Morgunblaðið - 08.01.1989, Síða 24

Morgunblaðið - 08.01.1989, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989 SORPIÐ FLOKKAÐ í REVKJAVÍK Strendur Reykjavíkur hreínsaðar Norðurströndin 1988, suðurströndin 1989 frá sjó og grunnvatnsrennsli þaðan á að vera í lagi. Fjarlægðin frá flokkunarstöð er svipuð og í Amar- holt á Kjalamesi en leggja yrði nýjan og dýran veg. Auk þess sem rekstur yrði erfiðari á vetmm á óbyggðu svæði en í byggð. Vatnsvemdarsvæði og grunnvatn útiloka Þegar valinn er urðunarstaður fyrir sorp hafa margir þættir áhrif á staðarvalið. Markmið sérfræð- ingahópsins var að finna hag- kvæman stað er hafi minnst áhrif á umhverfið, sem almenningur get- ur sætt sig við og falli að öllum reglum og takmörkunum stjórn- valda. Takmarkandi þættir em umhverfíssjónarmið með náttúm- vemd og menningarminjum, gerð jarðvegs- og berggmnns, gmnn- vatnsstreymi og nálægð við vatns- ból og byggð eða svæði sem fyrir- hugað er að byggja meðan nýting fer fram, svo og nálægð við mat- u vælaframleiðslu. Vom niðurstöð- umar flokkaðar og gerð grein fyrir hveijum þætti fyrir sig á sérstökum kortum, sem urðu alls um 40. Með flettifilmum, þar sem hver tak- markandi þáttur kemur fram, em síðan dregnar saman heildamiður- stöður á einu korti. Em flettifilm- umar og kortið mjög aðgengilegt til að átta sig á valkostum. Við þessa vinnu má sjá hve stór svæði em útilokuð. Nálægð við vatnsból takmarkar til dæmis mjög. Vatnsvemdarsvæðið, þaðan sem drykkjarvatn kemur til þéttbýlisins, útilokar þannig alla staði allt frá Reykjavík og upp fyrir Jósepsdal. Enda em þar gljúp hraunlög og engin áhætta verður tekin með drykkjarvatn í neinu sveitarfélagi. Fyrsta skilyrði í umræðunni um staðsetningu urðunarstaða var að gmnnvatn mengaðist ekki og á þeim hluta sem kortið nær yfir er ljóst að hætta á grunnvatnsmengun minnkar eftir þvi sem urðunarstað- ir em nær ströndinni. Gmnnvatns- streymi er annars háð lekt bergs- ins, rýmd þess, vatnshalla og hve mikið vatn berst niður í jarðlögin á hveijum stað. Lekt nútímahrauna •er langt fyrir ofan öll æskileg mörk er gilda fyrir undirlag urðunarstaða og em þau því afleitur kostur. Grá- grýtið er einnig alllekt og víða spmngið. Því ekki heppilegt sem undirlag. En árkvartert berg lekur minnst og þar er líka mest gróður- þekja ofan á. Þarna em þegar þætt- ir sem útloka stóran hluta af Reykjanesskaganum. Nálægð við þekjuefni skiptir líka máli, enda gert ráð fyrir að sorpbaggamir verði vel þaktir jafnóðum. Ekki verður haggað við neinu er varðar friðlönd. náttúmvætti, vatnsvernd og fornminjavemd, en hvað fólkvanga snertir er unnt að óska eftir samningum við viðkom- andi sveitarfélag og náttúmvernd- arráð um breytta landnýtingu. Þá verða urðunarstaðir ekki settir í byggð né þar sem byggt verður á næstu 15-20 ámm og staðsetning nærri matvælaframleiðslu og fisk- eldisfyrirtækjum er einnig útilokuð. Meðal annarra takmarkandi þátta er ríkjandi vindátt, þar sem gera má ráð fyrir einhverri lykt þótt sorp sé baggað og urðað reglulega, en hávaði frá urðunarstöðum verður lítill nema af umferðinni. Ágang frá fuglum og meindýmm á að vera ,hægt að útiloka með fyrmefndum aðferðum. Gert er ráð fyrir að næsti urðun- arstaður endist höfuðborgarsvæð- inu í 15-20 ár, en Krísuvíkursvæðið mundi endast lengur. Við hönnun er gengið út frá 45 þúsund tonnum á ári af húsasorpi og 75 þúsund tonnum af öðm. Stærsti hlutinn eða 67,8 % kemur úr Reykjavík, 10% úr Hafnarfirði, 11% úr Kópavogi og hitt úr minni sveitarfélögunum og er það gmndvöllur þess hvar hagkvæmt er að hafa pökkunar- stöðina. Kostnaðurinn eykst auðvit- að fyrir hvert sveitarfélag eftir því sem aka þarf sorpinu lengra, hvort sem er í móttökustöð eða á urðunar- stað. Núverandi urðunarkostnaður í Gufunesi er um 500 kr. á hvert urðað tonn, en í rekstraráætlun þessarar nýju sorpeyðingar er mið- að við 2.000 kr. á hvert tonn. Greiða sveitarfélögin rekstrar- kostnað með greiðslu fyrir innvegið magn sorps. Tekjur aftur á móti verða hjá því sveitarfélagi sem hýs- ir pökkunarstöð eða urðunarstað, enda koma til gjöld fyrir aðstöðu og sölu á fyllingarefni. Stofnkostn- aður er áætlaður 294,4 milljónir króna á verðlagi 1988. Svo sem fram hefur komið er hér um gífurlega mikilvægt mál að ræða. Úrgangur er stór hluti af til- vem nútímafólks. Allir vilja losna við þennan úrgang á sómasamlegan hátt. Kominn tími til að hætta að láta hann ijúka og fugla himinsins bera hann út um allt. En allir vilja líka vera stikkfrí þegar kemur að því að koma honum fyrir. En þama er helmingur íslensku þjóðarinnar einfaldlega að leysa þann vanda að vera til í nútíma þjóðfélagi. Ögmundur Einarsson með elds- neytiskubb sem framleiddur er úr sagi, spónum og niðurtættum pappír, en tilraunir til að vinna slíka kubba úr sorpinu ganga vel og verða þeir þá nýttir ásamt kurluðu timbri í Járnblendiverk- smiðjunni í stað innflutts timb- Með hraðvaxandi byggð á þessu nesi sem hýsir höfuðborgina hefur óhreinkun á fjörum og sjónum við ströndina farið sívaxandi. Enda holræsi gubbað skolpi út í fjöruborð með allri ströndinni. Áætlanir, sem síðan 1970 hafa verið gerðar í kjöl- far rannsókna, hafa verið svo viða- miklar og dýrar að menn treystu sér ekki til að ráðast í framkvæmd- ir, létu nægja að lengja ofurlítið útrásimar sem fyrir vom. _Nú em að verða mikil umskipti. Á árinu 1986 var samþykkt áætlun um framtíðarlausn Reykjavíkurborgar í fráveitumálum sem miðaði að því losna við óhreinkun strandlengjunn- ar í kringum borgina af völdum holræsaútrásanna. Á árinu sem var að líða hefur mátt sjá tvær dælu- stöðvar teknar í notkun á norður- ströndinni, við Laugalæk og Ing- ólfsgarð, eftir að lagnir vom sam- tengdar, svo kominn er hreinn sjór við Skúlagötu og Sætúnsströnd. Og á nýbyijuðu ári verður hafíst handa við samskonar hreinsun strandlengjunnar að sunnanverðu, við Fossvog og Ægissíðu. í fram- haldi af safnræsunum verða svo útrásir, 3 í allt, leiddar út á nægi- legt dýpi og fer skolpið gegnum. hreinsistöð við upphaf þessara löngu plastlagna. Þetta er geysim- ikið átak, sem á endanlega að verða lokið 1993. í skolpinu em margskonar mengun- arvaldar ásamt veimm og bakter- íum sem óhreinka sjóinn. Þegar skolpið kemur í sjónn lækkar coli- gerlafjöldinn sem notaður er sem mælieining, vegna þynningar þegar það breiðist út í sjónum, vegna botnfellingar við útrásina og vegna þess að bakteríur drepast við að liggja í sjónum. Hér byggir hreins- unin á því að notfæra sér þynn- ingu, botnfellingu og aðra eigin- leika sjávarins til að gera bakterí- urnar óvirkar. Em rásirnar þannig samtengdar og fáar stórar útrásir leiddar á völdum stöðum út í straum og dýpi. Fyrsta stórdælustöðin á Gelgjutanga var vígð og fór í gang sumarið 1985, en hún tekur við af lögnmni út með Elliðavogi. Var Elliðavogur þannig látinn sitja fyr- ir. Er það bráðabirgðaútrás, sem síðar verður flutt og tengd Laugar- nesi. En samkvæmt fyrmefndri áætlun verða áður en upp er staðið 42 útrásir lagðar niður, en í þeirra stað koma 3 hreinsistöðvar ásamt Iöngum plastlögnum frá þeim fram í sjávardýpi, þaðan sem straumar blanda upp skolið og bera burt. Sem fyrr er sagt er að ljúka lögnum og dælustöðvum á norðurströndinni. Heildarkostnaður var áætlaður 600-700 milljónir króna og áformað að veita að meðaltali 70-80 milljón- um króna í þetta árlega. En öllu verkinu skyldi verða lokið 8 árum eftir að hafist var handa eða árið 1993. í ár hefur kostnaður verið um 100 milljónir og á næsta ári áætlað að veita í verkið 50 milljón- um. Á meðfylgjandi korti sést hvemig 42 útrásir fyrir skolp, sem lágu út í ijöruna þegar áætlunin var gerð, hafa horfið og í staðinn að koma 3 hreinsistöðvar með löngum plast- lögnum frá þeim fram í sjávardýpi og strauma. urs. SKILAGJALD A OÞRIFIN Sú meginregla hefur nú víða verið upp tekin að mengunarvaldarnir borgi fyrir mengunina eða réttara sagt fyrir að Qar- lægja eða eyða viðkomandi óþrifum. Það verður nú tekið upp hér á landi í ein- hveijum mæli. Með nýjum sorphirðuað- ferðum á höfiiðborgarsvæðinu er ákveðið að eigendur greiði fyrir eyðingu á hættu- legum efnum. Nýupptekin greiðsla fyrir plastpoka í verslunum miðar að því að draga úr óhóflegri plastnotkun. Og unnið er að því að selja reglur um skilagjald á málma og ýmiskonar umbúðir. Endurvinnslunefnd sú sem Friðrik Sófus- son skipaði undir fomstu Páls Líndals á vegum iðnaðarráðuneytisins skilaði áliti um einn þátt þessa máls í októbermánuði í formi frumvarpsdraga. Þar er fjallað um skilagjald fyrir brotamálma, þar með talin ökutæki. Verði skattur þá tekinn af bílum sem þegar eru í landinu og síðan gjald af öllum nýjum bílum við tollafgreiðslu. Var talað um 10 þúsund krónur á bíl, að sögn Páls Líndals. Eru svo endurgreiddir 3/4 hlutar gjaldsins þegar farartækinu er lagt óg bílhræinu skil- að. Var talið að út um allt land hefði safnast svo mikið af slíku brotajámi að ekki veitti af fjórðungi skilagjaldsins til að fjarlægjaþað. Endurvinnslunefndin ákvað að taka málin fyrir í áföngum og er nú að vinna að tillögum um skilagjald á umbúðir um drykkjarvörur. Koma þar fyrst til álumbúðir, sem er einfald- ast úrlausnar þar sem áldósir má endurvinna, en einnig plast- og pappaumbúðir. Vefst úr- lausn á pappaumbúðunum einkum fyrir nefndinni, enda koma þar einnig til mjólku- rumbúðirnar. En allar eru umbúðimar meng- unarvaldar og þetta miðar að hreinsun lands- ins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.