Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989 Stjórn Sjóvá - Almennra trygginga hf og framkvæmdastjórar félagsins: Ólafur B. Thors, Benedikt Sveinsson, Hjalti Geir Kristjánsson og Einar Sveinsson. Fyrir aftan þá standa Kristján Loftsson, Teitur Finnbogason, Kristinn Björnsson, Ágúst Fjeldsted og Jóhann G Bergþórsson. VEÐUR / DAG k/. 12.00: Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) I/EÐURHORFUR i DAG, 21. JANÚAR YFIRLIT í GÆR: Yfir Skjálfandaflóa er 988 mb lægð á hreyfingu NA og önnur álfka um 600 km SV af landinu fer NA og síðar A. Yfir N-Grænlandi er 1018 mb hæð. SPÁ: Noröan- og norðaustanátt, kaldi eða stinningskaldi. Él um landið suðvestan-, vestan- og norðvestanvert landið, en úrkoma Iftil annars staðar. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR A SUNNUDAG OQ MÁNUDAQ: Austan- og norðaustan- átt, þurrt vestanlands en éljagangur i öðrum landshlutum. Hiti nálægt frostmarki syðst á landinu en 4—8 stiga frost norðan til. y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / # Slydda / * / # * * * * # * Snjókoma * # # ■j 0 H'rtastig: 10 gráður á Celsius Y Skúrir — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld oo 4 K Mistur Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gœr að ísl. tfma Akureyr) Reykjavtk hltl +1 +1 veður anjókoma snjókoma Bergen 7 rigning Helalnki 3 alskýjað Kaupmannah. 3 alskýjaó Naraaaraauaq +20 helöskfrt Nuuk +11 skýjaö Oaló 7 akýjað Stokkhólmur e skýjað Þórahöfn 2 skýjað Algarve 16 láttskýjað Amsterdam 2 Þokumóða Bareelona 12 léttskýjað Berifn 0 þokumóða Chlcego +1 anjóél Feneyjar 8 {wkamóða Frankfurt 0 súld Qlaagow 11 rignlng Hamborg +1 þokumóða Laa Þalmaa 18 hélfskýjað London 6 mlstur Los Angeles 13 skýjað Lúxemborg 0 1 I Madrfd 8 mlstur Malaga 16 léttakýjað Mallorca 16 mlstur Montreal 0 snjókoma Now York 4 mlstur Oriando 14 heiðskfrt Parfs 6 skýjað Róm 11 þokumóða San Diego 10 alskýjað Vfn +2 hrfmþoka Washlngton 2 alskýjað Wlnnlpeg +24 helðskfrt Samruni Almennra trygginga og Sjóvá staðfestur: Nýja félagið með þriðjung markaðar Á hluthafafundi í SJÓVÁ-ALMENNUM tryggingum hf. I gærdag var samruni félaganna tveggja endanlega staðfestur. Benedikt ur í hinu nýja félagi héldu ræður á ftmdínum. Fmáli Benedikts kom fram að markaðshlutdeild hins nýja félags verður þriðjungur frum- tryggingariðgjalda. Hjalti Geir sagði m.a. að við sameiningarstarfið hafi verið lögð áhersla á að ná fyllstu hagkvæmni án þess að.gleyma mannlega þættinum. í drögum að efnahagsreikningi sem lagður var fram á hluthafa- fundinum kemur fram að eignir hins nýja félags eru rúmir 4 millj- arðar króna. Hlutafé er 174 milljón- ir, annað eigið fé 153 milljónir eða eigið fé alls 327 milljónir króna. Heildarvelta félaganna tveggja á síðasta ári var um 3 milljarðar króna. Starfsmannafjöldi hins nýja félags verður 110._ Framkvæmda- stjórar verða þeir Ólafur B. Thors og Einar Sveinsson. Norðurlandaráðsþing: Alþingi í vikuleyfi VIKULANGT hlé verður gert á störftim Alþingis meðan á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi stendur, 27. febrúar til 3. mars. Alþingi mun ekki starfa frá 26. febrúar og fram á 4. apríl að sögn Guðrúnar Helgadóttur, for- seta sameinaðs þings. „Það er ómögulegt að halda þing- störfum gangandi meðan á Norður- landaráðsþingi stendur," sagði Guð- rún. „Ráðherramir verða meira og minna allir í Stokkhólmi og einnig sjö þingmenn, sem Alþingi kýs til setu á þinginu." í upphafi máls síns sagði Bene- dikt Sveinsson m.a.: „Það eru vissu- lega tímamót í íslensku viðskiptalífi þegar tvö af stærstu vátryggingar- félögunum taka höndum saman til þess að mynda nýtt félag sem verð- ur það traustasta á íslenska trygg- ingarmarkaðinum." Hjá Benedikt kom einnig fram að eignir hins nýja félags væru meiri en hjá nokkru öðru íslensku tryggingarfé- lagi fyrr og síðar...„þar með talið því sem borist hafa fréttir af í gær.“ Hjalti Geir Kristjánsson sagði m.a. í upphafi síns máls: „Ég vil lýsa ánægju minni með þau málalok sem hér hafa orðið er Sjóvátrygg- ingarfélagið og Almennar Trygg- ingar hf. sameinast nú í traustasta tryggingarfélag landsins. Samvinn- an við stjóm og forráðamenn Sjóvá- tryggingarfélagsins hefur verið ánægjuleg og forráðamenn beggja félaga hafa tekið þátt í undirbún- ingi hins nýja félags af einlægni..." Hjalti sagði einnig að enginn vafi léki á því að með sameining- unni væri stigið skref sem ætti eft- ir að gerbreyta íslenska tryggingar- markaðinum. Hún lýsti vel því frumkvæði sem ávallt hefði ein- kennt félögin tvö. Fyrst um sinn verða skrifstofur hins nýja félags á tveimur stöðum, það er Suðurlandsbraut 4 og Síðum- úla 39. Hinn 1. október n.k. er hins- vegar áformað að flytja starfsemina í nýtt húsnæði sem er í smíðum í Kringlunni, milli Húss verslunarinn- ar og Prentsmiðju Morgunblaðsins. Stefán Pétursson Björn Líndal Barði Árnason Landsbanki íslands: Tveir aðstoðar- bankastjórar ráðnir Starfsheiti þess þriðja breytt í aðstoð- arbankastj óri alþjóðasviðs Á ftmdi bankaráðs Landsbanka íslands í gær var ákveðið að ráða þá Stefán Pétursson og Björn Lindal aðstoðarbankastjóra. Þá sam- þykkti bankaráðið að breyta starfsheiti Barða Árnasonar framkvæmda- stjóra alþjóðasviðs bankans i aðstoðarbankastjóri alþjóðasviðs. Ráðning- ar þessar eru til 6 ára segir i frétt frá Landsbanka íslands. Stefán Pétursson hrl. lauk lög- starfaði 2 ár hjá Alþjóðabankanum fræðiprófi frá Háskóla íslands 1954. í Washington, 1986—1988. Hann Hann starfaði fyrst sem fulltrúi fræðslumálastjóra og síðan sem full- trúi bæjarfógeta í Kópavogi 1955—’58. Stefán starfaði. sjálfstætt á málflutningsskrifstofu um tíma en réðst til Landsbankans á árinu 1961. Hann hefur verið aðallögfræðingur bankans frá árinu 1966. Hann hefur átt sæti í ýmsum stjómum og nefnd- hefur starfað sem aðstoðarmaður bankastjómar Landsbankans frá sl. sumri. Bjöm er kvæntur Sólveigu Guðmundsdóttur lögfræðingi og eiga þau saman tvö böm. Barði Árnason hefur starfað í Landsbankanum í 31 ár. Hann hefur starfað í mörgum deildum bankans. Barði hefur sérstaklega kynnt sér um f.h. bankans. Hann er kvæntur Bryndísi Einarsdóttur og eiga þau 3 böm. starfsemi erlendra banka m.a. starf- aði hann eitt ár í Scandinavian Bank í London. Hann varð forstöðumaður Björn Lindal varð lögfræðingur frá Háskóla íslands árið 1981. Hann hefur starfað sem deildarstjóri i við- skiptaráðuneyti 1981—'86 og hafði umsjón með bankamálum á vegum ráðuneytisins. Bjöm átti sæti í bankamálanefnd 1983—1985, en nýrrar deildar árið 1973, sem sá um erlend viðskipti Landsbankans og síðar framkvæmdastjóri alþjóða- sviðs, sem var stofnað upp úr erlend- um viðskiptum árið 1985. Barði er kvæntur Ingrid Maríu Paulsen og eiga þau tvo syni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.