Morgunblaðið - 11.01.1989, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.01.1989, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1989 31 Hverfisgata 4-62 Skólavörðustígur AUSTURBÆR Stigahlíð 49-97 fór að tapa sjón og var alblind síðustu árin. Það var þung raun bókelskri konu. Þrátt fyrir háan aldur hélt hún andlegri heilsu sinni vel allt til æviloka, fylgdist vel með sínum stóra afkomendahóp, og var óþreytandi að biðja honum alls velfarnaðar. Búrfell, Göltur og Hádegishom heilsa á ný góðum granna. í þeim fjallafaðmi er þreyttum vegfar- anda hvíldin góð. Nú er hvítt yfir að líta í Súg- andafirði. Gróðurinn og blómin, sem hún unni svo mjög, blunda. En góð er sú vissa, að að vori grænkar og lifnar allt á ný. Þá mun reynirinn góði aftur laufgast og blómgast fagur minnisvarði um alþýðukonu, sem gaf afkomendum. sínum og landi allt. Sé hún blessuð. Guðvarður Kjartansson því auk fjölskyldunnar átti þar heimili bróðir ömmu, sem var þroskaheftur og fleira fólk. Þó var heimilið frekar veitandi en þiggj- andi í sínu samfélagi. Kom þar hvort tveggja til, að húsbóndinn stundaði ekki aðeins búskapinn, heldur dró hann og margan fisk úr sjó, og oft kom haglabyssan sér vel, að ná í fugl eða sel, sem og dugnaður og búhyggindi ömmu. Og það ríkti glaðværð í Kveðjuorð: Albertína Jóhann- esdóttirfrá Botni Fædd 19. september 1893 Dáin 2. janúar 1989 Kveðja til ömmu frá dóttursyni. Lokið er langri og gifturíkri starfsævi. I dag er kvödd hinstu kveðju í Suðureyrarkirkju við Súg- andafjörð, elskuð móðir, tengda- móðir,' amma, langamma og langalangamma Albertína Jó- hannesdóttir áður húsfreyja að Botni í Súgandafirði. I þessum firði ól hún allan sinn aldur, nema síðustu árin. Þá vistaðist hún á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði vegna mikillar vanheilsu Hún fæddist á Kvíanesi þann 19. september 1893, dóttir hjón- anna Jóhannesar Guðmundssonar og Guðrúnar Jónsdóttur er þar bjuggu. Þann 25. október giftist hún Guðna J. Þorleifssyni frá Norðureyri í Súgandafirði. Tóku þau við búi að Kvíanesi og þar fæddust eldri bömin. Einhveija orsakir lágu til þess, að þau urðu að fljdja frá Kvíanesi árið 1927. Oftar en einu sinni sagði amma mér, að það hefðu verið sér þung spor er hún gekk frá Kvíanesi, teymandi kusu sína annarri hendi, en leiðandi yngsta bamið við hina. Leiðin lá að Botni. En þó þungt hafi verið í huga á þeim degi, er hitt jafn ljóst, að í Botni búnaðist þeim hjónum vel. Bamahópurinn stækkaði, óx og dafnaði. Alls urðu bömin ellefu. Þó urðu þau fýrir þeirri sorg, að missa yngsta bamið, Sólveigu Dalrósu, aðeins fimm ára að aldri. Þá gróðursetti amma reyninn fagra, sem enn er höfuðprýði garðsins kringum Botnsbæinn, garðsins sem hún átti ófáar yndis- stundir við að rækta og prýða. Einig misstu þau elsta bamið, son- inn Sigurð, sem fórst á miðjum aldri með togaranum Júlí á Ný- fundnalandsmiðum. Heimilið í Botni var fjölmennt, Botnsbænum, bömin frísk og táp- mikil, og þar vom bundnar fjöl- skyldutryggðir, sem vel hafa stað- ist tímans tönn. Arið 1945 hættu þau hjónin fastri búsetu í Botni, og áttu upp frá því heimili hjá syni sínUm Guðmundi Amaldi á Suðureyri. Enn dugar Botnsbær- inn þó vel sem samkomustaður fjölskyldunnar. Það er ekki sumar nema komið sé í Botn. Ekki var það minnst ánægja við búskapinn í Botni, að eiga þar góðum grönnum að mæta. Með fólkinu á Botnsbæjunum tókst góð vinátta. Fyrir það skal þakkað hér, bæði þeim sem gengnir em, svo og hinum sem eftir lifa og enn yrkja jörðina. Afi lést árið 1970 og hafði þá átt við mikla vanheilsu að stríða um árabil. Amma hafði góða heilsu þar til fyrir um átta ámm, að hún NÝR BMW fyrir 835 þúsund *verö frá þvi fyrir tollabreytingu aö viöbœttu gjaldi fyrir ryövörn og skránlngu. Þaö er mikil reynsla aö aka BMW í fyrsta skiptið og lýsa þeim gæöum og þeirri fágun sem einkenna þennan vestur-þýska gæöing. BMW er framleiddur af einum þekktasta og virtasta bifreiðaframleiöanda veraldar, þar sem þaö besta er sjálfsagður hlutur. Útlit BMW segir allt um hiö innra; hönnun- in er óaðfinnanleg, frágangurinn tákn um fullkomnun og vélin dæmi út af fyrir sig. Þessi nýi BMW 316, er góöur fulltrúi fyrir eitt virtasta merki veraldar, BMW. Vélin er 90 hestöfl, 1800 cc meö rafstýrðum blönd- ungi. Sportlegt útlit og aksturseiginleikar sem þeir kröfuhöröu kunna aö meta. Eignist þú BMW, ertu kominn í hóp stoltra eigenda sem vita nákvæmlega hversu góö fjárfesting er í BMW. Nú eru nokkrir BMW 316 og 318i, árgerö 1988 til afgreiðslu strax á veröi sem kemur verulega á óvart. Dæmi um verð: BMW 316, 2ja dyra kostar frá kr. 835 þúsund.* Þetta er síðasta tækifærið til að eignast nýjan BMW árgerð 1988. Haföu samband viö söludeild sem fyrst, því fjöldinn er takmarkaður. Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 9 til 18 og laugardaga frá kl. 13 til 17. Bílaumboðið hf BMW einkaumboð á íslandi Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633 GAMLIBÆRINN Hlaðbexar óskaet

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.