Morgunblaðið - 21.01.1989, Side 1
48 SIÐUR B OG LESBOK
17. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ræða George Bush 41. forseta Bandaríkjanna:
Tími alræðisstjórna er
alls staðar á imdanhaldi
Forsetinn sagði nýja vinda frelsis og framfara blása um heimsbyggðina
Wa.shington, London, Moskvu. Reuter.
George Bush sver William
Rehnquist hæstaréttardóm-
ara embættiseið sem 41. for-
seti Bandaríkjanna. Á milli
þeirra er Barbara Bush for-
setafrú en lengst til hægri
sést Ronald Reagan, fráfar-
andi forseti. Athöfiiin fór
fram á tröppum þinghúss-
ins.
HUNDRUÐ þúsunda manna voru til staðar í Washington er George
Bush sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna um eittleytið í gær
að staðartima. Að lokinni ræðu hins nýja forseta föðmuðu fyrrum
forsetahjón, Ronald og Nancy Reagan, þau Bush og eiginkonu hans,
Barböru, að sér. Síðan stigu Reagan-hjónin upp í þyrlu, sem beið
þeirra skammt frá þinghúsinu þar sem athöfhin fór fram, og héldu
áleiðis til Kalifórníu. Bush bárust heillaóskir frá þjóðarleiðtogum
um allan heim og sagði Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, í bréfi til Bush að gífúrleg reynsla hans yrði „ómetanleg"
fyrir Bandarikin og allan hinn fijálsa heim. Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétleiðtogi sagðist vona að ríkin tvö myndu í sameiningu vinna
að lausn heimsvandamálanna og brýnast væri að útrýma stríðshætt-
unni. I ræðu Bush gætti bjartsýni varðandi heimsmálin en forsetinn
ræddi einnig ýmis vandamál sem mjög brenna á Bandaríkjamönnum,
þ. á m. fátækt og fíkniefhavanda.
Forsetinn hóf ræðu sína með því
að segja að meðal viðstaddra væri
maður sem hefði unnið sér varanleg-
an sess í hjörtum Bandaríkjamanna
og sögu þeirra; Ronald Reagan.
Bush sagðist vilja fyrir hönd þjóðar-
innar þakka Reagan fyrir allt sem
hann hefði gert fyrir Bandaríkin og
var þessum orðum hans ákaft fagn-
að af mannfjöldanum. Eftir að hafa
beðið fólk að sameinast í bæn sagði
forsetinn m.a.:
„ ... Við lifum á tímum friðar og
velmegunar. En við getum bætt um
betur því að nú blása nýir vindar
og heimurinn virðist genginn í end-
umýjun lífdaga sem helgaðir eru
frelsinu. Ef til vill er ekki búið að
hrinda öllum einræðisherrum af
stalli en ljóst er að enginn dáir þá
framar í hjarta sínu.
Tími alræðisins er á undanhaldi —
fomeskjulegar hugmyndir þess
hrynja nú eins og sölnað lauf af
gömlu, lífvana tré. Ferskur vindur
blæs og þjóð sem bergt hefur bikar
frelsisins er nú rejðubúin að láta
hendur standa fram úr ermum.
Bijóta þarf nýtt land og vinna nýjar
dáðir. Stundum virðist okkur fram-
tíðin vera þoku hulin. Við bíðum í
von um að létti til svo að við getum
ratað rétta leið. En nú virðist sem
við getum gengið hindmnarlaust á
braut framtíðarinnar.
Miklar þjóðir halda nú í lýðræðis-
átt á vit frelsis. Karlar og konur um
allan heim láta nú hið fijálsa mark-
aðskerfi vísa sér leiðina til velmeg-
unar.
Alls staðar er barist fyrir tjáning-
arfrelsi og fijálsri hugsun; helstu
vörðum á veginum tii þeirrar and-
legu og siðferðislegu fullnægju sem
aðeins frelsið getur veitt okkur. ..
I fyrsta sinn á þessari öld, e. t. v.
í fyrsta sinn í sögunni, þurfum við
ekki að finna upp nýtt stjómarfyrir-
komulag, þurfum ekki að skeggræða
fram á nótt kosti og ókosti hinna
margvíslegu stjórnkerfa. Við þurfum
ekki að leita réttlætis hjá krýndum
einvöldum. Við þurfum aðeins að
gæta þess sjálf...
Bandaríska þjóðin sýnir aldrei
fyllilega sitt rétta andlit nema hún
beijist fyrir göfugum hugsjónum.
Við eigum í slíkri baráttu nú. Mark-
mið hennar er að mýkja drættina í
ásjónu þjóðfélags okkar og vinna að
bættum heimi.
Vinir mínir, við höfum verk að
vinna. Huga þarf að þeim sem ekk-
ert heimili eiga, þeim sem ráfa um
í reiðileysi. Sum börn skortir allt,
ástúð jafnt sem eðlilega umhirðu ...
Eitt sinn var lausnin talin sú að
beita almannafé til að útrýma öllum
slíkum vandamálum. En við höfum
komist að raun um að svo er ekki
og hvað sem því líður þá eru fjárhag
okkur takmörk sett. Vinna þarf bug
á hallarekstri ríkisins. Vilji okkar er
sterkari en fjárhagurinn en viljann
má að sönnu ekki skorta... '
Á sama hátt og miklir menn verða
miklar þjóðir að standa við orð sín.
Þegar Bandaríkjamenn lýsa skoðun
sinni er það gert af heilum hug —
hvort sem um er að ræða samning
eða eið sem unninn er á marmara-
þrepum.
Sjá enn fremur fréttir á bls. 18.
Reuter
Pólland:
Walesa vill viðræður
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa,
leiðtogi Sam-
stöðu, óháðu
verkalýðsfé-
laganna í Póll-
andi, sagði í
gær, að taka .......
bæri alvarlega ákvörðun stjórn-
valda um að leyfa Samstöðu og
kvaðst mundu beita sér fyrir
samningum.
Kosningar í Sovétríkjunum:
Sakharov valinn frambióðandi
Moskvu. Reuter.
ANDREI Sakharov, sem kunnur er fyrir baráttu sína fyrir auknum
mannréttindum í Sovétríkjunum, var í gær útnefiidur frambjóðandi
í væntanlegum þingkosningum fyrir kjördæmi eitt í Moskvu. Áður
hafði sovéska vísindaakademían hafnað honum og hefúr það vakið
reiði og hneykslan margra.
Starfsmenn Lebedev-eðlisfræði-
stofnunarinnar í Moskvu ákváðu
að útnefna eðlisfræðinginn og frið-
arverðlaunahafann Sakharov sem
frambjóðanda í Oktíjabrskaja-kjör-
dæmi í borginni og fóru leikar
þannig við atkvæðagreiðsluna, að
rúmlega 1.500 voru því samþykkir
en 22 á móti. Á fundinum þar sem
þetta var ákveðið fóru margir hörð-
um orðum um forsætisnefnd
vísindaakademíunnar og tóku undir
með Sakharov, að hún hefði haft
lýðræðið að spotti með því að hafna
honum og 100 mönnum öðrum án
þess að bera það undir félagsmenn.
Stofnanir eins og vísindaaka-
demían geta útnefnt sína eigin
þingmenn og hefur gætt mikillar
óánægju með þann hátt, sem þær
hafa á því. Á vísindaakademían
örugg 25 sæti á þingi en til að
fryggja þá menn, sem forystan
hefur velþóknun á, útnefndi hún
aðeins 23 og lét tvö sæti af hendi.
Segja einnig margir, að sjálf mið-
stjórn kommúnistaflokksins hafi
orðið sér til skammar þegar hún
útnefndi aðeins 100 menn í 100
sæti og sýndi með því, að hún hef-
ur litlar mætur á iýðræðinu. Sjálfur
verður Sakharov að takast á við
tvo eða þrjá aðra frambjóðendur í
kosningunum.
Walesa sagði, að landsnefnd
Samstöðu kæmi saman á sunnu-
dag og ákvæði þá hvort unnt væri
að taka upp viðræður við stjórn-
völd. Sagði hann að tilboðið um
lögleiðingu Samstöðu uppfyllti
ekki óskir almennings en væri þó
mikilvægt skref, sem ekki hefði
verið þrautalaust fyrir kommún-
istaflokkinn. „Ég get ekki talað
fyrir landsnefndina en sjálfur vil
ég leggja mitt af mörkum til að
leysa vandamálin í pólsku sam-
félagi," sagði Walesa.
Kommúnistaflokkurinn vill leyfa
Samstöðu gegn því, að hún taki
höndum saman við stjórnina um
endurreisn efnahagslífsins en nán-
ar á að skera úr um það í viðræð-
um aðilja.
Ákvörðun flokksins hefur vakið
Iitla hrifningu meðal forsvars-
manna opinberu verkalýðsfélag-
anna, sem segjast óttast óróa á
vinnustöðum og viðurkenna, að
líklega muni einhveijir ganga Sam-
stöðu á hönd.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Póllandi segja, að kommúnista-
flokkurinn hafi unnið vissan sigur
á sjálfum sér með ákvörðuninni
en á hana muni þó fyrst reyna í
viðræðunum við Samstöðu.
Bandarísk
Boeing-þota:
Hreyfill
dattaf
Chicago. Reuter.
ANNAR hreyfillinn á þotu
af gerðinni Boeing 737-200 í
eigu Piedmont-félagsins
slitnaði af væng hennar og
féll til jarðar skömmu eftir
flugtak frá O’Hare-flugvell-
inum í Chicago í gær. Tókst
flugmönnunum að lenda þot-
unni aftur án þess að nokk-
um um borð sakaði.
Á fimmtudagskvöld datt
vænghluti af tveggja hreyfla
Boeing 757 þotu Eastern Air-
lines flugfélagsins skömmu eft-
ir flugtak frá Atlanta-flugvelli
og varð hún að lenda strax
aftur á vellinum. Bandarísk
flugmálayfirvöld reyna nú að
finna orsakir þessara óhappa.