Morgunblaðið - 08.01.1989, Qupperneq 25
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Staða starfemanna-
stjóra
AUGLÝST er staða starfsmannastjóra hjá stóru fyrirtæki í
Reykjavík. Helstu verkefni starfsmannastjórans eru mannar-
áðningar, launaútreikningar, túlkun kjarsamninga, ýmis
samskipti við starfsfólk ásamt að hafa umsjón með stefnu
fyrirtækisins. Leitað er eftir einstaklingi sem er 25-40 ára
og hefur háskólamenntun og/eða reynsu af starfsmannamál-
um.
Starfefólk í hlutastörf
Hagvangur auglýsir í dag m.a. eftir fólki í hutastörf. Er hér
um að ræða afgreiðslumann í gjafavöruverslun, vinutími frá
kl. 9-13. Ritarastarf í framleiðslufyrirtæki, vinnutími frá kl.
9-13. Innheimtumann í framleiðslufyrirtæki, vinnutími sam-
komulag. Og auglýst er eftir gjaldkera/bókara hugsanlega
í 75% starf til auglýsingastofu. Þá auglýsir Teitur Lárusson,
Starfsmannaþjónusta, eftir fólki í aukavinnu og hlutastörf.
Óskað er eftir „ömmu-liðsinni“, þ.e. starf fyrir eldri mann-
eskjur sem eru tilbúnar að taka að sér að gæta barna í einn
eða tvo daga t.d. vegna veikinda. „Húshjálpar-liðsinni", sem
felst í heimilishjálp nokkra tíma í viku og „sölustfarfa-lið-
sinni“, þ.e. sala og kynning ýmiss konar vöru og þjónustu.
RAÐAUGLÝSINGAR
Ýmis námskeið að
heflast
Námsflokkar Reykjavíkur auglýsir innritun í prófadeildir
fyrir vorönn 1989. Er hér um að ræða Aðfararnám, sem
jafngildir námi í 7. og 8. bekk grunnskóla (1. og 2. bekk
gagnfræðaskóla). Fornám, sem jafngildir grunnskólaprófi
og foráfanga á framhaldsskólastigi. Forskóla sjúkraliða eða
heilsugæslubrauta. Viðskiptabraut sem lýkur með almennu
verslulnarprófí og Menntakjarna, sem er framhaldsskólastig.
Innritun er 11. og 12. janúar. Kennsla hefst 16. janúar.
Sjúkraliðaskóli íslands fýrirhugar að halda þriggja mánaða
námskeið í geðheilsufræði, sem hefst í febrúar 1989, ef næg
þátttaka fæst. Alliance Francaise auglýsir 13 vikna vornám-
skeið í frönsku. Innritun hefst mánudaginn 9. janúar, kennsla
hefst mánudaginn 23. janúar. Námskeið um málefni hjóna-
bandsins fer fram í Safnaðarheimili Lágafellssóknar laugar-
daginn 21. janúar. Leiðbeinendur verða Sr. Þorvaldur Karl
Þorvaldsson, Sr. Jón Dalbú Hijóbjartsson og Sr. Birgir Ás-
geirsson. Upplýsingar og skrásetning fer fram i Safnaðar-
heimili Lágafelssóknar frá þriðjudegi til föstudags. Hjá Iðn-
skólanum í Reykjavík verða afhentar stundaskrár mánudag-
inn 9. janúar kl. 8. Kennsla hefst sama dag samkvæmt
stundaskrá. Nemendur í kvöldnámi fá afhentar stundaskrár
kl. 17 og hefst kennsla að lokiknni afhendingu. Stýrimanna-
skólinn í Reykjavík auglýsir, að innritun á vomámskeið í
30 rúmlesta réttindanám sé hafin og standi til 10. janúar.
Öllum er heimil þátttaka. Auk hefðbundins náms fá nemend-
ur 10 klst. leiðbeiningar í Slysavarnaskóla sjómanna.
SMÁAUGLÝSINGAR
Myndakvöld FÍ og
Utivistar
MYNDAKVÖLD F.í. verður miðvikudaginn 11. jan. í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a og hefst kl. 20.30. Á dagskrá verður
fjölbreytt myndaefni. MyndakvöldÚtivistar verður í Fóst-
bræðraheimilinu fimmtudaginn 12. jan. kl. 20.30. Ferðaáætl-
un fyrir 1989 verður kynnt og sýndar myndir sem tengjast
efni hennar. Leifur Jónsson sýnir myndir úr Grænlandsferð
Útivistar.
Myndin er tekin þegar fiskvinnslufólk sat á skólabekk, en eitthvert mesta átak
í endurmenntun hefiir verið hjá fiskvinnslufólki.
Endurmenntun
fer sívaxandi
FRAMBOÐ sí- og endurmenntunar hefur
farið vaxandi hérlendis á sl. 5-10 árum. Á
síðasta áratug varð mikil breyting á fullorð-
infræslu, þar sem öldungadeildimar tóku
til starfa, en þessi áratugur einkennist af
endurmenntun, að sögn Margrétar S.
Björnsdóttur endurmenntunarsljóra Há-
skóla íslands. Fræðsla þessi er að mestu
leyti í formi styttri námskeiða, þ.e. 10-30
tíma námskeið og eru þau einkum ætluð
ákveðnum starfshópum, t.d. háskólamennt-
uðu fólki. Hins vegar eru líka haldin almenn
námskeið svo sem tölvunámskeið ogtungu-
málanámskeið.
Háskóli íslands og Bandalag
háskólamanna bjóða námskeið
í tilteknum greinum, Kennarahá-
skóli íslands er með endurmenntun
fyrir grunnskólakennara. Þá eru
félög iðnaðarmanna í vaxandi mæli
farin að halda námskeið fyrir fé-
lagsmenn sína og eru rafiðnaðar-
menn lengst komnir í þeim málum,
en þeir hafa sett á laggimar Rafíðn-
aðarskólann. Hafa þeir haft sam-
vinnu við danska rafiðnaðarmenn
frá 1974 og er nú svo komið, að
hlutfallslega fleiri rafiðnaðarmenn
sækja endurmenntun hér en á hin-
um Norðurlöndunum.
Fræðslumiðstöð iðnaðarins hefur
í samvinnu við Iðntæknistofnun ís-
lands og Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins haldið námskeið
sem eru á sviði byggingar- og
tréiðnaðar, málmiðnaðar, verk-
stjómarfræðslu, rekstrar- og vél-
tækni. 1986 skipulagði Landssam-
band iðnverkafólks í samvinnu við
atvinnurekendur námskeið í hús-
gagna- og matvæla-, veíja- og
umbúðariðnaði. Þá er Trésmíðafé-
lag Reykjavíkur að undirbúa nám-
skeið fýrir sína félagsmenn, sem
mun vera nýjung hjá þeim.
Stjórnunarfélag Islands er lang-
stærsti aðilinn sem heldur símennt-
unamámskeið fyrir skrifstofufólk
og fólk í stjórnunarstöðum. Einnig
hafa þeir í boði tölvunámskeið og
má í því sambandi minna á að ný-
lega sameinuðust Gísli J. Johnsen
hf. og Stjómunarfélagið um tölvu-
fræðslu. Þá em ýmsir tölvuskólar
með námskeið.
Hvað varðar ófaglært verkafólk
vann Starfsmafélagið Sókn braut-
ryðjendastarf á síðata áratug með
því að veita þeim konum launa-
hækkun, sem sóttu námskeið. Á
síðustu ámm hafa önnur félög tek-
ið upp sömu stefnu. Stærsta átakið
í þessum málum mun þó vera nám-
skeið fiskvinnslufólks, sem Sjávar-
útvegsráðuneytið stendur fyrir.
Starfsþjálfun fyrir fatlaða er rek-
in í Hátúni og fullorðinsfræðsla
fyrir þroskahefta er m.a. í Safamýr-
arskóla.
Varðandi kostnað við námskeið
þessi greiðir hið opinbera nær allan
kostnað fýrir ófaglært fólk. í sérfé-
lögunum munu námskeiðin að
mestu leyti vera kostuð af félögum
eða atvinnurekendum. Námskeið á
ftjálsum markaði munu vera kostuð
af atvinnurekendum eða þeim sem
sækir námskeiðið.
Egilsstaðir:
50 á atvinnu-
leysisskrá
Egilsstödum.
UM fimmtiu manns eru nú á at-
vinnuleysisskrá á Egilsstöðum,
þijátíu og fimm konur og fimmt-
án karlar. Aðallega er þetta
verkafólk en Qórar koriur eru
úr verslunarstétt. Þá eru vörubíl-
sljórar að koma inn á atvinnu-
leysisskrá.
*
Astandið er svipað og á sama
tíma í fyrra nema hvað þá
unnu 20 konur hjá pijónastofunni
Dyngju sem varð gjaldþrota á
síðasta ári. Þá er nú heldur meira
um að ungir karlmenn séu atvinnu-
lausir, menn sem sótt hefðu vinrni
annað að öðru jöfnu, en gera það
ekki vegna lokunar frystihúsa.
Björn
Grenivík:
Skólafólkið
drifiðívinnu
Grenivík.
ATVINNA hefúr verið góð á
Grenivík að undanförnu. Aðeins
beitningarfólkið er á atvinnu-
leysisskrá þegar það hefur ekki
verkeftii, að sögn Guðnýjar __ .
Sverrisdóttur sveitarstjóra. í
desember var svo mikið að gera
í frystihúsi Kaldbaks að skóla-
fólkið var drifið til vinnu þegar
skólanum lauk.
Góðar gæftir voru fyrir stóru
bátana tvo sem héðan eru
gerðir út framan af desember.
Minni bátamir fóru lítið á sjó í des-
ember og hafa ekkert farið eftir
áramót. Utlit er fyrir góða atvinnu
fram í febrúar. En þá tekur óvissan
við ef stóru bátarnir fara annað á
vertíð.
Blönduós:
Stöðvun hjá
hjá Særúnu
Blönduósi.
Á bæjarskrifstofunni á
Blönduósi voru 47 skráðir at-
vinnulausir um áramót. Um
helmingurinn er fólk úr ná-
grannabyggðum.
Að sögn Ófeigs Gestssonar bæj-
arstjóra á Blönduósi er skýr
ingin á þessari háu tölu m.a. tíma-
bundin stöðvun í Særúnu hf., en
áður voru 12 á atvinnuleysisskrá.
Vinna hjá Særúnu hefst aftur fljót-
lega eftir helgi. Ófeigur telur
ástandið að öðru leyti svipað og í
fýrra. Ekkí er útlit fyrir frekara
atvinnuleysi
Jón Sig.