Morgunblaðið - 11.01.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.01.1989, Blaðsíða 35
ftf'J fi1/ j..!; ;I:{Ujt-r.íFf2-lM (í lí V.f 1 í- íIJti MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1989 35 Það var sami svipurinn á honum þama í kirkjunni eins og þegar hann stóð í skóladyrunum í Keflavík forðum. Sólin ljómaði í augum hans, brosið bjarta og heiða var máski ennþá hreinna og tærara á þessari stundu. Það fór ekki á milli mála: Þarna skinu ipér geislar frá biðj- andi föðurhjarta. Bömum, tengdabörnum, bama- bömum og öðmm ástvinum Skúla Oddleifssonar sendum við hjónin okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim öllum blessunar Guðs, giftu og farsældar á fram- tíðarvegi. Skúli Oddleifsson verður jarð- sunginn frá Keflavíkurkirkju í dag kl. 14.00. Björn Jónsson Akranesi. Afi okkar, Skúli Oddleifsson, er látinn. Á hugann leita minningar um afa eins og við þekktum hann best, afa sem var heill heilsu og við litlar afastelpur í heimsókn í Keflós. Hver heimsókn var hátíð í okkar hugum. Þegar við fengum að gista á Vallargötunni var svo spennandi að mæta í morgunkaffið til afa, sem alltaf var fyrstur á fætur, en þá fengum við að bragða kaffi í fyrsta sinn, og afi gaf sér góðan tíma til að ræða við okkur. Skúli afi fæddist í Langholtskoti, Hrunamannahreppi 10. júní 1900. Foreldrar hans vom Helga Skúla- dóttir og Oddleifur Jónsson bóndi. Afi þótti vel greindur og kennarar . og prestur hvöttu hann til frekara náms en engin tök vom á því. En hann las alltaf mikið og var fróð- leiksfús. Afi kvæntist Sigríði Ágústsdóttur 25. júní 1927. Amma var dóttir Móeiðar Skúladóttur og Ágústs Helgasonar í Birtingaholti í Hreppum. Afi og amma fluttu til Keflavíkur 1931 með pabba okkar, elsta bam þeirra. Afi vann fyrst sem landmaður við báta og síðan í mörg ár í Dráttarbraut Keflavíkur. Hann gerðist umsjónarmaður Bamaskóla Keflavíkur 1952 og vann þar til ársins 1979, þá að verða áttræður. Afi þótti afbragðs verkmaður. í tilefni sextugsafmælis hans var þetta m.a. ritað í tímaritið Faxa: „Skúli er greindur vel, vörpulegur á velii og þrekmaður, víkingur til vinnu, enda lagt á margt gjörva hönd.“ Einnig stendur: „Aldrei virt- ist hann flýta sér en hreyfingar hans vora ömggar og ekkert hand- bragð var um of, og svo leikinn var hann og afkastamikill við flatning- una, að fáum þýddi þar við hann að keppa. En það var ekki aðeins við flatninguna, sem Skúli sýndi viss og ömgg handbrögð, hinni sömu leikni hafði hann náð við beitninguna, þar var hann alltaf fyrstur, þó oft væri um það keppt.“ Eftir að við lesum þetta skiljum við betur, þegar hann eftir veikindi og slys á hinum efri ámm lét mátt- leysi og minnkandi kraft tmfla ró sína. Afi var bókhneigður og mjög ljóðelskur. Hann gerði margar góð- ar vísur og stökur og stóð m.a. fyrir keppni á því sviði í skólanum. Þegar við bjuggum í Bandaríkjun- um sendi hann okkur út vísur ortar af ýmsu tilefni. Áfi og amma vom okkur bömun- um yndislega góð. Við minnumst þess þegar þau fylltu þvottabala af snjó og leyfðu okkur að leika með inni í eldhúsi. Uppi í hjónarúmi lágum við og amma las t.d. allar Öddubækumar. Við fengum aura fyrir kandís og iðulega var ein- hvetju laumað að okkur eftir búðar- ferð og fannst foreldrum okkar og frænkum oft nóg um! Afi var mik- ill höfðingi í samskiptum sínum við böm sín, tengdabörn og bamaböm. Hann fylgdist vel með fjölskyldunni og þegar barnabömin bættu við tengdabömum og bömum þá var fylgst svo vel með þeim líka að ótrúlegt þykir. Amma dó snögglega 16. nóvem- ber 1961. Afí saknaði hennar ætíð. Eftir lát hennar bjó afí áfram í húsi þeirra á Vallargötu 19. Fyrstu árin hélt Ragnheiður yngsta dóttir- in heimili fyrir hann ásamt fjöl- skyldu sinni. Systumar Móeiður og Ragnheiður og fjölskyldur þeirra hafa annast afa og stutt af mikilli umhvereiu oc væntumbvkiu. bæði meðan hann bjó á Vallargötunni og líka eftir að hann fluttist að Garðvangi. Afí var öruggur í trú sinni. Á sunnudögum átti að ríkja þögn meðan á útvarpsmessunni stóð og hann fletti upp í sálmabókinni og las með. Hann kunni mikið af sálm- um og þegar hann lá banaleguna mátti heyra hann fara með brot úr Passíusálmunum. Undir lokin þráði hann hvfldina enda viss um hvað tæki við. Hann var ákveðinn og hiklaus í trúnni, vissi hverjum var best að treysta. Afí var líka ákveð- inn í lífi sínu og sýndi með fordæmi frekar en orðgnótt hvað hann taldi farsælast í lífinu. Við systurnar þökkum fyrir stundirnar með afa. Bróðir okkar og fjölskyldur minnast hans sömu- leiðis með þakklæti. Algóður Guð blessi hann og varðveiti. Guðrún Ebba og Sigríður Ólafsdætur. Ég man það sem bam, að ég margsinnis lá og mændi út í þegjandi geiminn, og enn get ég verið að spyija og spá, hvar sporin mín liggi yfir heiminn; en hvar sem þau verða, mun hugurinn minn við hlið þína margsinnis standa, og vel getur verið í síðasta sinn ég sofni við faðm þinn í anda. (Þ.E.) Mér er ljúft að minnast Skúla tengdaföður míns og þakka honum góða samfylgd. Frá því fyrst fund- um okkar bar saman hefur hann reynst traustur vinur og hlýr. Ekki var það eðli hans að bera tilfinning- ar sínar á torg en þeir sem þekktu hann gátu ekki velkst í vafa um hver afstaða hans var í hveiju máli — það er gott að eiga sam- neyti við mann sem ekki á til tvískinnung í sínu eðli, en ætíð kem- ur til dyranna eins og hann er klæddur. Æviferil Skúla mun ég ekki rekja en ekki er hægt að minnast hans án þess að upp komi mynd hans traustu konu, Sigríðar Ágústsdótt- ur, sem var hans besti vinur og trúnaðarmaður. Á heimili þeirra ríkti ætíð sam- vinna og einlæg gleði þá við sóttum þau heim. Þau vom aldamótaböm og var hún alla tíð húsmóðirin heima — en á stómm stundum og hátíðum þegar fjölskyldan kom saman var það honum eðlislægt að létta undir með konu sinni og stytta henni dvölina í eldhúsi við þjónustu- verkin. Hann var fyrsti maður af þeirri kynslóð sem ég varð vitni að við uppþvottinn. Skúli var mikill bókamaður og mynd hans með bók í hönd í húsi sínu á Vallargötu 19 verður skýr í minningunni og ekki dugði honum ágætur bókakostur heimilisins held- ur var hann fastur viðskiptavinur bókasafnsins. Bæði áttu þau uppmna sinn í sömu sveit í Hrunamannahreppi og þangað leitaði hugur þeirra jafnan — skáld æsku þeirra var auðvitað Þorsteinn Erlingsson en einnig var Skúli vel að sér í ljóðum annarra skálda og átti til að mæla af munni fram Passíusálma Hallgríms. Það var honum þung raun er hann missti konu sína skyndilega langt um aldur fram. Síðan em liðin 27 ár. Engan hef ég þekkt sem var eins heimakær og þó hann kynni vel að meta að gleðjast með sínu fólki þá kom jafnan yfír hann einskonar Kransar, krossar og kistuskreytingar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, ÁKhcimum 74. sími 84200 óþol þá honum þótti nóg og ekki á valdi nokkurs manns að halda aftur af honum — nú varð hann að kom- ast heim. Þessi tilfinning var svo uppmnaleg og sónn að hún minnti á heiðríkjuna í náttúmnni og maður hlaut að beygja sig fyrir því af- dráttarleysi. Síðustu dagar hans vom oft erf- iðir og hann óskaði þess heitt að komast heim — til þess heima sem riáttúran bíður okkur öllum. Ég þakka af alhug þá hlýju og góðu vináttu sem hann gaf mér og mínum. Helga Bachmann Afi minn og félagi, Skúli Odd- leifsson, er Iátinn, áttatíu og átta ára að aldri. í minningu um hann langar mig að skrifa nokkrar línur um samskipti okkar, og hvemig hann reyndist mér. Það fyrsta sem ég man eftir hon- um var þegar hann sótti mig alltaf á dagheimilið. Þá kom hann á hjól- inu sínu og reiddi mig heim. En á leiðinni var lítil torfbær, þar gerði afí alltaf stuttan stans til að leyfa mér að skoða. Þama sátum við tveir og virtum fyrir okkur litla bæinn. Kannski hefur afí verið að hugsa til sinnar eigin bemsku austur í Langholtskoti, þar sem hann byrj- aði sitt líf í torfbæ. Ég man ekki hvað ég var að hugsa þarna fyrir utan garðinn. Kannski um álfa, því afí var vanur að segja mér að það byggju álfar í litla bænum. Þegar ég labba þama framhjá í dag er ég ekki frá því að ég trúi þessu enn. Þessi stutti stans þarna á hverj- um degi var lýsandi fyrir hvernig afi var. Hann var alltaf að gera manni einhvem lítinn greiða, og gleymdi aldrei því sem hann var búinn að segjast ætla að gera. Hann var kannski enginn bama- karl, í þeim skilningi, en hann mundi eftir öllum þessum litlu hlut- um sem hann gat gert fyrir okkur. Sem dæmi um hve gott minni hann hafði, þá var það þannig á heimilinu að ef það var eitthvað sem mátti alls ekki gleymast þá var afí beðinn um að muna það. Ekki minnkuðu svo greiðamir þegar ég komst á táningsaldurinn. Þá var maður oft blankur og fór til afa að slá lán. Hann var alltaf tilbúinn til þess að lána mér pen- ing, og sagðist vera ánægður ef hann gæti hjálpað mér á einhvem hátt. Það var ekki bara við mig sem hann var svona rausnarlegur, hann var svona við alla sína nánustu. En það var eitt að fá lánað hjá afa og annað að fá að borga honum til baka. Yfirleitt var hann tregur til þess að taka við peningunum. Það var ekki fyrr en maður var búinn að sannfæra hann um hve fjár- hagurinn væri góður hjá manni þessa dagana, að hann tók við pen- ingunum aftur. En erfiðast var þeg- ar ég keypti af honum húsið, þá fyrst reyndi á sannfæringakraftinn hjá mér, þegar ég var að koma til hans á elliheimilið með afborganim- ar af húsinu. En það sem að. ég held að eigi eftir að lifa lengst í minningu minni um hann er félagsskapurinn sem hann veitti. Við sátum oft saman í stofunni á Vallargötunni og rædd- um um allt milli himins og jarðar. Við vomm nú ekki sammála um alla hluti, en samt fannst mér við hugsa nokkuð svipað, þó það væri sextíu og þriggja ára aldursmunur. Pólitík ræddum við frekar lítið. Afí hafði alla tíð fylgt sama flokkn- um frá því hann var stofnaður, að ég held. Ég veit nú ekki hversu heitur hann var í pólitíkinni, en hann reyndi allavega aldrei að hafa áhrif á mig. Enda held ég að hann hafí viljað að hver og einn fylgdi sinni eigin sannfæringu í þeim efn- um sem öðmm. Hann gerði oft góðlátlegt grín að stjórnmálamönn- um, sérstaklega ef þeir höfðu jgert eitthvað heimskulegt, og það var nú frekar oft að okkar beggja mati. Sam þótti mér hann stundum vera einum of umburðarlyndur við eigin flokk, en það var nú kannski skiljan- legt. Núna seinni árin var hann hætt- ur að geta verið heima, þannig að hann flutti á elliheimilið Garðvang í Garði. Ég reyndi að komast sem oftast til hans þegar ég átti frí. Þá röbbuðum við saman eins og við höfðum gert á Vallargötunni. Þó hann væri orðinn gamall og lúinn, var alltaf gaman að tala við hann, hann var hress í anda og kímnin á réttum stað. Nú fylgjum við þessum aldna manni til grafar með söknuði, en getum glaðst hans vegna, því við vitum að það verður tekið vel á móti honum hinumegin. Sigurður Sævarsson Leiðrétting í blaðinu á laugardag birtist minningargrein um Jónínu Þor- leifsdóttur frá Ólafsfirði. Þau mistök urðu að nafn hennar misrit- aðist í fyrirsögn og stóð Jóhanna. Er beðist afsökunar á mistökunum um leið og leiðrétt em. t Þökkum af alúð öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og vinsemd við andlát og útför HELGU SIGURBORGAR BJARNADÓTTUR, Stífluseli 6. Haraldur Gfalason, Sigrfður Einarsdóttir, Þorstelnn Björnsson, Guðlaugur Einarsson, Bryndfs Aðalsteinsdóttir, Bjarni Einarsson, Una Jóhannesdóttir, Kristinn Einarsson, Ólfna Gunnlaugsdóttir, Guðbrandur Einarsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KAROLÍNU PÁLSDÓTTUR, Borgarholtsbraut 45. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis aldraðra, Sunnuhlíð. Elfn Jónsdóttir, Lárus P. Ragnarsson, Sigrún K. Ragnarsdóttir, Halldóra B. Ragnarsdóttir, Ásdfs L. Ragnarsdóttir, og barnabarnabörn. Ragnar Lárusson, Karlotta Aðalsteinsdóttir, Haraldur Gunnarsson, ÞórðurMagnússon, Sigurður Adoifsson Stjórnunarfélag íslands Ananaustum 15 Simi 6210 66 Jk LÍTILL TÍMIFER íLEIT EFHVERTSKJAL ERÁ SÍNUMSTAÐ skjalavistun SÍMl EFNI: • Skipulagning og upp- setning skjalasafna • Daglegt viðhald • Notkuntölvu. LEIÐBEINANDI: Vigdís Jónsdóttir, skjalavörður. 621066 TÍMI OG STAÐUR: 16.-17. janúar kl. 8.30-12.30 í Ánanaustum 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.