórn, fínnst þér þá líklegast
að þú munir ganga til liðs við Sjálf-
stæðisflokkinn?
„Ég hef alltaf sagt að stjórnar-
myndunarviðræður komi vel til
greina. Það er ekkert hægt að segja
til um stjórnarsamstarf á þessu
stigi. Fyrst þarf að koma til stjórn-
armyndunarviðræðna, þar sem ný
stefna og nýr málefnasamningur
yrðu til umræðu. Ég tel möguleika
á því að Borgaraflokkurinn færi inn
í slíkt samstarf, ef hann fengi sín
mál í gegn. Til að mynda yrði
skattastefna ríkisstjórnarinnar að
gjörbreytast, ef við ættum að koma
inn í stjórn. Það er ekki nokkur
möguleiki á því að Borgaraflokkur-
inn í heild gengi til samstarfs við
ríkissstjórn sem hefur slíka skatt-
píningarstefnu."
— Er ekki miklu líklegra í stöð-
unni að Borgaraflokkurinn klofni,
þannig að Júlíus Sólnes, Óli Þ.
Guðbjartsson, Aðalheiður Bjam-
freðsdóttir, Guðmundur Ágústsson
og síðar Benedikt Bogason gerist
stuðningsmenn ríkisstjómarinnar,
en þú ásamt Hreggviði Jónssyni
gangir til liðs við Sjálfstæðisflokk-
inn?_
„Ég vona nú að svo verði ekki.
Að vísu bendir nú margt til þess
að einn þingmaður hafí stigið
ákveðið skref í þá átt. Það má segja
að sá þingmaður beri nú þegar vera-
lega ábyrgð á þeirri stefnu sem
ríkisstjórnin fylgir en ég trúi því
Það verður tilnefnt í varaformanns-
embættið á næsta aðalstjórnar-
fundi, sem verður líklega í lok jan-
úar. En áður en það verður þurfa
að liggja fyrir niðurstöður úr við-
ræðum Borgaraflokksins við stjóm-
arliða um nýja stjómarmyndun.
— Hvað um þinn eigin bak-
gmnn. Reynsla þín af knattspymu-
vellinum, kemur hún þér til góða í
pólitíkinni?
„Eins og ég sagði áðan, þá er
minn pólitíski ferill svo skammur
að ég hugsa að það eigi eftir að
koma betur á daginn. Hugsanlega
það sem nýst hefur mér best úr
íþróttalífínu er að starfa með fólki
og vera innan um fólk. í íþróttunum
starfar maður mikið innan um fólk
og ég var einnig mikið í þjálfun þar
sem maður hafði ákveðin manna-
forráð. Ég hygg að þátttaka í íþrótt-
um sé öllum mjög góður skóli og
að foreldrar ættu að beina bömum
sínum í þá átt.“
— Það mætti ætla að þú hefðir
í hyggju að koma þér upp fjöl-
skyldukeppnisliði — sex bama fað-
ir. Hvað gerir það að verkum að
þið hjónin ákveðið að eignast svona
mörg böm?
„Eg held að það sé óhætt að
segja að ég sé bamagæla og sömu
sögu má segja um Magdalenu, konu
mína, en hún er reyndar fóstra að
mennt. Ég er alla vega mjög skot-
inn í bömunum mínum og þau
mættu þess vegna vera fleiri."
— Er þá kannski von á fleirum?
Nei, það er alveg ljóst af því á
hvaða hátt Ingi Bjöm brosir og
hristir höfuðið, að frekari bameign-
ir em ekki á döfinni hjá þeim hjón-
um.
FRÚARLEIKFIMI
Leikfimin hefst eftir jólafrí mánudaginn
9. janúar.
Kennt verður á mánudögum og fimmtudögum.
Upplýsingar veittar í síma 78082.
Aðalheiður Helgadóttir,
íþróttakennari.
Samræmdu prófin!
Tékur þú grunnskólapróf
í vor? Þú vilt auðvitað
standa þig vel. Gerðu þá
eitthvað í málinu strax.
Þú hefur aðeins 4 mán-
uði til stefnu.
Mundu að nám tekur
^ tíma!
Við bjóðum þér núna aðstoð, í litlum hóp
eða einum sér, hjá kennara sem þekkir
námsefnið og prófkröfur upp á sína tíu.
Nemendaþjónustan sf.
skóCi með framhaQiseinkunn
í Mjóddinni (Þangbakka 10, bak við Bíóhöllina) sími
79233 á skrifstofutíma, kl. 15.30-17.30 eða í símsvara
allan sólarhringinn.
Einnig tfmar fyrlr framhaldsskólanemendur á öllum aldri.
xi 52
LEHDSÖGN SF.