Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 12
12 MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21.' JANÚAR 1989 Allt að 80% afsláttur Tískufatnaður • vinnufatnaður • barna- og unglingafatnaður • sængur, koddar • sæng- urverasett •fóðraðir og ófóðraðir jogginggall- ar • barnaúlpur • skíðasamfestingar • metravara • snyrtivörur • skartgripir • gafavara • garn og prjónavörur • gallabuxur • skór • og margt margt fleira. Fjöldi góðra fyrirtækja á aðild að RISAútsölumarkaðnum. Eingöngu vandaðar vörur í boði, á stórlækkuðu verði. Nú er tækifæri, sem seint bíðst aftur, til að gera góð kaup. Allt á að seljast! Við höfum opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12:00 til 18:00 og á laugardögum frá 10:00 til 16:00. RISAÚTSÖLUMARKADURinini Bíldshöfða 10 (þessi með stjörnunni) DVERGSMOFDI VAGNHÖFOI TANGARMOFDI BILDSMOFDI VESTURLANDSVEGUR Náttúruverndarfélag Suðvesturlands: Með eigin augum Frá vetrarsólstöðum hefur Náttúruvemdarfélagið verið að móta starfsemi sína fram á vor en hún mun beinast að því eins og áður, að vekja athygli á ýmsu sem snertir náttúmvemdar- og umhverfísmál á Suðvesturlandi. Hluti af þessari starfsemi hefur þegar litið dagsins ljós í tveim skoðunarferðum sem félagið fór sl. laugardag og sunnudagsmorg- un. Að fenginni reynslu í og eftir þær ferðir hefur stjóm félagsins ákveðið að nefna þennan hluta starfsemi sinnar: „Með eigin aug- um.“ Eins og nafinið bendir til er ætlunin að þátttakendur í því sem félagið stendur að undir þessu kjörorði, fái tækifæri til að kynn- ast á vettvangi málum og málefn- um sem snerta náttúruna og hið manngerða umhverfí. Þá verður bent á hvar nánari upplýsingar og fróðleik er að fínna um það, sem fjallað er hveiju sinni. Stjóm félagsins telur að þátt- taka einstaklinga og fjölskyldna í mótun náttúruvemdar og um- hverfísmála sé nauðsynleg. En til að hlutlægt mat almennings náist þarf breyttar kynninga- og fræðsluaðferðir og aukna aðstoð við einstaklinginn við að tileinka sér það fræðsluefni sem í boði er og vekur athygli hans. Gufunes Vettvangsferð í dag. Náttúruvemdarfélagið fer í dag, laugardag, vettvangsferð upp í Gufunes kl. 13.30. Við Gufunes- bæinn munu fulltrúar frá hreinsun- ardeild borgarinnar útskýra hvemig urðun sorps fer fram, hvað það er sem hennt er á haugana og hvert magnið er. Farin verður örstutt gönguferð til að skýra þetta nánar. Þá verður rætt um hvað er til ráða til að minnka sorpmagnið sem berst til urðunar. En á Suðvesturlandi er verið að endurskipuleggja sorpeyð- ingarmálin. Sorpeyðing, skolphreinsun og lofthreinsun eru ein erfíðustu vandamál nútímans. Vettvangs- ferðin tekur um eina og hálfa klukkustund. Öllum er heimil þátt- taka. Ekkert þátttökugjald. Elliðaárdalur Gönguferð á sunnudagsmorgun. Á morgun, sunnudag, kl. 10.00 ferð Náttúruvemdarfélagið í stutta gönguferð um Elliðaárdal og Elliða- árhólma. Lagt verður af stað í birt- ingu frá Árbæjarsafni og gengin hringferð um dalinn og hólmana. Ferðin tekur um eina og hálfan tíma. Takið bömin með. Ekkert þátttökugjald. Tilgangur ferðarinnar er að kynna hvað þessi skemmtilega gönguleið hefur upp á að bjóða. En auk þess að afla sér fróðleiks um svæðið, munu þátttakendur njóta hressandi og ánægjulegrar útveru og umræðna í hópi sam- ferðamanna. - (Frá NVSV) MYNDAMÓT HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.