Morgunblaðið - 11.01.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.01.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1989 Morgunblaðið/Emilía Frá heimsókn Sinfóníuhljómsveitar íslands í Breiðholtsskóla í gærmorgun. Sinfónían heimsækir skóla Sinfóníuhljómsveit íslands held- ur tónleika í nokkrum skólum á stór-Reykjavíkursvæðinu þessa dagana og hófst þessi „tónleika- för“ Sinfóníuhljómsveitarinnar í gsermorgun með tónleikum í Breiðholtsskóla. Hljómsveitin leikur verk eftir Bizet, Britten og Prokofíev. Hljóm- sveitarstjóri er Anthony Hose frá Bretlandi sem starfað hefur hér- lendis nokkur undanfarin misseri. í dag, miðvikudag, verða tónleikar í íþróttahúsinu í Garðabæ. Á morg- un, fímmtudag, leikur hljómsveitin í Hvassaleitisskóla og á fostudaginn verða tónleikar í Árbæjarskóla. Tónleikamir hefjast allir kl. 10.00. Mj ólkurframleiðsl- an minnkaði um 4 milljónir lítra 1988 INNVEGIN mjólk hjá mjólkursamlögunum var 102,7 milljónir lítra á nýliðnu ári, samkvæmt bráðabirgðatölum Framleiðsluráðs land- búnaðarins. Er það nærri því 4 milljón lítrum minna en árið 1987, þegar framleiðslan var 106,6 milljónir lítra og er samdrátturinn því 3,67%. Til samanburðar má geta þess að árið 1986 var framleiðslan tæplega 110 milljónir lítra og 115,9 milljónir litra 1985, en þá fór innleggið hæst á þessum áratug. Sautján mjólkursamlög eru í landinu og var samdráttur hjá öllum nema tveimur, Húsavík þar sem innleggið jókst um 0,98% og Nes- kaupstað þar sem aukningin var 1,88%. Hlutfallslega mesti sam- drátturinn var hjá tveimur litlum samlögum, Vopnafírði og Djúpa- vogi, rúmlega 15%. Ef aðeins er litið á stærri samlögin kemur í ljós að samdrátturinn var almennt 3—5%, hlutfallslega mestur á Egils- stöðum 6,87%. Mesta framleiðslan er sem áður hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Sel- fossi, 36,8 milljónir lítra, dróst sam- an um 1,5 milljónir lítra eða 3,83%. Innleggið hjá mjólkursamlaginu á Akureyri var 20,3 milljónir lítra, 800 þúsund lítrum minna en í fyrra og munar þar 3,88%. Öllu meiri samdráttur varð hjá þriðja stærsta mjólkurbúinu, í Borgamesi. Þar vom framleiddir 9,4 milljonir lítra, sem er 450 þúsund lítrum minna en í fyrra sem samsvarar 4,51% samdrætti. í Sauðárkrókssamlagið komu 8,2 rmlljónir lítra og 6,2 millj- ónir komu til Húsavíkur. Mesti samdrátturinn var í haust. Síðustu fjóra mánuði ársins var samdrátturinn 4,37%. í desember hafði framleiðslan jafnað sig nokk- uð, þá var samdrátturinn 2,05%. VEÐUR / DAG kl. 12.00: Heimiid: Veðurstofa islands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 11. JANÚAR YFIRLIT í GÆR: Um 400 km vest-suð-vestur af Reykjanesi er 960 mb lægð ó hreyfingu norð-norð-austur og önnur nærri kyrrstæð er á suð-vestanverðu Grænlandshafi. SPÁ: Sunnan og suðvestan-átt stinningskaldi norð-austan allhvass með óljum sunnan- og vestanlands, en hægari og úrkomulaust í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG: Suð-vestanátt og hiti um eða rétt und- ir frostmarki. Él á suðvestanverðu landinu en bjart veður á Norð- ur- og Austurlandi. HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustan-átt með snjókomu eða slyddu um allt land en snýst síðdegis í suðvestan-átt með slydduéljum sunnantil. Hiti 0-4 stig. TÁKN: O Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Alskýjað a. Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / r / / Rigning r r r * / * r * / * Slydda f * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■JO Hhastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir * V El — Þoka — Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur [y Þrumuveður VEÐURVÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akurayri Reyfcjavfk hftl +6 +1 veóur alskýjað snjókoma Bergan 3 haglól Helslnkl 3 lóttskýjað Kaupmannah. 7 skýjað Narsearssuaq +2 skýjað Nuuk +1 snjókoma Osló 6 léttakýjað Stokkhólmur 3 lóttskýjað Þórshðfn 2 skýjað Algsrve 16 tkýjað Amsterdam 8 skýjaö Barcelona 13 mlstur Berlfn 8 súld Chlcago +1 snjóól Feneyjar 0 þoka Frankfurt 8 rignlng Glasgow 6 skur Hamborg 7 rigning Las Palmaa 20 skýjað London 8 skýjað Loe Angeles 8 heiðskfrt Lúxemborg 6 rignlng Madrfd 7 mistur Malaga 14 súld Mallorca 16 skýjað Montreal +10 skýjað New York +1 alskýjað Orlando 16 akýjað Parfs 7 alskýjað Róm 9 þokumóða San Dfego 6 helðskfrt Vfn 2 þokumóða Washlngton 2 alskýjað Wlnnlpeg +33 hefðskfrt Númerin klippt af 92 óskoðuðum bifreiðum ÞAÐ sem af er árinu hefur umferðardeild lögreglunnar I Reykjavík tekið númeraplötur af 92 bílum, sem ekki höfðu fengið skoðun á síðasta ári. Á sama tíma í fyrra höfðu númer verið tekin af 51 bíl. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar aðstóðaryfírlögreglu- þjóns hefur umferðardeild nú gengi í vinnu við að ná til þeirra bíla sem ekki hafa fengið 1988 skoðun. Eru númeraplötur klipptar af bílunum, þar sem til þeirra næst, og sendar hinni nýstofnuðu Bifreiðaskoðun íslands h/f. Þang- að verða eigendur bílanna nú að leita til að fá plötumar afhentar og bílana skoðaða. Góð loðnuveiði en mikið er um hval LOÐNUVEIÐAR gengu vel í fyrrinótt og í gær, þriðjudag, höfðu 29 skip tilkynnt um veiðar á 22.950 tonnum. A laugardag tilkynntu 26 skip um veiðar á 18.710 tonnum. Mikið er af hnúfubaki á miðun- um og hvalur reif nót Jóns Finnssonar út af Gerpi fyrir skömmu, að sögn Ástráðs Ingvarssonar starfsmanns loðnunefndar. Á sunnu- dag fór Hilmir með 1.300 tonn til Noregs og Grindvíkingur 870 tonn til Skotlands. í gær fór Hákon með 1.000 tonn til Skotlands, Jón Finnsson 1.120 tonn til Færeyja og Pétur Jónsson 1.050 tonn til Noregs. Síðdegis í gær höfðu þessi skip tilkynnt um afla: Guðrún Þorkels- dóttir 720 tonn til Eskifjarðar, Hilmir II 580 til SR Seyðisfírði, Hákon 590 til Skotlands, Erling 650 til SR Raufarhöfn, Huginn 590 til SR Reyðarfírði, Keflvíkingur 530 til Þórshafnar, Helga II 1.000 til SR Seyðisfírði, Jón Finnsson 1.120 til Færeyja, Guðmundur Ólafur 600 óákveðið hvert, Fífíll 640 til SR Raufarhöfn, Sjávarborg 800 til SR Seyðisfírði, Albert 750 til Hafsíld- ar, Dagfari 520 til SR Seyðisfírði, Björg Jónsdóttir 550 til Þórshafn- ar, Kap II 600 til FTVE, Bergur 530 til Tanga Vopnafírði, Sighvatur Bjamason 640 til FIVE, Þórshamar 600 til SR Reyðarfírði, Börkur 1.180 til Krossaness, Sigurður 1.300 til FES, Höfrungur 890 til SR Reyðarfirði, Bjami Ólafsson 1.100 til Hafsíldar, Hólmaborg 1.320 til Eskifjarðar, Beitir 1.230 til SVN Neskaupstað, Þórður Jón- asson 700 til Krossaness, Gullberg 300 til Hafsfldar, Pétur Jónsson 1.050 til Noregs,' Jón Kjartansson 850 til Eskifjarðar og Svanur 600 til SR Seyðisfírði. Á þriðjudag tilkynnti Víkurberg um 580 tonn til Þórshafnar og Húnaröst 610 til Homafjarðar. Á sunnudag tilkynntu þessi skip um afla: Súlan 800 tonn til Krossa- ness, Hilmir 1.300 til Noregs, Víkingur 1.100 til SFA, Björg Jóns- dóttir 510 til SVN Neskaupstað, Börkur 1.070 til SVN Neskaupstað, Jón Kjartansson 900 til Eskifjarð- ar, Grindvíkingur 870 til Skotlands, Guðmundur Olafur 580 til SVN Neskaupstað, Bergur 530 til SR Reyðarfírði og Dagfari 500 til SR Seyðisfirði. Á laugardag tilkynntu þessi skip um afla: Dagfari 530 tonn til SR Seyðisfírði, Sighvatur Bjamason 1.170 til FIVE, Guðmundur 900 til FES, Huginn 590 til SR Seyðis- fírði, Víkurberg 580 til SR Seyðis- firði, Háberg 650 til F&L Grindavík, Guðrún Þorkelsdóttir 720 til Eski- íjarðar, Hákon 900 til Hafsfldar, Sunnuberg 650 til F&L Grindavík, Hólmaborg 1.370 til Eskifjarðar, Beitir 800 til SVN Neskaupstað, Sigurður 1.000 til FES, Þórshamar 450 til SVN Neskaupstað, Fífíll 500 til Tanga Vopnafírði, Hilmir II 590 til SVN Neskaupstað, Erling 600 til SR Seyðisfirði, Keflvíkingur 530 til SR Seyðisfirði, Jón Finnsson 1.120 til SR Seyðisfirði, Gullberg 450 til Hafsfldar, Sjávarborg 720 til SVN Neskaupstað, Harpa 580 til SR Reyðarfirði, Helga II 1.000 til Hafsíldar, Albert 700 til SR Seyðisfírði, Höfrungur 670 til SR Reyðarfírði, Pétur Jónsson 850 til SR Seyðisfirði og Húnaröst 620 til Þórshafnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.